Morgunblaðið - 21.04.2017, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 21.04.2017, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 2017 Ármúli 8, 2. hæð - 108 Reykjavík Sími: 414-4466 - www.draumahus.is Föst söluþóknun - Allt innifalið * 399.900 Föst söluþók - Allt innifalið AnnaTeitsdóttir Nemi til löggildingar 787-7800 Lárus Óskarsson Fasteignasali 823-5050 * * gildir fyrir eignir undir 60.000.000 kr. í einkasölu. Þorsteinn Friðrik Halldórsson tfh@mbl.is „Það er alltaf mikil hátíð og mikið til- hlökkunarefni að mæta á palla. Við erum meðal annars að syngja fyrir styrktarfélaga okkar sem hafa styrkt okkur í tugi ára en flóran er stór og mikil sem mætir á tón- leikana,“ segir Friðrik S. Krist- insson, stjórnandi Karlakórs Reykjavíkur, en kórinn hefur æft fyrir viðburðinn frá áramótum. Karlakórinn hefur frá árinu 1927 haldið árlega vortónleika og í ár verður engin undantekning gerð. Þetta eru nítugustu tónleikar kórs- ins og verða þeir haldnir dagana 24., 25., 26. og 29. apríl í Langholtskirkju. „Við höfum alltaf reynt að hafa lög sem ná til allra aldurshópa með því að hafa blandaða efnisskrá. Aðal- málið er líka að okkur líði vel með að syngja þessi lög og það er að takast,“ segir Friðrik. Á efnisskránni er tón- list af margskonar toga. Þar má finna íslensk kórlög, evrópska klass- ík og ameríska gospelsöngva. „Þetta er mjög fjölbreytt efnis- skrá. Fyrst eru sungin hefðbundin íslensk karlakórslög, síðan norræn og fyrir hlé frumflytjum við lag eftir Pál Pampichler Pálsson, sem heitir „Nei, smáfríð er hún ekki“ sem er ljóð eftir Hannes Hafstein. Mjög skemmtilegt og flott lag sem er sam- ið fyrir kórinn sérstaklega með und- irspili píanós og klarínetts,“ segir Friðrik. „Eftir hlé erum við með am- eríska negrasálma, síðan dægurlög og að lokum klassík.“ Kórinn verður hljómsveit Fyrir 90 árum var sunginn Lof- söngur Beethovens og verður hann fluttur í ár. Þá verður flutningur á dægurlögunum með því sniði að sumir kórfélagar taka upp gítarinn til að spila með. „Við erum með gítarsveit, það eru fimm félagar úr kórnum sem eru flottir gítaristar og bassaleikarar. Þeir spila með í tveimur lögum. Við ætlum að heiðra minningu Leonards Cohen og syngja eitt frægasta lagið hans, „Hallelujah“ og síðan spilum við „Tears in Heaven“ eftir Eric Clapton,“ segir Friðrik. Anna Guðný Guðmundsdóttir hef- ur verið píanisti kórsins í fjölda ára og heldur uppteknum hætti á tón- leikunum í ár. Þá spilar Sigurður Ingi Snorrason á klarínett ásamt fleirum í frumflutningi á „Nei, smá- fríð er hún ekki“. Einsöngvararnir koma úr röðum kórfélaga að þessu sinni en Hjálmar P. Pétursson bassi syngur „Ol’ man river“, amerískan negrasálm, Björn Friðrik Einisson syngur einsöng og kvartett kemur fyrir í einu lagi. „Það eru margir í kórnum í söng- námi og þeir sem eru lengst komnir fá að spreyta sig. Hjálmar Pétursson er atvinnusöngvari, hann hefur verið að syngja í óperunni og verið í kórn- um í mörg ár þannig að hann fær þetta hlutverk.“ „Mikil gleði“ Friðrik hefur verið stjórnandi Karlakórs Reykjavíkur í 29 ár. Hann var ekki lengi að hugsa sig um þegar hann var spurður um sérkenni kórs- ins, sem telur 76 kórfélaga. „Hjá okkur er mikil gleði, það er eftirvænting fyrir hverja tónleika. Þessi kór hefur starfað í 90 ár og sungið mörg eftirminnileg lög sem margir þekkja eins og „Áfram veg- inn“ sem Stefán Íslandi söng með kórnum og „Hraustir menn“ sem Guðmundur Jónsson söng. Það sem einkennir kórinn er þróttur, mýkt og síðan þessi tæri litur.“ Hafa sungið inn vorið í 90 ár  Karlakór Reykjavíkur, undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar, heldur vortónleika í nítugasta sinn í Langholtskirkju í næstu viku  Efnisskráin er með fjölbreyttu sniði og kórfélagar taka upp gítarinn Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Á æfingu Karlakór Reykjavíkur á æfingu í Langholtskirkju í gær. Kórinn heldur ferna vortónleika í næstu viku, 90 árum eftir að þeir fyrstu voru haldnir. Karlakór Reykjavíkur fagnaði ní- ræðisafmæli sínu í fyrra þar sem hann var stofnaður 3. janúar árið 1926 og var aðalhvatamaður að stofnun hans Sigurður Þórðarson tónskáld sem stjórnaði kórnum samfellt, að einu ári undanskildu, til ársins 1962. Kórinn hélt sína fyrstu vortónleika árið 1927 og síð- ar það ár, 16. júní, voru haldnir tón- leikar í Fríkirkjunni þar sem Lof- söngur Beethovens var á dagskrá ásamt öðrum lögum. Stjórn- endur kórsins hafa verið Sig- urður Þórð- arson, Páll Ís- ólfsson, Jón S. Jónsson, Páll Pampichler Pálsson og Cat- herine Willams en núverandi söng- stjóri er Friðrik S. Kristinsson. Sigurður átti frumkvæðið KARLAKÓR MEÐ LANGA OG GLÆSILEGA SÖGU Sigurður Þórðarson Grikklandsvinafélagið Hellas held- ur félagsfund á morgun, 22. apríl, kl. 14, í sal Þjóðarbókhlöðunnar á 2. hæð. Á honum munu Sigurjón Björnsson, professor emeritus, og dr. Eiríkur Smári Sigurðarson, heimspekingur og fornfræðingur, fræða áheyrendur um Þúkydídes, föður kennisögunnar. „Sigurjón var um áratuga skeið prófessor í sálfræði við Háskóla Ís- lands og hefur gefið út ýmsar fræði- og kennslubækur í sálfræði auk rita á öðrum sviðum. Hann hefur einnig verið mikilvirkur þýð- andi og þýtt í áranna rás m.a. mörg rita Freuds og einnig hið þekkta verk Aristótelesar Um sál- ina. Undangengin ár hefur Sig- urjón þýtt ævisögur Stefans Zweig um Erasmus og Balzac, en einnig unnið það þrekvirki að þýða eitt grundvallarrit sagnfræðinnar, Sögu Pelópseyjarstríðsins eftir Þú- kydídes, auk Helleníku eftir Xenó- fón. Sigurjón mun fjalla um ævi og störf sagnaritarans forna,“ segir í tilkynningu. Þá muni Eiríkur Smári fjalla um kenningar sófistanna (fræðaranna) og Þúkydídesar um eðli mannsins og mannlegra samskipta. „Þessar kenningar hafa fengið endurnýjaða athygli síðustu mánuði í ljósi auk- innar spennu í alþjóðasamskiptum og stjórnmálaorðræðu sem gengur fyrst og fremst út á að skipa fólki í andstæðar fylkingar,“ segir í til- kynningu um kenningarnar. Á fundinum verður Sigurðar A. Magnússonar minnst en hann var einn stofnfélaga Grikklandsvina- félagsins, fyrsti formaður þess og heiðursfélagi. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. Morgunblaðið/Árni Sæberg Fræðandi Sigurjón Björnsson mun fjalla um Þúkydídes, föður kenni- sögunnar, á fundi Grikklandsvina- félagsins Hellas, ásamt Eiríki Smára Sigurðarsyni, á morgun. Fjallað um föður kennisögunnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.