Fréttablaðið - 14.11.2017, Síða 13

Fréttablaðið - 14.11.2017, Síða 13
Þjóðin stendur saman sem einn maður um heilbrigðiskerfið í landinu. Það er ánægjulegt. Við viljum öll að þjónustan sé fyrsta flokks og að ríkið greiði fyrir hana úr sam- eiginlegum sjóðum okkar. Við viljum að allir séu jafnir í þessu sameiginlega öryggisneti og við viljum forðast það að einn geti keypt sér forgang fram yfir annan vegna efnahags. Um þetta erum við öll sammála. Við búum í fámennu og strjálbýlu landi. Það þarf útsjónarsemi til þess að veita framúrskarandi heilbrigðis- þjónustu þegar þjóðin telur aðeins 340 þúsund manns og erlendir ferða- menn eru farnir að teljast í milljónum á hverju ári. Lausnin felst í fjölbreytni og sveigjanleika, tækniframförum og teymisvinnu þar sem sérfræðiþekking og fjarlækningar eru gjörnýttar, álagi dreift og samvinna sett í fyrirrúm. Að mörgu leyti erum við að standa okkur afskaplega vel. Við vitum líka öll að það er hægt að gera enn betur og þá ekki síst í umönnun aldraðra. Til þess þarf aukið fjármagn en það þarf líka nýjar umferðaræðar í heilbrigðis- kerfinu. Stofnbrautirnar geta ekki allar legið til spítalans vegna þess að hann er í fyrsta lagi yfirfullur og í öðru lagi undirmannaður. Hvers vegna leggst þá svona margt málsmetandi fólk í vörn og jafnvel níð þegar ódýr og hagkvæm sérfræðilæknisþjónusta, greidd úr sameiginlegum almannatryggingum þjóðarinnar, kemur til bjargar með álíka hætti og er að gerast í löndunum allt í kringum okkur? Hvers vegna eru svona margir reiðubúnir til þess að tala árangur okkar niður og jafnvel með rangtúlkunum og vísvitandi blekk- ingum? Ábyrgðarlaust og ósanngjarnt Svarið er væntanlega ekki einfalt. Í aðalatriðum má samt gera ráð fyrir því að í baráttunni fyrir auknum fjár- veitingum sé best fyrir heilbrigðisgeir- ann að draga upp sem dekksta mynd af núverandi ástandi. Hjá viðkomandi stjórnmálamönnum er tilgangurinn e.t.v. sá að ganga í augu kjósenda og lokka þá á sitt band. Hvort tveggja er í senn ábyrgðarlaust og ósanngjarnt. Fjórða valdið, fjölmiðlarnir, verða að vera gagnrýnir og spyrja nánar. Á nýlegri málstofu Þjóðarspegils Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands var fjallað um niðurstöður í könnun á meðal landsmanna um við- horf þeirra til heilbrigðisþjónustunnar. Samkvæmt endursögn Sigrúnar Ólafs- dóttur, prófessors við Háskóla Íslands, vilja 99% þjóðarinnar að þjónustan sé á ábyrgð ríkisins og það er gott. Hjá henni kom einnig fram að 94% þjóðar- innar vilja að ríkið veiti þessa þjónustu. Hvað skyldi það nákvæmlega þýða? Að RÍKIÐ VEITI þjónustuna? Getur verið að það sé náskylt því að RÍKIÐ BORGI þjónustuna? Hvernig var spurt? Til þess að upplýsa lesendur var spurningin nákvæmlega svona: „Fólk hefur mismunandi skoðanir á því hver á að veita þjónustu á Íslandi. Hver finnst þér að eigi helst að veita heil- brigðisþjónustu fyrir þá sem veikir eru? 1. Stjórnvöld. 2. Einkafyrirtæki/ samtök rekin í hagnaðarskyni. 3. Samtök sem ekki eru rekin í hagn- aðarskyni/góðgerðarsamtök/sam- vinnufélög. 4. Trúfélög. 5. Fjölskylda, ættingjar eða vinir.“ Í lokin voru aðrir valkostir, s.s. veit ekki o.s.frv. Finnst fleirum en mér þessi spurn- ing bæði óskýr og leiðandi? Auðvitað viljum við langflest að ríkið greiði fyrir heilbrigðisþjónustu allra landsmanna. Mér er hins vegar til efs að 94% þjóðar- innar séu mótfallin einkarekinni heil- brigðisstarfsemi á borð við tannlækn- ingar, sjúkraþjálfun, fæðingarþjónustu eða heimaþjónustu ljósmæðra, heilsu- Ánægjuleg samstaða – ömurleg umræða Arna Guðmundsdóttir formaður Læknafélags Reykjavíkur gæslu sem rekin er af heimilislæknum og sérfræðilæknastöðvum eins og Domus Medica, Orkuhúsinu o.fl. Á þessum stöðum mælist mikil ánægja viðskiptavina með þjónustuna sem ríkið greiðir fyrir í gegnum Sjúkra- tryggingar Íslands. Viðskiptavinurinn finnur væntanlega lítinn mun á því hvort ríkið eða einkaaðilar veiti þjón- ustuna. Aðalatriðið er að ríkið borgar í báðum tilfellum. Á undanförnum misserum hefur Landlæknir margsinnis talað heil- brigðiskerfi okkar niður og jafnvel dregið í efa niðurstöður viðurkenndra alþjóðlegra samanburðarmælinga á gæðum heilbrigðisþjónustu í mis- munandi löndum. Hann hefur ásakað sjálfstætt starfandi sérfræðilækna um að vinna ekki störf sín innan veggja Landspítalans af heilum hug. Hann hefur ítrekað gefið í skyn að kostnaður vegna einkarekinnar heilbrigðisþjón- ustu sé meiri en kostnaður af opinberri þjónustu. Umræðan um einkarekstur í heil- brigðisþjónustunni er á villigötum. Um er að kenna markvissum mál- flutningi ýmissa aðila sem vilja umfang opinbers reksturs sem mestan. Rang- færslur eru endurteknar í trausti þess að dropinn holi steininn. Einkarekstri á heilbrigðissviði og einkavæðingu heilbrigðisþjónustunnar er vísvitandi ruglað saman og gert að einu og sama hugtakinu enda þótt gjörólík séu. Þessi grein er enn eitt ákallið um breytingar í umræðuhefð á Íslandi. Heilbrigðisþjónustan er lands- mönnum öllum einlægt hjartans mál. Þeir eiga það skilið að þeir sem leiða umræðuna á því sviði, hvort sem er úr röðum heilbrigðisgeirans sjálfs, stjórnmálanna eða fjölmiðlanna fjalli um málaflokkinn af fagmennsku og heiðarleika. Ég er viss um að í þeirri umræðu verður einn stór samnefnari: Við viljum hafa einn greiðanda, ríkið, að allri heilbrigðisþjónustu og við viljum að allir hafi sama aðgengi að framúrskarandi gæðum á eins hag- stæðu verði og frekast er unnt. Reykjavíkurborg leitar eftir tilboðum vegna uppbyggingar á Kirkjusandi. Tilboðið feli í sér eftirfarandi: Á lóðinni er heimilt að byggja allt að 82 íbúðir um 6.800m2 að brúttóflatarmáli, um 650m2 atvinnu húsnæði, (ungbarnaleikskóla) og allt að 6.150 m2 kjallararými. Hluti lóðarinnar verður nýttur fyrir leikskólann. reykjavik.is/lodir Hallgerðargata á Kirkjusandi Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir og tilboð í gegnum útboðsvef innkaupa- deildar Reykjavíkurborgar. Þar eru öll útboðsgögn. Fyrirspurnarfrestur rennur út kl. 12:00, 13. nóvember 2017. Svarfrestur rennur út 16. nóvember 2017. Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar utbod.reykjavik.is eigi síðar en kl. 10:00 þann 23. nóvember 2017. Byggingarréttur til sölu Kaup byggingarréttar á lóð nr. 1 við Hallgerðargötu. Sölu til Reykjavíkurborgar á 20 íbúðum á lóðinni. Byggingu á 650m2 ung­ barna leikskóla. S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 13Þ R i ð J u D A G u R 1 4 . n ó v e m B e R 2 0 1 7 1 4 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :5 2 F B 0 4 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 3 3 -A B F 8 1 E 3 3 -A A B C 1 E 3 3 -A 9 8 0 1 E 3 3 -A 8 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 0 s _ 1 3 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.