Fréttablaðið - 06.11.2017, Síða 11
Superb skarar fram úr á mörgum sviðum. Hann er gríðarlega rúmgóður enda með
stærsta innanrýmið og skottið í sínum flokki. Byltingarkennd hönnun, hámarksþægindi
og tæknimöguleikar auka enn á styrkleika hans. Komdu og prófaðu nýjan Superb.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
SUPERB KEMUR STERKUR
INN Í EFSTU DEILD
SUPERB. FLAGGSKIPIÐ Í ŠKODA FJÖLSKYLDUNNI.
www.skoda.is
ŠKODA SUPERB frá:
4.690.000 kr.
Það er að minnsta kosti einn í hverri fjölskyldu. Margir eru á besta aldri. Urðu að hætta
að vinna eða fara í léttari störf fyrr
en þeir ætluðu sér. Þetta er stór
hópur, um 25 þúsund manns. Um
það bil jafn margir og búa á öllu
norðausturlandi. Þeir eiga það
sameiginlegt að lifa með afleið-
ingum af hjarta- eða æðasjúkdómi
sem þeir fengu fyrir aldur fram.
Sjúkdómi sem er ólæknandi og
þeir lifa með afleiðingum hans það
sem eftir er.
Við þekkjum þennan sjúkdóm.
Við höfum rannsakað hann í
marga áratugi. Við vitum að hann
kemur frekar fyrir hjá fólki sem
reykir, er með háar blóðfitur í
blóði, háþrýsting eða sykursýki.
Hann hefur tilhneigingu til að
koma meira fyrir í sumum fjöl-
skyldum en öðrum. Við vitum
líka að þeir þættir sem stuðla að
hjarta- og æðasjúkdómum eru að
miklu leyti í okkar eigin höndum
að stjórna. Með heilbrigðum lífs-
stíl, reglubundinni hreyfingu og
fjölbreyttu og hollu mataræði má
sennilega koma í veg fyrir stærstan
hluta þessara sjúkdóma.
Verulegur árangur
Það hefur náðst verulegur árangur.
Nýjum tilfellum kransæðastíflu
hefur fækkað um 80% á síðustu
þremur áratugum og dauðsföllum
hefur fækkað ennþá meira. Þetta
skýrist að mestu af því að reykinga-
mönnum hefur fækkað, blóðþrýst-
ingur hefur lækkað og kólesteról í
blóði hefur lækkað hjá þjóðinni.
Horfur þeirra sem fá hjartaáfall eru
sömuleiðis mun betri í dag en þær
voru fyrir tveimur til þremur ára-
tugum. Sífellt fleiri lifa fram á efri
ár með afleiðingum áfallanna. Það
veldur ekki aðeins aukinni byrði
langvinnra sjúkdóma á samfélagið
heldur er um að ræða varanlega
færniskerðingu og skert lífsgæði
þessara einstaklinga sem hafa orðið
fyrir hjarta- og æðasjúkdómum.
Hvað er til ráða? Hvernig getum
við komið í veg fyrir að fólk á besta
aldri veikist af hjarta- og æðasjúk-
dómum? Hjartavernd hefur útbúið
áhættureikni sem metur líkurnar
á því að ákveðinn einstaklingur
fái kransæðasjúkdóm á næstu 10
árum. Þessi áhættureiknir finnur
þá sem eru í mikilli áhættu og þá
má beita forvarnaaðgerðum til að
draga úr þeirri áhættu. Hins vegar
er stór hópur fólks sem mælist í
meðal- eða lítilli áhættu með þessu
áhættumati og fær því enga sér-
staka forvarnameðferð. Þó svo að
áhætta hvers og eins í þessum hópi
sé ekki há, þá eru þeir svo yfirgnæf-
andi margir að umtalsverður fjöldi
þeirra sem fá kransæðastíflu er úr
þeirra hópi.
Nýr áhættureiknir
Til að bregðast við þessu og greina
æðakölkunarsjúkdóminn á frum-
stigi hefur Hjartavernd útbúið
nýjan áhættureikni sem er betr-
umbætt útgáfa af hinum fyrri. Nýi
áhættureiknirinn er næmari leið
til að greina forstig æðasjúkdóms
með því að beita í völdum tilvikum
ómskoðun af hálsæðum. Það er
ódýr rannsókn sem ekki kostar
neina geislun og er óþægindalítil.
Greinist æðakölkun í hálsæðum
eru verulegar líkur fyrir því að sjúk-
dómurinn finnist einnig í krans-
æðum. Með því að beita einfaldri
lyfjameðferð með hjartamagnýl og
blóðfitulækkandi lyfjum má hefta
framrás sjúkdómsins og draga úr
líkum á áföllum í framtíðinni.
Hjartavernd er nú að hefja for-
varnaátak í samvinnu við heilsu-
gæslustöðvar um allt land. Fyrir-
hugað er að allir heilsugæslulæknar
geti mælt og metið heilbrigða ein-
staklinga með þessum hætti þegar
þeir leita til heilsugæslunnar. Í
þeim tilvikum þegar æðakölkun
greinist má beita fyrrnefndri lyfja-
meðferð sem bætir horfur einstakl-
ingsins. Þessi nálgun hefur aldrei
verið reynd áður í heiminum.
Rannsóknir okkar í Hjartavernd
benda þó til þess að það sé tíma-
bært að stíga þetta skref til þess að
sú þekking sem við höfum tekið
þátt í að skapa um tilurð hjarta- og
æðasjúkdóma verði hagnýtt í þágu
þjóðarinnar.
Landssöfnun
Til að fjármagna þetta átak efnir
Hjartavernd til landssöfnunar 17.
nóvember nk. undir kjörorðinu
„Heilbrigt hjarta á nýrri öld“.
Verndari söfnunarinnar er forseti
Íslands, Dr. Guðni Th. Jóhannes-
son. Söfnunin er unnin í samvinnu
við 365 miðla og með stuðningi
fjölmargra einstaklinga og fyrir-
tækja á landinu. Við sem að þessu
forvarnaátaki stöndum berum
þá von í brjósti að með þessari
aðferðarfræði megi viðhalda heil-
brigði landsmanna og draga úr
ótímabærum dauðsföllum og lang-
vinnum veikindum af völdum sjúk-
dóma sem má í flestum tilvikum
koma í veg fyrir.
Það er einn í hverri fjölskyldu
Karl Andersen
prófessor og for-
maður stjórnar
Hjartaverndar
Við sem að þessu forvarna-
átaki stöndum berum þá
von í brjósti að með þessari
aðferðarfræði megi viðhalda
heilbrigði landsmanna og
draga úr ótímabærum dauðs-
föllum og langvinnum veik-
indum af völdum sjúkdóma
sem má í flestum tilvikum
koma í veg fyrir.
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11M Á n u D A G u R 6 . n ó v e M B e R 2 0 1 7
0
6
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:5
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
2
6
-6
2
0
8
1
E
2
6
-6
0
C
C
1
E
2
6
-5
F
9
0
1
E
2
6
-5
E
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
5
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K