Fréttablaðið - 23.11.2017, Síða 8
GÓÐUR VINNUFÉLAGI
Volkswagen Caddy
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
Einn vinsælasti atvinnubíll á Íslandi er Volkswagen Caddy.
Hann er áreiðanlegur, öruggur og fæst í tveimur lengdum
- hefðbundinni lengd og lengri gerð (Maxi).
Caddy má fá með fjórhjóladrifi sem eykur enn við öryggi og
aksturseiginleika bílsins og eykur til muna notkunarmöguleika
Caddy, hvort heldur er í snjó, hálku eða erfiðu færi.
Við látum framtíðina rætast.
Volkswagen Caddy 2.0 TDI kostar frá
2.990.000 kr.
(2.392.000 kr. án vsk)
EIGUM NOKKRA TIL
AFHENDINGAR
STRAX
Veglegur aukahlutapakki fylgir Caddy TDI til áramóta.
- Bakkmyndavél - Webasto miðstöð með fjarstýringu - Verðmæti 215.000 kr.
stjórnsýsla „Þetta er ömurlegt
mál og ekki í takti við vilja nefnd-
arinnar þegar við vorum að vinna
þetta,“ segir Óttarr Proppé. Hann
var formaður þverpólitískrar þing-
mannanefndar sem samdi drög að
nýjum útlendingalögum á þar síð-
asta kjörtímabili.
Kærunefnd útlendingamála hefur
komist að þeirri niðurstöðu að víet-
namski matreiðsluneminn Chuong
Le Bui skuli ekki fá námsmanna-
dvalarleyfi hér á landi. Ástæðan er
sú að í nýjum útlendingalögum er
iðnnám ekki skilgreint sem nám.
Óttarr segir að það hafi verið
ætlun nefndarinnar að tekið yrði til-
lit til iðnnáms. „Þetta er lesið miklu
þrengra af kærunefndinni heldur
en við hefðum gert ráð fyrir í þing-
mannahópnum,“ segir Óttarr.
Óttarr segir að þingmannanefnd-
in hafi lagt til að skipuð yrði nefnd
til að fylgja lögunum og innleið-
ingunni eftir til þess að geta tekið á
hnökrum sem fyrirsjáanlegt var að
gætu komið upp á í þessari risastóru
löggjöf. Sú nefnd hefur ekki verið
skipuð. Óttarr leggur áherslu á að
nýju útlendingalögin séu gríðarlega
flókin. „Ég held að lagabókstafurinn
sé vel yfir 100 síður,“ segir hann og
bendir á að þetta sé með flóknustu
og umfangsmestu lagasetningum
sem hafi verið gerðar. „Þannig að
þrátt fyrir tiltölulega góðan undir-
búning var alltaf vitað að við yrðum
að læra af þessu og breyta hlutunum
í framkvæmd.“
Á undanförnum árum hefur verið
gripið til ýmissa ráðstafana, bæði í
ráðuneytunum og á Alþingi til að
bæta lagasetningu. En mistökin
gerast enn. „Ég held að það hafi allt
verið í rétta átt. Það hefur sömu-
leiðis verið byggt undir getu og styrk
þingsins,“ segir Óttarr og bendir á að
sérfræðiþjónusta á nefndarsviði hafi
verið aukin.
„Það sem kannski hefur verið
landlægt á Íslandi er að löggjöf hefur
oft verið unnin hratt miðað við í
Evrópu, þar sem hefur verið siður
að lagabreyting hefur verið unnin
í löngu ferli og jafnvel á nokkrum
árum,“ segir Óttar.
Hann segir að margt hafi verið
til fyrirmyndar við vinnslu nýju
Mál matreiðslunemans ömurlegt
Formaður nefndar sem samdi drög að nýjum útlendingalögum segir kærunefnd útlendingamála lesa útlendingalögin miklu þrengra
en nefndin hafði gert ráð fyrir. Hann segir að útlendingalögin hefðu getað orðið betri ef meiri tími hefði gefist til að vinna þau.
Efast um að mistök
hafi verið gerð
Nýju útlendingalögin voru unnin
á þar síðasta kjörtímabili. Sigríður
Andersen dómsmálaráðherra
hefur sagt að sú skilgreining sem
kemur fram á námi sé of þröng
og miklu þrengri en löggjafar
viljinn hafi staðið til. Í ráðuneyt
inu fer fram undirbúningur að
breytingu á lögunum.
Brynjar Níelsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, dregur í efa
að um mistök hafi verið að ræða.
„Ég er nú ekkert viss um að þetta
hafi verið mistök. Ég held að þeir
sem voru að semja þetta frum
varp hafi ekkert litið á nám nema
háskólanám og starfsnám væri
bara ekki þar inni í þeirra huga. En
það kann að vera að þetta hafi
verið mistök,“ sagði Brynjar í út
varpsþættinum Bítinu á Bylgjunni
í gær.
Brynjar segist andvígur nýju
lögunum. „Ég sagði að þau væru
vanhugsuð og sat hjá við af
greiðslu þeirra. Enda óttast ég að
þegar það kemur fram þverpóli
tískt frumvarp, þá sé það aldrei
vænlegt til árangurs.“
Chuong Le Bui er gert að yfirgefa Ísland á næstu dögum, samkvæmt úrskurði kærunefndar útlendingamála. Hún hefur
sótt um frestun réttaráhrifa og þarf að rökstyðja þá frestun þann 27. nóvember. FréttaBLaðið/steFán
Óttarr
Proppé.
útlendingalaganna. Málið hafi verið
unnið þverpólitískt og í samstarfi
við þá sem vinna í faginu. „Það var
að mörgu leyti til fyrirmyndar þó að
kannski megi segja að í þessu tilfelli
hefðu lögin orðið betri ef við hefðum
verið einu til tveimur árum lengur
að vinna ferlið. En það var bara
eiginlega ekki í boði,“ segir Óttarr.
Óttarr segir Íslendinga vera að
sumu leyti því marki brennda að
vera fámenn þjóð með tiltölulega
veikar stofnanir til að takast á við
jafn flókin verkefni í lagasetningu
og stærri lönd. „Það þýðir að við
erum í mörgum tilvikum að reyna
á þanþolið og getuna.“
jonhakon@frettabladid.is
2 3 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F I m m t U D a G U r8 F r é t t I r ∙ F r é t t a b l a ð I ð
2
3
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:2
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
4
D
-9
E
2
4
1
E
4
D
-9
C
E
8
1
E
4
D
-9
B
A
C
1
E
4
D
-9
A
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
7
2
s
_
2
2
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K