Fréttablaðið - 06.11.2017, Blaðsíða 10
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kjartan Hreinn Njálssson kjaranh@frettabladid.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili
á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105
reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Jo
hn
P
ed
en
©
2
01
5
KVÖLDSTUND MEÐ
PAT METHENY
ANTIO SANCHEZ · LINDA MAY HAN OH · GWILYM SIMCOCK
17. NÓVEMBER í ELDBORG
MIÐASALA
TIX.IS, HARPA.IS OG
Í SÍMA 528 5050
Kosningar til Alþingis eru nú nýafstaðnar og sveita-stjórnarkosningar eru á næsta ári. Þá er tímabært að skoða hvernig almenningur mótar sér skoðanir í
aðdraganda kosninga.
Allskyns upplýsingum og áróðri var dreift nafnlaust
með það að markmiði að hafa áhrif á kjósendur. Þá
sáu margir Íslendingar áminningu í fréttaveitu sinni á
Facebook að það væri kjördagur á Íslandi. Áminningin
birtist þó ekki í fréttaveitum allra kjósenda. Notendur eru
misvirkir á Facebook og nota yngri kjósendur gjarnan
aðra samfélagsmiðla frekar. Það er áhugavert að skoða
áminninguna í samhengi við rannsókn sem gerð var árið
2010 í Bandaríkjunum. Þá gerði Facebook rannsókn á
áhrifum þess að minna notendur sína á kosningarnar í
fréttaveitu sinni. Facebook sendi 60 milljónum kosninga-
bærra Bandaríkjamanna áminningu um kosningarnar.
Niðurstöður voru þær að kjósendur sem fengu áminningu
í fréttaveitunni voru 0,14% líklegri til að kjósa en aðrir
notendur.
Segja má að 0,14% sé ekki há tala. En ef talan er sett í
samhengi þá munaði einungis 537 atkvæðum á forseta-
frambjóðendunum Gore og Bush í Flórída fylki árið 2000
þegar Bush var kjörinn forseti. Hér á Íslandi geta aðeins
nokkur atkvæði skipt sköpum vegna fámennisins.
Niðurstöðurnar þykja athyglisverðar, enda sýna þær
mátt Facebook og hvernig einföld áminning getur haft
áhrif á kosningaþátttöku. Ef vald samfélagsmiðils er svo
mikið hlýtur að þurfa að skoða hvaða hópar eru líklegri
til að nota Facebook að staðaldri og fá slíka áminningu á
kjördag. Það skiptir verulegu máli.
Auðvitað er það jákvætt að notaðar séu margvís-
legar leiðir til að auka kosningaþátttöku og til að miðla
upplýsingum svo að kjósendur geti gert upp hug sinn.
En rannsóknir sýna að ómerkt skilaboð og áróður sem
miðlað er til fólks getur verið skaðlegur. Það er líka ógagn-
sætt hvernig samfélagsmiðlar forgangsraða efni og aug-
lýsingum í fréttaveitum notenda. Samfélagsmiðlar líkt og
fjölmiðlar hafa mikið vald. Það er kominn tími til ræða af
alvöru hlutverk og skyldur þeirra í aðdraganda kosninga.
Áhrif samfélagsmiðla
á lýðræðið
Samfélags-
miðlar líkt
og fjölmiðlar
hafa mikið
vald. Það er
kominn tími
til ræða af
alvöru
hlutverk og
skyldur
þeirra í
aðdraganda
kosninga.
Elfa Ýr
Gylfadóttir
framkvæmda-
stjóri fjölmiðla-
nefndar
Það væri
óneitanlega
skemmtilega
kaldhæðið ef
upp rynni
tími slíkra
breytinga að
loknum
kosningum
þar sem
konur og
frjálslyndi
áttu undir
högg að
sækja.
Það er skemmtilegt að fylgjast með stjórnar-myndunarviðræðum úr hæfilegri fjarlægð. Fjarlægðin er reyndar lykilatriði í þessu samhengi því auðvitað hlýtur að vera erfitt að setja saman ríkisstjórn fjögurra flokka með
afar ólíkar áherslur í ýmsum stórum málum sem varða
framtíð og velferð þjóðarinnar, ekki síst þegar til lengri
tíma er litið. En það sem er þó ekki síður forvitnilegt er
að sjá hvernig samhliða myndun ríkisstjórnar virðist
myndun stjórnarandstöðu einnig vera í burðarliðnum
þó svo það sé eðlilega ekki með jafn afgerandi hætti.
Það sem einkum vekur athygli í því samhengi eru ólík
viðbrögð flokksleiðtoga og talsmanna þeirra flokka
sem stefnir í að verði í stjórnarandstöðu að ógleymdum
sérfræðingum úr ólíkum áttum. Þar virðist reyndar
afstaða karlanna skera sig nokkuð frá afstöðu kvenna.
Karlarnir virðast eiga erfiðara með að sjá það fyrir sér
að ríkisstjórn án þeirra geti mögulega átt eftir að ganga
vel en minna fer fyrir hrakspám kvenna í þessu sam-
hengi.
Þar fer reyndar fremst í flokki Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, sem átti einkar
forvitnilegt spjall við Heimi Má Pétursson, fréttamann
Stöðvar 2, í þættinum Víglínan síðastliðinn laugardag.
Þar lýsti Þorgerður Katrín yfir vilja Viðreisnar til þess að
vera öðruvísi stjórnarandstöðuflokkur en Íslendingar
hafi áður séð að störfum og eiga þannig sinn þátt í því
að breyta starfsháttum Alþingis til betri vegar. Að leggja
megináherslu á málefnalegt starf á kjörtímabilinu og
að hún sjái það vel fyrir sér að geta stutt ýmis mál á
vegum væntanlegrar ríkisstjórnar en muni með sama
hætti kalla eftir stuðningi stjórnarliða við góð mál sem
stjórnarandstaðan hafi fram að færa og hleypi þeim
málum í gegn.
Í máli Þorgerðar Katrínar kom einnig fram ákall eftir
breyttum og stórbættum vinnubrögðum á Alþingi.
Þessi umræða er óneitanlega ekki ný af nálinni, hefur
reyndar oft verið fyrirferðarmikil á síðustu árum og
jafnvel áratugum, en að kallað sé eftir henni með þeim
sáttatón sem er að finna í nálgun Þorgerðar Katrínar
vekur óneitanlega vonir um betri tíð í íslenskum stjórn-
málum. Vonir um að góð málefni er varða heildarhags-
muni eigi greiðari leið í gegnum þingið og jafnvel um
að breiðari samstaða geti myndast gegn þeim sér-
hagsmunum og leyndarhyggju sem hafa leikið íslensk
stjórnmál og íslenskt samfélag svo grátt um langa hríð.
Það væri óneitanlega skemmtilega kaldhæðið ef
upp rynni tími slíkra breytinga að loknum kosningum
þar sem konur og frjálslyndi áttu undir högg að sækja.
Takist Katrínu Jakobsdóttur að mynda fjögurra flokka
stjórn og leiða hana til góðra verka þá mun hún þurfa
á slíkum framförum að halda. Framförum sem felast í
breyttum og bættum vinnubrögðum og vel má sjá fyrir
sér að nafna hennar Þorgerður Katrín komi til með að
leiða það starf með góðu fordæmi úr ranni stjórnarand-
stöðunnar. Slíkt Katrínaþing gæti orðið stórmerkilegt
framfaraskref fyrir íslensk stjórnmál sem þjóðin gæti
búið að um langa framtíð.
Katrínaþing
Paradísarmissir
Með birtingu Paradísar-
skjalanna fáum við enn á ný
innsýn í það hvernig milljarða-
mæringar, heimsleiðtogar og
stórfyrirtæki fela auð sinn fyrir
okkur hinum. Í gögnunum er
að finna sláandi upplýsingar
um það hvernig hið svokallaða
1% notar lágskattasvæði til
að fela slóð sína og efnast enn
frekar.
Ekkert gefur til kynna að
þetta góða fólk hafi brotið lög,
en öll hafa þau farið á svig við
það sem kalla má gott siðferði.
Sjálf Elísabet Bretadrottning
hefur gerst sek um þennan sið-
ferðisbrest. Það sama má segja
um fjöldamörg trúfélög sem
geyma auðævi sín í skatta-
skjólum.
Prentfrelsið
Þessi sami hópur – hinir
ofurríku og ofur áhrifamiklu
– er einmitt skipaður þeim
einstaklingum sem nú herja á
blaðamannastéttinni og grafa
undan henni með tilhæfu-
lausum lögsóknum, dylgjum og
hótunum.
Traust blaðamennska og
óhræddir blaðamenn eru
þeirra helsti óvinur (ásamt
sköttum greinilega) og þau vita
vel hvað felst í því þegar hin 99
prósentin fá tækifæri til að taka
upplýsta ákvörðun og segja
hingað og ekki lengra.
kjartanh@frettabladid.is
6 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 m Á n U D A G U r10 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
SKOÐUN
0
6
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:5
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
2
6
-7
0
D
8
1
E
2
6
-6
F
9
C
1
E
2
6
-6
E
6
0
1
E
2
6
-6
D
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
5
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K