Fréttablaðið - 01.11.2017, Blaðsíða 52
off-venue
Varmadælur &
loftkæling
Verð frá aðeins
kr. 155.000 m.vsk
Midea MOB12
Max 4,92 kW
2,19 kW við -7° úti og
20° inni hita (COP 2,44)
f. íbúð ca 60m2.
• Kyndir húsið á
veturna og kælir á
sumrin
• Fyrir norðlægar
slóðir
• Fjarstýring fylgir
• Hægt að fá WiFi
Símaveski,
heyrnartól, snúrur
og allt fyrir
símann.
Símaveski.is, S. 517 0150 – 2. hæð Smáralind
Villikettir á Grandanum
Grandinn verður iðandi af lífi yfir
Airwaves hátíðina, Bryggjan brugg-
hús og Ægisgarður bjóða upp á
sérstaka dagskrá, fyrir utan allt
annað sem er að sækja þangað.
Að Fiskislóð 24 er til húsa hópur
skapandi fyrirtækja sem standa
fyrir sérstakri off-venue dagskrá í
tilefni af Airwaves. Þessi fyrirtæki
eru auglýsingastofan TVIST, prent-
smiðjan Reykjavík Letterpress,
arkitektastofan Stáss, Audioland,
vöruhönnunarfyrirtækið Fólk,
innanhússarkitektinn Ingibjörg
Agnes og hönnunarfyrirtækið SO
by Sonja.
„Okkur langaði að leggja okkar
af mörkum í Airwaves því það
myndast alltaf svo skemmtileg
stemming í kringum hátíðina.
Staðsetning Fiskislóðarinnar
er frábær því við erum í göngu-
færi við helstu staði á Airwaves.
Við tengjumst tónlist mikið í
starfsumhverfi okkar. Þetta var
of upplagt til að sleppa því,“ segir
Sunna Ben, starfsmaður TVIST og
talsmaður Villikattarins.
nokkrir spennandi
tónleikar
Bátapartí Við reykjaVíkurhöfn
Ferðaþjónustufyrirtækið Special
tours býður í heldur óvenjulega
tónleika – en þeir verða um borð í
bátnum Andreu. Þetta er ákaflega
heppilegt fyrir fólk sem er orðið
leitt á því að horfa á tónleika
standandi inni í eða fyrir utan
byggingar, sem á líklega við marga.
Einnig er þetta skemmtileg til-
breyting fyrir alla, jafnvel sjóveika,
því að Andrea liggur við bryggju og
er ólíklegt að hún fari nokkuð.
Dagskráin hefst á fimmtu-
daginn og er henni fylgt eftir með
partíi á Reykjavík Röst. Meðal lista-
manna sem koma fram um borð
eru Ragga Gröndal, Gleðikonurnar
og Högni, en hann var einmitt
að senda frá sér plötu fyrir ekki
margt löngu sem hefur verið að fá
frábæra dóma.
stefanthor@frettabladid.is
listaháskólinn
með öðruVísi nálGun
Mastersnemar í tónlist við Listahá-
skóla Íslands gera sér lítið fyrir og
hræra í gott off-venue í Skipholti 31.
Dagskráin verður nokkuð óhefð-
bundin, svona miðað við aðra off-
venue tónleika, og afar fjölbreytt í
ofanálag.
Meðal sem verður í boði er hljóð-
færasmiðja fyrir yngri kynslóðina
þar sem börn eiga þess kost að fá
að læra á hljóðfæri undir hand-
leiðslu mastersnemanna (og ann-
arra). Þátttakendum er svo boðið í
tónsmíðaverkefni eftir kennsluna.
Einnig verður ráðist í skapandi verk-
efni í boði Rauða krossins þar sem
hælisleitendur og nemendur taka
höndum saman og spila heims-
tónlist.
listasýninG oG tónleikar
Grapevine sýnir bestu forsíður sínar
í Galleríi Porti í tilefni Airwaves
hátíðarinnar. Blaðið leggur ávallt
mikið upp úr umfjöllun sinni
um hátíðina enda troðfyllist
borgin af erlendum tónlistar-
áhugamönnum sem vantar
smá leiðsögn og að sama
skapi leggur Grapevine
alltaf mikið í að hafa flottar
forsíður á blaðinu yfir
hátíðina. Svo flottar að nú
fá þær að hanga á veggjum
gallerís.
Auðvitað verður líka tónlist í
boði í Gallerís Ports. Í dag munu
Mighty Bear og Án taka lagið en á
fimmtudaginn er það Sóley.
kVennafans á sólon
Á Sólon eru hlutirnir teknir alla leið
– en það eru einungis konur sem
koma þar fram. Dagskráin er
sérstaklega glæsileg blanda
af spennandi íslenskum
listakonum sem og er-
lendum.
Í dag koma fram
Alexandria Maillot frá
Kanada, I Am Soyuz frá Sví-
þjóð, eif frá Danmörku og
svo sigurvegarar músíktil-
rauna, Be tween Mountains.
Á föstudaginn er rappið í aðal-
hlutverki en fram koma meðal
annarra Krakk & Spaghettí, Fever
Dream og ALVIA Islandia.
Svokallaðir off-venue
tónleikar í kringum
Iceland Airwaves eru
löngu orðnir fastur
liður hátíðarinnar.
Mikil stemming er
í kringum það hjá
mörgum að ganga
á milli slíkra tón-
leika. Hér eru nokkur
spennandi off-venue
sem Lífið er spennt
fyrir.
off-Venue daGskráin
í ár er líkleGa ein sú
stærsta frá upphafi en hún
fer fram á yfir 30 stöðum,
þar á meðal í hafnarfirði
oG á akureyri. það Virðast
allir sem hafa aðGanG að
húsnæði oG þekkja nokkra
tónlistarmenn halda
off-Venue tónleika í ár.
1 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 m I Ð v I K U D A G U r32 l í f I Ð ∙ f r É T T A b l A Ð I Ð
Lífið
0
1
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
2
0
-7
2
8
4
1
E
2
0
-7
1
4
8
1
E
2
0
-7
0
0
C
1
E
2
0
-6
E
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
3
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K