Morgunblaðið - 03.05.2017, Síða 13
sjónvarpið.“ Ráð:
Stingdu upp á því að
þið farið frekar út
að skoða stjörn-
urnar. Þú get-
ur boðið fróð-
leik um
himin-
geiminn með
því að lesa
þér til um
hann fyrst.
Afsökun: „Ég
er að fara í lík-
amsræktina.“
Ráð: Þú stingur
upp á því að gera
frekar æfingar úti með
þér, til dæmis froskahopp og
handahlaup. Það er líka hægt að róla,
klifra upp í tré, lyfta steinum og gera
jógaæfingar.“ Klókt . . .
Höfundarnir eru margreyndar í
gerð barnaefnis fyrir útvarp og sjón-
varp. Skemmst er að minnast þátt-
anna Leynifélagið á RÚV, sem þær
stjórnuðu frá 2007 og þar til í hitti-
fyrra. Hugmyndin að bókinni kvikn-
aði einmitt í Leynifélaginu og af við-
tölum við alla krakkana sem þar
komu við sögu. Einn-
ig sækja þær ýmis-
legt í eigin
reynslubanka
sem uppal-
endur. Svo
kemur þeim
til góða „að
vera sjálfar
krakkar inn
við beinið,“
eins og
Kristín Eva
orðar það.
Hún býr núna
ásamt fjölskyldu
sinni í Kaliforníu,
þar sem hún sinnir
skriftum af ýmsu tagi eins og
Brynhildur hér heima. Atlantshafið á
milli þeirra var þeim engin fyrirstaða
að vinna saman í vetur.
Hentug í bakpokann
„Margir kannast við að langa til
að fara og gera eitthvað skemmtilegt
með krökkunum sínum en geta
ómögulega látið sér detta eitthvað í
hug. Við erum með uppástungur um
hitt og þetta sem hægt er að gera sér
til skemmtunar og höfðum til allra
sem finnst gaman að velta hlutunum
fyrir sér. Bókin svarar ekki beinlínis
spurningum, heldur snúast verkefnin
um að notendur leiti sjálfir svara og
nánari upplýsinga á vefsíðunni og
annars staðar.“
Þær benda á að bókin, sem er í
A4-broti, fari einkar vel í bakpok-
anum, hana megi beygla, teikna í,
klippa göt á, lesa á hvolfi, byrja að
lesa í miðjunni og líma í myndir og
blóm. Hver og einn geti í rauninni
sniðið bókina eftir sínu höfði og sköp-
unargleði.
Hefurðu prófað að liggja á bak-
inu og stara á skýin? spyrja þær t.d. í
kaflanum Vaðið í skýjum einhvers
staðar í miðri bók og upplýsa að slíkt
sé miklu skemmtilegra en að
brjóta saman skítuga
sokka í rigningu. Og
halda áfram: Hvernig
eru skýin í laginu?
Hvernig eru þau á
litinn? Sérðu
einhverjar
myndir?
Kynnt eru
ævintýraleg
skýjaheiti,
Blikuturnar,
Loðinlakki og
Maríutása til
dæmis, og vísað á fleiri nöfn á ferda-
felaginn.is. Tekið er fram að í skýja-
ferðina þurfi ekkert að taka með sér
en teikniblokk og blýantur, myndavél
og fjörugt ímyndunarafl komi þó að
góðum notum. Varað er við að
skýjaferðir kveiki á kollinum og
fyrr en vari fari skýjafarar hugsan-
lega að semja sögur, mála myndir af
skýjum, búa til lag eða spá í veðrið.
Uppástungur og uppskriftir
Brynhildur og Kristín Eva eru
báðar útivistarkonur og umhverfis-
verndarsinnar en segjast þó ekki
endilega vera „brjálaðir“ fjalla-
garpar. Þeim finnist einfaldlega gam-
an að vera úti í náttúrunni. „Þótt við
setjum okkur inn í hugarheim krakka
og skrifum fyrst og fremst fyrir þá
var hvatinn að bókinni í og með að
hvetja þá fullorðnu til að vekja áhuga
barna á útiveru. Komdu út! er nokk-
urs konar uppskriftabók, maður þarf
ekki að fara nákvæmlega eftir upp-
skriftinni, heldur getur bætt ein-
hverju við og lagað eftir smekk.“
Þær eru sannfærðar um að sam-
vera fjölskyldunnar úti í náttúrunni
sé betra tækifæri til tala saman og
tengjast á annan hátt en inni við í
amstri dagsins og ekki sé verra að
anda að sér svolitlu súrefni í leið-
inni. Ekki þurfi að leita langt
fyrir skammt; óspillt náttúr-
an sé alltumlykjandi og
bjóði upp á ótal ævin-
týri. Aðspurðar
segja þær vel
hugsanlegt
að gefa út
Komdu
út! núm-
er tvö.
Vinnunni sé ekki lokið því
þær sjái um að uppfæra
vefinn ferdafelaginn.is
reglulega.
Myndmálið Halla Sigga, grafískur hönnuður hjá Forlaginu, á heiðurinn af
uppsetningu og myndrænni útfærslu bókarinnar í samstarfi við höfunda.
Leiksvæði Náttúran er stærsta og besta leiksvæði sem til er, bæði fyrir
börn og fullorðna. Til að svo megi áfram vera þarf að sýna henni kurteisi.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2017
Hann spáir góðu á morgun og annað
kvöld um 11 stiga hita í Reykjavík
samkvæmt Veðurstofu Íslands.
Hvernig sem viðrar er þó fátt betra
en að bregða sér í sund í lok dagsins.
Annað kvöld kl. 20.30-21.30 verður
samflot í Árbæjarlaug, en það er
hugsað sem vettvangur fyrir fólk til
að koma saman og upplifa nærandi
slökunarstund í þyngdarleysi umvaf-
ið vatninu. Samflot stendur öllum til
boða að kostnaðarlausu, aðeins er
greitt fyrir aðgang í sund. Þeir sem
eru að prófa samflot í fyrsta skipti og
eiga ekki flotbúnað geta fengið hann
lánaðan. Því ekki að skella sér?
Allt á floti Hægt er að fá flotbúnað
lánaðan í Árbæjarlauginni.
. . . verið í sam-
floti í sundi
Endilega . . .
Gera má sér mat úr plöntuferð með margvíslegum hætti, líka þegar heim
er komið. Í Komdu út! er stungið upp á eftirfarandi:
Fíflanammi
Tíndu nokkra ferska túnfíflahausa og
hristu flugurnar út. Veltu túnfíflahaus-
unum upp úr hveiti og steiktu í smjöri.
Fjallate
Taktu með þér sjóðandi heitt sykurvatn í
brúsa og tíndu eftirtaldar jurtir út í það:
blóðberg, ljónslappa, rjúpnalauf og vall-
humal. Tíndu bæði blóm og lauf en
slepptu stilkunum.
Tyggjó
Tyggðu hundasúrur. Þær eru bestar þeg-
ar þær eru nýjar og litlu blöðin eru lang-
best.
Á grænni grein
UPPSKRIFTIR ÚR PLÖNTUFERÐ
Það er alltaf forvitnilegt að kynna sér
það sem fatahönnuðir framtíðarinnar
hafa fram að færa. Áhugasamir ættu
ekki að láta tækifærið sér úr greipum
ganga heldur mæta á árlega tískusýn-
ingu útskriftarnema í fatahönnun við
Listaháskóla Íslands, sem fer fram kl.
18.30 í kvöld, miðvikudag 3. maí, í
Norðurljósasal Hörpu. Á sýningunni
kynna nemendur útskriftarverkefni
sín eftir þriggja ára nám við skólann.
Tískusýningin er hluti af viðamikilli
dagskrá útskriftarhátíðar Listahá-
skóla Íslands, þar sem 89 útskriftar-
nemar koma fram. Verk þeirra verða
síðar til sýnis á útskriftarsýningu BA-
nema í hönnun og myndlist, í Hafnar-
húsinu sem verður opnuð 13. maí.
Útskriftarnemendur í fatahönnun
vorið 2017 eru að þessu sinni tíu tals-
ins: Bergur Guðnason, Darren Mark
Donguiz Trinidad, Guðjón Andri Þor-
varðsson, Hanna Margrét Arnardóttir,
Kristín Karlsdóttir, Magna Rún Rún-
arsdóttir, María Árnadóttir, María Niel-
sen, Signý Gunnarsdóttir og Þóra Ás-
geirsdóttir.
Tískusýning útskriftarnema í fatahönnun við LHÍ
Fatahönnuðir
framtíðarinnar
Ljósmynd/Hari
Baksviðs Frá útskriftarsýningu fata-
hönnunarnema LHÍ í fyrra.
Hrossa-
gaukur
Vaðfugl sem
fer gjarnan
huldu höfði.
Salsa Iceland
Ókeypis prufutími
fyrir byrjendur
Salsa Iceland býður byrjendum
ókeypis prufutíma í salsa kl. 19.30-
20.30 í kvöld, miðvikudag 3. maí, í
Iðnó við Vonarstræti. Hvorki byrj-
endur né aðrir sem mæta í dansinn,
sem dunar eftir byrjendatímann til kl.
23.30, þurfa að taka með sér dans-
félaga og ekki heldur að vera sér-
staklega flinkir í danslistinni.