Fréttablaðið - 14.11.2017, Qupperneq 8
Klæðskerasniðin fyrir þá sem
þurfa gleraugu til að sjá bæði
vel frá sér og nær sér. Hægt er
að breyta uppsetningunni
á glerinu eftir því hvort þú ert
í mikilli lestrarvinnu eða þarft
að nota fjarlægðarstyrkinn meira.
afsláttur
til 20. nóvember
25%
MARGSKIPT GLER
VARIO
Gleraugnaverslunin þín
MJÓDDIN
S:587 2123
FJÖRÐUR
S: 555 4789
P
ip
ar
\T
BW
A
\
S
ÍA
NeyteNdamál Það kostar tæplega
70 prósentum meira að senda bréf
með Íslandspósti í dag en það kost-
aði árið 2012. Brynjar Smári Rúnars-
son, forstöðumaður markaðsdeildar
Íslandspósts, segir ástæðuna vera
minna bréfamagn.
Kostnaðurinn við að senda allt að
50 gramma bréf með A-pósti, þannig
að bréfi sé dreift næsta virka dag eftir
póstlagningu, er 200 krónur en var
120 krónur árið 2012. Kostnaðurinn
við að senda slíkt bréf með B-pósti,
þannig að bréfinu sé dreift þremur
virkum dögum seinna er 180 krónur
en var 103 krónur árið 2012.
Íslandspóstur hefur einkarétt
á dreifingu léttari bréfa. Brynjar
bendir á að þessi einkaréttur eigi að
standa undir alþjónustuskyldunni
sem pósturinn hefur. Það er að dreifa
bréfum og sendingum allt að 20 kíló-
um, bæði innanlands og til útlanda,
á hverjum virkum degi með tilheyr-
andi gæðum og á viðráðanlegu verði.
„Á síðustu tíu árum hefur bréfa-
magnið minnkað um meira en 50
prósent og á þessu ári um sjö pró-
sent. Þannig að fyrst og fremst má
rekja þessa hækkun til fækkunar
bréfa,“ segir Brynjar Smári
Brynjar segir að auk þess sem bréf-
unum fækki verði dreifikerfið dýrara.
„Dreifikerfið hefur stækkað með því
að það er búið að byggja fleiri íbúðir
og bréfalúgum fjölgar þar af leið-
andi,“ segir hann.
Einn annasamasti tími póst-
burðar manna, aðventan, fer senn
í hönd. Brynjar segist ekki hafa
nákvæmar tölur um þróun í fjölda
Dýrari póstur með færri sendingum
Forstöðumaður hjá Íslandspósti segir jólakortum ekki fækka í sama hlutfalli og öðrum pósti. Fréttablaðið/Ernir
2017100
150
200
2012 2013 2014 2015 2016
Kostnaður fólks við að
senda bréf hefur aukist
um tugi prósenta á ör-
fáum árum. Ástæðan er
færri bréfasendingar og
stærra og dýrara dreif-
ingarkerfi. Jólakortum
fækkar ekki eins mikið
og sendingum almennt.
Öll hin Norðurlöndin
hafa afnumið einkarétt
til póstsendinga.
sendra jólakorta en þeim hafi fækk-
að. „En hlutfallslega ekki jafn mikið
og öðrum pósti,“ segir hann.
Samgöngu- og sveitarstjórnar-
ráðuneytið kynnti í sumar drög
að frumvarpi um afnám einka-
réttar Íslandspósts, en þess í stað
verði alþjónusta á óhagkvæmum
markaðssvæðum fjármögnuð með
framlagi úr ríkissjóði. Það frumvarp
varð ekki að lögum áður en ákveðið
var að slíta ríkisstjórnarsamstarfi
Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og
Bjartrar framtíðar. Samkvæmt upp-
lýsingum Fréttablaðsins er Ísland
eina landið á Norðurlöndunum þar
sem einkaréttur er á dreifingu bréfa.
jonhakon@frettabladid.is
✿ Kostnaður við sendingar bréfa að 50 grömmum
a-póstur
b-póstur
Fyrst og fremst má
rekja þessa hækkun
til fækkunar bréfa.
Brynjar Smári Rúnarsson, forstöðu-
maður markaðsdeildar Íslandspósts
70%
er hækkunin á gjaldskrá
Íslandspósts vegna póst
sendinga frá árinu 2012.
dÓmSmál Héraðsdómur Reykja-
víkur hefur fallist á beiðni Reykja-
vík Development ehf. (RD) um að
dómkvaddur verði matsmaður til
að meta kostnað vegna tilvistar sjó-
varnargarða á lóðinni Austurbakka 2
vegna skyndifriðunar og friðlýsingar
stjórnarinnar á görðunum.
Meðal þeirra spurninga sem
lagðar verða fyrir matsmann eru
hver hafi verið aukinn kostnaður RD
vegna breytinga á hönnun verksins
sökum krafna Minjastofnunar
og annarra. Þá er spurt hver áætl-
aður kostnaður vegna flutninga og
geymslu á görðunum hafi verið og
hve mikið tjón hafi hlotist af því að
vinna við uppsteypu tafðist. Spurn-
ingarnar eru alls 26 talsins.
Málið á rætur að rekja til ársins
2015. Þá hófst vinna við fram-
kvæmdir Hafnartorgs. Minjastofn-
un fór þess á leit að hún fengi leyfi
til fornleifarannsókna á svæðinu.
Komu þá í ljós tveir gamlir sjó-
varnargarðar. Var yngri garðurinn
skyndifriðaður en sá eldri var sjálf-
krafa friðaður þar sem hann var eldri
en 100 ára. Ráðherra friðlýsti síðan
garðana báða.
Varð það úr að garðarnir voru fjar-
lægðir. Hver steinn var númeraður
og skal koma honum aftur fyrir á
sama stað þegar byggingin verður
tilbúin. Byggingarleyfi fékkst útgefið
á sumarmánuðum í fyrra.
Íslenska ríkið lagðist gegn dóm-
kvaðningu matsmanns þar sem það
taldi hana tilgangslausa. Matsnefnd
eignarnámsbóta kæmi til með að
ákveða bætur fyrir tjónið. Héraðs-
dómur féllst ekki á það og benti á
að ekkert hafi verið gert til að koma
málum í farveg til nefndarinnar.
Þá var ríkið dæmt til að greiða 300
þúsund krónur í málskostnað. – jóe
Dómkvaddur til að meta
tjón vegna friðlýsingar
tæp tvö ár eru liðin síðan hafnargarðarnir voru fjarlægðir stein fyrir stein.
Eigandi Hafnartorgs telur sig hafa orðið fyrir tjóni. Fréttablaðið/VilHElm
Hver steinn var númer
aður og skal koma honum
aftur fyrir á sama stað þegar
byggingin verður tilbúin.
1 4 . N Ó v e m b e r 2 0 1 7 Þ r I Ð J U d a G U r8 f r é t t I r ∙ f r é t t a b l a Ð I Ð
1
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:5
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
3
3
-B
5
D
8
1
E
3
3
-B
4
9
C
1
E
3
3
-B
3
6
0
1
E
3
3
-B
2
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
1
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K