Fréttablaðið - 14.11.2017, Qupperneq 13
Þjóðin stendur saman sem einn maður um heilbrigðiskerfið í landinu. Það er ánægjulegt. Við
viljum öll að þjónustan sé fyrsta flokks
og að ríkið greiði fyrir hana úr sam-
eiginlegum sjóðum okkar. Við viljum
að allir séu jafnir í þessu sameiginlega
öryggisneti og við viljum forðast það
að einn geti keypt sér forgang fram yfir
annan vegna efnahags. Um þetta erum
við öll sammála.
Við búum í fámennu og strjálbýlu
landi. Það þarf útsjónarsemi til þess
að veita framúrskarandi heilbrigðis-
þjónustu þegar þjóðin telur aðeins
340 þúsund manns og erlendir ferða-
menn eru farnir að teljast í milljónum
á hverju ári. Lausnin felst í fjölbreytni
og sveigjanleika, tækniframförum og
teymisvinnu þar sem sérfræðiþekking
og fjarlækningar eru gjörnýttar, álagi
dreift og samvinna sett í fyrirrúm.
Að mörgu leyti erum við að standa
okkur afskaplega vel. Við vitum líka
öll að það er hægt að gera enn betur
og þá ekki síst í umönnun aldraðra. Til
þess þarf aukið fjármagn en það þarf
líka nýjar umferðaræðar í heilbrigðis-
kerfinu. Stofnbrautirnar geta ekki allar
legið til spítalans vegna þess að hann
er í fyrsta lagi yfirfullur og í öðru lagi
undirmannaður. Hvers vegna leggst þá
svona margt málsmetandi fólk í vörn
og jafnvel níð þegar ódýr og hagkvæm
sérfræðilæknisþjónusta, greidd úr
sameiginlegum almannatryggingum
þjóðarinnar, kemur til bjargar með
álíka hætti og er að gerast í löndunum
allt í kringum okkur? Hvers vegna eru
svona margir reiðubúnir til þess að tala
árangur okkar niður og jafnvel með
rangtúlkunum og vísvitandi blekk-
ingum?
Ábyrgðarlaust og ósanngjarnt
Svarið er væntanlega ekki einfalt. Í
aðalatriðum má samt gera ráð fyrir
því að í baráttunni fyrir auknum fjár-
veitingum sé best fyrir heilbrigðisgeir-
ann að draga upp sem dekksta mynd
af núverandi ástandi. Hjá viðkomandi
stjórnmálamönnum er tilgangurinn
e.t.v. sá að ganga í augu kjósenda og
lokka þá á sitt band. Hvort tveggja er
í senn ábyrgðarlaust og ósanngjarnt.
Fjórða valdið, fjölmiðlarnir, verða að
vera gagnrýnir og spyrja nánar.
Á nýlegri málstofu Þjóðarspegils
Félagsvísindastofnunar Háskóla
Íslands var fjallað um niðurstöður í
könnun á meðal landsmanna um við-
horf þeirra til heilbrigðisþjónustunnar.
Samkvæmt endursögn Sigrúnar Ólafs-
dóttur, prófessors við Háskóla Íslands,
vilja 99% þjóðarinnar að þjónustan sé
á ábyrgð ríkisins og það er gott. Hjá
henni kom einnig fram að 94% þjóðar-
innar vilja að ríkið veiti þessa þjónustu.
Hvað skyldi það nákvæmlega þýða? Að
RÍKIÐ VEITI þjónustuna? Getur verið
að það sé náskylt því að RÍKIÐ BORGI
þjónustuna? Hvernig var spurt?
Til þess að upplýsa lesendur var
spurningin nákvæmlega svona: „Fólk
hefur mismunandi skoðanir á því hver
á að veita þjónustu á Íslandi. Hver
finnst þér að eigi helst að veita heil-
brigðisþjónustu fyrir þá sem veikir
eru? 1. Stjórnvöld. 2. Einkafyrirtæki/
samtök rekin í hagnaðarskyni. 3.
Samtök sem ekki eru rekin í hagn-
aðarskyni/góðgerðarsamtök/sam-
vinnufélög. 4. Trúfélög. 5. Fjölskylda,
ættingjar eða vinir.“ Í lokin voru aðrir
valkostir, s.s. veit ekki o.s.frv.
Finnst fleirum en mér þessi spurn-
ing bæði óskýr og leiðandi? Auðvitað
viljum við langflest að ríkið greiði fyrir
heilbrigðisþjónustu allra landsmanna.
Mér er hins vegar til efs að 94% þjóðar-
innar séu mótfallin einkarekinni heil-
brigðisstarfsemi á borð við tannlækn-
ingar, sjúkraþjálfun, fæðingarþjónustu
eða heimaþjónustu ljósmæðra, heilsu-
Ánægjuleg samstaða – ömurleg umræða
Arna
Guðmundsdóttir
formaður
Læknafélags
Reykjavíkur
gæslu sem rekin er af heimilislæknum
og sérfræðilæknastöðvum eins og
Domus Medica, Orkuhúsinu o.fl. Á
þessum stöðum mælist mikil ánægja
viðskiptavina með þjónustuna sem
ríkið greiðir fyrir í gegnum Sjúkra-
tryggingar Íslands. Viðskiptavinurinn
finnur væntanlega lítinn mun á því
hvort ríkið eða einkaaðilar veiti þjón-
ustuna. Aðalatriðið er að ríkið borgar í
báðum tilfellum.
Á undanförnum misserum hefur
Landlæknir margsinnis talað heil-
brigðiskerfi okkar niður og jafnvel
dregið í efa niðurstöður viðurkenndra
alþjóðlegra samanburðarmælinga
á gæðum heilbrigðisþjónustu í mis-
munandi löndum. Hann hefur ásakað
sjálfstætt starfandi sérfræðilækna um
að vinna ekki störf sín innan veggja
Landspítalans af heilum hug. Hann
hefur ítrekað gefið í skyn að kostnaður
vegna einkarekinnar heilbrigðisþjón-
ustu sé meiri en kostnaður af opinberri
þjónustu.
Umræðan um einkarekstur í heil-
brigðisþjónustunni er á villigötum.
Um er að kenna markvissum mál-
flutningi ýmissa aðila sem vilja umfang
opinbers reksturs sem mestan. Rang-
færslur eru endurteknar í trausti þess
að dropinn holi steininn. Einkarekstri
á heilbrigðissviði og einkavæðingu
heilbrigðisþjónustunnar er vísvitandi
ruglað saman og gert að einu og sama
hugtakinu enda þótt gjörólík séu.
Þessi grein er enn eitt ákallið um
breytingar í umræðuhefð á Íslandi.
Heilbrigðisþjónustan er lands-
mönnum öllum einlægt hjartans mál.
Þeir eiga það skilið að þeir sem leiða
umræðuna á því sviði, hvort sem er
úr röðum heilbrigðisgeirans sjálfs,
stjórnmálanna eða fjölmiðlanna fjalli
um málaflokkinn af fagmennsku og
heiðarleika. Ég er viss um að í þeirri
umræðu verður einn stór samnefnari:
Við viljum hafa einn greiðanda, ríkið,
að allri heilbrigðisþjónustu og við
viljum að allir hafi sama aðgengi að
framúrskarandi gæðum á eins hag-
stæðu verði og frekast er unnt.
Reykjavíkurborg leitar eftir tilboðum vegna uppbyggingar á Kirkjusandi.
Tilboðið feli í sér eftirfarandi:
Á lóðinni er heimilt að byggja allt að 82 íbúðir um 6.800m2 að brúttóflatarmáli,
um 650m2 atvinnu húsnæði, (ungbarnaleikskóla) og allt að 6.150 m2 kjallararými.
Hluti lóðarinnar verður nýttur fyrir leikskólann.
reykjavik.is/lodir
Hallgerðargata á Kirkjusandi
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir og tilboð í gegnum útboðsvef innkaupa-
deildar Reykjavíkurborgar. Þar eru öll útboðsgögn. Fyrirspurnarfrestur rennur út kl. 12:00,
13. nóvember 2017. Svarfrestur rennur út 16. nóvember 2017.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar
utbod.reykjavik.is eigi síðar en kl. 10:00 þann 23. nóvember 2017.
Byggingarréttur til sölu
Kaup byggingarréttar á lóð
nr. 1 við Hallgerðargötu.
Sölu til Reykjavíkurborgar
á 20 íbúðum á lóðinni.
Byggingu á 650m2 ung
barna leikskóla.
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 13Þ R i ð J u D A G u R 1 4 . n ó v e m B e R 2 0 1 7
1
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:5
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
3
3
-A
B
F
8
1
E
3
3
-A
A
B
C
1
E
3
3
-A
9
8
0
1
E
3
3
-A
8
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
1
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K