Fréttablaðið - 14.11.2017, Side 6

Fréttablaðið - 14.11.2017, Side 6
Átök í Maníla Það sló í brýnu milli mótmælenda og lögreglu í Maníla, höfuðborg Filippseyja, í gær. Opinberri heimsókn Donalds Trump Bandaríkjaforseta var þar mótmælt. Sex mótmælendur særðust í átökunum. Fréttablaðið/EPa Samgöngur Útlit er fyrir frekari seinkun á opnun Vaðlaheiðarganga en aðstæður þar tefja enn verkið. Núgildandi verkáætlun gerir ráð fyrir að klippt verði á borða í lok ágúst 2018 en opnunin gæti nú taf­ ist um nokkra mánuði og á end­ anum orðið heilum tveimur árum á eftir upphaflegri áætlun. „Það hefur komið fram að það eru seinkanir á verktímanum. Verktakinn hefur nýlega staðfest að þær verði unnar upp en það eru nokkrar breytur í þessu og ljóst að það þarf að spýta í lófana ef halda á áætlun. Það er ekki búið að úti­ loka að þetta gangi upp en eins og staðan er núna lítur út fyrir seinkun þrátt fyrir fyrirheit verktakans,“ segir Friðrik Friðriksson, stjórnar­ formaður verkkaupans, Vaðla­ heiðarganga hf. Síðasta haft ganganna  var sprengt í lok apríl en framkvæmdir hófust í júlí 2013. Síðustu mánuði hafa verktakar Ósafls unnið við að koma heitu og köldu vatni sem streymir úr sprungum í lagnir og út úr göngunum. Þegar stóra heitavatnsæðin opnaðist í febrúar 2014 var gert ráð fyrir hálfs árs seinkun og að göngin yrðu opnuð síðasta vor. Það væri mikilvægt svo hægt yrði að ná tekjutoppi síð­ asta sumar, á þeim árstíma þegar flestir bílar færu í gegnum göngin. Nú er útlit fyrir að síðustu sumar­ dagar 2018 náist ekki heldur en framkvæmdin er fjármögnuð með 13,4 milljarða króna láni frá ríkinu.   „Þetta verður rekstur til langs tíma og hversu lengi sem gjaldtakan verður þá er þetta ekki úrslitaatriði, einhver nokkurra mánaða seinkun til viðbótar. Þó það hefði verið betra því vigtin á umferðinni liggur þannig. Rekstur svona vegganga er þannig að það er mikil framlegð í tekjunum þegar þær koma og það er í sjálfu sér betra að ná sumrinu en það kemur annað sumar og það er ekki úrslitaatriði,“ segir Friðrik. haraldur@frettabladid.is Opnun Vaðlaheiðarganga gæti seinkað enn frekar Svo gæti farið að opnun Vaðlaheiðarganga seinki um nokkra mánuði til við- bótar og fram á vetur 2018. Þá verða liðin tvö ár síðan klippa átti á borða. Verk- takinn undir pressu um að klára á tilsettum tíma en vatnið er enn að tefja. Verktakar Ósafls glöddust þegar síðasta haftið var sprengt í vor. Fréttablaðið/JÓiK Friðrik Friðriks- son, stjórnarfor- maður Vaðla- heiðarganga. www.olafsson.is Endursöluaðilar um land allt Snjöll lýsing! OSRAM LIGHTIFY: Aðlagaðu ljós ð að þínum þörfum með Appi LED lausnir frá Lýsing fyrir götur, göngustíga og bílastæði. Ráðgjöf og nánari upplýsingar má fá hjá sölumönnum. Smart City lausnir Jóhann Ólafsson & Co. Krókháls 3, 110 Reykjavík 533 1900 sala@olafsson.is Snjóblásarar Snjóblásarar ÞÓR HF ÞÓR HF Opnunartími: Opið alla virka daga frá kl 8:00 -18:00 Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Akureyri: Lónsbakka 601 Akureyri Sími 568-1555 Vefsíða: www.thor.is Indland Yfirvöld í borginni Hyder­ abad á Suður­Indlandi segjast ætla að bjóða borgurum 500 indverskar rúpíur, um átta hundruð íslenskar krónur, fyrir að benda þeim á betl­ ara. Markmiðið er að gera borgina betlaralausa fyrir 15. desember næst­ komandi, en lagt hefur verið bann við betli næstu tvo mánuðina. Talið er að ástæðan fyrir reglun­ um sé koma Ivönku Trump, dóttur Donalds Trump Bandaríkjaforseta, til borgarinnar, en hún er væntanleg þangað 28. nóvember næstkomandi, að því er segir á vef breska ríkisút­ varpsins. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem yfirvöld reyna að gera borgina betl­ aralausa, en árið 2000 var betlurum tímabundið komið úr borginni þegar Bill Clinton, þáverandi forseti Banda­ ríkjanna, kom í heimsókn. Mikið er um betl í borginni en talið er að mafían ýti konum út á götur og jafnvel deyfi börn þeirra með lyfjum á meðan þær betla. – sbs Vilja betlaralausa borg Yfirvöld í Hyderabad vilja betlara burt fyrir nóvemberlok. Fréttablaðið/EPa 1 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 Þ r I Ð J u d a g u r6 f r é t t I r ∙ f r é t t a b l a Ð I Ð 1 4 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :5 2 F B 0 4 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 3 3 -B A C 8 1 E 3 3 -B 9 8 C 1 E 3 3 -B 8 5 0 1 E 3 3 -B 7 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 0 s _ 1 3 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.