Fréttablaðið - 14.11.2017, Blaðsíða 18
Matthias Giraud í fantaformi á Látraströndinni.
MYND/GraNt GuNDersoN.
Á tröllaskaga má finna sannkallað alpalandslag.
MYND/Yves GarNeau.
Á morgun, miðvikudag, verður haldið kynningarkvöld í Fjallakofanum í Kringlunni
7 í Reykjavík. Þar munu fyrirtækin
Bergmenn/Arctic Heli Skiing og
Fjallakofinn kynna spennandi
fjallaskíða- og þyrluskíðaferðir
sem þau bjóða upp á í sameiningu
í vetur.
Kynningarkvöldið hefst kl. 20 og
mun Jökull Bergmann frá Berg-
mönnum halda erindi og sýna
fjölda skemmtilegra mynda úr
fyrri ferðum. „Þetta verður mikið
fjör og við ætlum að trekkja fólk í
skíðagírinn með skemmtilegum
myndum og kynningum á dagskrá
vetrarins hjá okkur og Fjallakof-
anum. Við munum líka kynna
fyrir gestum bæði fjallaskíða- og
snjóflóðanámskeið sem eru fram
undan hjá okkur og algjörlega
nauðsynlegur grunnur fyrir þá
sem hyggja á ferðir á eigin vegum
utanbrautar. Auk þess munum við
kynna ferðir til Japans og Síberíu
ásamt fjölda annarra skemmtilegra
ferða. Fjallakofinn mun kynna það
nýjasta í útbúnaði og svo verða
frábær tilboð í gangi ásamt léttum
veitingum. Það verður því flott
stemning á svæðinu á morgun.“
sprenging í aðsókn
Nokkur ár eru síðan fyrirtækin
hófu að bjóða upp á slíkar ferðir
en mikil sprenging hefur orðið í
aðsókn í báðar ferðir síðustu árin
segir Jökull. „Fyrstu fjallaskíða-
ferðirnar með erlenda viðskipta-
vini voru farnar árið 2000 og fyrsta
þyrluskíðaferðin árið 2008. Þar
sem við vorum í báðum tilfellum
fyrstu fyrirtækin til að bjóða upp
á slíkar ferðir þá tók nokkur ár að
byggja upp vöruna.“
Á Íslandi fer aðalstarfsemi þeirra
fram á Tröllaskaganum sem Jökull
segir að sé orðinn vel þekktur
áfangastaður á heimsvísu fyrir
skíðamenn. „Þaðan gerum við út
frá tveimur bækistöðvum, Klængs-
hóli í Skíðadal sem er aldagamalt
fyrrverandi sauðfjárbýli forfeðra
minna og svo Karlsá sem er annað
fornt höfuðból rétt norðan Dal-
víkur. Á báðum stöðum hefur farið
fram mikil uppbygging og er þar
að finna glæsilega gistiaðstöðu
með öllum heimsins þægindum.
Á Tröllaskaga bjóðum við upp á
bæði þyrlu- og fjallaskíðaferðir en
einnig gerum við út í fjallaskíða-
ferðir á bæði Vest- og Austfjörðum
í góðri samvinnu við heimamenn.
Að auki bjóðum við upp á fjalla- og
þyrluskíðaferðir ásamt almennri
fjallaleiðsögn um allan heim, m.a
í Japan, á Suðurskautslandinu, í
Ölpunum, Kanada, Síberíu og Mar-
okkó svo eitthvað sé nefnt.“
Góðir dagar
Jökull segir bæði fjallaskíða- og
þyrluskíðaferðir vera einstaka
upplifun. „Í þyrluskíðaferðunum
flytur þyrlan fólkið á fjallstoppinn
en í fjallaskíðaferðum gengur hver
og einn fyrir eigin vélarafli ef svo
má að orði komast. Hefðbundinn
dagur í fjallaskíðaferð er 6-8 tímar
úti í mörkinni og við erum að ganga
upp á milli 1.000-1.500 metra yfir
daginn. Um leið náum við svona
1-2 góðum skíðaferðum niður en að
sjálfsögðu fara um 90% af tímanum
í að ganga upp og njóta hreyfingar-
innar og náttúrunnar. Þyrluskíða-
mennskan snýst hins vegar um
að skíða sem mest niður í móti.
Venjulegur dagur í þyrluskíðun
er um 8-12 ferðir upp og niður og
ekki óalgengt að fólk sé að ná þetta
8-10.000 skíðuðum fallmetrum yfir
daginn ef það er í góðu formi.“
Kynningarkvöldið hefst kl. 20 í
Fjallakofanum í Kringlunni 7 og
nánari upplýsingar má finna á
Facebook síðu Fjallakofans undir
viðburðir.
Framhald af forsíðu ➛
að skíða frá fjallstoppi niður í fjöru er það sem heillar erlenda gesti mest.
MYND/freDrik scheNhoLM.
Jökull Bergmann, uiaGM fjallaleið-
sögumaður.
MYND/GuðMuNDur tóMassoN
svissneski ofurhuginn ilir osmani með Látraströnd í bakgrunni. MYND/MYND/Yves GarNeau.
2 kYNNiNGarBLað fóLk 1 4 . N óv e M B e r 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R
1
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:5
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
3
3
-B
F
B
8
1
E
3
3
-B
E
7
C
1
E
3
3
-B
D
4
0
1
E
3
3
-B
C
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
0
s
_
1
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K