Morgunblaðið - 03.05.2017, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 03.05.2017, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2017 Mest seldu ofnar á Norðurlöndum Ljósmynd/Hari Úti að leika Höfundarnir Kristín Eva Þórhallsdóttir og Brynhildur Björnsdóttir bregða á leik í Öskjuhlíðinni. Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Við mælum eindregið með aðfullorðnir noti ekki bókinanema í fylgd barna,“ segjaBrynhildur Björnsdóttir og Kristín Eva Þórhallsdóttir, höf- undar hugmynda- og útivistarbókar- innar Komdu út! sem nýverið kom út hjá Forlaginu. Samtímis settu þær í loftið vefsíðuna ferdafelaginn.is með fróðleik í tengslum við innihaldið. Bókin og vefurinn spila saman með gagnvirkum tilvísunum, þótt hvort um sig geti nýst án hins. Á vefnum er hægt að hlusta á þjóðsögur og ævin- týri og fá ítarlegar upplýsingar um dýr, plöntur og margt fleira. „Í bókinni er fjöldi hugmynda sem við höfum safnað saman um allt milli himins og jarðar sem hægt er að gera úti í náttúr- unni; úti í móa, niðri í fjöru, uppi á fjalli eða bara í garðinum heima. Forvitnum notendum er boðið í rannsóknar- og fræðsluleiðangra og alls konar leiki sem og að leysa gátur og þraut- ir sem tengj- ast pöddum, fiskum og fuglum, skógum og hrauni, veðri og skýjafari svo fátt eitt sé talið,“ segja höfundarnir og bæta við að tilgangurinn sé fyrst og fremst að vekja forvitni og sköpunargleði. „Við erum samt ekki í neinni herferð gegn inni- púkum,“ taka þær þó fram. Stjörnuskoðun frekar en sjón- varpsgláp Að vísu fjalla þær svolítið um fullorðna í þeim hópi og gefa krökkum snjöll ráð til að bregðast við af- sökunum sem þeir bera gjarnan fyrir sig. Tvö dæmi: „Afsökun: „Við ætlum að horfa á Fullorðnar en krakk- ar inni við beinið Foreldrar, fyrr og síðar, hafa trúlega margoft og við misjafnar undirtektir sagt krökkunum sínum að fara út að leika. Stundum oft á dag, eftir atvikum í blíðlegum tón eða pirruðum þegar ungviðið vill kannski vera inni í tölvuleikjum eða horfa á sjónvarpið. Komdu út!, nýútkomin hugmynda- og útivistarbók eftir Brynhildi Björnsdóttur og Kristínu Evu Þórhallsdóttur, dregur forhertustu innipúka á öllum aldri út að leika. Reykjavíkurborg og Embætti land- læknis standa fyrir lýðheilsuráð- stefnunni Vellíðan fyrir alla – Jöfn- uður og heilsa, kl. 12.30-16.30 í dag, miðvikudaginn 3. maí, í Tjarn- arsal Ráðhúss Reykjavíkur. Ráðstefnunni er ætlað að varpa ljósi á hvað jöfnuður til heilsu þýðir og hverjir eru helstu áhrifaþættir. Fjallað verður um jöfnuð, heilsu og vellíðan í víðu samhengi fræðanna ásamt hagnýtum dæmum frá Evr- ópu og þá sérstaklega Írlandi, Nor- egi og Íslandi. Aðalfyrirlesari er Joan Devlin, sem leiðir Healthy Cities Network verkefnið á vegum Alþjóðaheilbrigð- ismálastofnunarinnar (WHO), en hún stýrir einnig vinnu Belfast Healthy City sem á sér 25 ára sögu. Meðal fyrirlesara er Dina von Heimburg sem leiðir lýðheilsuverk- efni í sveitarfélaginu Inherred í Nor- egi og mun hún fjalla um jöfnuð í heilsueflandi samfélögum. Farið verður yfir stöðuna í Reykja- vík og hvað hægt er að gera til að gefa sem flestum tækifæri til að upplifa góða heilsu og vellíðan. Aðgangur er ókeypis. Dagskráin í heild og þátttökuskráning er á vef Embættis landlæknis og reykjavik- .is. Vefsíðan www.landlaeknir.is Morgunblaðið/Ómar Góð heilsa Á ráðstefnunni verður fjallað um hvað hægt er að gera til að sem flestir fái tækifæri til að upplifa góða heilsu og vellíðan í Reykjavík. Vellíðan, jöfnuður og heilsa Foreldraþorpið, sem er vettvangur samstarfs foreldrafélaga grunnskól- anna í Laugardal, Háaleiti og Bústöð- um, stendur fyrir fundi fyrir alla for- eldra í hverfunum kl. 19.30-22 í kvöld, miðvikudag 3. maí, í Laugar- dalshöllinni. Yfirskrift fundarins er Snjalltækja- notkun barna, hver er staðan og hvert stefnum við? Umfjöllunarefnið brennur efalítið á mörgum foreldrum og munu sérfræðingar; læknir, upp- eldisráðgjafi, skólastjóri, markþjálfi og foreldrar reifa málin frá ýmsum sjónarhornum. M.a. verður fjallað al- mennt um tölvu- og snjalltækja- notkun barna og unglinga, komið verður inn á samstarf skóla og for- eldra varðandi reglur um notkun snjallsíma á skólatíma auk þess sem foreldrar fá ýmis hollráð. Samantekt og niðurstaða fundar- ins Ilmur Kristjánsdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar Foreldraþorpið, vettvangur foreldrafélaga þriggja skóla Snjalltækjanotkun barna Thinkstock/Getty Nærvera í nýjum heimi Er aukin snjalltækjanotkun barna áhyggjuefni? Skannaðu kóðann til að fara inn á vef- síðuna. Auðnutittlingur Lítil finka með stutt stél.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.