Fréttablaðið - 01.11.2017, Blaðsíða 22
Hlutafé íslensks einkahlutafélags
sem heldur utan um rekstur raf-
myntanámu Genesis Mining á
Fitjum í Reykjanesbæ var um
miðjan október aukið um rúma 2,2
milljarða króna. Þar er
grafið eftir gjaldmiðl-
um á borð við Bitcoin
og Ether. Starfsemin á
sér einungis um þriggja
ára sögu hér á landi og
var nýverið seld til sam-
starfsfyrirtækis Genesis
sem er skráð í kanadískri
kauphöll.
Byrjuðu 2013
Forsvarsmenn Genesis Mining, sem
eins og einn viðmælandi Markaðar-
ins orðaði það, eru Þjóðverjar og
frumkvöðlar frá öðrum Evrópu-
löndum sem byrjuðu á réttum stað
og tíma, hófu að grafa eftir Bitcoin
hér á landi árið 2014. Fyrirtækið var
stofnað ári áður og rekur að þeirra
sögn starfsemi í öllum heimsálfum
og hefur stækkað mjög hratt. Marco
Streng, forstjóri móðurfélagsins
Genesis Group, hefur í viðtölum við
erlenda fjölmiðla lýst aðdáun sinni
á Íslandi og bent á að hér sé ofgnótt
vistvænnar raforku. Forstjórinn
hefur fullyrt að fyrirtækið kaupi
raforku fyrir um eina milljón evra
á mánuði, eða jafnvirði 123 millj-
óna króna, og að hann hafi áhuga
á að kaupa jarðvarmaorkuver hér
á landi.
Genesis Mining flutti síðar rekstur
sinn úr íslenska gagnaverinu Boreal-
is Data Center til Advania Data
Centers á Fitjum í Reykjanesbæ.
Gagnaverið þar heitir Mjölnir og
þegar fyrsti áfangi þess var byggður,
á einungis einum og hálfum mánuði
vorið 2014, lýsti framkvæmdastjóri
hjá Advania í samtali við Markaðinn
miklum áhuga erlendra fjárfesta
á að hefja þar Bitcoin-námastarf-
semi. Þar hefur Genesis grafið eftir
rafmyntum og boðið einstaklingum
og fjárfestum að kaupa samninga
um námugröft (e. mining con-
tracts). Þannig geta viðskiptavinir
fyrirtækisins notað tækjabúnað
Genesis til að grafa eftir rafmyntum
og þurfa ekki að kaupa sinn eigin.
Streng hefur í viðtölum ekki viljað
gefa upp hversu mikið magn gjald-
miðla náman á Suðurnesjum nær að
fanga. Þangað til í síðustu viku hafði
ekki birst viðtal við forsvarsmann
frá fyrirtækinu sem sýndi nákvæma
staðsetningu hennar. Fullyrt hefur
verið að viðskiptavinir fyrirtækisins
sé vel yfir 700 þúsund talsins.
Stærst í Ether
Útgáfa rafmynta á borð við Bitcoin
og Ether byggir á hinni svokölluðu
kubbakeðjutækni (e. blockchain
technology). Um er að ræða eins
konar dreifða skrá þar sem hægt er
að sannreyna að allar upplýsingar
innan hennar séu sannar og rétt-
ar. Þeim sem útvega nauðsynlegan
tækjabúnað, eða eins og í tilfelli
Genesis mörg þúsundir skjákorta
og annan tölvubúnað, með mikla
reiknigetu til að leysa flóknar
stærðfræðiformúlur, er launað með
nýjum rafmyntum fyrir aðstoð við
útgáfu nýrra skráa. Gjaldmiðlarnir
eru því helsti drifkrafturinn í þróun
tækninnar sem einn viðmælandi
Markaðarins fullyrðir að muni gjör-
breyta heiminum.
Fyrirtækið er samkvæmt upp-
lýsingum Markaðarins leiðandi í
þróun og námugreftri Ether, gjald-
miðils Ethereum-tækninnar. Um
byltingarkennda og nýja kynslóð
rafmyntar er að ræða sem rússneski
forritarinn Vitalik Buterin kynnti
fyrst árið 2013. Ether er þó ekki
einungis hefðbundin rafmynt eins
og Bitcoin sem byggir á kubbakeðju-
tækninni heldur einnig á kerfinu
Ethereum sem býður upp á fleiri
forritunarmöguleika. Með því er til
að mynda hægt að halda utan um
svokallaða snjallsamninga (e. smart
contracts) og ýmsa viðskiptagjörn-
inga á netinu.
Samkvæmt vefsíðu Genesis rekur
fyrirtækið stærstu Ethereum
námu heims hér á landi. Þar er að
auki hægt að fylgjast með beinni
útsendingu frá starfsstöðinni á
Fitjum. Einnig er hægt að kaupa þar
rafmyntirnar Zcash og Dash en sér-
staklega er tekið fram að samningar
um Bitcoin séu uppseldir.
Selt kanadísku félagi
Hlutafé Genesis Mining Iceland ehf.
var þann 19. október aukið úr 500
þúsunda króna lágmarkinu í 2.229
milljónir króna að nafnvirði. Þetta
kemur fram í skráningu félagsins hjá
fyrirtækjaskrá RSK.
Aftur á móti virðist
sem Genesis hafi í sept-
ember síðastliðnum
selt starfsemi sína hér
á landi til samstarfs-
fyrirtækis síns HIVE
Blockchain Techno-
logies Ltd. Hlutabréf
HIVE voru um svipað
leyti tekin til viðskipta í kanadísku
kauphöllinni TSX Venture Exchange
í kjölfar hlutafjárútboðs sem til-
kynnt var um í júní síðastliðnum. Í
tilkynningu kanadíska félagsins til
kauphallarinnar þann 10. október
segir að HIVE sé nú eigandi tækja-
búnaðarins í Reykjanesbæ og að
Genesis sé stærsti hluthafi félagsins
með um 30 prósenta hlut. Þá muni
Genesis sjá áfram um rekstur nám-
unnar í Reykjanesbæ, og fjögurra
annarra sem HIVE ætli sér að reka
í framtíðinni. Þannig verði stuðlað
að áframhaldandi þróun Ethereum
sem muni brúa bilið á milli kubba-
keðjunnar og hefðbundinna fjár-
magnsmarkaða.
Samkvæmt tilkynningum HIVE
til TSX Venture Exchange á félag-
ið einnig kauprétt á öðrum starfs-
stöðvum Genesis á Íslandi og í
Svíþjóð. Markaðurinn hefur ekki
upplýsingar um að Genesis reki
fleiri starfsstöðvar hér á landi en að
öllum líkindum er um að ræða fyrir-
liggjandi samninga um byggingu
fleiri slíkra. Helmut Rauth, nýráðinn
framkvæmdastjóri Genesis Mining,
sagðist ekki geta veitt blaðinu viðtal
sökum anna en hann er nú staddur
hér á landi. Í síðustu viku var svo
tilkynnt að HIVE hefði samið við
Genesis um byggingu nýs gagnavers
í Svíþjóð. Framleiðslugeta kanad-
íska félagsins muni þannig aukast
um 175 prósent. Marco Streng og
nokkrir aðrir forsvarsmenn Genesis
eru samkvæmt vefsíðu HIVE í sér-
stökum ráðgjafahópi félagsins.
Genesis Mining Iceland var stofn-
að í árslok 2016. Samkvæmt nýjasta
ársreikningi félagsins var tölvubún-
aður þess metinn á um 100 milljónir
króna í lok tímabilsins. Þar er þó
ekki getið um hverjir raunverulegir
eigendur félagsins eru.
Rjúka upp
Fjallað var um starfsemi Genesis
hér á landi í Quest Means Business,
sjónvarpsþætti Richard Quest á
CNN, í síðustu viku. Þáttarstjórn-
andinn heimsótti gagnaverið á Fitj-
um en fjallaði eingöngu um þann
hluta rekstursins sem
snýr að námuvinnslu
Bitcoin. Eftir að
hafa kvartað undan
hinum mikla hávaða
sem í húsnæðinu er,
sem rekja má til öfl-
ugra vifta sem sjá um
að kæla tækjabúnað-
inn, benti Quest á að markaðsvirði
rafmyntarinnar hefur aukist gríðar-
lega frá byrjun þessa árs.
Eitt Bitcoin kostaði við lokun
markaða í gær 6.390 Bandaríkjadali.
Í ársbyrjun var verðið rétt yfir 1.000
dollurum og hefur rafmyntin því
rúmlega sexfaldast í virði á einungis
tíu mánuðum. Bitcoin rauf 5.000
dollara múrinn í byrjun september.
Ether hefur hlutfallslega hækkað
umtalsvert meira á sama tímabili. Í
ársbyrjun 2017 nam markaðsvirði
eins Ethers um átta dollurum. Mynt-
in selst nú á 310 dali en fór hæst upp
í tæplega 378 um miðjan júní. Það er
því ekki að furða, eins og einn við-
mælandi Markaðarins orðaði það,
að erlendir fjárfestar komi hér upp
námum með margfalt meiri reikni-
getu en ofurtölvan sem Veðurstofa
Íslands hýsir og er langöflugasta
tölva landsins.
haraldur@frettabladid.is
Setja um 2,2 milljarða í rafmyntanámu
Eigendur námu þar sem grafið er eftir Bitcoin og Ether juku fyrr í mánuðinum hlutafé íslensks einkahlutafélags, Genesis Mining um, 2,2
milljarða króna. Starfsemin á Fitjum í Reykjanesbæ hefur vaxið hratt síðustu ár og var nýverið seld félagi skráðu í kanadískri kauphöll.
Starfsemi Genesis Mining, sem Hive Blockchain Technologies hefur keypt, er rekin í gagnaveri Advania á Fitjum í Reykjanesbæ. FRéTTABlAðið/ERniR
Þjóðverjinn Marco Streng er forstjóri
Genesis Group. SkjáSkoT/YouTuBE
Nýtt öflugt
bókhaldskerfi í skýinu
frá manninum sem færði
okkur Dynamics Ax
Prófaðu
frítt í
30 daga
www.uniconta.is
Lagast að þínum þörfum
Erik Damgaard
Stofnandi Uniconta
– Tengir þig við framtíðina!
Sjónvarpsdreifikerfi
fyrir hótel, gistiheimili og skip.
Auðbrekku 3 • Kópavogur • s. 564 1660
oreind@oreind.is • www.oreind.is
1 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 m I Ð v I K U D A G U r4 markaðurinn
0
1
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
2
0
-9
5
1
4
1
E
2
0
-9
3
D
8
1
E
2
0
-9
2
9
C
1
E
2
0
-9
1
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
3
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K