Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.10.2017, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 26.10.2017, Qupperneq 36
Þetta er sjötta greinin í flokki greina eftir þrjá sérfræðinga í stjórnskipunarrétti við lagadeild- ina í Berkeley-háskóla í Kaliforníu. Við skoðum þá gagnrýni sem stjórnar- skrárferlið á Íslandi hefur sætt og vísum henni á bug með rökstuðningi. Ennfremur hvetjum við Íslendinga til að endurskoða stjórnarskrána. Í þessari grein beinum við sjónum að gagnrýni sem varðar gæði og gerð stjórnarskrár- draga stjórnlagaráðs. Fljótlega eftir að nýja stjórnarskráin var samin heyrðust gagnrýnisraddir úr hópi íslenskra stjórnmálafræðinga og lögfræðinga sem efuðust um gæði stjórnarskrár sem óbreyttir borgarar hefðu unnið að. Við vefengjum þessar forsendur. Mikið hefur verið gert úr því að stjórnarskráin hafi verið lögð í hlut almennings („crowdsourced“) og því haldið fram að hún hafi alfarið verið skrifuð á Facebook. Það er ekki rétt. Stjórnlagaráð falaðist eftir ummælum almennings varðandi skjalið meðan það var í vinnslu, en eins og Hélène Landemore hefur bent á var framlag almennings vissulega dýrmætt en þegar öllu er á botninn hvolft hafi það „ekki verið ,almenningur sem ,samdi‘ stjórnarskrána.“ Þeir sem sátu í stjórn- lagaráði (og voru fyrst kjörnir en síðar tilnefndir af Alþingi eftir ógildingu Hæstaréttar á kosningunum) höfðu sama opinbera umboðið og tilnefndir fulltrúar á stjórnarskrárfundi Banda- ríkjanna árið 1787. Um var að ræða opinbert ferli sem Alþingi stóð fyrir, en ekki einhverja yfirlýsingu byltingar- sinna. Allar götur síðan hafa fræðimenn lagt mat á nýju stjórnarskrána og hælt henni. Sem dæmi má nefna að í skýrslu um nýju stjórnarskrána sem birtist í október 2012 (Elkins, Zachary, Ginsburg og Melton: „Úttekt á íslensku stjórnarskrárdrögunum“, háskólanum í Chicago) var talið að nýja stjórnar- skráin gæti verið í fullu gildi í 60 ár. Að sögn höfunda eru meðallífslíkur stjórnarskrár um 19 ár á hnattrænum mælikvarða. Það er mikið afrek að semja stjórnarskrá með mikilli þátt- töku almennings sem hefur þrefalt hærri lífslíkur en meðaltal stjórnaskráa. Raunar telst það hrósyrði að segja að stjórnarskráin hafi verið samin með þátttöku almennings. Ef vald ríkisstjórnar er fengið með umboði frá almenningi hlýtur þátttaka almenn- ings að stjórn ríkis að skipta sköpum fyrir trúverðugleika hennar. Í skýrsl- unni frá háskólanum í Chicago kemur fram að nýja stjórnarskráin endurspegli „verulegt framlag almennings“ og sé „vel til þess fallin að tryggja þátttöku almennings í stöðugu stjórnarferli“. Téðir fræðimenn sögðu einnig að í stjórnarskrárdrögunum birtist fram- sækin hugsun vegna þess að „þar sé á ferðinni gífurlega mikil nýbreytni og almenn þátttaka“. Árangurinn töldu þeir vera „eina merkustu stjórnar- skrá sögunnar og langt yfir meðaltali stofnana samtímans“. Það að virkja almenning tryggir að stjórnin heldur áfram að þjóna almenningi. Með þátt- töku almennings er samstaðan tryggð. Um sama leyti gerði Evrópunefnd um lýðræði og lög (Feneyjanefndin) sams konar úttekt og komst að áþekk- um niðurstöðum í áliti sem birtist í mars 2013. Lokaniðurstaðan staðfesti gildi þess að virkja almenning við að semja stjórnarskrá og jákvæð áhrif beinnar aðkomu borgaranna. Þetta álit er í mótsögn við fyrri gagnrýni þar sem fundið var að því að borgara skorti sér- þekkingu og lögfræðimenntun. Vitaskuld var álit Feneyjanefndar- innar ekki hafið yfir gagnrýni en víða er það samhljóma greiningu háskólans í Chicago. Í álitinu var reyndar bent á að sum ákvæðin væru „með mjög almennu orðalagi“ eða „of óljós og almenn“. Með almennum ákvæðum er skjalið gert sveigjanlegt og Íslend- ingum gefst færi á að skerpa á reglum þess í tímans rás. Til dæmis benti Fen- eyjanefndin á að það komi í hlut „lög- gjafans, með ítarlegri reglusetningu, að skilgreina nánar meginreglur stjórnar- skrárinnar“ að því er varðar félagsleg og efnahagsleg réttindi og þriðju kynslóð- ar réttindi. Auk þess fór Feneyjanefndin lofsamlegum orðum um stjórnarskrár- ferlið sem fól í sér „forvirkt kerfi endur- skoðunar á stjórnarskránni“, fagnaði „þeirri vinnu sem fram fór á Íslandi við að efla og bæta stjórnarskrá þjóðarinn- ar“ og lagði áherslu á að í nýju stjórnar- skránni væri lögð „áhersla á að tryggja aukið gegnsæi og skýrleika varðandi starfsemi stofnananna“. Verði nýja stjórnarskráin lögleidd hafa breytingarferli, lög frá Alþingi, dómsúrskurðir og ummæli fræði- manna, sama hlutverki að gegna við að skerpa á túlkun ákvæða hennar. Við þessu er að búast, enda er það ein- kenni stöðugs og jafnframt sveigjanlegs gernings. Engin stjórnarskrá getur náð til allra hugsanlegra kringumstæðna. Rammi fyrir ríkisstjórnina (eins og núgildandi stjórnarskrá Íslands og sú nýja) skilgreinir aðeins þær útlínur sem störf stjórnvalda skulu rúmast innan. Með gerðum framtíðarinnar verða fletirnir litaðir. Síðar voru gerðar úttektir á loka- gerðinni sem eru ítarlegri en fyrri tíma gagnrýni, þar sem einkum var einblínt á ferlið. Ekki kemur á óvart að í upphafi var hafnað hugmyndinni um stjórnar- skrárferli sem ekki væri í höndum sér- fræðinga. Nýlegri úttektir sýna gleggri mynd af íslensku stjórnarskrárdrög- unum í samanburði við önnur lönd. Hugsanlega verður nýja stjórnarskráin tekin upp í áföngum á löngum tíma, eða í heilu lagi, og kannski verða samin ný drög. Allt um það ættu Íslendingar að grípa tækifærið til þess að tryggja sér framvarðarstöðu á heimsvísu að því er varðar stjórnarskrárferli í nútímasam- félagi. Um gæði nýju íslensku stjórnarskrárinnar – sjötti hluti Flest íslensk fyrirtæki sem flytja út vörur eða þjónustu byggja ímynd sína að verulegu leyti á því að vera frá Íslandi. Hreinleiki landsins er því grundvallaratriði í verðmætasköpun í sjávarútvegi, ferðaþjónustu, landbúnaði og öðrum greinum. Að jafnaði aukast verð- mætin eftir því sem tengingin við upprunalandið Ísland er meiri. Fá ríki í heiminum eru jafn græn og Ísland. Nánast öll okkar orka kemur frá jarðhita eða fallvötnum sem er einstakt. Hafið í kringum landið er hreint og náttúran að stórum hluta ósnortin. Hér notum við hvorki vaxtarhvetjandi hormóna né sýklalyf í landbúnaði og efnanotkun er hverf- andi. Okkur hefur lánast að nýta fiski- stofnana með sjálfbærum hætti. Sam- kvæmt umhverfisvísitölu sem Yale háskóli gefur út erum við í öðru sæti yfir umhverfisvænstu þjóðir heims. Einföld greining á styrkleikum og tækifærum sýnir okkur að skyn- samlegt er að vinna áfram með þessa stöðu og verða ennþá umhverfis- vænni. Út frá heildarhagsmunum þjóðarinnar er skynsamlegt að allir Íslendingar og öll íslensk fyrirtæki stefni að því að verða eins græn og mögulegt er. Það mun einfaldlega skila fleiri krónum í kassann og fleiri störfum um allt land. Á 21. öldinni eru umhverfis-, atvinnu-, og efnahags- mál samtvinnuð. Það njóta allir Íslendingar þess sem vel er gert í umhverfismálum í formi betri árangurs í útflutningi og meiri verðmætasköpunar. Við slíkar aðstæður er hins vegar alltaf hætta á því að til verði fríþegar. Einstaka aðilar sem reyna að spara sér vinnu og útgjöld í umhverfismálum en njóta ávaxtanna. Flestir eru sammála um að hið opinbera eigi að grípa inn í við slíkar aðstæður. Fordæmi grannþjóðanna Auðvelt er að færa rök fyrir því að hinu opinbera beri að standa vörð um þau verðmæti sem felast í hreinni náttúru og jákvæðri ímynd Íslands. Þetta gera nágrannaþjóðir okkar og bæði Svíar og Norðmenn hafa lýst því yfir að ríkin verði kolefnishlut- laus fyrir 2050. Hið sama eigum við Íslendingar að gera. Líklega er ekkert vestrænt ríki sem þarf að taka jafn fá og lítil skref til að verða kolefnishlutlaust ríki eins og Ísland. Við getum bæði dregið úr losun og aukið bindingu. Raunsæ en metnaðarfull áætlun um kol- efnishlutleysi landsins í heild myndi styrkja ímynd lands og þjóðar. Við eigum ennþá möguleika á því að verða á undan nágrönnum okkar til að ná þessu takmarki. Yfirlýsing stjórnvalda um slíkt markmið mun vekja athygli um allan heim. Allt bendir til þess að mikill vilji sé hjá atvinnulífinu til að taka þátt í þessu verkefni. Íslenskir sauðfjár- bændur hafa stigið skrefið og vinna að því að kolefnisjafna greinina. Að geta selt fisk eða kjöt frá sjálfbæru og kolefnishlutlausu landi mun skila sér í beinhörðum peningum til okkar allra. Að ekki sé nú talað um öll þau tækifæri sem þetta opnar ferðaþjón- ustu og öðrum atvinnugreinum. Kol- efnisjafnað Ísland á að vera forgangs- mál okkar allra. Kolefnisjafnað Ísland Í þessum kosningum gefst okkur tækifæri að velja hvaða hug-myndafræði verður fylgt við stjórn landsins. Við höfum tækifæri til að gera upp við gamaldags vinnu- brögð sem ennþá viðgangast og stíga inn í framtíðina með betri gildi, heið- arleika og virðingu að leiðarljósi. Byggja upp samfélag með aukinni valddreifingu þar sem ríkir upplýst lýðræði. Að mynda ríkisstjórn sem samanstendur af fólki sem vinnur að almannahag, er ábyrgt í efnahags- málum en lætur þó ekki peningalega mælikvarða ráða allri ákvarðana- töku. Ríkisstjórn sem leggur áherslu á félagslegan stöðugleika ekki síður en efnahagslegan. Ég er í Samfylkingunni af því að ég er jafnaðarmaður. Ég vil frjálslynt og alþjóðlegt samfélag, sem hefur sterkt velferðarkerfi að fyrirmynd Norður- landanna. Þar sem mannúð trompar alltaf. Samfélag sem viðurkennir ekki fátækt og stjórnvöld standa eins og varðhundur um jöfn tækifæri allra óháð efnahag, stétt eða stöðu. Sam- félag þar sem skattastefnan miðar að því að dreifa gæðunum jafnar en gengur ekki út á að hinir ríku verði ríkari. Samfélag þar sem sjálfsagt er að greiða sanngjarnt gjald til þjóðar- innar vegna hagnýtingar auðlinda okkar. Samfélag sem hafnar því að auðurinn safnist á hendur fárra, sem hafnar því að eðlilegt sé að ríkustu 5% þjóðarinnar eigi jafnmikið og hin 95%. Ef við breytum ekki um stefnu mun ójöfnuður enda stigmagnast. Ég vil samfélag með betra heil- brigðiskerfi, sem tekur forystu í umhverfisvernd svo eftir sé tekið. Samfélag þar sem áherslur í atvinnu- og umhverfismálum fara saman, menntakerfið er fullfjármagnað og stutt er við lítil og meðalstór fyrir- tæki og nýsköpun. Samfélag með stöðugan gjaldmiðil, sem er forsenda langvarandi efnahagslegs stöðug- leika. Krónan er orsakavaldur hins sveiflukennda hagkerfis og vegna hennar búum við við alltof hátt vaxtastig og verðtryggingu. Þá eiga hér að ríkja almennar leikreglur fyrir öflugt og kröftugt atvinnulíf, en ekki gamaldags fyrirgreiðslupólitík. Ég vil samfélag þar sem þjóðinni er treyst til að kjósa um stór viðfangsefni svo sem um áframhaldandi aðildarvið- ræður að ESB. Samfélag sem tekur afgerandi forystu í jafnréttismálum. Samfélag sem setur sér alvöru stjórnarskrá í fyrsta skipti, skrifaða af Íslendingum en ekki Dönum sem gerir Ísland að þróuðu lýðræðisríki m.a. með að hafa grundvallaratriði lýðræðisins í lagi eins og jafnt vægi atkvæða. Ég vil samfélag sem hafnar leyndarhyggju og þöggun við með- ferð opinbers valds. Samfélag þar sem freki karlinn fær ekki lengur að stjórna. Samfélag þar sem við förum að tileinka okkur meiri auðmýkt og heiðarleika. Þar sem við hlustum meira á hjartað. Þetta er sýn okkar jafnaðarmanna. Við sækjumst eftir umboði ykkar og atkvæði til að taka pólitíska forystu. Komið með. Kjósum gott samfélag. Kjósum gott samfélag Brandon V. Stracener sérfræðingur við lagadeild Berkeley háskóla Svavar Halldórsson framkvæmda- stjóri Markaðs- ráðs kindakjöts og Icelandic lamb Eva Baldursdóttir lögfræðingur, frambjóðandi Samfylkingar- innar í Reykjavík norður 2017 Hugsanlega verður nýja stjórnarskráin tekin upp í áföngum á löngum tíma, eða í heilu lagi, og kannski verða samin ný drög. Allt um það ættu Íslendingar að grípa tækifærið til þess að tryggja sér framvarðarstöðu á heimsvísu að því er varðar stjórnarskrárferli í nútíma- samfélagi. Líklega er ekkert vestrænt ríki sem þarf að taka jafn fá og lítil skref til að verða kolefnishlutlaust ríki eins og Ísland. Við getum bæði dregið úr losun og aukið bindingu. 0 kr. fyrsti mánuðurinn! Verið vel tengd ALLT FYRIR HEIMILIÐ Síðumúla 30 - Reykjavík Hofsbót 4 - Akureyri 2 6 . o k t ó b e r 2 0 1 7 F I M M t U D A G U r24 s k o ð U n ∙ F r É t t A b L A ð I ð 2 6 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :5 4 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 1 1 -1 8 4 4 1 E 1 1 -1 7 0 8 1 E 1 1 -1 5 C C 1 E 1 1 -1 4 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.