Morgunblaðið - 08.02.2017, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 08.02.2017, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 39. DAGUR ÁRSINS 2017 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR. 1. Ofsaveðri spáð á morgun 2. Hneyksluð á nýjasta Hús og híbýli 3. „Við létum smíða tennur upp í Diddu“ 4. Aftökur í leynifangelsum »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Heimstónlistarklúbburinn og Jazz- klúbburinn Múlinn standa að tón- leikum með hljómsveitunum Reykja- vik Orkestar Pardus og Byzantine Silhouette á Heimstónlistarkvöldi á Björtuloftum í Hörpu í kvöld kl. 21. Hljómsveitirnar leika bæði saman og hvor í sínu lagi, kraftmikla og fjöruga Balkantónlist. Heimstónlistarkvöld á Björtuloftum  Íslensku bók- menntaverðlaunin verða afhent í kvöld á Bessa- stöðum af forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni. Afhendingin verð- ur sýnd í beinni útsendingu á RÚV og hefst kl. 20, að loknu Kastljósi. Verðlaunin verða afhent í 28. sinn en þau voru fyrst veitt 1989. Bókmenntaverðlaun afhent í beinni á RÚV  Listakonan Thelma Marín Jóns- dóttir flytur glænýjan gjörning sinn, Mountain of Me, í menningarhúsinu Mengi annað kvöld kl. 21. Thelma Marín er menntuð leikkona, hef- ur unnið mikið við tón- listarsköpun að und- anförnu og skipar hljómsveitina East of My Youth með Herdísi Stef- ánsdóttur. Thelma Marín flytur gjörning í Mengi Á fimmtudag Sunnanhvassviðri eða stormur eystra, en mun hæg- ari vestantil. Talsverð rigning suðaustan- og austanlands. Slydda eða snjókoma vestantil fyrir hádegi, en styttir síðan upp. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustanrok eða ofsaveður vestantil, 23- 30 m/s, en lægir talsvert síðdegis. Suðaustan 18-25 um landið austanvert, en lægir þar í kvöld. Víða rigning. Hiti 3 til 9 stig. VEÐUR Bikarmeistarar kvenna og karla í körfubolta verða krýndir á laugardag en bikarveislan hefst í dag þegar undanúrslit kvenna fara fram í Laugardalshöll. Snæfell hefur titil að verja og mætir Skallagrími í Vest- urlandsslag kl. 20, en Borg- nesingar hafa aldrei hamp- að titlinum. Sigursælasta lið keppninnar frá upphafi, lið Keflavíkur, mætir Hauk- um kl. 17. »2 Bikarveislan hefst með látum í dag „Ég kom vel undan sumrinu en lenti síðan í meiðslum á öxl nokkru eftir að keppnistímabilið hófst. Það var svo sannarlega súrt að meiðast en svo sem ekkert við því að gera. Mér tókst að vinna mig vel út úr þeim meiðslum og hef náð mér mjög vel á strik,“ seg- ir handknattleiksmaðurinn Ólafur Gústafsson sem hefur farið á kostum í síðustu leikjum Stjörnunnar. »1 Tókst að vinna mig mjög vel út úr meiðslunum Hörð barátta er framundan um laust sæti í úrslitarimmunni um Íslands- meistaratitil karla í íshokkí eftir 6:3 sigur Bjarnarins á Skautafélagi Akur- eyrar í Egilshöll í gærkvöldi. Björninn er stigi á undan SA þegar liðin eiga fimm leiki eftir en annað hvort þess- ara liða mætir UMFK Esju í úr- slitarimmunni en Esja hefur tryggt sér deildarmeistaratitilinn. »3 Hörð barátta fram- undan um 2. sætið ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Mér hefur alltaf fundist gaman að gera alls konar skissur. Listaverkið hér á fjörukambinum er sprottið af slíku föndri þar sem ég sótti í sögu byggðarlagsins,“ segir Erlingur Ævarr Jónsson, fyrrverandi skip- stjóri í Þorlákshöfn. Síðasta sumar var þar í bæ, á sjógarðinum vestan við þorpið nærri Hafnarnesvita, af- hjúpað skilti við víkingaskip sem er skorið út úr stálplötu, samkvæmt teikningum Erlings Ævars. Á knörr þessi að minna á strand skips Auðar djúpúðgu á Hafnarskeiði vestan Ölf- usárósa, sem í fornum bókum heitir Vikraskeið. Fótnóta í stórri sögu Að Auður djúpúðga og hennar fólk hafi fyrst komið að landi á Vikraskeiði, þar sem nú er Þorláks- höfn, er fótnóta í stórri sögu. Frá suðurströndinni fór Auður í nokkr- um áföngum á nýjar slóðir og settist að vestur í Dölum, þar sem nafn hennar og saga er í heiðri höfð. Þar um slóðir eru líka ýmis kennimörk sem tengjast sögu þessarar valkyrju sem var ættmóðir Laxdæla og ein Íslendingasagna er einmitt við hana kennd. „Ég sé enga ástæðu til að draga í efa að Auður hafi brotlent hér við Þorlákshöfn. Þá hefur skipið senni- lega borist undan suðaustanáttinni og upp í vikurhvíta fjöruna, sem gamlar bækur segja frá. En það er hins vegar alveg skiljanlegt að Auð- ur hafi ekki viljað setja niður bú sitt hér, enda hefur þetta svæði þá vænt- anlega verið sandauðn,“ segir lista- maðurinn sem nam leirkerasmíði í Listvinahúsinu á Skólavörðuholti í Reykjavík, sem Guðmundur Ein- arsson frá Miðdal átti og rak. Listin varð þó að víkja fyrir lífsbaráttunni og Erlingur Ævarr fór í stýrimanna- skólann. Hann var í áratugi skip- stjóri á eigin bát, Eyrúnu ÁR 66, og þótti vera býsna fiskinn og ferillinn var farsæll. Sé aðdráttarafl Nokkur ár eru síðan Erlingur gerði skissurnar að víkingaknerri Auðar djúpúðgu. Útkoman varð það volduga listaverk úr stáli sem nú er á fjörukambinum. „Framtakið er mitt en í fram- kvæmdinni fékk ég sveitarfélagið með í spilið. Mér finnst hins vegar nauðsynlegt að kynna listaverkið betur og merkja leiðina að því, enda getur það verið aðdráttarafl í ferða- þjónustu. Ég fer oft þarna suður eft- ir í gönguferðir og hef hitt þar ferða- menn víða að úr veröldinni svo sem Breta, Þjóðverja, Frakka og nýlega krakka frá Nýja-Sjálandi, hinum megin á hnettinum. Og ég vil að túr- istarnir fari á þennan stað því þarna er hringsjá og einstakt útsýni á allan sunnlenska fjallahringinn og til Vestmannaeyja þegar þær færast upp á himin í hillingum,“ segir Er- lingur Ævarr sem vill að í Þorláks- höfn verði haldið áfram á listabraut- inni sem hann hefur rutt. „Til þess að halda í heiðri sögu sjósóknar héðan frá Þorlákshöfn gerði ég nýlega teikningar af gam- aldags teinæringi þar sem sjómenn eru á hverri ár. Það listaverk yrði svipað og minnismerkið um Auði. Mér finnst að hér í sveitarfélaginu Ölfusi mættu vera fleiri listaverk enda setja þau skemmtilegan svip á umhverfið,“ segir hinn aldni skip- stjóri og listamaður. Auður setur svip á umhverfið  Gamli skipstjór- inn hannaði minn- ismerki í fjörunni Morgunblaðið/Sigurður Bogi Þorlákshöfn Erlingur Ævarr Jónsson á fjörukambi við knörr Dalakonunnar. Í baksýn til vinstri er Vikraskeiðið. Þorlákshöfn í núverandi mynd fór að byggjast upp í kringum 1950. Þessi 1.500 íbúa útgerð- arstaður hefur alltaf verið mikill menningarbær. Þar hafa til dæmis verið kórar, lúðrasveit og fleira skemmtilegt. Þá má sjá ýmis minnismerki og listaverk sem setja sterkan svip á bæinn, sem verður æ fjölsóttari meðal ferðamanna – Íslendinga jafnt sem lengra að kominna. Menning í bæ LIST Í ÞORLÁKSHÖFN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.