Fréttablaðið - 14.11.2017, Blaðsíða 4
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is
Opið alla virka daga 10–18 | laugardaga 11–15
Margslungin saga
um mæður og dætur
Kristín Eiríksdóttir er einn
áhugaverðasti höfundur
sinnar kynslóðar
„Eðalstöff.“
A U Ð U R J Ó N S D Ó T T I R
ELÍN, ÝMISLEGT
FÍDJÍEYJAR Stjórnvöld á Fídjíeyj-
um hafa ákveðið að flytja 42 bæi sem
eru nálægt hafinu lengra upp á land.
Yfirborð sjávar hefur hækkað vegna
loftslagsbreytinga og nú hafa þrír
bæir þegar verið fluttir. Mögulega
þarf að flytja enn fleiri bæi en ráðgert
er.
Evrópusambandið og Þýskaland
greiða stærstan hluta kostnaðarins og
stjórnar þýska fyrirtækið GIZ verkefn-
inu í samvinnu við stjórnvöld á Fídjí.
Fyrirtækið starfar nú með stjórnvöld-
um í 15 löndum við að finna lausnir á
afleiðingum loftslagsbreytinga.
Loftslagsbreytingarnar hafa áhrif á
bæði landbúnað og fiskveiðar. Minni
fiskur veiðist vegna meiri súrnunar í
hafinu. Uppskeran minnkar vegna
veðurfars auk þess sem salt vatn fer
yfir ræktunarland. Þess vegna þarf
að laga matvælaframleiðsluna að
breyttu loftslagi, að því er segir í frétt
norska ríkisútvarpsins. – ibs
Flytja 42 bæi
vegna afleiðinga
breytts loftlags
Stór verkefni blasa við á Fídjíeyjum.
FilippsEYJAR Mannréttindamál voru
ekki ofarlega á baugi á fundi Donalds
Trump Bandaríkjaforseta og Rodrigos
Duterte, forseta Filippseyja, í opin-
berri heimsókn Trumps þar í landi.
Duterte hefur verið sakaður um
alvarleg mannréttindabrot með því
að leyfa bæði lögreglu og almennum
borgurum að taka dómsvaldið í eigin
hendur.
Forsetarnir ræddu meðal annars
alþjóðaviðskipti og baráttu gegn fíkni-
efnum, og samkvæmt Hvíta húsinu
ræddu þeir aðeins um mannréttinda-
brotin í kjölfar þeirra, að því er segir í
frétt bandarísku fréttastofunnar NBC.
Yfirvöld á Filippseyjum segja að
um þrjú þúsund manns hafi týnt lífi í
fíkniefnabaráttu Dutertes, en mann-
réttindasamtök fullyrða að allt að níu
þúsund hafi látist. Langflestir hinna
látnu eru eiturlyfjasalar og neyt-
endur. – sbs
Mannréttindi
ekki á dagskrá
lÖGREGlUMÁl Nú er óheimilt að
gista í tjöldum, húsbílum, hjólhýsum,
fellihýsum, tjaldvögnum eða öðrum
sambærilegum búnaði utan skipu-
lagðra tjaldsvæða á Suðurlandi. Þetta
er meðal þess sem finna má í nýrri
lögreglusamþykkt sveitarfélaga í
umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi.
Í yfirlýsingu frá lögreglunni og
sveitarfélögunum segir að nýja lög-
reglusamþykktin muni einfalda
störf lögreglunnar til muna. Áður
hafi verið í gildi mismunandi sam-
þykktir fyrir hvert sveitarfélag. Slíkt
hafi skapað vandræði.
Meðal annarra ákvæða sem finna
má í samþykktinni eru málefni sem
hafa verið í umræðunni í tengslum
við fjölgun ferðamanna. Óheim-
ilt er nú í umdæminu að ganga
örna sinna eða kasta af sér þvagi
á almannafæri eða á lóð, land eða
híbýli annars manns. Sá sem það
gerir skal hreinsa upp eftir sig.
„Mikið hefur verið í umræðunni
að ferðamenn séu að tjalda og leggja
ferðavögnum á ýmsum stöðum í
landshlutanum sem ekki er leyfi-
legt. Staðreyndin er sú að langflestir
ferðamenn vilja breyta rétt og fara
að lögum og reglum þar sem þeir
koma,“ segir Gunnar Þorgeirsson
formaður Samtaka sunnlenskra
sveitarfélaga. – jóe
Óheimilt að tjalda hvar sem er á Suðurlandi
Óvíst er hvaða áhrif breytingin hefur á húsbílaleigur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
stJóRnMÁl Ekki verður ráðist í
skattahækkanir af hálfu þeirrar
ríkis stjórnar sem Sjálfstæðisflokk-
ur, Framsóknarflokkur og Vinstri
græn leitast nú við að mynda. Við-
ræður flokkanna um málefni eru
mjög langt komnar samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins. Ólíkar
áherslur flokkanna í skattamálum
verða lagðar til hliðar að mestu
en breytingar í skattamálum þó
áformaðar í tengslum við kjaravið-
ræður til að koma til móts við aðila
vinnumarkaðarins með áherslu á
stöðugleika og jöfnuð. Stórátak í
jafnréttismálum er einnig rætt af
alvöru í tengslum við kjaraviðræð-
urnar, með áherslu á kjör kvenna-
stétta.
Eins og komið hefur ítrekað fram
er lögð áhersla á það meðal flokk-
anna þriggja að einblína á stóru
málin og reynt að finna sameigin-
legan flöt á þeim en hvorki verður
ráðist í grundvallarbreytingar á
sjávarútvegs- né landbúnaðarmál-
um. Stjórnarskrárbreytingar verða
ræddar út frá því sem samstaða
getur náðst um og viðmælendur
Fréttablaðsins hafa nefnt þjóðar-
atkvæðagreiðslur og umhverfis- og
auðlindaákvæði.
Beðið er með formlegar viðræður
um skiptingu ráðuneyta bæði hvað
varðar fjölda ráðuneyta og hvernig
þeim verður skipt, þar til fyrir liggur
að flokkarnir nái saman um mál-
efnin. Ljóst er hins vegar að ekki er
einhugur um hve mörg ráðuneyti
hver og einn flokkur fær. Sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
mun Framsóknarflokkurinn ekki
sætta sig við tvö ráðuneyti, enda
með helmingi stærri þingflokk en
Björt framtíð hafði á síðasta kjör-
tímabili. Sátt ríkir um að bæði
Framsóknarflokkurinn fái þrjú
ráðuneyti og Vinstri græn fái þrjú,
þar á meðal forsætisráðuneytið.
Sjálfstæðismenn leggja áherslu á
óbreyttan ráðherrafjölda, það eru
sex ráðuneyti, enda eru þeir að gefa
eftir forsætisráðuneytið og leggja
höfuðáherslu á að þingstyrkur
þeirra umfram hina flokkana endur-
speglist með einhverjum hætti í
stjórninni. Þó herma heimildir
blaðsins að Sjálfstæðismenn muni
sætta sig við fimm ráðuneyti, fái
þeir þau ráðuneyti sem þeir leggja
mesta áherslu á.
Helst er að vænta ágreinings um
ráðherrastóla milli Framsóknar-
flokksins og Sjálfstæðisflokksins.
Báðir flokkarnir leggja til að mynda
áherslu á að fá utanríkismálin.
Framsóknarmenn vilja setja Lilju
í utanríkismálin þar sem fjármála-
ráðuneytið er frátekið fyrir Bjarna.
Sjálfstæðismenn leggja hins vegar
mikla áherslu á að vera málsvari
þjóðarinnar á erlendri grundu með
einhverjum hætti og fái þeir hvorki
forsætið né embætti forseta Alþing-
is verði þeir að fá utanríkismálin.
Búast má við að viðræður flokk-
anna gangi hratt næstu daga. Form-
ið á viðræðunum verður þannig
að málefnin verða tekin fyrir með
skipulegri hætti og kallaðir verða
til sérfræðingar úr ráðuneytum og
stjórnsýslu til aðstoðar og ráðgjafar
í hverju máli fyrir sig. Skipt verður
í vinnuhópa þegar stóru línurnar
hafa verið dregnar.
Haustfundur miðstjórnar Fram-
sóknarflokksins er haldinn um
næstu helgi, samkvæmt löngu boð-
aðri dagskrá og heimildir blaðsins
herma að málefnavinnan í viðræð-
unum sé það langt komin að stefnt
sé að því að stjórnarsáttmáli verði
borinn undir atkvæði þar, eins
og lög flokksins kveða á um, náist
saman með forystumönnum á
annað borð. Flokksráð hinna flokk-
anna tveggja verða einnig kölluð
saman um leið og þingflokkar hafa
tekið afstöðu til stjórnarsáttmála.
Þá má búast við að nýrri ríkis-
stjórn verði gefið nokkurra daga
svigrúm til að setja mark sitt á
fjárlög áður en þing verður kallað
saman, líklega upp úr næstu mán-
aðamótum. adalheidur@frettabladid.is
Óbreytt staða í skattamálum
Málefnaviðræður flokkanna eru mjög langt komnar. Ríkisstjórn gæti orðið til um næstu helgi. Ágreiningur
um ráðherraembætti geymdur þar til síðast. Átök gætu orðið milli flokkanna um utanríkisráðuneytið.
Jafnréttismál og kjör kvennastétta eru áberandi í viðræðum flokkanna um komandi kjaraviðræður. FRÉTTABLAÐIÐ/AnTon
1 4 . n ó v E M b E R 2 0 1 7 Þ R i Ð J U D A G U R4 F R é t t i R ∙ F R é t t A b l A Ð i Ð
1
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:5
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
3
3
-A
7
0
8
1
E
3
3
-A
5
C
C
1
E
3
3
-A
4
9
0
1
E
3
3
-A
3
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
1
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K