Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.11.2017, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 14.11.2017, Qupperneq 30
Í fyrra fluttum við Í fÍlharmónÍu tvo kafla úr messunni og eftir það fór fólk Í kórnum að ýta á að taka hana alla þvÍ hún væri svo flott.Messan eftir tón­skáldið Rhein­b e r g e r f r á Liecht enstein sem flutt verður af söngsveitinni Fílharmóníu í Langholtskirkju í kvöld er talin meðal fegurstu tón­ verka 19. aldar. Höfundurinn hlaut verðlaun úr hendi Leós páfa XIII fyrir hana árið 1879.  Magnús Ragn­ arsson, stjórnandi Fílharmóníu og organisti í Langholtskirkju,  segir þó ekki  um þekkt verk  á Íslandi að ræða. „Ég hef stjórnað flutningi messunnar einu sinni áður með Kammerkór Áskirkju, hún er vel þekkt úti í Evrópu og er alger perla.  Í fyrra fluttum við í Fílharmóníu tvo kafla úr messunni og eftir það fór fólk í kórnum að ýta á að taka hana alla því hún væri svo flott.“ Meðal þess sem einnig prýðir efnisskrá kvöldsins  eru tvö lög eftir  ungt tónskáld,  Þorvald Örn Davíðsson. „Þetta eru falleg lög og það er stefna hjá kórunum mínum að taka eitthvað nýtt íslenskt á hverju ári, eða í hæsta lagi fimm ára gamalt. Það er svo gaman að styðja við nýsköpun. Þorvaldur Örn er kollegi minn hér í Lang­ holtskirkju því hann stjórnar hér tveimur kórum, Gradualekórnum og Graduale Nobile. Hann er fjöl­ hæfur, spilar á orgel, stjórnar kórum og semur flotta tónlist.“ Tónleikarnir í kvöld hefjast klukkan 20. Miðaverð er 2.000 krón­ ur en frítt fyrir börn 12 ára og yngri. Vel þekkt í Evrópu og er alger perla Magnús segir það stefnu hjá kórunum hans að taka eitthvað nýtt íslenskt á hverju ári. Það verður gert í kvöld. Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is söngsveitin fílharmónía heldur haust- tónleika sína í langholtskirkju í kvöld. magnús ragnarsson stjórnar. megin- verkið er messa í es-dúr eftir Josef rheinberger – og fleira er að heyra.  TónlisT HHHHH Kammertónleikar Verk eftir Bartók, Beethoven, de sarasate og de Falla. Páll Palomares lék á fiðlu, Eva Þyri Hilmarsdóttir lék á píanó. salurinn í Kópavogi sunnudaginn 12. nóvember Færir hljóðfæraleikarar falla gjarnan í þá gryfju að æfa ekki nóg hæg lög sem þeir hyggjast leika á tónleikum. Hægir kaflar eru jú auðveldari, svo flestum stundum er varið í að undir­ búa þá hraðari og erfiðari. En það hæga krefst líka yfirlegu, listamaður­ inn verður að melta þannig tónlist almennilega ef hann ætlar að hrífa áheyrendur með henni. Mér fannst ég greina þennan feil á tónleikum í Salnum í Kópa­ vogi á sunnu­ dagskvöldið. Þar lék Páll Palomares fiðluleikari m.a. Play­ era op. 23 og Romanza andaluza op. 22 eftir Pablo de Sarasate. Þetta eru rómantísk, en látlaus lög. Ef maður kann á annað borð á fiðlu þarf ekkert að æfa lögin, það er hægt að spila þau beint af blaðinu. En lögin virkuðu ekki, sumir tónar voru örlítið óhreinir og túlk­ unin var kynlega áhugalaus. Samt er þetta hrífandi tónlist með himn­ eskum laglínum. Rúmenskir dansar eftir Bartók voru hins vegar magnaðir, þrungnir viðeigandi tilfinningum. Eva Þyri Hilmarsdóttir lék á píanó með Páli og gerði það af fegurð og innileika, en rödd píanósins var þó heldur sterk. Á tónleikum fiðlu­ og píanó­ leikara eru hljóðfærin yfirleitt jafn „mikilvæg“ en svo er ekki um þessa dansa Bartóks. Þar er fiðlan í ein­ leikshlutverki, píanóið fylgir. Í döns­ unum var nánast eins og hljóðfæra­ leikararnir væru í samkeppni. Sónata í c­moll op. 30 nr. 2 eftir Beethoven var meira sannfærandi, þrátt fyrir smá slys, sem rekja mátti til mistaka aðstoðarkonu píanóleik­ arans, flettarans, snemma í verkinu. Sem betur fer kom það ekki að sök. Hér standa hljóðfærin tvö jafnfætis, sennilega er píanóið í stærri rull­ unni. Leikur Evu Þyriar var stór­ brotinn og skapmikill, auk þess sem tæknileg atriði voru á hreinu. Hröð tónahlaup voru bæði skýr og örugg. Túlkun Páls var sömuleiðis kröftug og lifandi og samspilið var nákvæmt. Hvergi var dauður punktur. Á efnisskránni var líka svíta af spænskum alþýðulögum (Suite populare españole) eftir Manuel de Falla. Einstaka fiðlutónar hefðu mátt vera fókuseraðri og túlkunin ástríðufyllri. Það var eins og tónlistin væri alltaf í einhverri fjarlægð, hún virtist ekki koma fiðluleikaranum við. Sumt tæknilegt var engu að síður flott, hratt spil var pottþétt og auðheyrt að Páll er framúrskarandi fiðlu­ leikari. Eva Þyri fylgdi með ágætum, leikur hennar var blæbrigðaríkur, og snarpur þegar við átti. Caprice Basque (basknesk gletta) eftir fyrrnefndan de Sarasate var lokaatriði tónleikanna, og var það gætt glæsilegum tilþrifum, sem sýndu vel tækni fiðluleikarans. Í uppklappinu var svo portúgalska sigurlagið í síðustu Eurovision­ keppni, vissulega hægt, en var samt sem áður forkunnarfagurt í höndum hljóðfæraleikaranna. Greinilegt var að þau halda mikið upp á lagið og lögðu ríkulega alúð í flutning þess. Annað rólegt á dagskránni verð­ skuldaði sömu meðferð. Jónas Sen niðursTaða: Mjög færir hljóðfæra- leikarar í sjálfu sér, en túlkunin var ekki alltaf sannfærandi. Sumt stórbrotið, annað ósannfærandi „Leikur Evu Þyriar var stórbrotinn og skapmikill,“ segir í dómnum. 7 ára ábyrgð á öllum nýjum Kia bílum www.kia.com ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · 590 2100 · askja.is Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Kia á Íslandi. Fylgdu okkur á Facebook. facebook.com/kiamotorsisland Ríkulegur kaupauki fylgir Kia Sorento Kia Sorento er kraftmikill, rúmgóður og hlaðinn spennandi aukabúnaði og tæknilausnum. Honum fylgir 400.000 kr. kaupauki, glæsilegur vetrarpakki eða Arctic Edition sem kemur þér enn lengra í vetur. Fáanlegur í 5 og 7 sæta útgáfum og honum fylgir að sjálfsögðu 7 ára ábyrgð. Komdu í Öskju og reynsluaktu Kia Sorento. Við tökum vel á móti þér. Kia Sorento – 2,2 dísil, sjálf skiptur og fjórhjóladrifinn Verð frá 7.190.777 kr. Ferðastu á fyrsta farrými 1 4 . n ó V E m B E r 2 0 1 7 Þ r i ð J u D a G u r22 m E n n i n G ∙ F r É T T a B l a ð i ð menning 1 4 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :5 2 F B 0 4 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 3 3 -9 8 3 8 1 E 3 3 -9 6 F C 1 E 3 3 -9 5 C 0 1 E 3 3 -9 4 8 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 0 s _ 1 3 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.