Fréttablaðið - 06.11.2017, Side 2
Veður
Suðaustan stormur norðaustantil
á landinu fram að hádegi og slydda
eða rigning, en annars suðlæg átt,
8-13 m/s og skúrir eða él. Léttir til
fyrir norðan þegar líður á daginn.
sjá síðu 18
LISSABON
16. nóvember í 3 nætur
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
. Frá kr.
64.995
m/morgunmat
Borgarferð til
Hitaði rækilega upp í Valshöllinni
Mannlíf „Ég fer bara niður í Laugar-
dal í tjald, það er ekkert annað að
gera,“ segir Sigurbjörg Hlöðversdóttir,
íbúi í Hátúni 10, sem fyrir helgi fékk
bréf frá Brynju, hússjóði Öryrkja-
bandalags Íslands, þess efnis að hún
þyrfti að hafa sig þaðan á brott fyrir
1. desember næstkomandi. Ástæðan
er að Sigurlaug hefur búið þar með
lítinn pomeranian-hund sem er
henni allt.
Gæludýrahald í öryrkjablokk-
unum í Hátúni var bannað árið
2015 – vegna fjölda kvartana, að
sögn forsvarsmanna Brynju. Bannið
vakti hörð viðbrögð á sínum tíma
og reyndist mörgum íbúum áfall.
Margir íbúanna hafa þó haldið gælu-
dýr í blokkunum síðan enda hafa
þeir sagt dýrin sér lífsnauðsynleg.
Dýrin hjálpi þeim mjög að rjúfa
félagslega einangrun og einsemd.
Ekki hafa þó allir verið svo heppnir
að vera látnir afskiptalausir með dýr
sín. Sigurbjörg kveðst gjörsamlega
miður sín enda komi ekki til greina
af hennar hálfu að losa sig við hund-
inn Hroll, sem sé ljósið í lífi hennar.
Hún flutti í Hátún 10 í febrúar
síðastliðnum og fékk þá sex mánaða
reynslusamning eins og tíðkast. „En
þegar kom að því að framlengja í
september fékk ég bara þrjá mán-
uði, af því að ég er með þennan
litla hund. Svo fékk ég bréf í póst-
kassann í síðustu viku þar sem mér
er sagt að ég verði að koma mér út
1. desember, losa íbúðina og skila
lyklunum.“
Aðspurð hvort henni sé gefinn
kostur á að losa sig við hundinn og
halda íbúðinni segir hún svo vera.
„Jú, ég má losa mig við hann en ég
losa mig ekki við hann frekar en þetta
væri barnið mitt. En þar sem ég neita
því þá eru svörin bara: Út með þig.
Þessi hundur gerir ekki neitt. Þetta er
lítið þriggja kílóa dýr. Það eru aðrir
hundar hér og kettir en enginn annar
hefur fengið svona bréf.“
Sigurbjörg kveðst hafa leitað til
lögfræðings ÖBÍ en fengið þau svör
að hússjóðurinn sé í rétti enda hús-
reglurnar skýrar. Tíðindin reyndust
henni verulegt áfall.
„Þetta eru húsreglur og allt í góðu
með það en það er ekkert svigrúm til
samvinnu. Ég hef bent á að hér eru
þrjár blokkir í Hátúni, af hverju má
ekki ein þeirra leyfa dýr?“
Hún segir hundinn Hroll vinsælan
hjá nágrönnum hennar.
„Það er ekkert ofnæmi eða kvartan-
ir. Fólkinu hérna þykir svo vænt um
hundinn. Það grætur af gleði yfir að
fá að klappa honum,“ segir Sigurbjörg
sem kveðst hafa farið með hundinn
til foreldra sinna í Hveragerði á dög-
unum þar sem hún hafi verið andlega
búin á því. mikael@frettabladid.is
Öryrkja hent út fyrir
hundahald í Hátúni
Sigurbjörg Hlöðversdóttir óttast að enda í tjaldi í Laugardal eftir að Brynja, hús-
sjóður ÖBÍ, tilkynnti henni um mánaðamótin að hún þyrfti að afhenda íbúð
sína í Hátúni 10 fyrir 1. desember. Sigurbjörg hefur búið þar með besta vini
sínum, hundinum Hrolli, síðan í febrúar en dýrahald er bannað í blokkunum.
Niðurbrotin. Sigurlaug Hlöðversdóttir þarf að hafa sig á brott úr íbúðinni í
Hátúni 10 vegna hundahalds. Fréttablaðið/ErNir
Hundurinn Hrollur. Fréttablaðið/aðSENd
veður Rafmagn fór af á nokkrum
svæðum á höfuðborgarsvæðinu í gær-
kvöldi eftir að eldingu laust niður. Við
það sló út línu á Reykjanesi. Þrumur og
eldingar eru fylgifiskur þess þegar skil
lægðar eins og þeirrar sem olli usla í
gær gengur yfir landið.
Það er búið að vera svolítið af eld-
ingaveðri á Suðurnesjum líka og slá út
einhverjum kerfum,“ segir Þorsteinn
V. Jónsson veðurfræðingur. Hann
reiknaði með að það ætti að draga úr
gerningaveðrinu eftir að skilin ganga
yfir landið.
„Það er mikill óstöðugleiki í skil-
unum og þar myndast svona miklir
skúra klakkar og éljabakkar. Þeim
fylgir eldingaveður sem væntanlega
dregur eitthvað úr þegar skilin eru
farin yfir.“
Þrumurnar vöktu mikla athygli á sam-
félagsmiðlum, enda ekki á hverjum
degi sem Íslendingar verða vitni af
slíkri flugeldasýningu. – khn
Rafmagnsleysi í
gerningaveðrinu
veður Á þriðja hundrað björgunar-
sveitarmenn sinntu margvíslegum
útköllum á höfuðborgarsvæðinu,
Suðurnesjum, Suðurlandi, Vestur-
landi og Vestfjörðum í stormviðrinu
sem gekk yfir landið í gær. 150 útköll
höfðu borist aðgerðarstjórn á höfuð-
borgarsvæðinu á níunda tímanum í
gærkvöldi en björgunarsveitir á lands-
vísu höfðu á sama tíma sinnt rétt rúm-
lega þrjú hundruð verkefnum.
Björgunarsveitir höfðu í nógu að
snúast við að sinna hefðbundnum
stormverkefnum á borð við lausar
þakplötur, hjólhýsi sem voru til vand-
ræða, fljúgandi trampolín og skilti af
ýmsum toga auk þess sem margvís-
legir munir og byggingarefni af fram-
kvæmdasvæðum fóru á ferð.
Vegunum undir Hafnarfjalli, Mos-
fellsheiði, Gjábakkavegi og Fróðár-
heiði var lokað og gerðu viðbragðsá-
ætlanir ráð fyrir frekari lokunum eftir
veðri.
En það var ekki aðeins á láði sem
veðurofsinn kom niður á ferðatil-
högunum fólks heldur einnig í lofti.
Stormurinn raskaði áætlanaflugi
flugfélaganna og minnst átta þúsund
farþega á Íslandi, Evrópu og Banda-
ríkjunum.
Í dag gera spár þó ráð fyrir því að
þessi fyrsti meiriháttar veðurhvellur
vetrarins verði genginn yfir og gerir
Veðurstofa Íslands ráð fyrir suðlægri
átt, 8-13 m/s og skúrum eða éljum.
Það léttir til fyrir norðan þegar líður
á daginn. Á hádegi hlýnar í veðri, hiti
verður á bilinu 0-5 gráður en það
kólnar með kvöldinu. – smj
Hið versta
gengið yfir
Það var erfitt að standa í lappirnar
við Hörpu í gær. Fréttablaðið/ErNir
Húsvíkingurinn knái, Axel Flóvent, hitaði upp fyrir bresku stórsveitina Mumford & Sons í Valshöllinni á Iceland Airwaves-tónlistarhátíðinni í gær-
kvöldi. Axel heillaði viðstadda með angurværum tónum sem aflað hafa honum nokkrum vinsældum undanfarin misseri. Fréttablaðið/ErNir
6 . n ó v e M b e r 2 0 1 7 M á n u D a G u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
0
6
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:5
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
2
6
-6
2
0
8
1
E
2
6
-6
0
C
C
1
E
2
6
-5
F
9
0
1
E
2
6
-5
E
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
5
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K