Morgunblaðið - 21.04.2017, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 2017
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Það hefurvart fariðframhjá
neinum að mikill
taugatitringur
ríkir nú þegar
kemur að kjarn-
orkumálum Norð-
ur-Kóreu, en stjórnvöld þar
halda áfram að ögra öðrum
þjóðum með hótunum sínum
og tilraunum með eldflaugar
sem geta borið kjarnorku-
vopn. Á sama tíma hefur
Bandaríkjastjórn allt að því
dregið línu í sandinn gagnvart
frekari brotum Norður-
Kóreumanna á samþykktum
öryggisráðs Sameinuðu þjóð-
anna og háttsettir embættis-
menn þar, að Trump forseta
meðtöldum, hafa sagt Banda-
ríkin tilbúin til þess að „leysa
vandamálið upp á eigin spýt-
ur“.
Á sínum tíma lagði fram-
bjóðandinn Trump það til að
hann og Kim Jong-un gætu
sest saman, fengið sér ham-
borgara og þannig fundið út
lausnir á vandamálum Kóreu-
skagans. Forsetinn Trump
virðist hins vegar hafa áttað
sig á því að slíkur fundur
myndi engu skila. Það bendir
að minnsta kosti fátt til þess
að Kim myndi bæta ráð sitt
við slíkt boð. Þá segir for-
sagan að þó að harðstjórinn í
Norður-Kóreu þæði slíkt boð
og lofaði bót og betrun væru
ekki líkur á að það loforð
héldi.
Í fréttaskýringum vestan-
hafs hefur verið látið liggja að
því að Trump hafi þrjá slæma
kosti varðandi Norður-Kóreu.
Í fyrsta lagi að gera ekki
neitt. Sá kostur er varla fýsi-
legur fyrir neinn. Í öðru lagi
gætu Bandaríkin beitt vopna-
valdi og hugsanlega reynt að
eyðileggja getu Norður-
Kóreu til þess að framleiða
frekari kjarnorkuvígbúnað.
Gallinn er sá, að slíkar árásir
gætu þurft að vera býsna víð-
tækar, og ef ekki tækist að
eyða kjarnorkuvígbúnaði
Norður-Kóreumanna hratt og
í heild sinni, gæti svar þeirra
kostað fjöldann allan af
mannslífum.
Þá er eftir þriðji kosturinn:
Að ýta á Kínverja, helstu
bandamenn Norður-Kóreu-
manna, um að þeir grípi í
taumana og hafi vit fyrir ná-
grönnum sínum og skjólstæð-
ingum. Síðastnefndi kostur-
inn er sá sem fyrirrennarar
Trumps úr báðum flokkum
hafa reynt með sáralitlum ár-
angri. Engu að síður virðist
þessi kostur enn vera sá sem
ástæða er til að
reyna til þrautar,
svo að leysa megi
málin á friðsam-
legan hátt. Hitt er
þó ljóst að ekki er
hægt að bíða mik-
ið lengur eftir að
Kínverjar beiti sér með full-
nægjandi hætti.
Á vissan hátt hefur Trump
tekist að fá meira út úr Kín-
verjum en bæði Bush og
Obama tókst á sinni forseta-
tíð. Harkalegar yfirlýsingar
og loftskeytaárásir á Sýrland
og Afganistan virðast hafa
sannfært Kínverja um að nú
sitji í Hvíta húsinu maður sem
sé reiðubúinn að taka í taum-
ana ef á þurfi að halda. Fyrir
vikið hafa Kínverjar, í það
minnsta á yfirborðinu, lagt
hart að öllum deilendum að
reyna að finna friðsamlega
lausn.
Margt bendir til að Kínverj-
ar séu orðnir langþreyttir á
nær daglegum yfirlýsingum
Norður-Kóreumanna, sem
hafa meðal annars hótað því
að þeir muni gera kjarn-
orkuárás á Bandaríkin að
fyrra bragði við minnsta til-
efni. Kínverskir ríkisfjöl-
miðlar hafa svarað með því að
láta liggja að því að Kína muni
hætta innflutningi á olíu til
Norður-Kóreu láti stjórnvöld
þar sér ekki segjast, en slíkt
gæti lagt það litla sem eftir er
af efnahag ríkisins í rúst. Fátt
bendir þó til að sú hótun hafi
haft nokkurn fælingarmátt
gagnvart Kim Jong-un.
Næstu dagar geta skipt
sköpum. Á þriðjudaginn í
næstu viku verða 85 ár liðin
frá stofnun norðurkóreska
hersins. Í ljósi þess að til-
raunaskot sem ætlað var að
minnast 105 ára afmælis Kim
Il-sung, stofnanda Norður-
Kóreu, misheppnaðist al-
gjörlega, má telja líklegt að
Norður-Kóreustjórn vilji
bæta fyrir það með afgerandi
hætti. Um það leyti verður
bandaríska flugmóðurskipið
Carl Vinson og fylgiskip þess
að líkindum loks komið nærri
Norður-Kóreu eftir ruglings-
legar fréttir af ferðum þess að
undanförnu. Sigling þess er
hugsuð til að senda skýr skila-
boð til Kim Jong-un um að
Bandaríkin muni ekki sætta
sig við ferkari ögrun. Ef til vill
dugar það, ásamt þrýstingi
Kínverja, til að harðstjórinn
sjái að sér. Í bili að minnsta
kosti. Ef ekki gæti vel verið að
Trump teldi fullreynt að hægt
væri að koma vitinu fyrir Kim
með friðsamlegum hætti.
Næstu dagar geta
skipt sköpum um
hvort friðsamleg
lausn finnst á mál-
um Norður-Kóreu}
Þurfa Bandaríkin að
leysa vandann sjálf?
M
eðal þess sem verður rætt í við-
ræðum brezkra stjórnvalda
við Evrópusambandið um út-
göngu Bretlands úr samband-
inu eru sjávarútvegsmál. Þrátt
fyrir að viðræðurnar séu ekki hafnar hefur Evr-
ópusambandið þegar gert kröfu um að togarar
frá öðrum ríkjum þess geti áfram stundað fisk-
veiðar í brezku fiskveiðilögsögunni eftir að Bret-
ar yfirgefa sambandið eins og ekkert hafi í skor-
izt.
Með öðrum orðum er ekki nóg með að Evr-
ópusambandið geri kröfu um að fá aðgang að
fiskveiðilögsögu ríkja sem sækja um inngöngu í
það heldur krefst sambandið þess að halda
óbreyttum aðgangi þegar ríki vilja segja skilið
við það. Þetta er þó ekkert nýtt í raun. Þannig
setti Efnahagsbandalag Evrópu, forveri Evr-
ópusambandsins, fram sömu kröfu þegar Grænlendingar
yfirgáfu bandalagið á níunda áratug síðustu aldar og fékk
því framgengt.
Evrópusambandið (og áður forveri þess) hefur síðan
haldið sama aðgangi að fiskveiðilögsögu Grænlands og þeg-
ar landið var þar innanborðs. Rétt er að geta þess að Græn-
land var ekki aðildarríki að Efnahagsbandalaginu heldur
varð landið hluti bandalagsins með inngöngu Danmerkur
árið 1973. Þegar Grænlendingar fengu heimastjórn héldu
þeir þjóðaratkvæði um veruna innan þess og var samþykkt
að segja skilið við bandalagið einkum vegna fiskveiða.
Grænlendingar vildu hafa með höndum stjórn eigin sjávar-
útvegsmála í stað þess að Efnahagsbandalagið
færi með hana.
Ekkert af þessu kemur þeim á óvart sem
kynnt hafa sér meginatriði málsins. Þannig er til
að mynda skýrt kveðið á um það í Lissabon-
sáttmálanum, æðstu löggjöf Evrópusambands-
ins, að yfirstjórn sjávarútvegsmála innan sam-
bandsins sé alfarið í höndum þess. Ekkert ríki
hefur fengið varanlegar undanþágur frá þeirri
yfirstjórn og fulltrúar Evrópusambandsins hafa
ítrekað lýst því yfir að slíkt sé ekki í boði. Megin-
regla sjávarútvegstefnu sambandsins er enda
jafn aðgangur ríkja þess að fiskimiðum innan
þess enda fiskimið skilgreind sem sameiginleg
auðlind þeirra.
Helzti sérfræðingur Danmerkur í sjávar-
útvegsmálum, Ole Poulsen, kom einmitt inn á
þetta í heimsókn til Íslands sumarið 2013 þar
sem hann sagði aðspurður ljóst að sjávarútvegur innan Evr-
ópusambandsins væri 100% á forræði þess. Þar væri valdið
og ekki yrði komist framhjá yfirþjóðlegri lagasetningu þess.
Það er einfaldlega sama hvernig málið er skoðað. Niður-
staðan er ávallt sú sama.
Það er ástæða fyrir því að David Cameron, þáverandi for-
sætisráðherra Bretlands, reyndi ekki að endursemja um
sjávarútvegsmálin við Evrópusambandið í aðdraganda þjóð-
aratkvæðisins þar í landi síðasta sumar þrátt fyrir að áhrifa-
menn í Íhaldsflokki hans hafi hvatt hann til þess. Slíkt var
einfaldlega ekki í boði sem er meðal annars ástæða þess að-
Bretar eru nú á leið úr sambandinu. hjortur@mbl.is
Hjörtur J.
Guðmundsson
Pistill
Sama hvernig málið er skoðað
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
SVIÐSLJÓS
Guðm. Sv. Hermannsson
gummi@mbl.is
Bandaríska samskiptaveffyr-irtækið Facebook hefursett sér það markmið aðgera myndavélar í snjall-
símum að gátt inn í það sem nefna
mætti blandveruleika og einbeita sér
þannig að því sem fólk hefur í hendi
í stað þess að bíða eftir að hátækni-
gleraugu komi á markað.
„Ég er viss um það nú, að við
munum þróa þennan veruleikagrunn
áfram,“ sagði Mark Zuckerberg, for-
stjóri Facebook, þegar hann setti ár-
lega tækniþróunarráðstefnu í Kísil-
dal í Kalíforníu í vikunni.
Hann spáði því jafnframt, að þessi
tækni yrði á endanum fáanleg í gler-
augum en Facebook ætlaði fyrst að
þróa hana í tengslum við snjallsíma-
myndavélar.
Skipt út fyrir sýndarhluti
Zuckerberg sagði, að hægt væri
að skipta út fjölda hluta fyrir sýnd-
arveruleika, svo sem borðspilum og
sjónvarpsskjám. Þá gætu notendur
spilað eða horft án þess að nota
raunverulega hluti.
Þá sýndi Zuckerberg hvernig
hægt væri að bæta t.d. stafrænum
blómum, dýrum og grímum við
raunverulega atburði sem myndaðir
eru með snjallsímum, með sama
hætti og fólk veiðir sýndarveru-
leikafígúrur í tölvuleiknum Pokemon
Go.
„Veruleikaauðgun mun gera okk-
ur kleift að blanda hinu stafræna og
raunverulega saman á nýjan hátt.
Nú snýst allt um að útvíkka raun-
heiminn á netinu.“
Facebook hefur til þessa unnið
eftir þeirri stefnu, að sýndarveruleiki
sé næsti stóri áfanginn í tölvutækni.
Hefur fyrirtækið nýtt sér Rift-
höfuðbúnað, sem Oculus, dótturfyrir-
tæki Facebook, framleiðir.
Sérfræðingar segja, að blandveru-
leikatólin, sem Facebook hefur nú
kynnt, séu áhrifamikil þótt ekki sé
líklegt að almenningur geti nýtt sér
þau alveg á næstunni.
„Facebook hefur til þessa lítið
sinnt veruleikaauðgun og skildri
tækni en þess í stað einbeitt sér að
þróaðri sýndarveruleika,“ sagði Jan
Dawson, sérfræðingur hjá Jackdaw
Research, við AFP-fréttastofuna.
„En þessi ræða sýnir að Facebook
ætlar sér inn á þessar brautir og
keppa við Snapchat og önnur fyrir-
tæki.“
Stafrænar skreytingar
Samskiptavefurinn Snapchat byrj-
aði fyrir rúmu ári að bjóða notend-
um sínum upp á að bæta stafrænum
skreytingum við raunverulegar ljós-
myndir með svonefndri Lenses-
tækni.
„Nú höfum við orðið hvolpar,
regnbogar, skipt um andlit við bestu
vini okkar - og byrjað að rannsaka
hvernig Lenses getur breytt um-
heiminum,“ sagði móðurfélagið Snap
í bloggfærslu.
Í vikunni bættist sá möguleiki við
á Snapchat, að „mála umhverfið í
kringum þig í þrívídd,“ með því að
snerta skjáinn á snjallsíma.
Í pistli á vef breska ríkisútvarps-
ins, BBC, sagði Dave Lee, sem
fjallar þar um tæknimál, að bland-
veruleiki sé nú einn helsti orrustu-
völlurinn í átökum Facebook og
Snapchat um notendur. Það gæti
riðið baggamuninn, að Facebook hafi
nú opnað aðgang að þróunarsvæði
sínu fyrir blandveruleika. Þá geti
netþróunarsérfræðingar nýtt sér þá
gríðarlegu tölvureiknigetu, sem Fa-
cebook búi yfir til að þróa áfram
hluti á borð við myndakennsl án
þess að þurfa að fjárfesta sjálfir í
dýrum og flóknum tæknibúnaði.
Með þessu móti gæti Facebook þró-
að smáforrit með hraða sem Snapc-
hat geti ekki jafnað.
Barátta um veru-
leikann í netheimi
AFP
Raunveruleikaauðgun Mark Zuckerberg, forstjóri Facebook, kynnir
stefnu fyrirtækisins um blandveruleika á ráðstefnunni í Kísildal.
Á þróunarráðstefnunni í Kís-
ildal kynnti Facebook prufuút-
gáfu af sýndarveruleikaforriti
sem gerir fólki á mismunandi
stöðum kleift að koma saman í
sýndarheimi með því að nota
Oculus Rift-höfuðbúnað.
Með Facebook Spaces geta
notendur Rift „hangið“ með
vinum sínum í sýndarheimi
eins og þeir væru í sama her-
bergi í raunheimum, að sögn
Rachel Franklin, fram-
kvæmdastjóra hjá Facebook.
„Við höfum aðeins gárað yf-
irborð sýndarveruleika-
tækninnar,“ sagði hún.
Aðeins gárur
á yfirborðinu
SÝNDARVERULEIKI
AFP
Ímyndun Facebook kynnti
nýja sýndarveruleikatækni.