Morgunblaðið - 03.05.2017, Síða 14

Morgunblaðið - 03.05.2017, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2017 Draumstafur Vegvísir Ægishjálmur Bankastræti 12, 101 Reykjavík, sími 551 4007, www.skartgripirogur.is Opið virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-18 og sunnudaga kl. 11-17 Gott úrval - gott verð Verð 8.500Verð 8.500Verð 8.500 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Það er mat stjórnenda Landhelgis- gæslunnar (LHG) að auka þurfi framlög til stofnunarinnar um 1,4 milljarða á ári til þess að tryggja lágmarks þjónustu- og öryggisstig. Þetta kemur fram í umsögn Georgs Kr. Lárussonar forstjóra til fjárlaganefndar Alþingis um þings- ályktun um fjármálaáætlun fyrir ár- in 2018-2022. Tillögur Landhelgisgæslu Íslands vegna fjármálaáætlunarinnar gerðu ráð fyrir því að lágmarks löggæslu-, öryggis- og björgunarþjónusta á hafi yrði tryggð með því að hafa tvær þyrlur með tveimur áhöfnum til taks allt að 95% ársins, tvö varð- skip á sjó hverju sinni og eftirlits- og björgunarflugvél til taks 95% ársins. Þetta sé sá viðbúnaður sem þurfi til þess að tryggja lágmarks öryggi á hafinu miðað við áhættu- og þarfagreiningu LHG. Fram kemur í umsögninni að Landhelgisgæslan hafi yfir að ráða þremur þyrlum og þegar tekið er til- lit til viðhaldstíma séu tvær þyrlur til taks 95% af árinu. Til að geta mannað tvær þyrlur allt árið þurfi Landhelgisgæslan að hafa yfir að ráða sjö áhöfnum. „Í dag hefur Landhelgisgæslan fimm þyrluáhafn- ir sem þýðir að um 44% af árinu eru tvær áhafnir til taks, það er að 56% á árinu er ekki hægt að tryggja leit- ar- og björgunarþjónustu á sjó með þyrlu. Til þess að gera þjónustu- og öryggisstig viðunandi þarf að bæta við tveimur áhöfnum sem áætlað er að kosti 550 milljónir á árs- grundvelli,“ segir í umsögn Georgs. Til þess að uppfæra þyrlu LHG, TF-LÍF, þannig að hún sé hæf til blindflugs þarf að gera uppfærslu sem áætlað er að kosti 150 milljónir. Fjármálaáætlunin gerir ekki ráð fyrir að fjármagn til þyrlureksturs verði aukið á tímabilinu en gert sé ráð fyrir því að blindflugsbúnaður TF-LÍF verði uppfærður. Í ljósi þess hve útköllum á þyrlur hefur fjölgað undanfarin ár, eins og kemur fram í þingsályktunartillögunni, sé ljóst að tími til æfinga og löggæslu fari sífellt minnkandi sem hafi nei- kvæð áhrif á þjónustu- og örygg- isstigið. Landhelgisgæslan hefur í dag yfir að ráða þremur varðskipum, þar af tveimur sem eru haffær, Þór og Tý, og tveimur áhöfnum til að manna þessi skip. Stofnunin geti haft varð- skip á sjó um það bil 300 daga af 365. Þetta þýði að viðbragðstími varðskipa innan efnahagslögsög- unnar sé allt að 48 klukkustundir en lágmarks viðbragðstími varðskipa ætti að vera 24 klst. Til þess að bæta viðbragðið þurfi að bæta við tveimur áhöfnum og gera þriðja skipið, Ægi, haffært. Við þetta mundi árlegur kostnaður aukast um 660 milljónir. Uppfærsla á varðskipinu Ægi, sem myndi duga til að gera skipið út í fimm til átta ár, myndi kosta um 200 milljónir króna. Landhelgisgæslan þarf 1,4 milljarða  Björgun á sjó með þyrlu verður ekki tryggð 56% ársins Morgunblaðið/Árni Sæberg Varðskipaflotinn Tvö skipanna eru haffær, Þór og Týr, og þau gæta land- helginnar til skiptis. Til þess að gera Ægi haffæran þarf 200 milljónir. Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Níu fyrrverandi yfirmenn Lands- bankans í Lúxemborg voru ákærð- ir fyrir fjársvik snemma árs 2014 af frönskum rannsóknardómara, Renaud van Ruymbeke, í París. Rannsókn málsins hófst árið 2009 en réttarhöld yfir stjórnendunum fyrrverandi í hófust í París í gær. Samkvæmt frétt fréttastofunnar AFP er talið að réttarhöldin muni standa til 24. maí nk. Þar kemur fram að verði hinir ákærðu fundnir sekir geti þeir átt yfir höfði sér allt að fimm ára fangelsi og 350 þús- und evra sekt hver, (liðlega 40 milljónir króna). Málið hófst þegar hundruð franskra viðskiptavina bankans, með franska söngvarann Enrico Macias í fararbroddi, kvörtuðu yfir fjármálagerningum bankans gagnvart þeim á árunum 2006 til 2008. Upphaflega kvörtuðu viðskipta- vinir bankans, m.a. fjölmargir hús- eigendur í Frakklandi og á Spáni, þegar þeir töpuðu á umdeildum fjármálagerningum, sem bankinn seldi. Viðskiptin voru sögð hafa verið með þeim hætti að bankinn bauð viðskiptavinunum lán með veði í húseignum þeirra. Viðskipta- vinirnir hafi aðeins fengið hluta af lánunum greiddan, en stærstan hluta hafi Landsbankinn í Lúxem- borg nýtt til að fjárfesta. Viðskiptavinunum hafi verið sagt að hagnaður af fjárfesting- unum yrði nýttur til þess að greiða lánin til þeirra að fullu. Á daginn hafi komið að áhætta sem bankinn tók í viðskiptunum hafi engin verið. Hún hafi öll verið hjá viðskiptavinunum sem tóku lánin. Bankinn hafi enga áhættu tekið  Réttað í París yfir fyrrverandi stjórn- endum Landsbanka AFP Upphafsmaður Búist er við að En- rico Macias beri vitni í París í dag. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Endur af ýmsum tegundum hafa flykkst til landsins undanfarna daga. Einnig vaðfuglar og spörfuglar. Brynjúlfur Brynjólfsson, fugla- áhugamaður á Höfn í Hornafirði, segir að farfuglarnir komi á sínum tíma hvað sem líði veðri og vindum. Suðaustan- og austanáttin um helg- ina hafi þó eflaust létt þeim flugið. Óðinshani og þórshani ókomnir „Skúfönd, gargönd, duggönd og grafönd koma alltaf á þessum tíma,“ sagði Brynjúlfur. Í gær voru tíu gargandarsteggir á Óslandstjörn á Höfn. Þeir hafa þar skamma viðdvöl eftir komuna til landsins. Á tjörnum í Suðursveit, sem heita Fífa og Skarða, voru í fyrradag um 200 skúf- endur. Á Baulutjörn á Mýrum voru einnig um 200 skúfendur þann dag og á vatninu Þveit í Nesjum voru í gær 400-500 duggendur og skúf- endur. Þessar endur hafa gjarnan vetursetu í Suður-Evrópu, það er á Spáni, í Portúgal og Suður- Frakklandi. Vaðfuglarnir eru líka byrjaðir að koma eins og til dæmis lóuþræll. Ló- ur og spóar hafa flykkst til landsins að undanförnu. Þúfutittlingar, maríuerlur og steindeplar hafa einn- ig komið eftir vetursetu á suðlægum slóðum. Þeir fara allt til norðurhluta Afríku og til Vestur-Afríku yfir vet- urinn. „Fyrstu fuglar af öllum farfugla- tegundum eru komnir, nema óðins- hani og þórshani,“ sagði Brynjúlfur. Óðinshaninn kemur yfirleitt um miðjan maí en þórshani um mán- aðamót maí og júní, síðastur far- fuglanna. Bjarthegri hafði vetursetu Nokkuð hefur sést af flækingum á landinu undanfarið. Nýlega var sagt frá hálegg sem sást hér í fyrsta sinn í Garðinum. Á Reykjanesi eru líka þrír nátthegrar. Bjarthegri lifði af veturinn í Ölfus- inu og er ekki vitað til að slíkt hafi gerst áður. Hann hefur haldið sig nálægt fiskeldi en veitt sér til matar í lækjum, tjörnum og skurðum. Flækingsendur hafa borist hing- að. Brynjúlfur fann hringönd, sem er amerísk tegund, á Þveit og önnur sömu tegundar hefur verið á Vífils- staðavatni. „Svo fann ég blending af rauðhöfðaönd og ljóshöfðaönd. Ljós- höfðinn er amerískur. Hún er hálfur Íslendingur,“ sagði Brynjúlfur. Landsvölur og bæjarsvölur hafa sést á nokkrum stöðum á landinu. Einnig hafa sést gransöngvarar og grænsöngvari. Svölurnar og söngv- ararnir þykja eðlilegir flækingar á þessum árstíma. Dæmi eru um að fuglar af þessum tegundum hafi dvalið hér sumarlangt. Morgunblaðið/Jóhann Óli Hilmarsson Bjarthegri í sumarbúningi Þrír bjarthegrar voru við Stokkseyri í haust. Líklega hafði einn þeirra hér vetursetu, fyrstur bjarthegra svo vitað sé. Farfuglarnir flykkjast nú heim Landhelgisgæslan óskaði eftir 300 milljóna viðbótarfjárheim- ildum árið 2017 til þess að geta haldið úti rekstri flugvélar- innar TF-SIF á og við Ísland allt árið um kring. Í fjárlögum fékk stofnunin 100 milljónir tíma- bundið sem þingsályktunin gerir ráð fyrir að verði fram- lengt. Til þess að brúa bilið hefur vélin verið leigð Frontex í fjóra mánuði á þessu ári TF-SIF leigð til útlanda TÍMABUNDIÐ FRAMLAG

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.