Fréttablaðið - 14.11.2017, Page 2

Fréttablaðið - 14.11.2017, Page 2
Veður Vestlæg átt í dag og víða él, en bjartviðri fyrir austan. Lægir heldur vestanlands um kvöldið. Hiti kringum frostmark. sjá síðu 20 Augnablikið fangað ® skipulagsmál „Það er verulegt ónæði af þessu og rúturnar koma á öllum tímum sólarhringsins, þrem- ur metrum frá svefnherbergjum fólks,“ segir Gísli Viðar Þórisson, formaður húsfélags Hverfisgötu 108. Hann segir íbúa verulega ósátta við  að safnstæði fyrir hópferða- bíla hafi verið komið fyrir framan við húsið Snorrabrautarmegin. Stæðið á rætur sínar að rekja til banns við akstri hópbifreiða í mið- borginni sem tók gildi 15. júlí síðast- liðinn. Samhliða því var komið upp tólf svokölluðum safnstæðum þar sem ferðamenn eru ýmist sóttir eða skildir eftir af hópferðabílum til að komast á gististaði sína í miðborg- inni. Eitt þeirra er við Snorrabraut, nærri gatnamótum Hverfisgötu, fyrir framan annan tveggja inn- ganga Hverfisgötu 108. Gísli Viðar segist hafa fengið þær upplýsingar frá borginni upphaf- lega að stæðið væri til bráðabirgða og tilraunaverkefni. Honum hafi því brugðið í brún þegar vinnu- vélar voru nú  mættar á vettvang til að leggja lokahönd á frágang við varanlega stoppistöð. „Núna eru komnar gröfur þannig að það var allt í plati. Þetta verður varanlegt þegar þú ert farinn að grafa fyrir þessu.“ Gísli fullyrðir að íbúum hafi ekki verið kynnt áformin fyrirfram og þeir telji nú að heppilegri staður fyrir stoppistöðina væri milli Hverfis götu 105 og lögreglustöðvarinnar. „Þar er enginn inngangur í húsið, enginn að halla höfði sínu og ekk- ert ónæði. Þar er meira að segja búið að þrengja götuna og þyrfti afskap- lega lítið að gera. En núna eru þeir mættir hér að grafa, korteri fyrir jól. Það er ekki hægt að bjóða fólki upp á þetta.“ Þorsteinn R. Hermannsson, sam- göngustjóri Reykjavíkurborgar, segir að stæðin hafi aldrei verið kynnt sem bráðabirgðalausn og þau séu komin til að vera. Hafi Gísli fengið þær upplýsingar að um bráðabirgðaverkefni væri að ræða hafi þær verið á misskilningi byggð- ar. Þorsteinn segir sömuleiðis að íbúar í nágrenni við öll safnstæðin hafi fengið bréf frá borginni vegna áformanna. Kvartanir íbúa Hverfis- götu 108 núna séu þær fyrstu sem þaðan berist. Erfitt sé þó að bregðast við þeim nú, fjórum mánuðum eftir að stæðið var tekið í gagnið eftir langt ferli. Heilt yfir hafi lokunin og stæðin mælst vel fyrir. Haldnir hafi verið samráðsfundir með full- trúum ferðaþjónustunnar, Íbúa- samtökum miðborgar og hverfisráði miðborgar. mikael@frettabladid.is Svefnvana íbúar ósáttir við rútur á Hverfisgötu Formaður húsfélagsins Hverfisgötu 108 segir íbúa ósátta við að safnstæði fyrir hópferðabíla hafi verið komið fyrir beint fyrir utan svefnherbergis- glugga þeirra. Samgöngustjóri Reykjavíkur segir stæðin komin til að vera. Þessa dagana er verið að leggja lokahönd á safnstæði fyrir hópferðabíla við Snorrabraut við litla hrifningu íbúa á Hverfisgötu 108. Fréttablaðið/SteFán Það er ekki hægt að bjóða fólki upp á þetta. Gísli Viðar Þórisson, formaður húsfélags Hverfisgötu 108 samgöngur Lokun norðaustur-suð- vestur flugbrautarinnar á Reykja- víkurflugvelli hefur ekki haft áhrif á áætlunarflug um völlinn. Í svari við fyrirspurn fréttastofunnar segir að á síðustu 12 mánuðum hafi „ekki orðið truflun á áætlunarflugi sem vitað er að rekja megi til aðstæðna á Reykja- víkurflugvelli“. Lokun flugbrautarinnar, sem stunduð er kölluð neyðarbrautin, var mótmælt á sínum tíma. Óttuðust sveitarfélög að lokun hennar kæmi til með að hafa áhrif á sjúkraflug. Yfir sjö hundruð sjúkraflug hafa verið farin það sem af er ári. Í fréttum Stöðvar 2 í gær var haft eftir Leifi Hallgrímssyni að lokun flugbrautarinnar hafi haft áhrif síð- astliðinn vetur. Í einu tilviki hafi vél sem flutti sjúkling frá Akureyri ekki náð að lenda. – hks Lítil áhrif af lokun flugbrautarinnar ekki hefur orðið röskun á áætlunarflugi um flugvöllinn. Fréttablaðið/VilHelm Útlendingamál Umsækjendur um alþjóðlega vernd í september voru 104 og voru flestir þeirra ríkis- borgarar Georgíu og Albaníu. Þetta eru þriðjungi færri umsóknir en í ágústmánuði, þegar þær voru 154 og 40 prósent færri en í september- mánuði á síðasta ári þegar þær voru 176. Heildarfjöldi umsókna á fyrstu níu mánuðum ársins var 883, tæpum 60 prósentum fleiri en á sama tíma- bili árið 2016, þegar þær voru 561. Umsækjendur í september voru af 27 þjóðernum. – jhh Umsóknum um hæli fer fækkandi Umsækjendur í september voru af 27 þjóðernum. Fréttablaðið/SteFán Þingflokkur Framsóknarflokks var kampakátur í gær þegar ljóst var að formlegar stjórnarmyndunarviðræður Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks yrðu að veruleika. Lilja Alfreðsdóttir vildi, rétt eins og ljósmyndari Fréttablaðsins, fanga augnablikið á mynd. Fréttablaðið/anton 1 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 Þ r i ð j u d a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 1 4 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :5 2 F B 0 4 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 3 3 -9 3 4 8 1 E 3 3 -9 2 0 C 1 E 3 3 -9 0 D 0 1 E 3 3 -8 F 9 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 0 s _ 1 3 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.