Fréttablaðið - 14.11.2017, Síða 22
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@365.is
Ég var með þetta námskeið í gangi fyrir rúmlega áratug og síðan hef ég mjög reglu-
lega fengið óskir um að halda það
aftur. Og nú var rétti tíminn,“ segir
Ragga sem er hjúkrunarfræðingur
að mennt. „Ég er komin með fína
aðstöðu í Áfalla- og sálfræðimið-
stöðinni þar sem er fínn salur. Svo
er kynlífsleikfangaverslunin Blush
í næsta húsi og við nýtum okkur
það.“ Hún segir að margar konur
eigi í flóknu og stundum erfiðu
sambandi við sjálfar sig sem kyn-
verur. „Þær leyfa sér ekki að njóta
þessa hluta lífs síns til fulls. Nám-
skeiðið snýst um kynlífssamband
konunnar við sjálfa sig fyrst og
fremst. Og þó umræðan um kynlíf
hafi opnast mikið síðan ég hélt
námskeiðin síðast held ég að konur
sitji uppi með sömu vandamál eftir
sem áður.“ Hún segir konur koma
á námskeiðið á ólíkum forsendum.
„Sumar hafa misst áhugann á
kynlífi, aðrar kannski aldrei upp-
lifað fullnægingu, sumar eru með
ofbeldissögu sem gerir þeim erfitt
að tengjast þessum hluta lífsins og
svo eru sumar sem hafa bara áhuga
á kynlífi og vilja efla sig og gera
meira. Þær koma til að fá þekk-
ingu, tæki og tól til að hlúa að sinni
kynvitund og gera líf sitt betra og
skemmtilegra.“
Ragga segist taka greinilega
eftir því að viðhorfið til kynlífs
hafi breyst. „Síðast þegar ég var
með námskeið var miklu meira
feimnismál fyrir konu að hafa
áhuga á kynlífi. Þá þorðu konur
ekki að heilsa mér í Kringlunni af
ótta við að þurfa að útskýra hvernig
þær þekktu mig en núna deila
konur því á Facebook að þær séu að
fara á námskeið svo ég finn mikla
breytingu hvað það varðar. Ég finn
líka að konur hafa áhuga á að víkka
sjóndeildarhringinn í kynlífinu, ég
er til dæmis með námskeið núna
um helgina sem fjallar um ævintýri,
kink og óhefðbundin sambönd.“
Námskeiðið Konur og kynlíf
stendur í tvo daga í röð, fjóra tíma
í senn og nemendur eru á bilinu
átta til tólf talsins. „Fyrri daginn
veltum við fyrir okkur líffræðinni
í kringum kynlíf. Það er svo vald-
eflandi fyrir konur að kynnast
píkunni og vita hvað er í gangi þar.
Seinni daginn er svo farið í kynlífs-
leikfangaverslunina við hliðina og
þá tölum við líka um tilfinningar
og líðan. Svo förum við í grindar-
botnsæfingar, kynorkueflandi
öndun og djúpslökun.“
Viðtökurnar hafa verið góðar
og eftirspurn eykst stöðugt. „Ég
hef gert könnun eftir námskeiðin,
sent spurningalista þar sem ég
bið konurnar að meta efnið og
námskeiðið og ég hef fengið mjög
góð og gagnleg viðbrögð.“ Næstu
námskeið eru um helgina, í byrjun
desember verður námskeiðið
Karlar og kynlíf og svo er Konur
og kynlíf grunnnámskeið í byrjun
janúar. „Það eru nokkur pláss laus
á námskeiðið um helgina þar sem
verður farið í ævintýrahlutann af
kynlífi, óvenjuleg sambönd, kink
og ýmislegt. Það námskeið getur
Konur hlúa að kynvitundinni
Ragnheiður Haralds- og Eiríksdóttir hefur um árabil haldið fólki við efnið þegar kemur að samlífi
og kynlífi. Hún hefur nú endurvakið námskeiðin Konur og kynlíf sem hafa notið mikilla vinsælda.
Ragnheiður Har-
alds- og Eiríks-
dóttir segir kon-
ur mun opnari
varðandi áhuga
á kynlífi nú en
fyrir fimmtán
árum þegar hún
hélt fyrst nám-
skeiðið Konur
og kynlíf.
hentað öllum og ekki nauðsyn-
legt að hafa setið Konur og kynlíf
fyrst.“
Allar upplýsingar um námskeiðin
Konur og kynlíf og Karlar og kynlíf
má finna á Facebook.
Farsímahulstrin frá danska framleiðandanum RadiCover vernda notendur snjallsíma
fyrir rafsegulbylgjum, sem geta
verið varasamar heilsu fólks,“ segir
Jóhann Þórsson, markaðsstjóri
Heimkaup.is. „Barnshafandi konur
og börn geta verið sérstaklega við-
kvæm fyrir þeim.“
Heimkaup.is býður nú RadiCover
hulstrin til sölu en þau hafa verið
seld í vefverslunum í Skandinavíu.
„Þau hafa náð miklum vinsældum,“
segir Jóhann. „Það ætti að vera jafn
sjálfsagt að nota RadiCover með
símanum eins og að nota bílbelti
í umferðinni, hjálm á hjólinu eða
sólarvörn á ströndinni.“
Rafsegulbylgur eru ósýnilegar, en
raunverulegar.
„Snjallsíminn er einfaldlega frábært
tæki og ekkert okkar vill vera án
hans, en frá honum stafar því miður
rafsegulbylgjum sem fæstir leiða
hugann að,“ segir Jóhann. „WHO
skilgreinir bylgjur frá þráðlausum
raftækjum sem mögulegan krabba-
meinsvald og alþjóðlegar
rannsóknir benda til þess að
þær geti haft margvísleg áhrif
á heilsu fólk; séu krabba-
meinsvaldandi, auki stress,
þunglyndi, ófrjósemi, geti
haft áhrif á hegðun barna,
valdið höfuðverk og svefnt-
ruflunum. Börn eru mun
viðkvæmari fyrir þessum
bylgjum en fullorðnir og börn
nota jú síma alltaf meira og
meira.“
Alls ekki eins og hvert
annað símahulstur
„RadiCover hulstrin virðast
í fyrstu eins og hvert annað
símahulstur, nema hvað að
venjuleg símahulstur vernda
notendur ekki fyrir þessum ósýni-
lega skaðvaldi,“ segir Jóhann.
„Hulstrin eru til fyrir flestar gerðir
síma og margar tegundir eru til
sölu á Heimkaup.is. Þau eru sérlega
þægileg og í þeim er pláss fyrir
kort og ýmislegt sem fólk geymir í
venjulegum veskjum. Hulstrin eru
úr flottu gervileðri og lokast með
segli.“
Ekki lengur varnarlaus
gegn rafsegulbylgjum
„Virtir sérfræðingar um heim allan
hvetja fólk til að hafa allan vara
á,“ segir Jóhann. „Enrico Kaars-
berg stofnaði RadiCover eftir að
hafa sjálfur leitað að vöru sem
gæti verndað hann gegn rafsegul-
bylgjum frá símanum. Hann hafði
fengið að kenna all hastarlega á
afleiðingum rafsegulbylgna á eigin
skinni og vildi að sjálfsögðu ekki
hætta að nota símann, frekar en
nokkurt okkar. Þegar hann fann
enga vöru sem fullnægði kröfum
hans fór hann sjálfur
af stað.
Við getum ekki
hugsað okkur lífið
án snjallsímans,
en erum varnar-
laus gegn rafsegul-
bylgjunum,“ segir
Jóhann. „Við
viljum heldur
ekki gera miklar
breytingar á lífi
okkar til að forð-
ast þær. Þess vegna
hóf Kaarsberg að þróa vörulínu
sem byggir á sömu tækni og notuð
er við smíði geimfara, þar sem
vörnin er ósýnileg og innbyggð í
vöruna.
Frá árinu 2014 hefur RadiCover
boðið upp á vönduð símahulstur
sem draga úr skaðlegum rafsegul-
bylgjum um 55-99,9%,“ segir
Jóhann. „Allar vörurnar fara svo
í gegnum gæðapróf hjá viður-
kenndum sjálfstæðum rannsóknar-
stofum í Danmörku, Þýskalandi og
Bandaríkjunum.“
Njótum snjalltækja áhyggjulaus
RadiCover farsímahulstur fást nú á Heimkaup.is. Jóhann Þórsson, markaðsstjóri Heimkaup.
is, segir hulstrin geta verndað fólk gegn skaðlegum rafsegul bylgjum frá snjallsímum.
Jóhann Þórsson segir að RadiCover hulstrin hafi notið mikilla vinsælda í Skandinavíu. MYND/ANTON BRINK
RadiCover hulstrin fást í ýmsum
stærðum og gerðum.
MYND/HEIMKAUP
Barnshafandi konur og börn geta
verið viðkvæm fyrir rafsegulbylgjum.
MYND/HEIMKAUP
Hulstrin eru úr
flottu gervileðri og
lokast með segli.
MYND/ANTONBRINK
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . N Óv E M B E R 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R
1
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:5
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
3
3
-B
0
E
8
1
E
3
3
-A
F
A
C
1
E
3
3
-A
E
7
0
1
E
3
3
-A
D
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
1
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K