Morgunblaðið - 08.02.2017, Page 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2017
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Sex ólík menningarverkefni á landsbyggðinni
hafa verið valin á Eyrarrósarlistann 2017 og
eiga þar með möguleika á að hljóta Eyrarrósina
í ár. Það eru Alþýðuhúsið á Siglufirði, Eistna-
flug í Neskaupstað, List í ljósi á Seyðisfirði, Nes
– Listamiðstöð á Skagaströnd, Rúllandi snjó-
bolti á Djúpavogi, og Vesturfarasetrið á Hofs-
ósi. Að þessu sinni bárust alls 37 umsóknir um
Eyrarrósina, hvaðanæva af landinu.
Eyrarrósin er viðurkenning sem veitt er
framúrskarandi menning-
arverkefni utan höfuðborg-
arsvæðisins. Hún beinir
sjónum að og hvetur til
menningarlegrar fjöl-
breytni, nýsköpunar og
uppbyggingar á sviði menn-
ingar og lista. Að verðlaun-
unum standa Byggða-
stofnun, Flugfélag Íslands
og Listahátíð í Reykjavík.
Forsetafrúin Eliza Reid,
nýr verndari Eyrarrósarinnar, mun afhenda
verðlaunin 16. febrúar næstkomandi við athöfn í
Verksmiðjunni á Hjalteyri, sem er handhafi
Eyrarrósarinnar frá síðasta ári.
Verkefnið sem hlýtur Eyrarrósina fær tvær
milljónir króna í verðlaun en tvö önnur verkefni
á listanum hljóta 500 þúsund krónur.
Glæsileg verkefni
Vigdís Jakobsdóttir, nýr listrænn stjórnandi
Listahátíðar í Reykjavík sem heldur utan um
Eyrarrósarverkefnið, segir að umsóknir um
Eyrarrósina hafi sjaldan verið fleiri en hún
verður nú afhent í þrettánda sinn. Áhuginn fyr-
ir verkefninu sé því mikill. „Það er mjög mikið
af glæsilegum lista- og menningarverkefnum á
landsbyggðinni, það er ein ástæðan fyrir fjölda
umsókna. Önnur ástæða er að Eyrarrósin er
mjög gott tækifæri til að vekja athygli á þessum
góðu verkefnum. Þá hafa peningaverðlaunin sitt
að segja,“ segir Vigdís og bætir við að upphæð
verðlaunanna hafi nú verið hækkuð, upp í tvær
milljónir, og það muni um minna í menningunni,
úti á landi sem annars staðar.
Þá segir Vigdís umsóknirnar afar fjölbreyti-
legar. „Þetta eru söfn, setur og sprotaverkefni
og það var erfitt að velja úr þeim, meðal annars
sökum þess hversu ólík þau eru. En við höfum
raðað sex verkefnum á listann og hann er hugs-
aður til þess að geta endurspeglað þessa
breidd.“
Vigdís segir sum verkefnin tengdari ferða-
þjónustu en önnur en í valinu á listann hafi ekki
verið lögð áhersla á það heldur hvernig verk-
efnin næri listumhverfið og menninguna á
hverju svæði fyrir sig.
Vekur athygli á verkefnum
Alþekkt er að metnaðarfullir aðstandendur
menningarverkefna á fámennari stöðum gefast
oft upp þegar stuðningurinn er lítill heima fyrir
og ekki næst að koma fersku blóði í starfsemina.
Telur Vigdís að athygli sem val á lista Eyrar-
rósarinnar, eða verðlaunin sjálf veiti, gefi að-
standendum aukinn kraft til að halda starfsem-
inni gangandi?
„Ég veit að það er staðreynd að það að kom-
ast á listann og hljóta Eyrarrósina vekur at-
hygli á verkefnunum. Það hjálpar fólki líka í
framhaldinu við styrkumsóknir og slíkt. Við er-
um mjög stolt af því að öll verkefnin sem hafa
fengið Eyrarrósina í gegnum tíðina, fyrir utan
eitt sem var tímabundið, Áhöfnin á Húna, eru
starfandi enn í dag. Við leggjum áherslu á að
verkefnin sem fá verðlaunin séu þegar búin að
sanna sig og séu stöndug. Þetta er viðurkenning
fyrir gott starf, oft mikið hugsjónastarf sem
hefur kostað mikla seiglu að halda úti.“
Vigdís er listrænn stjórnandi Listahátíðar í
Reykjavík. Hvernig fer það saman að undirbúa
hina hefðbundnu hátíð með áherslu á höfuð-
borgarsvæðið og skoða og velja úr verkefnum á
landsbyggðinni?
„Mér finnst þetta fara afskaplega vel saman.
Reykjavík er höfuðborg landsins og Listahátíð í
Reykjavík er nokkurs konar móðir hátíðanna á
Íslandi. Þetta gefur mér sjálfri líka ómetanlegt
tækifæri til að fá innsýn í það sem er að gerast í
menningunni um land allt. Að lesa allar 37 um-
sóknirnar var ótrúlega lærdómsríkt. Að sjá
metnaðinn, fjölbreytnina og allt þetta hug-
sjónafólk sem keyrir áfram menningarverkefni
á landsbyggðinni af metnaði og brennandi
áhuga við oft mjög krefjandi aðstæður hvað
varðar fjármagn og aðstöðu.
Eyrarrósarlistinn birtir þverskurð af því
hvað fjölbreytileikinn er mikill. Einhver ótrúleg
framsýni og stórhugur einkennir þessi verkefni
öll,“ segir hún.
Alþýðuhúsið á Siglufirði
Í Alþýðuhúsinu á Siglufirði er rekið metn-
aðarfullt menningarstarf allan ársins hring,
með áherslu á myndlist, undir stjórn Aðalheiðar
S. Eysteinsdóttur. Þar eru einnig með jöfnu
millibili haldnir tónleikar, fyrirlestrar og menn-
ingarviðburðir af ýmsum toga. Reglulega er
listamönnum boðið að dvelja þar í skemmri tíma
við eigin vinnu. Fastir viðburðir á dagskrá Al-
þýðuhússins eru til dæmis menningardagur
barna, gjörningahátíð, sunnudagskaffi með
skapandi fólki, Reitir og fleira. Í ár fagnar Al-
þýðuhúsið fimm ára afmæli og heldur upp á það
með veglegri afmælisdagskrá næsta sumar.
Eistnaflug, Neskaupstað
Eistnaflug er rótgróin tónlistarhátíð sem
haldin er í Neskaupstað aðra helgina í júlí ár
hvert. Eistnaflug er eina tónlistahátíðin hér á
landi þar sem höfuðáhersla er lögð á þungarokk
og aðrar jaðartónlistarstefnur. Margar af
þekktustu þungarokkssveitum heims hafa kom-
ið fram á hátíðinni en hátíðin styður líka við
bakið á ungum og upprennandi hljómsveitum
og hefur rutt veginn fyrir íslenskar sveitir á er-
lendum útgáfu- og tónleikamarkaði. Skipu-
leggjendur eru stoltir af góðu orðspori Eistna-
flugs sem „rokkhátíðar sem fer fram í bróðerni
og samstöðu“. Um 50 rokksveitir munu koma
fram á Eistnaflugi 2017.
List í ljósi, Seyðisfirði
List í ljósi er í vetur haldin á Seyðisfirði í ann-
að sinn, en henni er ætlað að verða að árlegum
viðburði. Rík áhersla er lögð á samfélagsleg
áhrif hátíðarinnar sem fer fram utandyra. Geta
allir, ungir sem aldnir, tekið þátt í hátíðinni með
einum eða öðrum hætti. Á meðan á hátíðinni
stendur er Seyðisfjarðarkaupstað umbreytt
með ljósadýrð og spennandi listaverkum.
Áhorfendur, sem um leið eru þátttakendur,
upplifa á magnaðan hátt ýmis listaverk, allt frá
innsetningum og vídeóverkum til stærri ljósa-
skúlptúra. Innlendir og erlendir listamenn taka
þátt í hátíðinni sem bókstaflega lýsir upp Seyð-
isfjörð. Markmið hátíðarinnar er að styðja við
menningarlíf Austurlands á lágönn og fagna
komu sólar eftir þrjá langa og sólarlausa mán-
uði.
Rúllandi snjóbolti, Djúpavogi
Í gömlu Bræðslunni á Djúpavogi hefur al-
þjóðlega samtímalistasýningin Rúllandi snjó-
bolti verið haldin árlega frá árinu 2014 og styrk-
ir stöðu sína með hverju ári. Um er að ræða
eftirtektarvert og afar
metnaðarfullt samstarfs-
verkefni Djúpavogshrepps
og CEAC (Chinese Euro-
pean Art Center). Á sýning-
unni síðastliðið sumar áttu
32 íslenskir og erlendir
listamenn verk á sýning-
unni og þannig er um að
ræða eina stærstu samtíma-
listasýningu ársins hér-
lendis. Aðgangur á sýn-
inguna var ókeypis og nutu
bæði Austfirðingar og
ferðamenn góðs af.
Nes, Skagaströnd
Nes – listamiðstöð á
Skagaströnd var stofnuð
árið 2008 og hefur verið rekin þar allar götur
síðan. Fjölmargir listamenn hafa dvalið á
Skagaströnd frá opnun listamiðstöðvarinnar en
þar er rými fyrir allt að 12 til15 listamenn í einu.
Flestir kjósa að dvelja þar einn til tvo mánuði í
senn.
Mánaðarlegir viðburðir eru í listamiðstöðinni
með virkri þátttöku heimamanna. Lista-
miðstöðin Nes hefur haft áhrif á nærsamfélag
sitt og gefið íbúum á öllum aldri og gestum
tækifæri til að kynnast fjölbreyttri listsköpun,
bæði sem áhorfendur og sem virkir þátttak-
endur.
Vesturfarasetrið, Hofsósi
Vesturfarasetrið hefur verið starfrækt frá
1996 og er megintilgangur setursins að viðhalda
og efla tengsl fólks af íslenskum ættum sem bú-
sett er í Kanada og Bandaríkjunum og vill leita
uppruna síns á Íslandi. Jafnframt aðstoðar
Vesturfarasetrið Íslendinga í leit sinni að ætt-
ingjum í Vesturheimi. Markmið Vesturfaraset-
ursins er að efla enn frekar áhuga fólks af ís-
lenskum ættum á uppruna sínum og frændgarði
á Íslandi. Fjölmargar sýningar hafa verið settar
upp í húsnæði Vesturfarasetursins á Hofsósi
sem eru allar til þessa fallnar að varpa ljósi á
söguna og minnast þeirra fjölmörgu sem yfir-
gáfu Ísland í leit að betra lífi á seinni hluta 19.
aldar og í upphafi þeirra 20.
Viðurkenning fyrir gott starf
Sex menningarverkefni á landsbyggðinni valin á Eyrarrósarlistann 2017 Verkefnin sex eru
Alþýðuhúsið, Eistnaflug, List í ljósi, Nes – Listamiðstöð, Rúllandi snjóbolti og Vesturfarasetrið
Alþýðuhúsið Metnaðarfullt menningarstarf á Siglufirði.
Ljósmynd/Nikolas Grabar
List í ljósi Áhersla er á samfélagsleg áhrif á Seyðisfirði.
Rúllandi snjóbolti Merkileg myndlistarsýning á Djúpavogi.Nes – listamiðstöð Hefur haft jákvæð áhrif á nærsamfélagið.
Vesturfarasetrið Miðstöð á Hofsósi sem varpar ljósi á sögu vesturfaranna.
Vigdís Jakobsdóttir
Eistnaflug Einstök hátíð með áherslu á þungarokk.
Ljósmynd/Gaui