Morgunblaðið - 08.02.2017, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 8. F E B R Ú A R 2 0 1 7
Stofnað 1913 33. tölublað 105. árgangur
N1 kortið
færir þér
bæði afslátt
og punkta
STARFAR Í BESTU
BORGINNI FYRIR
FYRIRSÆTUSTÖRF
VIÐURKENNING
FYRIR GOTT
STARF
ÁTTI STÓRLEIK OG
STEFNIR AÐ SÆTI
Í LANDSLIÐINU
EYRARRÓSIN 30 ERLA RÓS SIGMARSDÓTTIR ÍÞRÓTTIRSIGRÚN EVA JÓNSDÓTTIR 12
Fangar Þættirnir hafa fengið af-
bragðsviðtökur hér og erlendis.
Sjónvarpsþættirnir Fangar, sem
sýndir voru nýverið á RÚV, hafa ver-
ið seldir til nokkurra landa. Alþjóðleg
efnisveita, sem streymir sjónvarps-
efni, hefur fest kaup á þáttunum, en í
kaupsamningnum er kveðið á um að
ekki megi greina frá því um hvaða
veitu er að ræða.
Sjónvarpsþáttaröðin Ófærð, sem
nú hefur verið seld til meira en 100
landa, braut ísinn fyrir íslenskt sjón-
varpsefni á alþjóðamarkaði og í kjöl-
far þeirrar velgengni fóru erlendir
framleiðendur og kaupendur sjón-
varpsefnis að falast eftir því að taka
þátt í framleiðslu íslensks sjónvarps-
efnis.
Þetta segir Skarphéðinn Guðmunds-
son, dagskrárstjóri RÚV, en RÚV hef-
ur komið að framleiðslu bæði Fanga og
Ófærðar. Hann segir talsverða breyt-
ingu hafa orðið á framleiðslu sjón-
varpsefnis með tilkomu efnisveitna á
borð við Netflix. Sjónvarpsáhorf hafi
líklega aldrei verið meira og kröfur um
gæði efnis hafi aukist.
Að sögn Skarphéðins standa nú yfir
viðræður RÚV við höfunda og fram-
leiðendur Fanga um gerð fleiri þátta-
raða af Föngum. »6
Fangar fara víða um heim
Alþjóðleg efnisveita keypti þættina Ófærð braut ísinn
Stormviðvörun er í gildi fyrir landið allt í dag og
má búast við roki eða ofsaveðri með 23-30 m/s á
Vesturlandi, en staðbundnar hviður verða allt að
40-50 m/s. Að sögn Veðurstofunnar mun veður-
ofsinn ná hámarki um hádegi, en gera má ráð
fyrir mikilli rigningu á suðaustanverðu landinu.
Veðurstofan spáir ofsaveðri um vestanvert landið
Morgunblaðið/Eggert
Þingmenn
fimm flokka
standa að frum-
varpi um lækkun
kosningaaldurs í
sveitarstjórnar-
kosningum.
Katrín Jakobs-
dóttir, formaður
Vinstri grænna,
hyggst leggja
frumvarpið fram
í vikunni. Kjörsókn er minnst hjá
yngsta aldurshópnum, en í síðustu
sveitarstjórnarkosningum var hún
47,5%. Katrín segir þessa slöku
kjörsókn þó ekki vera til marks um
áhugaleysi á stjórnmálum. »4
Leggja til lækkun
kosningaaldurs
Kjörkassi Kosn-
ingaaldur er 18 ár.
Jón Gunnarsson, samskiptastjóri
Einkaleyfastofu, vill að litið verði á
íslenska þekkingu og hugverk sem
auðlind. „Rétt eins og við viljum
vernda aðrar auðlindir, þá þurfum
við að vernda þessa,“ segir Jón.
2.838 erlend vörumerki voru
skráð hér á landi á síðasta ári, og
581 íslenskt. Samtals eru skráð
vörumerki á Íslandi nú 58.893 tals-
ins.
Hugverkaiðnaðurinn stendur
fyrir 90% af utanríkisviðskiptum
ESB. »16
Hugverk er auðlind
sem þarf að vernda
Hálft virði Google liggur í vörumerkinu.
Karfa vantar
nú sárlega á
þýskum mörk-
uðum, segir
Magnús Björg-
vinsson, umboðs-
maður Síldar-
vinnslunnar í
Bremerhaven í
Þýskalandi.
Magnús sér um
sölu á fiski Síld-
arvinnslunnar til hæstbjóðenda í
Þýskalandi, aðallega karfa, og seg-
ir þýska neytendur nú farna að
kaupa þorsk og ufsa frá Noregi, þar
sem karfi frá Íslandi sé ekki í boði
meðan á verkfalli íslenskra sjó-
manna stendur. Markaðir í Þýska-
landi séu því klárlega að glatast.
„Þetta er grafalvarlegt ástand,
sérstaklega af því að verkfallið hef-
ur staðið svo lengi,“ segir Magnús í
samtali við Morgunblaðið.
Þá hafa bæjarstjórar í nokkrum
sjávarbyggðum einnig miklar
áhyggjur af því hvers konar áhrifa
af verkfallinu sé farið að gæta í
byggðunum. Nefndu þeir m.a. af-
komu fiskverkafólks. »14
Kaupa norskan
þorsk og ufsa
Verkfall Skipin eru
nú við bryggju.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Börn sem vistuð voru á fullorðins-
deildum Kópavogshælis á árunum
1952 til 1993 sættu í verulegum mæli
líkamlegu og andlegu ofbeldi meðan
á vist þeirra stóð. Líkamleg, vits-
munaleg og félagsleg vanræksla var
mikil og aðbúnaður skelfilegur, en
ofbeldið var bæði af hálfu starfsfólks
og annarra vistmanna.
Er þetta meðal þess sem lesa má í
skýrslu vistheimilanefndar um vist-
un barna á Kópavogshæli, en skýrsl-
an var í gær kynnt fjölmiðlum.
Börn geymd í dimmum kjallara
Í skýrslunni er að finna lýsingar
vistmanna á því ofbeldi sem þeir
urðu fyrir. Voru börn m.a. ítrekað
bundin niður, þeirra á meðal 14 ára
einhverfur drengur. Minnist einn
vistmaður þess meðal annars þegar
hann var neyddur til þess að borða
eigin ælu upp af gólfinu, en einnig er
í skýrslunni að finna mörg dæmi
þess að börn hafi verið geymd í
dimmum kjallara eftir að hafa hegð-
að sér illa. „[Þ]að mátti ganga um
svona hálfvita bara eins og þú vildir,
það mátti sparka í þá ef þess þurfti,
það mátti berja þá ef þess þurfti …
við vorum ekki neitt, við vorum bara
rusl,“ er haft eftir einum vistmanni í
skýrslunni.
Hrefna Friðriksdóttir, formaður
vistheimilanefndar, segir hópinn
þurfa sérstaka aðstoð til þess að
sækja sanngirnisbætur. Lofar dóms-
málaráðherra að slík aðstoð verði
veitt og að ráðuneytið muni fara
grannt yfir málið með sanngirnis-
bætur í huga.
Guðrún Ögmundsdóttir er tengi-
liður ráðuneytisins vegna vistheimila
og sér m.a. um að aðstoða fyrrver-
andi vistmenn sem eiga um sárt að
binda í kjölfar reynslu sinnar. Segir
hún málið fá fulla athygli enda alvar-
legt. „Mikilvægt er að mæta þessum
hóp af virðingu. Ég tek núna málið,
fer yfir skýrsluna og kem með til-
lögur til ráðherra,“ segir Guðrún.
Alvarlegt ofbeldi í áratugi
Skýrsla vistheimilanefndar um Kópavogshæli lýsir því mikla ofbeldi sem vist-
menn þurftu að þola Börn voru vistuð á fullorðinsdeildum án lagaheimildar
MUpplifði mig einskis virði »2