Fréttablaðið - 01.11.2017, Blaðsíða 49
Bæjarhrauni 2 | Hafnarfirði | Sími: 4370000 | hafis@hafis.is
Komdu og fáðu rjómaís og laktósafrían vegan ís
Íslenskur ís með ítalskri hefð
Tónlistarkonan Anna Tara Andrésdóttir sendir frá sér nýtt lag með Reykjavíkurdætr-
um í dag sem heitir Pussypics. Spurð
út í hvaðan hugmyndin að laginu
komi segir Anna: „Það er mjög erf-
itt fyrir mig að segja hvaðan hug-
myndin að laginu kemur, píkur eru í
raun þema sem ég hef legið yfir í um
eitt ár. Það er til svo mikið meira af
typpamyndum í heiminum en píku-
myndum. Svo er meirihluti þeirra
píkumynda á forsendum karla eins
og til dæmis úr klámi. Þannig að mér
finnst í raun vanta vettvang fyrir
píkumyndir á forsendum kvenna,“
útskýrir Anna.
Kynjajafnrétti er Önnu Töru hug-
leikið og það veitir henni innblástur
í listsköpun. „Ætli það væri ekki ein-
hvers konar mælikvarði á jafnrétti
ef konum þætti eins sjálfsagt að taka
myndir af píkunum sínum og senda
á netinu eins og körlum. Þá væri
jafnrétti kannski náð en við erum
langt frá því.“
Spurð nánar út í lagið segir Anna
Tara: „Lagið Pussypics byrjar á lín-
unni: „I wish my pussy was my face
to make the world a better place“.
Ég samdi textann og rappa í laginu
og Solveig Pálsdóttir sem er með
mér í Reykjavíkurdætrum syngur í
laginu með mér. Thorbjörn Einar
Guðmundsson gerði svo taktinn og
Bjarki Hallbergs hljóðblandaði en
þeir eru betur þekktir undir nafninu
BLKPRTY.“
Laginu fylgir svo myndband. „Ég
var svo heppin að finna eitt hug-
rakkt módel sem vill að vísu vera
nafnlaust. Myndbandið við lagið er
ein píka nánast allan tímann. Maður
veltir fyrir sér hvernig sé hægt að
gera myndband úr einni píku en ég
komst að því að það er vel hægt ef
maður „zoomar“ inn nógu oft,“ segir
hún og hlær. Þess má geta að mynd-
bandið verður gefið út á vimeo.com.
„Ég hugsa að það verði tekið út af
YouTube. Og að lokum vil ég segja að
öll gagnrýni þarf að beinast að mér,
ekki hljómsveitinni í heild, ég er ein
ábyrg fyrir þessu.“ – gha
Nýtt lag og myndband um píkur
Myndbandið við lagið Pussypics verður á Vimeo.
Það er til svo miklu
meira af typpa-
myndum í heiminum en
píkumyndum.
m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 29m i ð V i K U D A g U R 1 . n ó V e m B e R 2 0 1 7
0
1
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
2
0
-8
B
3
4
1
E
2
0
-8
9
F
8
1
E
2
0
-8
8
B
C
1
E
2
0
-8
7
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
5
6
s
_
3
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K