Morgunblaðið - 03.05.2017, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 03.05.2017, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2017 Útsölustaðir: Hörpu / Laugavegi Reyk jav ik Ra incoats - HVerf i sgötu 82 www.reyk jav ikra incoats .com - s ím i : 571 1177 Glöggir menn hafa rekið augun íathyglisverða auglýsingu, sem birst hefur að undanförnu frá hinu öfluga stéttarfélagi Eflingu, um ástandið í húsnæðismálum.    Í þeirri mynd komatvær götur í þétt- býli við sögu. Nöfn þeirra eru sláandi. Önnur heitir Öng- stræti og hin Skýja- borg.    Í lesnum texta sem fylgir segir áþessa leið: „Það er ekki nóg að hafa plan, það þarf að framkvæma.“    Fáum getur dulist að þarna bein-ast spjótin með réttu að „Dag- drauma“ borgarstjóranum í Reykja- vík.    Hann getur algjörlega áhættu-laust tekið ábendingarnar til sín.    Nýlega benti Gunnar Einarsson,bæjarstjóri í Garðabæ, á þá staðreynd að lóðaframboðið á höf- uðborgarsvæðinu hefði síðasta rúma áratug verið borið uppi af Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ og Mosfellsbæ. Reykjavík hefur skrópað.    Skortstefna Reykjavíkur hófst meðákvörðun R-listans um hækkun byggingarleyfisgjalda í Grafarholti og síðar með ákvörðun um að fella niður deiliskipulag í Úlfarsárdal.    Gunnar Birgisson bæjarstjóri birt-ist sem bjargvættur og hóf mikla uppbyggingu í Kópavogi og tvöfaldaði íbúafjöldann þar.    Verkleysi meirihlutans í Reykjavíknú er stærsta ástæðan fyrir öng- þveitinu í húsnæðismálum. Dagur B. Eggertsson Froða í stað framkvæmda STAKSTEINAR Veður víða um heim 2.5., kl. 18.00 Reykjavík 10 alskýjað Bolungarvík 10 skýjað Akureyri 14 skýjað Nuuk -5 skýjað Þórshöfn 10 léttskýjað Ósló 14 léttskýjað Kaupmannahöfn 12 heiðskírt Stokkhólmur 13 heiðskírt Helsinki 13 heiðskírt Lúxemborg 10 skýjað Brussel 11 súld Dublin 13 léttskýjað Glasgow 13 léttskýjað London 13 skúrir París 15 heiðskírt Amsterdam 12 léttskýjað Hamborg 9 rigning Berlín 10 skýjað Vín 17 heiðskírt Moskva 20 heiðskírt Algarve 22 heiðskírt Madríd 23 léttskýjað Barcelona 19 léttskýjað Mallorca 18 heiðskírt Róm 20 léttskýjað Aþena 24 léttskýjað Winnipeg 12 léttskýjað Montreal 15 skýjað New York 21 léttskýjað Chicago 7 rigning Orlando 26 þrumuveður Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 3. maí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4:52 21:59 ÍSAFJÖRÐUR 4:39 22:21 SIGLUFJÖRÐUR 4:22 22:04 DJÚPIVOGUR 4:17 21:32 Í þingréttinum í Austur-Finnmörku er um þessar mundir til meðferðar mál sem gæti haft þjóðréttarlega þýðingu. Það sem að mati Norð- manna virtist í upphafi vera einfalt mál vegna ólöglegra veiða á snjó- krabba í Barentshafi hefur undið upp á sig. Það er nú hlutverk ákæruvalds- ins í fylkinu að verja norska fiskveiði- og krabbahagsmuni. Útgerð og áhöfn skipsins Juros Vilkas hafði fengið heimild yfirvalda í Lettlandi til að veiða snjókrabba í Barentshafi. Fyrir dómi var bent á að leyfið væri veitt á grundvelli sam- starfs í Norðaustur-Atlantshafsfisk- veiðiráðinu og samkvæmt því gætu lönd innan Evrópusambandsins gefið heimildir til veiða. Dómurinn féllst á þessa röksemdafærslu og embætti ríkislögmanns í Noregi áfrýjaði mál- inu. Fleiri sambærileg mál gætu verið í uppsiglingu innan norska réttarkerf- isins því fleiri lönd innan ESB hafa gefið leyfi til veiða í Barentshafi. Leyfin voru veitt þó svo að Norð- menn hefðu tilkynnt að þeir myndu ekki viðurkenna þau. Einnig er tekist á um fullveldisrétt Norðmanna á Svalbarðasvæðinu. Þannig var skipið Senator fært til hafnar í Noregi í maí í fyrra. Það veiddi einnig með leyfi frá yfirvöldum í Lettlandi og hefur útgerð þess neit- að að greiða sekt og kostnað. Á tí- unda áratugnum bar Senator nafnið Ottar Birting og var gert út af ís- lenskum útgerðarfyrirtækjum. Það var fært til hafnar í Noregi 1994 vegna meintra ólöglegra veiða á fisk- verndarsvæði Norðmanna við Sval- barða. aij@mbl.is Deilur um snjókrabba gætu haft mikil áhrif  Norðmenn viðurkenna ekki heimild Letta til að gefa út veiðileyfi í Barentshafi Sigríður Á. And- ersen dóms- málaráðherra flytur erindi um borgaralega ör- yggisgæslu á fundi sem Varð- berg, samtök um vestræna sam- vinnu og alþjóða- mál, stendur fyrir í hádeginu á morgun. Fundurinn fer fram í fyr- irlestrarsal Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu. Endurreist dómsmálaráðuneyti tók til starfa 1. maí síðastliðinn en á verksviði ráðuneytisins eru verkefni sem lúta að lög- og landhelgisgæslu og landamæravörslu sem allt eru lykilþættir í borgaralegri löggæslu. Dómsmálaráðherra ræðir borgaralega öryggisgæslu Sigríður Á. Andersen Árekstur varð á Gullinbrú í Graf- arvogi um hálfáttaleytið í gær- kvöld. Flytja þurfti einn á slysa- deild til frekari aðhlynningar eftir áreksturinn, en að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæð- inu eru meiðsl hans ekki talin al- varleg. Slökkvilið þurfti þá einnig að hreinsa upp olíu á brúnni eftir áreksturinn. Einn fluttur á slysa- deild eftir árekstur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.