Morgunblaðið - 08.02.2017, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 08.02.2017, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2017 Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Sex ólík menningarverkefni á landsbyggðinni hafa verið valin á Eyrarrósarlistann 2017 og eiga þar með möguleika á að hljóta Eyrarrósina í ár. Það eru Alþýðuhúsið á Siglufirði, Eistna- flug í Neskaupstað, List í ljósi á Seyðisfirði, Nes – Listamiðstöð á Skagaströnd, Rúllandi snjó- bolti á Djúpavogi, og Vesturfarasetrið á Hofs- ósi. Að þessu sinni bárust alls 37 umsóknir um Eyrarrósina, hvaðanæva af landinu. Eyrarrósin er viðurkenning sem veitt er framúrskarandi menning- arverkefni utan höfuðborg- arsvæðisins. Hún beinir sjónum að og hvetur til menningarlegrar fjöl- breytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menn- ingar og lista. Að verðlaun- unum standa Byggða- stofnun, Flugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík. Forsetafrúin Eliza Reid, nýr verndari Eyrarrósarinnar, mun afhenda verðlaunin 16. febrúar næstkomandi við athöfn í Verksmiðjunni á Hjalteyri, sem er handhafi Eyrarrósarinnar frá síðasta ári. Verkefnið sem hlýtur Eyrarrósina fær tvær milljónir króna í verðlaun en tvö önnur verkefni á listanum hljóta 500 þúsund krónur. Glæsileg verkefni Vigdís Jakobsdóttir, nýr listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík sem heldur utan um Eyrarrósarverkefnið, segir að umsóknir um Eyrarrósina hafi sjaldan verið fleiri en hún verður nú afhent í þrettánda sinn. Áhuginn fyr- ir verkefninu sé því mikill. „Það er mjög mikið af glæsilegum lista- og menningarverkefnum á landsbyggðinni, það er ein ástæðan fyrir fjölda umsókna. Önnur ástæða er að Eyrarrósin er mjög gott tækifæri til að vekja athygli á þessum góðu verkefnum. Þá hafa peningaverðlaunin sitt að segja,“ segir Vigdís og bætir við að upphæð verðlaunanna hafi nú verið hækkuð, upp í tvær milljónir, og það muni um minna í menningunni, úti á landi sem annars staðar. Þá segir Vigdís umsóknirnar afar fjölbreyti- legar. „Þetta eru söfn, setur og sprotaverkefni og það var erfitt að velja úr þeim, meðal annars sökum þess hversu ólík þau eru. En við höfum raðað sex verkefnum á listann og hann er hugs- aður til þess að geta endurspeglað þessa breidd.“ Vigdís segir sum verkefnin tengdari ferða- þjónustu en önnur en í valinu á listann hafi ekki verið lögð áhersla á það heldur hvernig verk- efnin næri listumhverfið og menninguna á hverju svæði fyrir sig. Vekur athygli á verkefnum Alþekkt er að metnaðarfullir aðstandendur menningarverkefna á fámennari stöðum gefast oft upp þegar stuðningurinn er lítill heima fyrir og ekki næst að koma fersku blóði í starfsemina. Telur Vigdís að athygli sem val á lista Eyrar- rósarinnar, eða verðlaunin sjálf veiti, gefi að- standendum aukinn kraft til að halda starfsem- inni gangandi? „Ég veit að það er staðreynd að það að kom- ast á listann og hljóta Eyrarrósina vekur at- hygli á verkefnunum. Það hjálpar fólki líka í framhaldinu við styrkumsóknir og slíkt. Við er- um mjög stolt af því að öll verkefnin sem hafa fengið Eyrarrósina í gegnum tíðina, fyrir utan eitt sem var tímabundið, Áhöfnin á Húna, eru starfandi enn í dag. Við leggjum áherslu á að verkefnin sem fá verðlaunin séu þegar búin að sanna sig og séu stöndug. Þetta er viðurkenning fyrir gott starf, oft mikið hugsjónastarf sem hefur kostað mikla seiglu að halda úti.“ Vigdís er listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík. Hvernig fer það saman að undirbúa hina hefðbundnu hátíð með áherslu á höfuð- borgarsvæðið og skoða og velja úr verkefnum á landsbyggðinni? „Mér finnst þetta fara afskaplega vel saman. Reykjavík er höfuðborg landsins og Listahátíð í Reykjavík er nokkurs konar móðir hátíðanna á Íslandi. Þetta gefur mér sjálfri líka ómetanlegt tækifæri til að fá innsýn í það sem er að gerast í menningunni um land allt. Að lesa allar 37 um- sóknirnar var ótrúlega lærdómsríkt. Að sjá metnaðinn, fjölbreytnina og allt þetta hug- sjónafólk sem keyrir áfram menningarverkefni á landsbyggðinni af metnaði og brennandi áhuga við oft mjög krefjandi aðstæður hvað varðar fjármagn og aðstöðu. Eyrarrósarlistinn birtir þverskurð af því hvað fjölbreytileikinn er mikill. Einhver ótrúleg framsýni og stórhugur einkennir þessi verkefni öll,“ segir hún. Alþýðuhúsið á Siglufirði Í Alþýðuhúsinu á Siglufirði er rekið metn- aðarfullt menningarstarf allan ársins hring, með áherslu á myndlist, undir stjórn Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur. Þar eru einnig með jöfnu millibili haldnir tónleikar, fyrirlestrar og menn- ingarviðburðir af ýmsum toga. Reglulega er listamönnum boðið að dvelja þar í skemmri tíma við eigin vinnu. Fastir viðburðir á dagskrá Al- þýðuhússins eru til dæmis menningardagur barna, gjörningahátíð, sunnudagskaffi með skapandi fólki, Reitir og fleira. Í ár fagnar Al- þýðuhúsið fimm ára afmæli og heldur upp á það með veglegri afmælisdagskrá næsta sumar. Eistnaflug, Neskaupstað Eistnaflug er rótgróin tónlistarhátíð sem haldin er í Neskaupstað aðra helgina í júlí ár hvert. Eistnaflug er eina tónlistahátíðin hér á landi þar sem höfuðáhersla er lögð á þungarokk og aðrar jaðartónlistarstefnur. Margar af þekktustu þungarokkssveitum heims hafa kom- ið fram á hátíðinni en hátíðin styður líka við bakið á ungum og upprennandi hljómsveitum og hefur rutt veginn fyrir íslenskar sveitir á er- lendum útgáfu- og tónleikamarkaði. Skipu- leggjendur eru stoltir af góðu orðspori Eistna- flugs sem „rokkhátíðar sem fer fram í bróðerni og samstöðu“. Um 50 rokksveitir munu koma fram á Eistnaflugi 2017. List í ljósi, Seyðisfirði List í ljósi er í vetur haldin á Seyðisfirði í ann- að sinn, en henni er ætlað að verða að árlegum viðburði. Rík áhersla er lögð á samfélagsleg áhrif hátíðarinnar sem fer fram utandyra. Geta allir, ungir sem aldnir, tekið þátt í hátíðinni með einum eða öðrum hætti. Á meðan á hátíðinni stendur er Seyðisfjarðarkaupstað umbreytt með ljósadýrð og spennandi listaverkum. Áhorfendur, sem um leið eru þátttakendur, upplifa á magnaðan hátt ýmis listaverk, allt frá innsetningum og vídeóverkum til stærri ljósa- skúlptúra. Innlendir og erlendir listamenn taka þátt í hátíðinni sem bókstaflega lýsir upp Seyð- isfjörð. Markmið hátíðarinnar er að styðja við menningarlíf Austurlands á lágönn og fagna komu sólar eftir þrjá langa og sólarlausa mán- uði. Rúllandi snjóbolti, Djúpavogi Í gömlu Bræðslunni á Djúpavogi hefur al- þjóðlega samtímalistasýningin Rúllandi snjó- bolti verið haldin árlega frá árinu 2014 og styrk- ir stöðu sína með hverju ári. Um er að ræða eftirtektarvert og afar metnaðarfullt samstarfs- verkefni Djúpavogshrepps og CEAC (Chinese Euro- pean Art Center). Á sýning- unni síðastliðið sumar áttu 32 íslenskir og erlendir listamenn verk á sýning- unni og þannig er um að ræða eina stærstu samtíma- listasýningu ársins hér- lendis. Aðgangur á sýn- inguna var ókeypis og nutu bæði Austfirðingar og ferðamenn góðs af. Nes, Skagaströnd Nes – listamiðstöð á Skagaströnd var stofnuð árið 2008 og hefur verið rekin þar allar götur síðan. Fjölmargir listamenn hafa dvalið á Skagaströnd frá opnun listamiðstöðvarinnar en þar er rými fyrir allt að 12 til15 listamenn í einu. Flestir kjósa að dvelja þar einn til tvo mánuði í senn. Mánaðarlegir viðburðir eru í listamiðstöðinni með virkri þátttöku heimamanna. Lista- miðstöðin Nes hefur haft áhrif á nærsamfélag sitt og gefið íbúum á öllum aldri og gestum tækifæri til að kynnast fjölbreyttri listsköpun, bæði sem áhorfendur og sem virkir þátttak- endur. Vesturfarasetrið, Hofsósi Vesturfarasetrið hefur verið starfrækt frá 1996 og er megintilgangur setursins að viðhalda og efla tengsl fólks af íslenskum ættum sem bú- sett er í Kanada og Bandaríkjunum og vill leita uppruna síns á Íslandi. Jafnframt aðstoðar Vesturfarasetrið Íslendinga í leit sinni að ætt- ingjum í Vesturheimi. Markmið Vesturfaraset- ursins er að efla enn frekar áhuga fólks af ís- lenskum ættum á uppruna sínum og frændgarði á Íslandi. Fjölmargar sýningar hafa verið settar upp í húsnæði Vesturfarasetursins á Hofsósi sem eru allar til þessa fallnar að varpa ljósi á söguna og minnast þeirra fjölmörgu sem yfir- gáfu Ísland í leit að betra lífi á seinni hluta 19. aldar og í upphafi þeirra 20. Viðurkenning fyrir gott starf  Sex menningarverkefni á landsbyggðinni valin á Eyrarrósarlistann 2017  Verkefnin sex eru Alþýðuhúsið, Eistnaflug, List í ljósi, Nes – Listamiðstöð, Rúllandi snjóbolti og Vesturfarasetrið Alþýðuhúsið Metnaðarfullt menningarstarf á Siglufirði. Ljósmynd/Nikolas Grabar List í ljósi Áhersla er á samfélagsleg áhrif á Seyðisfirði. Rúllandi snjóbolti Merkileg myndlistarsýning á Djúpavogi.Nes – listamiðstöð Hefur haft jákvæð áhrif á nærsamfélagið. Vesturfarasetrið Miðstöð á Hofsósi sem varpar ljósi á sögu vesturfaranna. Vigdís Jakobsdóttir Eistnaflug Einstök hátíð með áherslu á þungarokk. Ljósmynd/Gaui

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.