Morgunblaðið - 08.02.2017, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 08.02.2017, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2017 ✝ SigþrúðurSteffensen fæddist í Reykjavík 14. febrúar 1930. Hún lést á Land- spítala 1. febrúar 2017. Hún var dóttir hjónanna Björns Steffensen, lögg. endurskoðanda, f. 12. apríl 1902, d. 15. júlí 1993, og Sigríðar Árnadóttur húsmóður, f. 13. janúar 1896, d. 26. mars 1985. Systkini Sigþrúðar eru Theódóra, f. 17. september 1928, Helga, f. 21. ágúst 1934, og Björn, f. 21. mars 1937. Eig- inmaður Sigþrúðar var Ingi R. Jóhannsson, lögg. endurskoð- andi og skákmaður, f. 5. desem- ber 1936, d. 30. október 2010. Þau gengu í hjónaband 15. nóv- ember 1958. Börn þeirra eru Björn Ingi, f. 19. mars 1959, d. 4. janúar 1968, Árni, f. 12. mars 1961, og Sigríður Ingibjörg, f. 29. maí 1968. Árni býr með Önnu Margréti Elíasdóttur, f. 21. desember 1961. Dóttir Árna og Rögnu Bachmann Egils- dóttur, f. 27. janúar 1952, er Hrund Ósk, f. 26. apríl 1985. Börn Árna og Bjarneyjar Ingi- bjargar Gunnlaugs- dóttur, f. 10. sept- ember 1966, eru Brynja Sólrún, f. 30. janúar 1997, og Hlynur Ingi, f. 26. nóvember 2001. Sigríður Ingibjörg er gift Birgi Hermannssyni, f. 18. ágúst 1963. Börn þeirra eru Jakob, f. 12. ágúst 1998, Hanna Sigþrúður, f. 23. mars 2004, og Davíð, f. 21. janúar 2006. Sonur Sigríðar og Arnars Gunnars Hjálmtýssonar, f. 11. febrúar 1964, er Natan, f. 10. desember 1991. Sigþrúður ólst upp í Vest- urbæ Reykjavíkur og útskrif- aðist úr Kvennaskólanum í Reykjavík 1948. Hún starfaði sem gjaldkeri í Útvegsbank- anum frá 1948-1958 og á sama stað frá 1975 til eftirlaunaald- urs. Útför Sigþrúðar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag, 8. febrúar 2017, klukkan 13. Þegar vinir okkar kveðja leitar hugur okkar í sjóð minninganna og nú þegar systir mín Sigþrúður er horfin af hinu jarðneska sviði leitar hugurinn til æskuáranna. Dysta, en svo var hún jafnan köll- uð fram eftir árum, var fædd á Vesturgötu 9, sem var hlaðið steinhús sem afi okkar Árni Zak- aríasson reisti árið 1890 þar sem gamli bærinn hafði staðið. Þar fæddist líka eldri systir okkar, Theódóra. Síðan flutti fjölskyld- an á Vesturgötu 4 og þar fæddust tvö yngri börnin, ég og bróðir okkar, Björn. Á neðri hæð húss- ins var ritfangaverslun og á horn- inu vefnaðarvöruverslun Björns Kristjánssonar. Í húsinu beint á móti bjó æskuvinkona Dystu, Ástríður Magnúsdóttir, dóttir Magnúsar Jochumssonar. Þær léku mikið saman, bæði úti og inni, með dúkkulísur og dúkkur. Þarna voru heilu leikritin leikin og kom þá þegar fram mikill og sérstakur áhugi Dystu á leikhúsi. Síðan fluttum við á Hávalla- götuna og þar var gaman að búa með Landakotstúnið beint á móti. Foreldrar okkar byggðu sumarbústað upp við Elliðavatn. Faðir okkar hafði allt frá barn- æsku mikinn áhuga á ræktun en fyrst og fremst vildi hann „koma börnunum á gras“, eins og hann sagði. Þarna undi Dysta sér vel. Hún var alltaf mjög listræn, prjónaði, heklaði og saumaði út og svo sat hún og málaði Vífilsfell og Bláfjöllin af miklum móð. Dysta gekk í Kvennaskólann og útskrifaðist þaðan. Fljótlega þar á eftir fór hún að vinna í Út- vegsbankanum og var þar gjald- keri allt þar til hún gekk í hjóna- band. Hinn heppni var Ingi R. Jóhannsson, skákmeistari og síð- ar löggiltur endurskoðandi. Hann þurfti oft að koma í bank- ann og fljótlega tók hann eftir þessari fallegu stúlku í gjaldkera- stúkunni sem honum leist vel á. Einn daginn snaraði hann sér til gjaldkerans og bauð henni í kaffi. Kaffið hafði afdrifaríkar afleið- ingar. Þar með lágu leiðir þeirra saman og giftust þau skömmu síðar. Þau hjón byggðu sér hús á Seltjarnarnesi. Þar var stór garð- ur og Dysta ræktaði garðinn sinn vel. Það var unun að sjá hjá henni. Nokkrum sinnum fékk hún verðlaun fyrir garðinn. Systir mín var með eindæmum traust og heilsteypt. Hún var heiðarleg og réttsýn, en fremur hlédræg og ekki allra. Þau hjón eignuðust þrjú börn. Það var mikill harmur þegar þau misstu elsta son sinn, Björn Inga, sem þá var á barnsaldri. Síðar fædd- ust Árni og Sigríður Ingibjörg. Dysta var heimakær og til dæmis þegar pabbi og mamma fóru með okkur systkinin út á bát á Elliðavatn vildi hún alltaf sjá heim á Laxatanga, sem sumar- húsið heitir. Þar höfum við systk- inin átt unaðsdaga, sérstaklega þegar börnin okkar voru að vaxa upp. Dysta var hraust allt til hins síðasta og bjó í húsinu sínu á Sel- tjarnarnesi allt þar til hún þurfti að fara á spítala um tveimur vik- um fyrir andlátið. Andlegri heilsu hélt hún til hinstu stundar. Við fjölskyldan sendum hjartanlegar samúðarkveðjur. Helga Steffensen. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir) Enn einu sinni horfum við á bak einni bekkjarsystur okkar, þeirri þriðju á tæplega ári. Hug- urinn hvarflar til baka til ársins 1948 er við á björtum sumardegi útskrifuðumst úr Kvennaskólan- um í Reykjavík eftir fjögurra ára skólasetu. Við blasti framtíðin björt og spennandi. Nú var komið að því að takast á við þau störf er biðu okkar. Ein úr hópnum hafði þá framtakssemi að kalla okkur saman stuttu eftir útskrift og var það upphafið að 69 ára vináttu- tengslum. Sigþrúður var okkar „Lady“. Ég minnist m.a. fyrstu utan- landsferðar okkar sem var til Vínarborgar. Við mættumst í flughöfn og þar mætti Sigþrúður m.a með hattaöskju í farangrin- um, en í ferðaáætlun okkar var m.a. heimsókn í Dómkirkju Vínarborgar til m.a. að hlusta á hinn fræga Vínardrengjakór og fínar dömur mættu þar með hatta á höfði. Nú er elsku Dysta okkar ekki lengur á meðal okkar. Minningin um trúfastan vin og bekkjarsyst- ur mun lifa. Við bekkjarsystur „Kvennó 48“ sendum aðstandendum inni- legar samúðarkveður. Fyrir hönd bekkjarsystra, Greta Bachmann. Sigþrúður Stefffensen ✝ Valgerðurfæddist að Hóli í Grýtubakka- hreppi í Suður- Þingeyjarsýslu 17. janúar 1931. Hún lést á Landspít- alanum í Fossvogi 29. janúar 2017. Hún var dóttir hjónanna Guðjóns B. Baldvinssonar frá Refsstöðum í Hálsahreppí í Borgarfirði og Steinunnar Jónsdóttur frá Hóli í Suður-Þingeyjarsýslu. Alsystkin hennar voru Baldvin Lárus Guð- jónsson, f. 1933, d. 2008, og Hilmar Gylfi Guðjónsson, f. 1935, d. 2003. Sammæðra eru Katrín Kristín Guðjónsdóttir, f. 1938, Sveinn Guðmundur Gísla- son, f. 1947, og Jóhannes Gunn- ar Gíslason, f. 1948. Samfeðra er Baldur Freyr Guðjónsson, f. 1942. Valgerður var tvígift og hét fyrri eiginmaður hennar og barnsfaðir Einar Karel Torfa- son, f. 1925, d. 2009. Börn þeirra voru Þórhildur Jóna Ein- arsdóttir, f. 1949, Guðjón Stein- ar Einarsson, f. 1951, d. 1996, og Einar Þór Einarsson, f. 1954, d. 2015. Einnig ættleiddu þau hans, eru Ingibjörg Ösp Gunn- arsdóttir, f. 2005, Matthildur Ísey Benediktsdóttir, f. 2013, og Antonía Eva Benediktsdóttir, f. 2015. Núverandi eiginmaður Þórhildar Jónu er Guðbrandur Kjartansson, f. 1964. Guðjón Steinar Einarsson giftist Bjarn- ey Magnúsdóttur, f. 1955, og eignuðust þau börnin Valgerði Jóndísi, f. 1975, Magnús Jóhann- es, f. 1978, og Birgittu Karen, f. 1980. Börn Valgerðar Jóndísar yngri með Hákoni Hreiðarssyni, f. 1971, eru Guðjón Steinar, f. 1999, og Edda Rós, f. 2010. Börn Magnúsar Jóhannesar með Írisi Sif Eiríksdóttur eru Guðjón Máni, f. 1998, og Erik Nökkvi, f. 2002. Börn Birgittu Karenar með Kristni Guðmundssyni, f. 1977, eru Svava, f. 1999, Andri, f. 2001, og Bjarki, f. 2001. Einar Þór giftist Guðrúnu Krist- insdóttur, f. 1953, og eignuðust þau engin börn en Einar Þór gekk börnum Guðrúnar, Haf- steini og Margréti Hjálm- arsbörnum, í föðurstað og var sem afi barnabarna hennar. Fóstursonur Valgerðar og Ein- ars, Þorsteinn Valur Baldvins- son Hjelm, f. 1957, er giftur Sig- ríði Björnsdóttur, f. 1958, og eignuðust þau börnin Sædísi Mjöll, f. 1984, Valdísi Jónu, f. 1992, d. 1992, og Snædísi Báru, f. 1993. Útför Valgerðar fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 8. febr- úar 2017, klukkan 13. hjónin bróðurson Valgerðar, Þor- stein Val Baldvins- son Hjelm. Valgerður giftist síðar Ingvari Ein- ari Bjarnasyni, f. 1922, d. 2010, en Ingvar átti fyrir börnin Guðjón, Sig- rúnu og Þórunni. Þórhildur Jóna Einarsdóttir er systkina elst og fædd í Reykja- vík 1949. Þórhildur er þrígift og átti með fyrsta eiginmanni Dag- vini Bergmann Guðlaugssyni, f. 1941, soninn Reyni Bergmann Dagvinsson, f. 1966, en Reynir eignaðist 1994 dótturina Tinnu Hrönn Reynisdóttir með Unu Hrönn Kristinsdóttur og 2004 soninn Eyjólf Bergmann Reyn- isson með Þóru Jónínu Hjálm- arsdóttur. Þórhildur giftist síð- ar Ara Ingimundarsyni, f. 1953, og eignaðist með honum dótt- urina Önnu Lóu Aradóttur, f. 1976, og soninn Benedikt Ara- son, f. 1979. Börn Önnu Lóu eru Jóna Rún Önnudóttir, f. 2000, og Hrafn Hafstað Hrafnsson, f. 2009. Börn Benedikts og Hall- dóru Þorvaldsdóttur, eiginkonu Valgerður ættleiddi mig, bróðurson sinn, strax á fyrstu mánuðum lífs míns sem var mik- il gæfa, því varla var betri fóstru hægt að fá. Þrátt fyrir að vera komin með þrjú börn fyrir þá fann hún pláss fyrir eitt enn og þó að efnahagurinn væri oftast mjög rýr þá svalt aldrei neinn, samt minnir mig að sjálf hafi hún ávallt borðað síðast og naumt. Aldrei sá ég hana reiðast eða skipta skapi þau 59 ár sem ég þekkti hana og aldrei hef ég kynnst jafn skipulagðri mann- eskju né hitt neinn sem hefur haft jafn mikla sjálfstjórn. Ekki veitti henni af því oft reyndi maður verulega á lang- lundargeðið og þegar of langt var gengið var sagt ákveðið Val- ur, það er millinafn mitt og ef það var notað þýddi það að nú skyldi stoppa. Allskonar hrekki þurfti þessi elska að þola í gegnum tíðina og uppáhalds var að koma aftan að henni við eldhúsvaskinn, blása í hnakkann og grípa í síðuna sem skilaði viðbragðsópi og orðinu Valur. Hún hafði samt lúmskt gaman af hinum ýmsu uppá- tækjum okkar og hló þegar við Einar heitinn uppeldisbróðir færðum til rúmfjalirnar í hjóna- rúminu þannig að Einar fóstri heitinn settist nánast niður á gólfið hjálparvana því rúmdýnan klemmdi hann fastan frá báðum hliðum. Heimsóknum til fóstru fækk- aði með árum og urðu of fáar á meðan ég bjó hinum megin á landinu en þeim fjölgaði aftur er við fluttum suður, markmiði hverrar heimsóknar var nánast ávallt það sama fyrir utan að sýna væntumþykju og alltaf tókst það markmið sem var að fá hana til að hlæja og létta lundina. Hún var lengst af leit- andi manneskja á andlega svið- inu en trúði ávallt á hið jákvæða sem hún kallaði ljós, samt reyndi hún aldrei trúboð því hver átti sitt að finna. Fyrir mér var hún mikill hugsuður því á mig notaði hún málshætti óspart ef ekki hafði ég gert rétt, maður sat eftir með málshátt sem þurfti að vinna úr til að skilja hvað rangt hafði verið viðhaft. Þannig not- aði hún sömu stjórnunaraðferð og trúarbrögðin nota, maður sit- ur eftir með eigin samvisku og vitneskjuna um hvað maður gerði og dæmir sig þannig sjálf- ur auk þess sem samviskan situr um mann Hún missti báða drengina sína úr krabbameini, Guðjón Steinar dó 1996 og Einar Þór dó 2015 einnig fór barnsfaðir henn- ar Einar Karel úr krabbameini 2009 og seinni eiginmaður dó úr sama sjúkdómi 2010. Hún missti því stærstan hluta sinna nán- ustu á fáum árum en eigin sorg bar hún samt ekki á borð, enda afskaplega sterkur einstaklingur sem reyndist mikill bakhjarl þeirra sem eftir sátu í sorg. Öll munum við yfirgefa lífið að lokum og skilja eftir okkur spor, sum skiljum við eftir hluti en aðrir jákvæðan minningafjár- sjóð til viðbótar fyrir komandi kynslóðir. Það er ekki öllum kunnugt um allan þann stuðning sem Valgerður veitti þeim sem þurftu og flestallt án þess að minnast á það við nokkurn mann, minningin um hana er um visku sem og mikla gæsku. Þorsteinn Valur Baldvinsson Hjelm. Valgerður J. Guðjónsdóttir ✝ GuðmundurÁrnason fædd- ist í Reykjavík 29. febrúar 1928. Hann lést 88 ára að aldri á Hrafnistu í Hafn- arfirði 27. janúar 2017. Guðmundur var sonur hjónanna Árna Jóhannssonar trésmiðs sem fædd- ur var 1886 í Mels- húsum á Seltjarnarnesi og Jó- hönnu Laufeyjar Guðmundsdótt- ur húsmóður sem fædd var 1887 í Hrísey. Guðmundur var yngstur í röð fimm systkina. Þau voru Guð- rún, Jóhanna Laufey, Jóhann Kristján, Svava og yngstur var Guðmundur. Guðmundur kvæntist eig- inkonu sinni, Hönnu Maddý Guð- mundsdóttur, f. 12. júlí 1929, frá Hafnarfirði, þann 10. desember 1949. Börn Guðmundar og Maddýar eru; 1) Ingibjörg, f. 1949, fráskilin og á einn son, 1a Ingvar Lýðsson, f. 1977. Kvænt- ur Angeline Kwanda. 2) Guð- mundur Valdimar, f. 1955. 3) Berglind, f. 1964. Guðmundur var borinn og barnfæddur Reykvíkingur. Hann ólst upp á Óðinsgötunni, Lokastígnum og Þórsgötunni og leiksvæðið var Skólavörðuholtið sem hann unni svo mjög. Hann gekk í Miðbæjarskólann og síðan lá leiðin í Iðnskólann í Reykjavík þar sem hann nam skipa- smíði líkt og faðir hans og bróðir, en hann var á náms- árum sínum og fyrstu starfsárin hjá Slippfélaginu í Reykjavík. Síðar starfaði hann í Flosa- porti, við byggingaframkvæmd- ir, m.a. við Búrfellsvirkjun. Árið 1975 hóf hann svo störf í ÍSAL. Hann átti afar farsæl og góð ár í ÍSAL og vann þar með góðu fólki og naut starfsins þar. Hann lét svo af störfum sökum aldurs árið 1998 en hélt góðum samskiptum við vinnufélagana úr Straumsvík nokkuð lengi. Guðmundur var fastheldinn og ekki of mikið fyrir breytingar og það sést vel á ævihlaupi hans að hann vildi hafa hlutina í föstum skorðum. Hann var fjölskyldu- maður, jafnframt var hann alla tíð góður vinur vina sinna. Hann hafði afar gaman af að tefla skák og var góður bridsspilari Jarðarför Guðmundar verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju í dagt, 8. febrúar 2017, klukkan 13. Fallinn er frá föðurbróðir minn Guðmundur Árnason, hann var yngstur í hópi systkinanna af Óð- insgötunni, Lokastígnum og Þórsgötunni. Hann er mér eftir- minnilegur fyrir margra hluta sakir og hann er svo samofinn bernskuárum mínum. Það var svo náin vinátta á milli hans og pabba. Ég minnist ógleymanlegra ferða suður í Hafnarfjörð frá bernsku- árum mínum. Þá var farið í strætó í heimsókn í Fjörðinn. Bara klæða hópinn í Njörvasund- inu uppá og drífa sig suður eftir. Það var mikið ævintýri að koma á Hringbrautina. Herbergi var á neðri hæðinni (líklega geymsla) sem gaman var að koma í og svo voru svo fallegar stofurnar hjá Gumma frænda og Maddý með glæsilegum rennihurðum á milli og Ingibjörg frænka notaði svo stofurnar sem ballettsali, einkar ljúf minning. Síðar meir reistu þau hjónin sér fallegt einbýlishús að Brekkuhvammi í Hafnarfirði bjuggu þau sér afar fallegt heimili sem alltaf var gott að koma á. Það sem seint gleymist í fari Gumma og gerði hann svo ein- stakan er glaðværð hans og skemmtisögurnar sem hann sagði frá, hann elskaði að segja sögur, kankvís og kátur, og koma öllum til þess að hlæja. Svona var Gummi ljúfur og svo hlýr. Hann var afskaplega geðgóður og amma Laufey hafði miklar mæt- ur á honum enda var hann yngsta barnið hennar. Eins voru þeir miklir mátar bræðurnir, pabbi og Gummi, nutu þess að eiga stundir saman, þeir studdu hvor annan ef eitthvað bjátaði á og voru ætíð til staðar hvor fyrir annan. Það var alla tíð mikill vinskapur á milli fjölskyldnanna og þeir bræður fóru ásamt fjölskyldunum saman í mörg ferðalög innanlands. Síðar meir fóru Gummi og Maddý ásamt foreldrum mínum saman í ferðir á sólarströnd og áttu sam- an skemmtilega daga sem þau rifjuðu oft upp og Gummi sagði oft skemmtisögur frá ferðum þeirra. Á síðari árum nutu þau hjónin Gummi og Maddý þess að fara í ferðir til sólarlanda og eitt er víst að Gummi naut þess að sleikja sólina og ferðalög til Spánar voru í miklu uppáhaldi. Gummi hafði gaman af að fara í sund og oftast var farið í Sundhöll Hafnarfjarðar, Gummi var góður skákmaður og hann hafði líka un- un af því að taka í spil og var bridsspilari góður. Ég minnist föðurbróður míns með hlýju og þakklæti fyrir ljúfar stundir og er þess fullviss að núna gengur hann um í Sumarlandinu og kemur samferðamönnum sín- um á nýjum stað í gott skap með kímnigáfu sinni og skemmtistög- um. Við Skúli vottum öllum ætt- ingjum og vinum dýpstu samúð og Skúli þakkar sérstaklega fyrir notalegar samverustundir á Hrafnistu síðustu árin. Blessuð sé minning Guðmund- ar Árnasonar. Hann hvíli í Guðs friði. Laufey Jóhannsdóttir. Guðmundur Árnason Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð vegna andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTÍNAR HARÐARDÓTTUR, Móholti 12, Stykkishólmi. Sigurður Stefán Júlíusson Guðrún Margrét Grétarsdóttir Kolbrún Grétarsdóttir Kristín Viktoría Sigurðardóttir Kolbrún Hildur Sigurðardóttir Júlíus Sigmar Jóhannsson Jóhanna Kristín Jóhannsdóttir Sigurður Ingvar Sigurðarson Stefán Már Sigurðarson tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.