Morgunblaðið - 03.05.2017, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.05.2017, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2017 Engar ferjusiglingar voru milli lands og Eyja í gær. Of mikill öldu- gangur var til siglinga í Landeyja- höfn og Breiðafjarðarferjan Baldur sem leysir Herjólf af þessa dagana hefur ekki leyfi til að sigla með far- þega til Þorlákshafnar. Herjólfur sigldi í fyrrinótt áleiðis til Danmerkur þar sem hann fer í slipp. Baldur leysir hann af. Á með- an er engin bílferja á Breiðafirði. Hefur Baldur leyfi til að sigla með farþega á milli Eyja og Land- eyjahafnar í sumar en ekki til Þor- lákshafnar. Í gær var ölduhæð við Landeyjahöfn 3 metrar en fór lækk- andi þegar leið á daginn. Aldan var meiri en Baldur og Herjólfur ráða við. „Það er bagalegt fyrir okkar að geta ekki siglt. Það hefur áhrif á far- þega okkar og viðskiptamenn en við ráðum ekki við þessar aðstæður,“ segir Gunnlaugur Grettisson, fram- kvæmdastjóri hjá Eimskip. Útlit er gott fyrir siglingar til Landeyjahafnar næstu daga. helgi@mbl.is Baldur hefur ekki leyfi til að sigla til Þorlákshafnar Morgunblaðið/Ómar Ferja Baldur sat fastur í Vest- mannaeyjum allan daginn í gær.  Ekki siglt til Eyja í gærdag Vestmannaeyjaferja » Herjólfur er í slipp í Óðins- véum og er væntanlegur aftur til Eyja um 20. maí. » Breiðafjarðarferjan Baldur hefur leyst Herjólf af við slíkar aðstæður. Nú er nýr Baldur í þessu hlutverki í fyrsta sinn en hann hefur ekki leyfi til að sigla til Þorlákshafnar. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Borgarráð samþykkti nýverið til- lögu stýrihóps um tilraunaverkefni um styttingu vinnudags án launa- skerðingar, en lagt var til að til- raunatímabil fyrir alla starfsstaðina sem þegar taka þátt í verkefninu, fyrir utan Laugardalslaug, verði framlengt til 1. nóvember nk. Benda niðurstöður könnunar til jákvæðra áhrifa verkefnisins þó að það birtist með ólíkum hætti á starfsstöðvum. „Í vetur tóku um 300 starfsmenn þátt í þessu verkefni sem við höfum ákveðið að halda áfram með. Innan velferðarsviðs og skóla- og frí- stundasviðs er svo jafnframt kominn upp áhugi á að kanna mögulega að- komu enn fleiri starfsstaða,“ segir Magnús Már Guðmundsson borgar- fulltrúi, en hann er formaður stýri- hóps sem heldur utan um þetta verkefni borgarinnar. Borgarstjórn samþykkti árið 2014 að setja á stofn tilraunaverkefni um styttri vinnuviku og er markmiðið að kanna áhrif styttingar vinnudags á heilsu, vellíðan, starfsanda og þjón- ustu með tilliti til gæða og hag- kvæmni. Verkefnið hófst 1. mars 2015 og liggur nú fyrir ný skýrsla sem dregur saman árangur af til- raunaverkefninu undanfarið ár mið- að við þau gögn sem þegar liggja fyrir. Óvíst um skammtímaveikindin „Verkefnið byrjaði 2015 á skrif- stofu Barnaverndar Reykjavíkur og í Þjónustumiðstöð Árbæjar og Graf- arholts. Í vetur prófuðum við þetta svo á nýjum einingum og skýrslan sem nú liggur fyrir er fyrsta mæling sem byggist á tilfinningu stjórnenda og viðhorfskönnun sem lögð var fyr- ir starfsmenn,“ segir Magnús Már og bætir við að niðurstöður bendi til að stytting vinnuviku hafi jákvæð áhrif á heilsu, vellíðan, starfsanda og þjónustu. „Okkur vantar hins vegar frekari gögn, s.s. hvaða áhrif þetta hefur haft á skammtímaveikindi og fjarvistir vegna þeirra.“ Fram kemur í niðurstöðum skýrslunnar að þáttur um andlega líðan er marktækt hærri nú heldur en áður en verkefnið fór af stað hjá Þjónustumiðstöð Árbæjar og Graf- arholts. „Sem segir okkur að dregið hefur úr andlegum einkennum álags,“ segir þar, en hið sama má segja um líkamleg einkenni álags. Laugin undir væntingum „Þegar á heildina er litið eru áhrif styttingarinnar jákvæðari heldur en væntingar fólks stóðu til í upphafi verkefnisins á öllum starfsstöðvum nema í Laugardalslaug,“ segir í skýrslunni, en þar er árangur verk- efnisins undir væntingum. „Laugardalslaug er um margt ólík hinum stöðunum, m.a. vegna þess að þar var ekki skertur sá tími sem opið er. En við eigum eftir að rýna betur í niðurstöðuna og þá af hverju þetta virðist ekki ganga upp á svona vinnustað,“ segir Magnús Már. Jákvæð áhrif fylgja styttri vinnutíma  Um 300 starfsmenn borgarinnar tóku þátt í tilraunaverkefninu í vetur Morgunblaðið/Heiddi Reykjavík Svo gæti farið að fleiri starfsstaðir tækju þátt í verkefninu. Tilraun » Verkefnið hófst 1. mars 2015 og er markmiðið að kanna áhrif styttingar vinnudags á heilsu, vellíðan, starfsanda og þjónustu. » Um 300 starfsmenn Reykja- víkurborgar tóku þátt í vetur. » Fleiri vinnustaðir kunna að koma að tilraunaverkefninu á næstunni, en niðurstöður virð- ast vera jákvæðar. Aðalsafnaðarfundur Garðasóknar verður haldinn miðvikudaginn 3. maí 2017 kl. 17.30 í safnaðar- heimili Vídalínskirkju. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf. Safnaðarmeðlimir eru hvattir til þess að sækja fundinn. Sóknarnefnd Garðasóknar. Aðalsafnaðarfundur Garðasóknar Úrkoma var óvenjumikil víða um land í apríl. Til tíðinda má telja að í Reykjavík mældist hún 149,5 milli- metrar, það mesta síðan í apríl 1921, eða í 96 ár. Þá mældist úr- koman 149,9 millimetrar. Munurinn á þessum tölum er ómarktækur og má því segja að úrkomumetið frá 1921 hafi verið jafnað. Þetta segir Trausti Jónsson veðurfræðingur á bloggi sínu, Hungurdiskum. Hann tekur fram að um sé að ræða bráðabirgða- uppgjör. Trausti birtir lista yfir 18 veður- stöðvar þar sem ný aprílúrkomumet litu dagsins ljós. Samkvæmt þeirri töflu rigndi mest á Nesjavöllum eða 369,8 millimetra. Gamla metið, 360,3 mm var frá árinu 2011. Á Kefla- víkurflugvelli hefur oft rignt hressi- lega og í nýliðnum apríl var útkom- an þar 159,9 millimetrar. Gamla metið var 132,3 mm frá árinu 1954. Maímánuður fór hressilega af stað eins og þátttakendur í 1. maí göngunni fengu að reyna í höfuð- borginni. Ekki var um met að ræða því það var ívið meiri úrkoma 1. maí 2011 heldur en nú, að sögn Trausta. Meðalhiti í byggðum landsins í nýliðnum apríl reiknast 2,2 stig og er það -0,4 stigum undir meðallagi síðustu tíu ár, en +0,6 yfir meðal- lagi árin 1961 til 1990. Hann var +0,4 stigum ofan meðallags 80 ára, 1931 til 2010. „Öldin, það sem af er hefur al- mennt gefið okkur nokkuð hlýja aprílmánuði sé borið saman við lengri tíma,“ segir Trausti. sisi@mbl.is Mesta úrkoma í 96 ár Morgunblaðið/Árni Sæberg 1. maí Það rigndi víða hressilega á þá sem tóku þátt í kröfugöngum dagsins. Myndin er frá útifundi á Austurvelli.  Úrkoma var óvenjumikil víða um land í nýliðnum apríl Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Aðalmeðferð gegn fyrrverandi eig- anda kampavínsklúbbsins Straw- berries fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Hann er ákærð- ur fyrir meiriháttar skattalagabrot fyrir að hafa vantalið virðisauka- skattsskylda veltu upp á rúmlega 230 milljónir króna og ekki staðið skil á 52,6 milljóna virðisauka- skattsgreiðslu. Þá er hann einnig ákærður fyrir að telja ekki fram tekjur upp á 64 milljónir og standa ekki skil á 28 milljóna tekjuskatti vegna þeirra. Saksóknari fer fram á blandaðan dóm yfir ákærða. Gerð er krafa um 16 til 18 mánaða fangelsi og ríflega 242 milljóna króna sekt. Greiðir fjórfalt til baka Verjandi mannsins, Páll Krist- jánsson hdl., segir í samtali við Morgunblaðið að í raun sé verið að láta umbjóðanda sinn greiða fjór- falda upphæð til baka. Samkvæmt skattalögum, lögum um tekjuskatt og skil á virðisauka- skatti, sem vísar meðal annars til al- mennra hegningarlaga, má áætla vangreidd opinber gjöld og skatta að upphæð sem að minnsta kosti nemur tvisvar sinnum því sem ekki var greitt. „Ákæruvaldið telur brotið það gróft að það sem ekki voru stað- in skil á er þrefaldað. Til viðbótar við skaðabótakröfu sem nemur fjárhæð- inni sem ekki voru staðin skil á, þannig að í raun er verið að gera kröfu um að fá fjórum sinnum greitt,“ segir Páll. Telur brotið gegn andmælarétti Páll sagði fyrir dómi í gær að mál- ið hefði haft gríðarlega slæm áhrif á heilsu ákærða. Hann sé orðinn 75% öryrki, hafi greinst með sykursýki og sé búinn að missa öll tengsl við fjöl- skyldu og vini. Hann telur einnig að brotið hafi verið gegn andmælarétti ákærða og sagði að málsmeðferð hefði ekki verið réttlát því ákærði hefði ekki fengið að sjá gögn málsins til að fá tækifæri til að koma skrif- legum athugasemdum á framfæri. Fara fram á fangelsi og 242 milljóna króna sekt  Aðalmeðferð gegn fyrrverandi eiganda Strawberries

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.