Fréttablaðið - 06.11.2017, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 06.11.2017, Blaðsíða 11
Superb skarar fram úr á mörgum sviðum. Hann er gríðarlega rúmgóður enda með stærsta innanrýmið og skottið í sínum flokki. Byltingarkennd hönnun, hámarksþægindi og tæknimöguleikar auka enn á styrkleika hans. Komdu og prófaðu nýjan Superb. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ SUPERB KEMUR STERKUR INN Í EFSTU DEILD SUPERB. FLAGGSKIPIÐ Í ŠKODA FJÖLSKYLDUNNI. www.skoda.is ŠKODA SUPERB frá: 4.690.000 kr. Það er að minnsta kosti einn í hverri fjölskyldu. Margir eru á besta aldri. Urðu að hætta að vinna eða fara í léttari störf fyrr en þeir ætluðu sér. Þetta er stór hópur, um 25 þúsund manns. Um það bil jafn margir og búa á öllu norðausturlandi. Þeir eiga það sameiginlegt að lifa með afleið- ingum af hjarta- eða æðasjúkdómi sem þeir fengu fyrir aldur fram. Sjúkdómi sem er ólæknandi og þeir lifa með afleiðingum hans það sem eftir er. Við þekkjum þennan sjúkdóm. Við höfum rannsakað hann í marga áratugi. Við vitum að hann kemur frekar fyrir hjá fólki sem reykir, er með háar blóðfitur í blóði, háþrýsting eða sykursýki. Hann hefur tilhneigingu til að koma meira fyrir í sumum fjöl- skyldum en öðrum. Við vitum líka að þeir þættir sem stuðla að hjarta- og æðasjúkdómum eru að miklu leyti í okkar eigin höndum að stjórna. Með heilbrigðum lífs- stíl, reglubundinni hreyfingu og fjölbreyttu og hollu mataræði má sennilega koma í veg fyrir stærstan hluta þessara sjúkdóma. Verulegur árangur Það hefur náðst verulegur árangur. Nýjum tilfellum kransæðastíflu hefur fækkað um 80% á síðustu þremur áratugum og dauðsföllum hefur fækkað ennþá meira. Þetta skýrist að mestu af því að reykinga- mönnum hefur fækkað, blóðþrýst- ingur hefur lækkað og kólesteról í blóði hefur lækkað hjá þjóðinni. Horfur þeirra sem fá hjartaáfall eru sömuleiðis mun betri í dag en þær voru fyrir tveimur til þremur ára- tugum. Sífellt fleiri lifa fram á efri ár með afleiðingum áfallanna. Það veldur ekki aðeins aukinni byrði langvinnra sjúkdóma á samfélagið heldur er um að ræða varanlega færniskerðingu og skert lífsgæði þessara einstaklinga sem hafa orðið fyrir hjarta- og æðasjúkdómum. Hvað er til ráða? Hvernig getum við komið í veg fyrir að fólk á besta aldri veikist af hjarta- og æðasjúk- dómum? Hjartavernd hefur útbúið áhættureikni sem metur líkurnar á því að ákveðinn einstaklingur fái kransæðasjúkdóm á næstu 10 árum. Þessi áhættureiknir finnur þá sem eru í mikilli áhættu og þá má beita forvarnaaðgerðum til að draga úr þeirri áhættu. Hins vegar er stór hópur fólks sem mælist í meðal- eða lítilli áhættu með þessu áhættumati og fær því enga sér- staka forvarnameðferð. Þó svo að áhætta hvers og eins í þessum hópi sé ekki há, þá eru þeir svo yfirgnæf- andi margir að umtalsverður fjöldi þeirra sem fá kransæðastíflu er úr þeirra hópi. Nýr áhættureiknir Til að bregðast við þessu og greina æðakölkunarsjúkdóminn á frum- stigi hefur Hjartavernd útbúið nýjan áhættureikni sem er betr- umbætt útgáfa af hinum fyrri. Nýi áhættureiknirinn er næmari leið til að greina forstig æðasjúkdóms með því að beita í völdum tilvikum ómskoðun af hálsæðum. Það er ódýr rannsókn sem ekki kostar neina geislun og er óþægindalítil. Greinist æðakölkun í hálsæðum eru verulegar líkur fyrir því að sjúk- dómurinn finnist einnig í krans- æðum. Með því að beita einfaldri lyfjameðferð með hjartamagnýl og blóðfitulækkandi lyfjum má hefta framrás sjúkdómsins og draga úr líkum á áföllum í framtíðinni. Hjartavernd er nú að hefja for- varnaátak í samvinnu við heilsu- gæslustöðvar um allt land. Fyrir- hugað er að allir heilsugæslulæknar geti mælt og metið heilbrigða ein- staklinga með þessum hætti þegar þeir leita til heilsugæslunnar. Í þeim tilvikum þegar æðakölkun greinist má beita fyrrnefndri lyfja- meðferð sem bætir horfur einstakl- ingsins. Þessi nálgun hefur aldrei verið reynd áður í heiminum. Rannsóknir okkar í Hjartavernd benda þó til þess að það sé tíma- bært að stíga þetta skref til þess að sú þekking sem við höfum tekið þátt í að skapa um tilurð hjarta- og æðasjúkdóma verði hagnýtt í þágu þjóðarinnar. Landssöfnun Til að fjármagna þetta átak efnir Hjartavernd til landssöfnunar 17. nóvember nk. undir kjörorðinu „Heilbrigt hjarta á nýrri öld“. Verndari söfnunarinnar er forseti Íslands, Dr. Guðni Th. Jóhannes- son. Söfnunin er unnin í samvinnu við 365 miðla og með stuðningi fjölmargra einstaklinga og fyrir- tækja á landinu. Við sem að þessu forvarnaátaki stöndum berum þá von í brjósti að með þessari aðferðarfræði megi viðhalda heil- brigði landsmanna og draga úr ótímabærum dauðsföllum og lang- vinnum veikindum af völdum sjúk- dóma sem má í flestum tilvikum koma í veg fyrir. Það er einn í hverri fjölskyldu Karl Andersen prófessor og for- maður stjórnar Hjartaverndar Við sem að þessu forvarna- átaki stöndum berum þá von í brjósti að með þessari aðferðarfræði megi viðhalda heilbrigði landsmanna og draga úr ótímabærum dauðs- föllum og langvinnum veik- indum af völdum sjúkdóma sem má í flestum tilvikum koma í veg fyrir. S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11M Á n u D A G u R 6 . n ó v e M B e R 2 0 1 7 0 6 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :5 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 2 6 -6 2 0 8 1 E 2 6 -6 0 C C 1 E 2 6 -5 F 9 0 1 E 2 6 -5 E 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 5 _ 1 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.