Fréttablaðið - 14.11.2017, Síða 30
Í fyrra fluttum
við Í fÍlharmónÍu
tvo kafla úr messunni og
eftir það fór fólk Í kórnum
að ýta á að taka hana alla
þvÍ hún væri svo flott.Messan eftir tónskáldið Rheinb e r g e r f r á Liecht enstein sem flutt verður af söngsveitinni
Fílharmóníu í Langholtskirkju í
kvöld er talin meðal fegurstu tón
verka 19. aldar. Höfundurinn hlaut
verðlaun úr hendi Leós páfa XIII
fyrir hana árið 1879. Magnús Ragn
arsson, stjórnandi Fílharmóníu og
organisti í Langholtskirkju, segir
þó ekki um þekkt verk á Íslandi
að ræða. „Ég hef stjórnað flutningi
messunnar einu sinni áður með
Kammerkór Áskirkju, hún er vel
þekkt úti í Evrópu og er alger perla.
Í fyrra fluttum við í Fílharmóníu tvo
kafla úr messunni og eftir það fór
fólk í kórnum að ýta á að taka hana
alla því hún væri svo flott.“
Meðal þess sem einnig prýðir
efnisskrá kvöldsins eru tvö lög
eftir ungt tónskáld, Þorvald Örn
Davíðsson. „Þetta eru falleg lög og
það er stefna hjá kórunum mínum
að taka eitthvað nýtt íslenskt á
hverju ári, eða í hæsta lagi fimm
ára gamalt. Það er svo gaman að
styðja við nýsköpun. Þorvaldur
Örn er kollegi minn hér í Lang
holtskirkju því hann stjórnar hér
tveimur kórum, Gradualekórnum
og Graduale Nobile. Hann er fjöl
hæfur, spilar á orgel, stjórnar kórum
og semur flotta tónlist.“
Tónleikarnir í kvöld hefjast
klukkan 20. Miðaverð er 2.000 krón
ur en frítt fyrir börn 12 ára og yngri.
Vel þekkt í Evrópu og er alger perla
Magnús segir það stefnu hjá kórunum hans að taka eitthvað nýtt íslenskt á hverju ári. Það verður gert í kvöld.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
söngsveitin fílharmónía heldur haust-
tónleika sína í langholtskirkju í kvöld.
magnús ragnarsson stjórnar. megin-
verkið er messa í es-dúr eftir Josef
rheinberger – og fleira er að heyra.
TónlisT
HHHHH
Kammertónleikar
Verk eftir Bartók, Beethoven,
de sarasate og de Falla.
Páll Palomares lék á fiðlu, Eva
Þyri Hilmarsdóttir lék á píanó.
salurinn í Kópavogi
sunnudaginn 12. nóvember
Færir hljóðfæraleikarar falla gjarnan
í þá gryfju að æfa ekki nóg hæg lög
sem þeir hyggjast leika á tónleikum.
Hægir kaflar eru jú auðveldari, svo
flestum stundum er varið í að undir
búa þá hraðari og erfiðari. En það
hæga krefst líka yfirlegu, listamaður
inn verður að melta þannig
tónlist almennilega ef
hann ætlar að hrífa
áheyrendur með
henni.
Mér fannst ég
greina þennan
feil á tónleikum
í Salnum í Kópa
vogi á sunnu
dagskvöldið. Þar
lék Páll Palomares
fiðluleikari m.a. Play
era op. 23 og Romanza
andaluza op. 22 eftir Pablo
de Sarasate. Þetta eru rómantísk, en
látlaus lög. Ef maður kann á annað
borð á fiðlu þarf ekkert að æfa lögin,
það er hægt að spila þau beint af
blaðinu. En lögin virkuðu ekki, sumir
tónar voru örlítið óhreinir og túlk
unin var kynlega áhugalaus. Samt
er þetta hrífandi tónlist með himn
eskum laglínum.
Rúmenskir dansar eftir Bartók
voru hins vegar magnaðir, þrungnir
viðeigandi tilfinningum. Eva Þyri
Hilmarsdóttir lék á píanó með Páli
og gerði það af fegurð og innileika,
en rödd píanósins var þó heldur
sterk. Á tónleikum fiðlu og píanó
leikara eru hljóðfærin yfirleitt jafn
„mikilvæg“ en svo er ekki um þessa
dansa Bartóks. Þar er fiðlan í ein
leikshlutverki, píanóið fylgir. Í döns
unum var nánast eins og hljóðfæra
leikararnir væru í samkeppni.
Sónata í cmoll op. 30 nr. 2 eftir
Beethoven var meira sannfærandi,
þrátt fyrir smá slys, sem rekja mátti
til mistaka aðstoðarkonu píanóleik
arans, flettarans, snemma í verkinu.
Sem betur fer kom það ekki að sök.
Hér standa hljóðfærin tvö jafnfætis,
sennilega er píanóið í stærri rull
unni. Leikur Evu Þyriar var stór
brotinn og skapmikill, auk þess sem
tæknileg atriði voru á hreinu. Hröð
tónahlaup voru bæði skýr og örugg.
Túlkun Páls var sömuleiðis kröftug
og lifandi og samspilið var nákvæmt.
Hvergi var dauður punktur.
Á efnisskránni var líka svíta af
spænskum alþýðulögum (Suite
populare españole) eftir Manuel de
Falla. Einstaka fiðlutónar hefðu mátt
vera fókuseraðri og túlkunin
ástríðufyllri. Það var eins
og tónlistin væri alltaf
í einhverri fjarlægð,
hún virtist ekki koma
fiðluleikaranum við.
Sumt tæknilegt var
engu að síður flott, hratt
spil var pottþétt og auðheyrt
að Páll er framúrskarandi fiðlu
leikari. Eva Þyri fylgdi með ágætum,
leikur hennar var blæbrigðaríkur, og
snarpur þegar við átti.
Caprice Basque (basknesk gletta)
eftir fyrrnefndan de Sarasate var
lokaatriði tónleikanna, og var það
gætt glæsilegum tilþrifum, sem
sýndu vel tækni fiðluleikarans. Í
uppklappinu var svo portúgalska
sigurlagið í síðustu Eurovision
keppni, vissulega hægt, en var samt
sem áður forkunnarfagurt í höndum
hljóðfæraleikaranna. Greinilegt var
að þau halda mikið upp á lagið og
lögðu ríkulega alúð í flutning þess.
Annað rólegt á dagskránni verð
skuldaði sömu meðferð. Jónas Sen
niðursTaða: Mjög færir hljóðfæra-
leikarar í sjálfu sér, en túlkunin var ekki
alltaf sannfærandi.
Sumt stórbrotið, annað ósannfærandi
„Leikur Evu Þyriar
var stórbrotinn og
skapmikill,“ segir í
dómnum.
7 ára ábyrgð á öllum
nýjum Kia bílum
www.kia.com
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Kia á Íslandi.
Fylgdu okkur á Facebook.
facebook.com/kiamotorsisland
Ríkulegur kaupauki fylgir Kia Sorento
Kia Sorento er kraftmikill, rúmgóður og hlaðinn spennandi aukabúnaði og
tæknilausnum. Honum fylgir 400.000 kr. kaupauki, glæsilegur vetrarpakki
eða Arctic Edition sem kemur þér enn lengra í vetur. Fáanlegur í 5 og 7
sæta útgáfum og honum fylgir að sjálfsögðu 7 ára ábyrgð.
Komdu í Öskju og reynsluaktu Kia Sorento. Við tökum vel á móti þér.
Kia Sorento – 2,2 dísil, sjálf skiptur
og fjórhjóladrifinn
Verð frá 7.190.777 kr.
Ferðastu á
fyrsta farrými
1 4 . n ó V E m B E r 2 0 1 7 Þ r i ð J u D a G u r22 m E n n i n G ∙ F r É T T a B l a ð i ð
menning
1
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:5
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
3
3
-9
8
3
8
1
E
3
3
-9
6
F
C
1
E
3
3
-9
5
C
0
1
E
3
3
-9
4
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
1
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K