Morgunblaðið - 03.05.2017, Side 11

Morgunblaðið - 03.05.2017, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2017 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Á næstu vikum munu skipulags- nefndir sex sveitarfélaga á höfuð- borgarsvæðinu taka til afgreiðslu hvort breyta eigi aðalskipulagi sveitarfélaganna þannig að innviðir nýrrar borgarlínu séu festir í sessi. Að því loknu er stefnt að því að hefja for- kynningu á drögum að þessum inn- viðum. Lokatillaga verður svo unnin á síðari stigum málsins. Sveitarfélögin sem um ræðir eru Hafnarfjörður, Garðabær, Kópavog- ur, Reykjavík, Seltjarnarnes og Mos- fellsbær. Borgarlínunni er ætlað að tengja þessi sveitarfélög betur saman. Horft er til þvertenginga við borgar- línuna á nokkrum stöðum, jafnframt því sem kerfið verður tengt við strætisvagnakerfið. Lega borgarlínunnar hefur ekki verið ákveðin. Hér til hliðar má sjá drög að nokkrum leiðum. Eins og sjá má er gert ráð fyrir að bláa línan liggi um Kópavog og yfir fyrirhugaða brú yfir Fossvog. Nýir innviðir til framtíðar Hrafnkell Proppé, svæðisskipu- lagsstjóri höfuðborgarsvæðisins, segir innviði borgarlínunnar geta nýst til langrar framtíðar, hvort sem notast verði við léttlestir eða svonefnda hrað- vagna. „Við höfum frá upphafi sagt að gera megi ráð fyrir að stofnkostnaður á kílómetra í hraðvagnakerfi sé um það bil milljarður, að öllu meðtöldu, þar með talið stoppistöðvum. Stofnkostn- aðurinn getur verið allt að þrefalt hærri ef byggt er léttlestarkerfi,“ seg- ir Hrafnkell. Hann segir aðspurður að endurgera þurfi göturými til að rýma fyrir borg- arlínunni. Hann reiknar ekki með að almennt þurfi að fækka akreinum. Það sé enda í flestum tilfellum hægt að breikka göturýmið. Reikna megi með að borgarlínan verði í forgangi um- ferðarljósa. Hann segir verkefnið hafa verið undirbúið í nokkur ár. Fyrst hafi kostnaður við sambærileg kerfi er- lendis verið yfirfærður á höfuð- borgarsvæðið. Síðan hafi verk- fræðistofan Mannvit unnið nánari greiningu á stofnkostnaði. Þarf að festa inn í skipulagið Síðasta haust hafi svo verið gert samkomulag við dönsku verk- fræðistofuna COWI um að gera for- greiningu vegna verkefnisins. „Það er nauðsynlegt að reyna að fá fram heildarmynd á svona kerfi. Það þarf að festa hana í aðalskipulagið, þótt kerfið yrði byggt upp í áföngum yfir mjög langan tíma, jafnvel ára- tugi. Verkefnið kemur aldrei til fram- kvæmda ef það næst ekki inn í skipu- lagið. Við erum að reyna að ljúka skipulagshlutanum svo stilla megi upp eðlilegum áföngum sem kæmu svo til framkvæmda.“ Hrafnkell segir mögulegt að hefja undirbúning að framkvæmdum á næsta ári. Horft hafi verið til sam- bærilegs undirbúnings að hágæða samgöngukerfi í Stafangri. Þar hafi kerfið verið fest í svæðisskipulag árið 2013. Kerfið hafi svo verið fest í skipulag hvers og eins sveitarfélags og framkvæmdir hafist árið 2016. „Norðmennirnir ætla að ljúka við að leggja 50 kílómetra net há- hraðavagna á 8 árum og hyggjast opna fyrsta áfangann árið 2020. Það er því hægt að ganga kröftuglega til verks,“ segir Hrafnkell. Hann segir hraðvagnakerfi vera nokkurs konar millistig milli hefðbundinna strætis- vagnakerfa og léttlesta. „Einfaldast er að hugsa sér léttlest sem er á gúmmíhjólum og getur ekið á malbiki í stað teina. Sömu lögmál geta gilt um hraðvagna og léttlestir og til eru hraðvagnakerfi sem tengjast raflín- um á sama hátt,“ segir Hrafnkell. Hann bætir við að þótt hraðvagnar hafi ekki sömu flutningsgetu og létt- lestir séu þeir taldir uppfylla kröfur um afköst til ársins 2040, miðað við íbúaspár. „Það er hins vegar hyggi- legt að horfa til lengri tíma og hugsa kerfið þannig að hægt verði að breyta því í léttlestarkerfi ef þörf er á.“ Borgarlína færist nær veruleika  Undirbúningur að uppbyggingu nýs samgöngukerfis á höfuðborgarsvæðinu gæti hafist næsta ár  Verkefnið mun kosta tugi milljarða  Horft til háhraðavagna sem aka á sérstökum akreinum Teikning/Skipulagsyfirvöld í Kópavogi Við Smáralind Hér má sjá drög að útliti biðstöðvar í fyrirhugaðri borgarlínu. Norðurturninn er í bakgrunni. Hugmyndir að legu borgarlínu Frumniðurstaða valkostagreiningar COWI MOSFELLSBÆR ÁRBÆR KÓPAVOGUR ELLIÐA- VATN GARÐABÆR HAFNARFJÖRÐUR REYKJAVÍK SELTJARNARNES Heimild: Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu Fram kemur í bréfi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæð- inu (SSH) til fjárlaganefndar Al- þingis að kostnaður við lagningu borgarlínunnar sé ætlaður 55 millj- arðar. Með vikmörkum er hann áætlaður 44 til 72 milljarðar og á öðrum stað allt að 73 milljarðar. „Gert [er] ráð fyrir að kostnaður vegna hönnunar og nauðsynlegs rekstrarlegs og tæknilegs undir- búnings fyrir verklegar fram- kvæmdir verði um 1,5 milljarðar króna á árunum 2017 til 2018. Fjár- festing í nauðsynlegum innviðum alls kerfisins er áætluð alls um 47– 73 milljarðar króna. Gert er ráð fyrir að fyrsti áfangi kerfisins verði byggður upp á árunum 2019-2022 og kostnaður þess áfanga verði um 30-40 milljarðar króna,“ segir orð- rétt í bréfinu um kostnaðinn. Skal tekið fram að vísað er til frumdraga varðandi kostnað. Aksturinn hefjist árið 2022 Þá segir þar að samkvæmt nú- verandi áætlunum sé gert ráð fyrir að akstur og farþegaþjónusta í „nýju hágæða almennings- samgöngukerfi“ hefjist 2022. Gert hafi verið ráð fyrir að ríkis- sjóður og Vegagerðin komi að fjár- hagslegum og verklegum þáttum verkefnisins. Á móti kostnaði við innviði borgarlínunnar muni spar- ast umtalsverðir fjármunir „vegna frestunar og /eða niðurfellingar á fjárfrekum aðgerðum í stofn- brautakerfi höfuðborgar- svæðisins“. Vísað er til kafla um samgöngumál í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, nánar til tekið að „skoðaður verði möguleiki á samstarfi við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu um Borgar- línu“. Í ljósi þessa hafi SSH óskað eftir formlegum viðræðum við ráðuneyti samgöngumála um fjár- hagslega aðkomu ríkisins að verk- efninu, til dæmis með stofnun sam- eiginlegs undirbúningsfélags. Kostnaðurinn talinn allt að 72 milljarðar 25-30 milljarða framlag » Í bréfi SSH til fjárlaganefnd- ar er kallað eftir því að gert sé ráð fyrir fjárhagslegri þátttöku ríkis í verkefninu; miðað er við 25-30 milljarða framlag ríkis og sveitarfélaga til 2022. » Rætt er um möguleika sveitarfélaga til tekjuöflunar á móti kostnaði við fram- kvæmdir, t.d. með innheimtu sérstakra innviðagjalda. LANCÔME KYNNING MIÐVIKUDAG TIL FÖSTUDAGS VEKTU HÚÐINA C VÍTAMÍN SEM VEITIR SAMSTUNDIS VARANLEGAN LJÓMA OG FYLLTARI HÚÐ. Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Aðeins það besta fyrir Lancôme konuna. Vertu velkomin, við tökum vel á móti þér. Glæsilegir kaupaukar að hætti Lancôme [ ST IG ] 1 FYRSTU 14 NÆTURNAR 5% NÁTTÚRULEGAR SÝRUR [ST IG ] 2 SEINNI 14 NÆTURNAR 10% GLYCOLIC SALICYLIC SÝRUR PEEL TO REVEAL 2 STEPS TO START OVER. NÝTT VISIONNAIRE CRESCENDO™ AUÐVELD 28 DAGA NÆTUR SÝRUMEÐFERÐ Í 2 ÞREPUM. 20% AFSLÁTTUR AFVisionnaire kremunumfrá Lancôme.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.