Morgunblaðið - 08.02.2017, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2017
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Ný skýrsla Amnesty International
um aftökur þúsunda fangelsaðra
stjórnarandstæðinga í Sýrlandi
skerpir enn myndina af óhugnaðinum
sem viðgengist hefur þar á tíma borg-
arastyrjaldarinnar.
Samkvæmt skýrslunni, sem birt
var í gær, hafa allt að þrettán þúsund
manns, flestir þeirra óbreyttir borg-
arar sem styðja stjórnarandstöðuna,
verið teknir af lífi í leynifangelsum í
Sýrlandi. Fram kemur að fjöldaaftök-
ur hafa átt sér stað í hverri viku í Sa-
ydnaya-fangelsinu í nágrenni Dam-
askus frá því í september 2011
þangað til í desember 2015. Aftökurn-
ar fóru fram samkvæmt skipunum frá
æðstu stöðum í stjórnkerfinu. Ríkis-
stjórn Sýrlands hefur ítrekað neitað
því að fangar séu teknir af lífi og að
þeir sæti slæmri meðferð í fangelsum
landsins.
Fyrir ári kom fram hjá mannrétt-
indasérfræðingum Sameinuðu þjóð-
anna að bæði vitni og skjöl sýndu með
nánast óyggjandi hætti að tugir þús-
unda almennra borgara hefðu verið
fangelsaðir og að fjöldi þeirra hefði
látist í haldi.
Sýndarréttarhöld
Áður en fangarnir voru teknir af lífi
voru þeir leiddir fyrir „herdómstól“ í
Qaboun-hverfinu í höfuðborginni. Þar
tóku réttarhöldin yfirleitt eina til
þrjár mínútur, segir í skýrslunni.
Fyrrverandi dómari við þennan dóm-
stól segir í viðtali við Amnesty að
fangarnir hafi verið spurðir hvort þeir
hafi framið glæpi sem áttu að hafa
verið framdir. Engu skipti hvort svar-
ið var já eða nei – viðkomandi var
dæmdur. „Þessi dómstóll átti ekkert
sameiginlegt með löggjöfinni,“ segir
hann.
Daginn sem hengja átti fangana
var þeim tjáð að flytja ætti þá í al-
mennt fangelsi en þeir síðan færðir í
klefa í kjallaranum þar sem þeir voru
barðir til óbóta í tvær til þrjár klukku-
stundir. Um miðja nótt var síðan
bundið fyrir augu þeirra og þeir flutt-
ir í annan hluta fangelsisins þar sem
þeim var tjáð að þeir hefðu verið
dæmdir til dauða, snörunni komið um
háls þeirra og þeir hengdir. Lík
þeirra sem voru teknir af lífi voru síð-
an flutt á brott með vörubílum á Tis-
hreen-hersjúkrahúsið í Damaskus
þar sem þau voru skráð og hent í
fjöldagrafir á umráðasvæði hersins.
Assad kærir sig kollóttan
Fulltrúar Amnesty segja að aftök-
urnar í fangelsinu séu stríðsglæpur.
Þeir telja að þær eigi sér enn stað. As-
sad Sýrlandsforseti brást við fréttum
um að aftökurnar kynnu að fara fyrir
Mannréttindadómstól Sameinuðu
þjóðanna með því að segja að það
væri mikilvægara verkefni stjórnar
sinnar að verja föðurlandið, en að
bregðast við ákærum fyrir dómstóln-
um. „Við verðum að verja land okkar
með öllum tiltækum ráðum og þegar
við gerum það stendur okkar ná-
kvæmlega á sama um þennan dóm-
stól,“ sagði einræðisherrann.
Friðarviðræður að hefjast
Borgarastríð í Sýrlandi hefur nú
staðið í sex ár. Viðræður um frið eiga
að hefjast í Genf í Sviss eftir tvær vik-
ur. Fulltrúar Amnesty segja að ekki
sé hægt að horfa fram hjá fréttunum
um aftökurnar í leynifangelsinu á
þeim fundum.
Í fyrri skýrslum Amnesty um fang-
elsi sýrlenskra stjórnvalda hefur ver-
ið staðhæft að tæplega 18 þúsund
manns, flestir pólitískir fangar, hafi
látið lífið vegna slæms aðbúnaðar,
matarskorts og pyntinga. Við þá tölu
bætist nú sá fjöldi sem tekinn hefur
verið af lífi í Saydnaya-fangelsinu.
Aftökurnar vekja óhug
Um 13 þúsund teknir af lífi í leynifangelsum sýrlenskra stjórnvalda frá 2011
Fórnarlömbin gætu verið mun fleiri Var misþyrmt eftir sýndarréttarhöld
AFP
Flakandi sár Hvarvetna í Sýrlandi getur að líta rústir bygginga sem sprengdar hafa verið upp. Hér er verið að leita
að fólki sem kann að hafa lifað af loftárás á fjölbýlishús í borginni Idlib í norðvesturhluta Sýrlands í gær.
Borgarastyrjöldin
» Átökin hófust í kjölfar
„arabíska vorsins“ 2011.
» Hundruð þúsunda óbreyttra
borgara hafa fallið í styrjöld-
inni.
» Jafnt Ríki íslams sem sýr-
lensk stjórnvöld og uppreisn-
arhópar hafa framið gróf of-
beldisverk.
» Undir stjórn Assads hefur
verið lögð mikil áhersla á
markaðshyggju og nýfrjáls-
hyggju sem jók mjög ójöfnuð
meðal landsmanna.
Nicolas Sarkozy, fyrrverandi forseti
Frakklands, verður ákærður fyrir
fjársvik í tengslum við kosningabar-
áttu sína við forsetakjör árið 2012.
Hið meinta brot Sarkozys snýst
um að hafa notað
meira fé en leyfi-
legt er í kosninga-
baráttunni og
leynt því með
fölsuðum reikn-
ingum.
Samkvæmt
frönskum lögum
mátti verja um
22,5 milljónum
evra í kosninga-
slaginn, en talið er að framboð
Sarkozys hafi notað 18 milljónir evra
umfram það. Er sagt að kosninga-
skrifstofa Sarkozys hafi notað fals-
aða reikninga frá almannatengsla-
fyrirtækinu Bygmalion í þessu
skyni. Gengur málið þess vegna und-
ir nafninu „Bygmalion“ í frönskum
fjölmiðlum.
Hin meintu svik hafa verið til
rannsóknar um nokkurt skeið og
talsvert um þau fjallað í Frakklandi.
Tveir rannsóknardómarar hafa verið
með málið til skoðunar og hefur ann-
ar þeirra, Sergé Tournaire, ákveðið
að fara með málið fyrir dómstóla.
Lögmenn Sarkozys hafa unnið að því
að koma í veg fyrir þessa þróun
mála.
Samkvæmt fréttum franskra fjöl-
miðla í gær gaf fyrirtækið Bygmal-
ion út reikninga upp á 18,5 milljónir
evra á flokk Sarkozys, sem þá hét
UMP en heitir nú Les Républicains,
í stað þess að stíla þá á forsetafram-
boðið sjálft.
Sarkozy kveðst saklaus
Fyrir liggur að stjórnendur og
eigendur Bygmalion vissu af svikun-
um, en ákæran snýst um það að Sar-
kozy hafi einnig vitað af þeim.
Sarkozy er ekki eini fyrrverandi
forseti Frakklands sem dreginn hef-
ur verið fyrir dómstóla. Árið 2011
var Jacques Chirac dæmdur í
tveggja ára skilorðsbundið fangelsi
fyrir spillingu í starfi meðan hann
var borgarstjóri í París, áður en
hann var kosinn forseti.
Sarkozy var yfirheyrður af lög-
reglu vegna Bygmalion-málsins
haustið 2015. Þá fullyrti hann að
hann vissi ekkert um svikin og vísaði
ábyrgðinni á fyrirtækið sjálft og for-
ystumenn UMP-flokksins.
gudmundur@mbl.is
Sarkozy ákærður
fyrir fjársvik
„Bygmalion-málið“ fyrir dómstóla
Nicolas Sarkozy
Ayatollah Ali Khamenei, æðsti leið-
togi Írans, kveðst þakklátur Donald
Trump Bandaríkja forseta fyrir að
sýna „hið rétta andlit Bandaríkj-
anna“. Ummælin lét Khamenei falla
þegar hann ávarpaði samkomu ír-
anskra hershöfðingja í Teheran.
„Við höfum fullyrt í meira en 30 ár
að í æðsta valdakerfi Bandaríkj-
anna sé pólitísk, siðferðileg, fjár-
hagsleg og félagsleg spilling,“
sagði hann og vísaði til frétta um
fimm ára gamlan íranskan dreng
sem var handjárnaður á bandarísk-
um flugvelli vegna tilskipunar
Trumps um ferðabann fólks frá sjö
ríkjum múslima.
KHAMENEI DEILIR Á TRUMP
Sýnir hið rétta and-
lit Bandaríkjanna
Ljósmynd/AFP
Handjárnaður Íranski fimm ára
drengurinn með móður sinni.
Nýr hægriflokk-
ur er í uppsigl-
ingu í Ástralíu.
Þingmaðurinn
Cory Bernardi
hefur sagt skilið
við Frjálslynda
flokkinn, flokk
Malcolms Turn-
bull forsætisráð-
herra, og hyggst
stofna nýjan flokk fyrir íhalds-
menn. Greindi Bernardi frá þessu á
þingfundi í gærmorgun. BBC segir
að Bernardi hafi margsinnis gagn-
rýnt Turnbull og sakað stjórn hans
um of mikið frjálslyndi. Bernardi er
m.a. andvígur hjónaböndum fólks
af sama kyni og vill takmarka
heimildir til fóstureyðinga. Hann
efast einnig um að loftslagsbreyt-
ingar séu af mannavöldum.
ÁSTRALÍA
Stofnar nýjan flokk
lengst til hægri
Malcolm Turnbull
Hafið samband við Anders Ingemann Jensen í síma +45 4020 3238 og spjallið um óskir ykkar og væntingar.
Það mun vera möguleiki á að fá einkafund með EBK um byggingaráætlun, annaðhvort 14. eða 15. febrúar.
Fundurinn verður haldin á: Stepp ehf., Àrmuli 32, 108 Reykjavík. Nauðsynlegt er að panta fundartíma gegnum
netfangið aj@ebk.dk, í síma +45 4020 3238 eða á vefnum ebk-hus.is. Anders talar dönsku og ensku.
EBK HUSE A/S hefur meira en 40 ára reynslu í uppsetningu á sumarhúsum, þar sem
dönsk hönnun og gæði eru í fyrrirúmi. EBK hús eru meðal hinna leiðandi á markaðinum
með 4 deildum í Danmörku, 3 í Þýskalandi, 1 í Noregi og 1 í Svíþjóð. Við höfum líka
margra ára reynslu í að byggja á Íslandi, í Þýskalandi, Færeyjum, Svíþjóð og Noregi.
Við bjóðum danska hönnun til byggingar og innréttingar
- við höfum nú þegar byggt 70 hús á Íslandi.
EBK HUSE A/S, Skovsøvej 15, DK-4200 Slagelse
Anders Ingemann Jensen, Sími +45 4020 3238, Netfang: aj@ebk.dk
17
0
58
Hefur þú hug á að byggja nýtt sumarhús?
WWW.EBK-HUS.IS
DÖNSK HÖNNUN
OG ARKITEKTÚR