Morgunblaðið - 03.05.2017, Side 16

Morgunblaðið - 03.05.2017, Side 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2017 Sími 555 2992 og 698 7999 • Við hárlosi • Mýkir liðina • Betri næringar- upptaka Náttúruolía sem hundar elska Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta. Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við mælum með Dog Nikita hundaolíu. Páll Ingi Haraldsson EldurÍs hundar Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda • Fyrirbyggir exem • Betri og sterkari fætur Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Kvaðir um fjölskylduvensl Eitt af þeim fyrirtækjum sem vinn- ur nú að umsókn er sprotafyrirtækið Vizido. Erlendur Steinn Guðnason, meðstofnandi félagsins, og formaður Samtaka sprotafyrirtækja, segir í samtali við Morgunblaðið að tak- markanir í lögunum séu margar bagalegar, og einkum strangar kvað- ir um fjölskylduvensl, starfsmenn og stjórnarsetur. Vizidio framleiðir snjallsímaforrit sem gengur út á að nota ljósmyndir og vídeó sem tekið er á snjallsíma til að hjálpa fólki að búa til minnisatriði. Félagið hóf starfsemi af fullum krafti fyrir rúmu ári og fékk síðan tveggja ára styrk úr Tækniþróunarsjóði. Fé- lagið er enn í þróunarfasa, og er ekki byrjað að fá tekjur. Næsta skref er sókn á alþjóðamarkað, og þá þarf að afla meira fjármagns. Erlendur segir að hingað til hafi þeir fjármagnað þróunina úr eigin vasa til viðbótar við styrkinn úr Tækniþróunarsjóði. Hann segir að það að fá samþykki fyrir endur- greiðslu hjá Ríkisskattstjóra muni greiða götuna fyrir þá fjárfesta sem hafa verið að fylgjast með þeim. Spurður að því úr hvaða átt þeir fjár- festar komi, segir Erlendur að um sé að ræða svokallaða englafjárfesta auk einstaklinga. „Eins og í Vizido eru fyrstu fjárfestar í sprotafyrir- tækjum oftast einstaklingar sem tengjast stofnendum fjölskyldubönd- um og starfsmenn. Eins og þetta frumvarp er í dag þá útilokar það stóran hluta fjárfesta af þessari teg- und.“ Eins og kom fram í Morgunblaðinu á laugardaginn þá áttu forsvarsmenn nýsköpunar- og sprotaiðnaðarins fund með Benedikt Jóhannessyni fjármálaráðherra á dögunum. Er- lendur segir að ráðherrann hafi tekið mjög vel í að taka lögin til endurskoð- unar á haustþingi, sem gefi þeim til- efni til bjartsýni. Fáar umsóknir til RSK Samkeppni Umhverfi sprota þarf að vera samkeppnishæft við nágrannalönd.  Lög um skattafrádrátt vegna fjárfestingar í sprotafyrirtækjum vannýtt vegna ágalla  Bara þrjú fyrirtæki hafa fengið staðfestingu um rétt á frádrætti frá skatti Sprotar » Þurrð er á fjármagni til sprotafyrirtækja. » Ísland þarf að bjóða upp á samkeppnishæft umhverfi. » Englafjárfestar eins og fjöl- skylda og vinir leggja sprota- fyrirtækjum oft lið á fyrstu stigum starfseminnar. BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Mun færri fyrirtæki en ætla mætti hafa sótt um leyfi hjá Ríkisskatt- stjóra til að nýta heimild um útgáfu og sölu hlutabréfa samkvæmt lögum um skattafrádrátt vegna fjárfesting- ar í sprotafyrirtækjum, sem sett voru í fyrra, þrátt fyrir að vöntun sé á fjár- magni til áframhaldandi uppbygg- ingar á nýsköpunarfyrirtækjum. Þetta segir Davíð Lúðvíksson hjá Samtökum iðnaðarins, sem m.a. hef- ur umsjón með Samtökum sprotafyr- irtækja. Félögin sem sótt hafa um eru KoPrA ehf., sem framleiðir fæðu- bótarefni, og leikjafyrirtækin Solid Clouds ehf. og 1939 Games ehf. Davíð segir þetta ekki koma á óvart því samtökin bentu á það í sín- um umsögnum um lagafrumvarpið á síðasta ári að of margar hindranir væru í lögunum sem gera fyrirtækj- unum erfitt fyrir að nýta þau. „Lögin fóru í gegn á síðasta ári með þessum ágöllum sem ekki reyndist unnt að laga í málsmeðferðinni vegna tíma- hraks. Lagfæringar á lögunum eru án útgjalda fyrir ríkið og raun hreinn ávinningur því sýnt hefur verið fram á að ríkið heldur eftir um 25% af hverju hlutafjárútboði þegar skatta- legu hvatarnir hafa verið gerðir upp,“ segir Davíð í samtali við Morgun- blaðið. Samsett hlutfall VÍS var 107,2% á tímabilinu en það var 104,5% á sama fjórðungi í fyrra. Jakob Sigurðsson, forstjóri, seg- ir í tilkynningu til Kauphallar að afkoma ökutækjatrygginga og slysatrygginga sé enn óvið- unandi, þótt miði í rétta átt. „Áætlanir félagsins gera engu að síður ráð fyrir að markmið félagsins um að samsett hlutfall á árinu 2017 verði undir 100% muni nást.“ Eigið tjónahlutfall var 86,4% á fyrsta ársfjórðungi. Í lok mars stóð eiginfjárhlutfall VÍS í 30,8%. Hagnaður VÍS nam 191 milljón króna á fyrsta ársfjórðungi, en hann var 145 milljónir á sama fjórðungi í fyrra. Bætta afkomu má einkum rekja til aukinna tekna af fjárfestingarstarfsemi, en þær námu 677 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi, samanborið við 435 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Eigin iðgjöld jukust um 12,2% á milli ára og námu 4,6 millj- örðum króna á ársfjórðungnum. Eigin tjónakostnaður jókst á sama tíma um 18,7% og nam hann 4,0 milljörðum fyrstu þrjá mánuðina. Lakari afkoma vátrygginga hjá VÍS 3. maí 2017 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 105.79 106.29 106.04 Sterlingspund 136.73 137.39 137.06 Kanadadalur 77.38 77.84 77.61 Dönsk króna 15.519 15.609 15.564 Norsk króna 12.303 12.375 12.339 Sænsk króna 11.972 12.042 12.007 Svissn. franki 106.3 106.9 106.6 Japanskt jen 0.9418 0.9474 0.9446 SDR 144.77 145.63 145.2 Evra 115.43 116.07 115.75 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 144.8796 Hrávöruverð Gull 1255.8 ($/únsa) Ál 1929.5 ($/tonn) LME Hráolía None ($/fatið) Brent ● Sex eru í framboði til fimm manna stjórnar HB Granda á aðalfundi félagsins sem fram fer á föstudaginn. Auk núver- andi stjórnarmanna, þeirra Kristjáns Loftssonar stjórnarformanns, Önnu G. Sverrisdóttur, Halldórs Teitssonar, Hönnu Ásgeirsdóttur og Rannveigar Rist, býður Albert Þór Jónsson við- skiptafræðingur sig fram til stjórnarsetu. Margfeldiskosningu verður beitt við kjör- ið að ósk hluthafa með yfir 10% eign- arhlut. Sex í framboði til stjórnar HB Granda STUTT Hagnaður Fjarskipta, eða Vodafone á Íslandi, nam 201 milljón króna á fyrsta ársfjórðungi og jókst um 2% frá sama fjórðungi í fyrra. Tekjur félagsins námu 3,1 milljarði króna og lækkuðu um 5% frá fyrsta ársfjórð- ungi 2016. Á sama tímabili lækkaði kostnaðarverð seldra vara um 3% og rekstrarkostnaður lækkaði um 10%. Hagnaður fyrir afskriftir og fjár- magnsliði, EBITDA, nam 719 millj- ónum króna og jókst um 8% á milli ára. EBITDA-hlutfall var 22,9% en var 20,3% á fyrsta ársfjórðungi í fyrra. Framlegð dróst lítilega saman á milli tímabila, fór úr 46,8% í 45,7% á nýliðnum ársfjórðungi. Stefán Sigurðsson, forstjóri, segir í afkomutilkynningu til Kauphallar að hagræðingaraðgerðir félagsins hafi haft tilætluð áhrif. „Tekjur far- síma á Íslandi eru farnar að sýna við- snúning og gert er ráð fyrir að sú þróun geti orðið greinilegri í niður- stöðum annars ársfjórðungs.“ Hann segir að búast megi við svör- um Samkeppniseftirlitsins vegna kaupanna á 365 miðlum á seinni hluta ársins. „Áætlanir gera ráð fyr- ir að sameinað félag verði með um 62% hærri tekjur, 54% hærri EBITDA og 85% hærra frjálst fjár- flæði en núverandi rekstur Fjar- skipta.“ Vodafone skilaði 201 milljón króna í hagnað ● Stjórn VÍS hefur ráðið Helga Bjarna- son sem forstjóra félagsins. Helgi hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra viðskipta- bankasviðs Arion banka frá árinu 2011 en áður var hann fram- kvæmdastjóri rekstrarsviðs bankans. Hann hefur gegnt stjórnarformennsku hjá Verði tryggingum og Verði líftrygg- ingum. Áður en Helgi réð sig til Arion banka var hann m.a. aðstoðar- framkvæmdastjóri Sjóvár Almennra auk þess sem hann var framkvæmda- stjóri Sjóvár Almennra líftrygginga. Helgi er fæddur árið 1969 og hann er með mastersgráðu í tryggingastærð- fræði frá Kaupmannahafnarháskóla og BS-gráðu í stærðfræði frá Háskóla Ís- lands. Hann tekur við starfinu af Jakobi Sigurðssyni. Ráðinn forstjóri VÍS Helgi Bjarnason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.