Fréttablaðið - 14.11.2017, Qupperneq 16
Hafðu lyfin tilbúin þegar þú sækir
Pantaðu tiltekt á appotek.is
eða í síma 568 0990
Garðs Apótek - í leiðinni
Fáðu lyfin send heim með póstinum
Pantaðu sendingu á appotek.is
Garðs Apótek - um land allt
Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut
Opið kl. 9-18 virka daga, lokað um helgar
Olís-deild karla
Grótta - Selfoss 22-21
Grótta: Nökkvi Dan Elliðason 6, Daði
Laxdal Gautason 5, Júlíus Þórir Stefánsson
5, Finnur Ingi Stefánsson 4, Þórir Bjarni
Traustason 1, Pétur Hauksson 1.
Selfoss: Teitur Örn Einarsson 5, Haukur
Þrastarson 5, Atli Ævar Ingólfsson 4, Einar
Sverrisson 4, Hergeir Grímsson 2, Sverrir
Pálsson 1.
Efst
FH 16
Valur 15
Haukar 13
ÍBV 12
Stjarnan 11
Selfoss 10
Neðst
Fram 8
Afturelding 7
ÍR 6
Fjölnir 3
Víkingur 3
Grótta 2
Nýjast
Í dag
16.20 Katar - Ísland Sport
19.35 Írland - Danmörk Sport 2
19.55 England - Brasilía Sport
fær aron fleiri tækifæri?
aron Jóhannsson hefur aðeins
spilað þrjár mínútur fyrir Werder
Bremen í þýsku Bundesligunni
það sem af er tímabilinu. nú er
hins vegar kominn nýr maður í
stjórastólinn og aron vonast eftir
tækifæri til að sanna sig fyrir nýja
stjóranum.
aron stóð sig vel í vináttuleik
gegn Heerenveen í síðustu viku, en
þá kom hann inn af varamanna-
bekknum.
„aron sýndi mér það sem hann
hefur sýnt síðan ég kom hingað, að
hann er mjög samviskusamur og
dyggur liðsmaður,“ sagði florian
kohfeldt, en hann tók við liðinu í
byrjun mánaðarins eftir að alex-
ander nouri var látinn fara frá félag-
inu.
„Hann kom við sögu í mörgum
góðum augnablikum í leiknum. Þó
hann hafi gert nokkur mistök þá var
greinilegt að hann vildi nýta tæki-
færi sitt.“
aron meiddist illa fyrsta tímabil
sitt hjá Bremen, en hann gekk til
liðs við þýska liðið árið 2015. eftir
meiðslin færðist aron aftar í gogg-
unarröðinni hjá nouri og hefur
hann aðeins komið við sögu í 17
leikjum fyrir Bremen.
garrett leysir Hester af
körfuknattleiksdeild tindastóls
hefur samið við Bandaríkjamann-
inn Brandon garrett til næstu
þriggja mánaða.
Honum er ætlað að fylla skarð
antonios Hester sem ökklabrotn-
aði í leik tindastóls og keflavíkur
á fimmtudaginn. Búist er við því að
hann verði frá keppni í 2-3 mánuði.
garrett er 27 ára, 2,06 metra hár
kraftframherji. Á síðasta tímabili lék
hann með genève lions í
sviss en þar áður lék
hann á spáni.
garrett verður kom-
inn til landsins og ekki
er loku fyrir það skotið
að hann geti leikið
með tindastóli
þegar liðið tekur
á móti Þór Þ. í
7. umferð Dom-
i n o ’ s - d e i l d a r
karla á fimmtu-
daginn.
Aron Jóhannsson. fréttABlAðið/vAlli
Ítalía ekki með á HM í fótbolta í fyrsta sinn síðan árið 1958
Svanasöngur Buffon? Markvörðurinn magnaði Gianluigi Buffon lék hugsanlega sinn síðasta landsleik fyrir Ítalíu í kvöld. Hann nálgast fertugt og
ekki talið líklegt að hann haldi áfram með landsliðinu þar sem Ítalía verður ekki með eftir 0-0 jafntefli gegn Svíum í gær. fréttABlAðið/Afp
fótbOlti „síðustu dagar hafa verið
mjög góðir. Þessi ferð er blanda
af afslöppun og að hrista hópinn
saman á öðrum sviðum en fót-
bolta. Það hefur í raun allt heppnast
þannig að ég held að það séu allir
ánægðir með þetta,“ segir Heimir
Hallgrímsson landsliðsþjálfari en á
meðan mörg af stærstu landsliðum
evrópu berjast um sæti á HM er
íslenska landsliðið að sleikja sólina
í katar og leika sér á sjóköttum og
kameldýrum.
Það er þó verið að spila fótbolta
líka. strákarnir eru þegar búnir að
spila við tékka og í dag spila þeir
gegn heimamönnum í katar.
„Það er hart að dæma menn eftir
leikinn gegn tékkum því hann var
erfiður á margan hátt. Við höfum
samt notað nokkra punkta úr þeim
leik til að búa okkur undir katar-
leikinn. Það verður allt öðruvísi
leikur,“ segir Heimir en hvernig leik
býst hann við?
Gæti orðið opinn leikur
„Þetta gæti orðið opinn leikur.
katar er með léttleikandi og fljóta
leikmenn. góðir með boltann og
vilja taka menn á. spila hratt með
jörðinni. Við ætlum aftur á móti
að skipta leiknum í tvennt og gera
tvo mismunandi hluti. Við munum
skipta mörgum inn á í hálfleik. Við
munum jafnvel vera með sitt hvora
leikaðferðina í hvorum hálfleik.“
Heimir gaf það út fyrir ferðina að
þessir leikir væru tækifæri fyrir þá
sem hefðu minna spilað til þess að
sanna sig.
„Við viljum sjá alla spila og það
munu allir fá einhvern tíma á vell-
inum. Það er líka jákvætt að sem
flestir fái að spila til þess að auka
breiddina og fleiri séu tilbúnir að
stökkva inn. Það er tilgangurinn
með þessu verkefni. ekki endilega
að ná í jákvæð úrslit,“ segir þjálfar-
inn sem hefur verið ánægður með
framlag leikmanna á æfingum.
Hugsum fram í tímann
„Við höfum getað æft marga
praktíska hluti og við erum líka
að hugsa lengra en til rússlands.
erum að hugsa tvö til þrjú ár fram í
tímann þar sem bíða mörg erfið og
skemmtileg verkefni. Þá viljum við
geta leitað í stóran og breiðan hóp.“
Á meðal leikmanna sem eru að
fá tækifæri núna er spænski Íslend-
ingurinn Diego Jóhannesson.
„strákarnir hafa tekið honum vel.
Það er nýtt fyrir okkur að vera með
leikmann sem talar ekki íslensku en
allir okkar fundir fara eðlilega fram
á íslensku. svo verður að túlka það
mikilvægasta fyrir hann eftir fund-
inn. Það verður gaman að sjá hvað
hann hefur fram að færa í leiknum
gegn katar. Ég veit að það eru aðrir,
sem hafa minna séð til hans, sem
bíða spenntari. Þetta er strákur
sem spilar í góðu liði í góðri deild
og er fínasti leikmaður. Öðruvísi
týpa en við erum með. sérstaklega
góður sóknarlega og það tekur tíma
að slípa sig inn í varnarleik eins og
við spilum,“ segir Heimir en hann
ætlar að láta gylfa Þór sigurðsson
spila í dag.
Gylfi spilar líklega
„Þeir sem komu ekki heilir heilsu
eins og aron og alfreð eru allir að
koma til. Þeir geta vonandi farið inn
í byrjunarlið sinna liða eftir þetta
verkefni. Ég er aftur á móti nokkuð
viss um að gylfi muni spila í þessum
leik,“ segir landsliðsþjálfarinn létt-
ur. henry@frettabladid.is
Viljum auka breiddina í liðinu
Það fá margir leikmenn að spila er Ísland spilar vináttulandsleik gegn Katar í dag. Landsliðsþjálfarinn
Heimir Hallgrímsson íhugar að nota tvær leikaðferðir í leiknum. Eina í fyrri hálfleik og aðra í þeim síðari.
Við erum að hugsa
lengra en til Rúss-
lands. Við erum að hugsa tvö
til þrjú ár fram í tímann þar
sem bíða mörg erfið og
skemmtileg verkefni.
Heimir Hallgrímsson
1 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 Þ r i Ð J U D A G U r16 S p O r t ∙ f r É t t A b l A Ð i Ð
spoRt
1
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:5
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
3
3
-C
4
A
8
1
E
3
3
-C
3
6
C
1
E
3
3
-C
2
3
0
1
E
3
3
-C
0
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
1
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K