Fréttablaðið - 14.11.2017, Síða 14
Um þessar mundir eru 100 ár frá byltingunni í Rúss-landi 1917, sögulega einum
mikilvægasta atburði síðustu aldar.
Í fyrsta skipti í sögunni voru völdin
hrifsuð úr höndum ráðastéttarinnar
og hafin uppbygging samfélags sem
grundvallast á alþýðufólki en ekki
hagsmunum eignastéttarinnar. Með
því hófst nýtt tímaskeið í sögu mann-
kyns.
Ríkisstjórn verkalýðs og bænda
sem tók við völdum hætti þátttöku
Rússlands í fyrri heimsstyrjöld-
inni. Hún lýsti því yfir að jarðnæði
stórjarðeigenda skyldi skipta og
afhenda að ráði fátækra smábænda,
og að ráðstjórnin útvegaði verkfæri,
áburð og aðrar nauðsynjar svo auka
mætti framleiðslu í landbúnaði.
Þjóðir sem keisaraveldið drottnaði
yfir fengu valfrelsi, þær gátu verið
innan Sovétríkjanna eða skilið sig frá
þeim. Flestar völdu fyrri kostinn, þó
ekki Eystrasaltslöndin. Á valdatíma
Stalíns árið 1939 voru þessi lönd her-
numin og innlimuð í Sovétríkin.
Byltingarstjórnin fylgdi stefnu um
að varðveita tungumál og menningu
þeirra sem keisarinn hafði beitt mis-
rétti. Gripið var til aðgerða er bættu
stöðu kvenna. Konur fengu kosn-
ingarétt. Ráðstjórnin setti lög sem
tryggðu konum rétt til fóstureyðinga
og getnaðarvarna. Gifting varð að
skráningaratriði og skilnaður gat nú
átt sér stað að ósk annars hjóna. Ríki
og kirkja voru aðskilin.
Byltingin hafði gífurleg áhrif á
baráttu verkafólks og bænda um
víða veröld. Alræðisaðferðir stalín-
istastjórnanna sem rændu völdum
undir lok þriðja áratugarins verða
ekki raktar til októberbyltingarinn-
ar í Rússlandi eða kenninga Leníns
heldur ber að kenna þær við gagn-
byltingu og dráp á nær allri forystu
byltingarinnar 1917. Annað stenst
ekki skoðun og hefur einkum þann
tilgang að telja fólki trú um að það
hafi engan tilgang að berjast fyrir
annars konar samfélagi. Við séum
dæmd um alla eilífð til þess að lifa
af þeim brauðmolum sem falla af
gnægtarborði hinna ríku og fáu.
Nánar er fjallað um Októberbylt-
inguna í grein höfundar á visir.is.
Byltingin í Rússlandi 1917
Gylfi Páll Hersir
áhugasamur
um það sem
er að gerast
í heiminum
Menning er uppspretta, ekki verkfæri. Hún skilar sér með margvíslegum hætti
út í samfélagið sem ekki er alltaf
hægt að endurspegla í stöðluðu
Excel-skjali um inn- og útstreymi
fjármagns eða með nákvæmlega
hvaða hætti ákveðið fjármagn
skilar sér til baka til aðstandenda
viðburða. Hin uppbyggjandi áhrif
menningarinnar hafa oft verið
tekin saman og greind sem alþjóð-
leg kynning landsins, skapandi
hagkerfið og innri hvatning sem
sprettur upp við það að „menn-
ingast“.
Hetjulegar baráttur eiga sér stað
við að koma rekstri HÖRPU í fastari
skorður. Ráðist hefur verið í endur-
skipulagningu verklagsferla, aukna
nýtingu rýmis og jafnvægi í opin-
berum gjöldum. Þrátt fyrir þessa
miklu vinnu hafa mikilvægustu
tækifærin enn ekki komist á beina
braut. Grundvallarstaða hvers tón-
leikahúss eru tengsl og samband
þess við hagsmunaaðila, allt frá eig-
endum og aðstandendum til lista-
manna og áhorfenda. Fíngert fram-
boð tónleika, áskriftaraða og hátíða
þar sem gæði, verð, tímasetning og
markaðskynning hámarka gildi
hvers viðburðar miðlar sterkara
sambandi við listformið sjálft sem
stuðlar að frekari viðskiptum í
framtíðinni. Þessi vandmeðfarna
hringrás er lykilatriði í uppbygg-
ingu á fyrirsjáanleika og þar með
stöðugleika í rekstrinum. Ég nefni
hér til fyrirmyndar framúrskarandi
starf Sinfóníuhljómsveitarinnar
sem vakið hefur alþjóðlega athygli.
Í náinni samvinnu við íbúa og
samstarfsaðila er HARPA eini aðil-
inn sem getur hvað mest lágmarkað
áhættuna við að koma klassískum
tónleikaröðum af stað og gert lang-
tímatilvist þeirra raunhæfa. Traust
og öflugt samstarf leilur hérna mjög
mikilvægt hlutverk, því þar með
styrkist samningsstaða og verklag
allra til muna. Til fyrirmyndar um
árangursríka samþættingu íbúa
og þess húss sem þeir búa í get ég
t.d. nefnt Fílharmóníu Berlínar og
nýlega endurskipulagningu Fíl-
harmóníu Lúxemborgar. Tonhalle
Zürich er einnig að færast út á
þessar slóðir.
Í Tónleikahúsi Vínarborgar
(Wien er Konzerthaus), eins
u m f a n g s m e st a t ó n l e i ka h ú s i
heimsins með um 600 eigin við-
burði, 60 áskriftaraðir, og 31.000
áskrifendur, hefur á undanförnum
árum viðamikil greining og vottun
(Quality Management System,
stöðull ISO9001) á rekstrinum átt
sér stað. Þessi vinna hefur leitt í ljós
áþreifanlegri mælistikur á starfsemi
sem og skilvirkni hússins. Það er því
ekki síður mikilvægt fyrir HÖRPU
að leggja grunn að sterku alþjóð-
legu tengslaneti.
Það eru forréttindi fyrir íslenskt
samfélag að eiga HÖRPU og þá
sérstaklega sal eins og Eldborg.
Aðstaðan er að öllu leyti metn-
aðarfull til þess að bera sterkan
kjarna af eigin viðburðum og vera
þar með aflið á bak við uppsprettu
tónlistarlífsins. Það kallar á mikla
handavinnu að koma slíkum áform-
um á beina braut og þess vegna er
mikilvægt að missa ekki þróttinn,
nýta tímann vel og að sama skapi
fá skýrari mynd af áður óþekktum
möguleikum því til þess að efla
skapandi hagkerfið þurfum við að
örva sköpunargáfuna.
Höfundur hefur starfað í klassíska
geiranum í Vín sl. 6 ár, þar á meðal
sem verkefnastjóri í Wiener Konzert-
haus við tónleikahald og uppsetningu
ISO9001.
Til hagsmunaaðila
HÖRPU
Flóttamannavegurinn liggur til Íslands og um Ísland og hefur gert til fjölda ára. Síðastliðin
þrjú ár hefur hann verið mikið far-
inn.
Það er ekkert nýtt við það að fólk
sé á flótta. Athafnir mannsins og
náttúruöflin eru meginkraftarnir að
baki flótta fólks frá einu landi til ann-
ars. Mannkynssagan geymir ótal til-
vik um fólk sem hrakist hefur á flótta
undan stríðsátökum, ofsóknum eða
hamförum. Flóttamenn eru ýmist
þeir sem falla undir skilgreiningu
Sameinuðu þjóðanna á því hvað
flóttamaður er, eða svo kallaðir
efnahagslegir flóttamenn. Við erum
svo heppin að búa í þeim heims-
hluta þar sem friður hefur ríkt. Fólk
á flótta leitar þangað sem það telur
sig eiga möguleika á að komast í skjól
og eignast betra líf. Það er mannlegt
og eðlilegt.
Ástandið er á mörgum stöðum
viðsjárvert um þessar mundir þar
sem stríðsátök og skálmöld ríkja og
örar breytingar á veðurfari rýra lífs-
skilyrði víða um heim.
Við fáum reglulega fréttir af fólki
sem leggur upp í ferðir yfir Mið-
jarðarhafið frá Afríku til Evrópu á
ótryggum fleytum og er svo bjargað
úr bráðum lífsháska einhvers staðar
á leið sinni. Á dögunum var 700
manns bjargað úr sjávarháska í
Miðjarðarhafinu en 23 lík fundust í
sjónum. Þrátt fyrir viðleitni Evrópu-
ríkja og mannúðarsamtaka hefur
ekki tekist að finna leiðir til þess að
koma í veg fyrir þessi hörmulegu
slys. Fólkið er tilbúð að hætta lífi sínu
til þess að komast til Evrópu þar sem
það vonast til að eiga betra líf.
Evrópusambandið undir merkj-
um Schengen samstarfsins hefur
brugðist við auknum þrýstingi á ytri
landamærunum með margvíslegum
hætti. Ísland er hluti af því samstarfi
og hafa aðgerðirnar haft áhrif hér
á landi. Aðgerðirnar miða fyrst og
fremst að því að koma í veg fyrir að
fólk leggi upp í lífshættuleg ferðalög,
að koma fólki í lífsbjargandi neyð
til aðstoðar og skrá umsóknir um
alþjóðlega vernd. Hver umsókn um
alþjóðlega vernd er skoðuð og lagt
á það mat hvort beri að veita við-
komandi stöðu flóttamanns. Þeim
sem falla ekki undir þá skilgreiningu
er í einhverjum tilvikum veitt tíma-
bundið dvalarleyfi engu að síður eða
þá vísað aftur til heimalands eða til
þess lands þar sem viðkomandi er
heimilt að dvelja.
Þegar mat er lagt á þrýsting á
landamærin er hafður til hliðsjónar
fjöldi mælikvarða, t.d. tilvik þar sem
fölsuðum skilríkjum er framvísað,
mál þar sem grunur leikur á smygli
á fólki eða mansali, umsóknir um
alþjóðlega vernd, fjöldi einstaklinga
sem uppfylla ekki skilyrði fyrir
komu, heildarfjöldi farþega sem fara
um landamærin o.s.frv. Allir mæli-
kvarðarnir sem stuðst er við sýna
að aukið álag er á landamærum á
Íslandi. Fjölmargir þættir eru til
skýringar, t.d. gott efnahagsástand,
aukinn áhugi á Íslandi sem ferða-
mannastaðar og síðast en ekki síst
afar gott aðgengi að landinu.
Glæpasamtök nýta sér neyð fólks
og hafa af því ávinning af að koma
fólki yfir landamæri. Af og til koma
upp tilvik hér á landi þar sem grunur
vaknar um slíkt. Á það bæði við um
tilvik þar sem Ísland er lokaákvörð-
unarstaðurinn en einnig er Ísland
notað sem gegnumferðarland, m.a.
til Bretlands og N-Ameríku. Áherslur
löggæsluyfirvalda undanfarin ár
gagnvart þessari brotastarfsemi er
að beita öllum tiltækum úrræðum
í því skyni að draga úr aðdráttarafli
Íslands sem fýsilegum kosti hvað
slíkar ferðir varðar.
Flóttamannavegurinn
Jón Pétur
Jónsson
aðstoðaryfir-
lögregluþjónn
hjá lögreglu-
stjóranum á
Suðurnesjum
Gunnar
Guðjónsson
verkefnastjóri
Grundvallarstaða hvers
tónleikahúss eru tengsl og
samband þess við hags-
munaaðila, allt frá eigendum
og aðstandendum til lista-
manna og áhorfenda.
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt:
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
Transporter hefur fylgt kynslóðum
af fólki sem hefur þurft á traustum
og áreiðanlegum vinnuþjarki
að halda sem leysir krefjandi og
fjölbreytt verkefni. Hann er með
fullkominni stöðugleikastýringu og
spólvörn og
sjö þrepa sjálfskiptingu.
Volkswagen Transporter
kostar frá
4.040.000 kr.
(3.232.000 kr. án vsk)
BYGGIR Á TRAUSTUM GRUNNI
Volkswagen Transporter
4Motion
FJÓRHJÓLADRIFI
FÁANLEGUR MEÐ
Við látum framtíðina rætast.
1 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 Þ r I Ð J U D A G U r14 s k o Ð U n ∙ F r É T T A b L A Ð I Ð
1
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:5
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
3
3
-B
0
E
8
1
E
3
3
-A
F
A
C
1
E
3
3
-A
E
7
0
1
E
3
3
-A
D
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
1
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K