Morgunblaðið - 03.05.2017, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 03.05.2017, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2017 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Kínverjar kröfðust þess í gær að THAAD-eldflaugavarnakerfið, sem Bandaríkjamenn hafa nú gangsett í Suður-Kóreu yrði tekið niður hið snarasta. Segja Kínverjar kerfið ógna stöðugleika á Kóreuskaganum. Bandaríkin og Suður-Kórea sam- þykktu í júlí síðastliðnum að setja kerfið upp, en þá höfðu Norður-- Kóreumenn gert ítrekaðar tilraunir með eldflaugaskot. „Við mótmælum uppsetningu THAAD-kerfisins,“ sagði Geng Shu- ang, talsmaður kínverska utanríkis- ráðuneytisins, og bætti við að Kín- verjar hvettu til þess að henni yrði hætt hið snarasta. Sagði hann einnig að Kínverjar myndu hefja „nauðsyn- legar gagnaðgerðir“ til þess að verja hagsmuni sína, en talið er að mótmæli Kínverja stafi af ótta þeirra við að eldflaugavarnakerfið, sem ætlað er að verjast árás frá Norður-Kóreu, geti einnig haft áhrif á kjarnorkueld- flaugar sínar. Krafa Kínverja kom í kjölfar þess að Bandaríkjaher tilkynnti að fyrsta skrefinu í uppsetningu kerfisins væri lokið og að það væri nú fært um að verja Suður-Kóreu fyrir eldflaugum frá Norður-Kóreu. Enn á hins vegar eftir að bæta við getu þess og er gert ráð fyrir að kerfið, sem sett hefur ver- ið upp á gömlum golfvelli í suðurhluta landsins, verði fullbúið í lok þessa árs. Kínverjar hafa brugðist hart við, og bönnuðu meðal annars leiðsöguferðir frá Suður-Kóreu til Kína. Yrði heiður að hitta Kim Utanríkisráðuneytið fagnaði hins vegar óvæntum ummælum Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, sem sagði að hann myndi vilja hitta Kim Jong- un, einræðisherra Norður-Kóreu, undir réttum kringumstæðum. Sagði Trump að það yrði sér heiður. Sagði Geng að Kínverjar hefðu ávallt verið þeirrar skoðunar að við- ræður væru eina raunhæfa leiðin að því markmiði að fjarlægja kjarnorku- vopn Norður-Kóreumanna. Vilja THAAD úr sögunni  Kínverjar krefjast þess að Bandaríkjamenn taki niður eldflaugavarnir sínar í Suður-Kóreu  Óttast að kerfið geti skotið niður kínverskar kjarnorkueldflaugar AFP Mótmæli Ekki eru allir Suður- Kóreumenn sáttir við THAAD. Mohammad Bagher Ghalibad, frambjóðandi íranskra íhaldsmanna til forseta landsins, sést hér fyrir miðri mynd á meðal stuðningsmanna sinna og fjölmiðlafólks eftir framboðsfund. Kosningarnar fara fram 19. maí og hefur klerkaráð- ið samþykkt sex frambjóðendur. Á meðal þeirra fram- bjóðenda sem ráðið hafnaði var Mahmoud Ahmad- inejad, fyrrverandi forseti. AFP Kosningabaráttan hafin í Íran Angela Merkel Þýskalandskanslari hitti Vladimír Pútín Rússlandsfor- seta í Sochi í Rússlandi í gær, en leið- togarnir ræddu þar málefni Sýr- lands og Úkraínu. Samskiptum Rússlands og Þýskalands hefur farið mjög aftur frá árinu 2015, þegar Úkraínudeilan hófst og Evrópusam- bandið samþykkti refsiaðgerðir gegn Rússum. Að sögn talsmanna Merkel átti fundurinn einkum að snúast um undirbúning G20-fundarins, sem haldinn verður í Hamborg í júlí, en Pútín sagði fyrir fundinn að ekki yrði komist hjá því að ræða hin löku sam- skipti ríkjanna tveggja á síðari árum. Að fundi loknum sagði Pútín að styrkja yrði vopnahléið í Sýrlandi, en friðarviðræður í umboði Rússa eiga að hefjast í dag í Astana, höfuðborg Kasakstans. Merkel sagði hins vegar að hún hefði ýtt á Pútín um stöðu samkynhneigðra í Rússlandi, auk þess sem hún lagði áherslu á að friðarferlið í Úkraínu héldi áfram. Merkel og Pútín hittust í Sochi AFP Leiðtogafundur Merkel og Pútín ræddu heimsmálin í Sochi í gær. Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, varaði í gær við því að Evrópusambandið yrði að opna nýjan kafla í aðildarviðræðum sín- um við Tyrki, eða horfa upp á að þeim yrði slitið. Erdogan tilkynnti þetta einungis örfáum mínútum eftir að hann gekk á ný í flokk sinn, AKP, sem ráðið hefur lögum og lofum í Tyrklandi frá árinu 2001. Erdogan neyddist til þess að segja sig úr flokknum árið 2014 þegar hann var kjörinn forseti, en nýlegar stjórnarskrárbreytingar heimila forseta landsins á ný að vera meðlimur í stjórnmálaflokki. Erdogan bætti við að Tyrkland myndi ekki verða „dyravörður Evrópusambandsins“, en einungis 16 kaflar af 35 hafa verið opnaðir í aðildarviðræðum Tyrkja síðan þær hófust árið 2005. Tyrkir hafa hins vegar sóst eftir inngöngu í Evr- ópusambandið og fyrirrennara þess frá því á sjöunda áratug 20. aldar. Segir Tyrki geta hætt við umsóknina  Erdogan gengur aftur í AKP Ný glæsileg heimasíða acredo.is Hátúni 6a Sími 577 7740 carat.is acredo.is Trúlofunarhringir fh Giftingarhringir fh Demantsskartgripir Einstakur möguleiki á að fá einkafund með talsmanni EBK, Anders Ingemann Jensen, um uppsetningu á EBK sumarhúsum á Íslandi. Á fundinum verður farið yfir byggingarferlið, kost- naðaráætlanir og allt það sem viðkemur því, að fá nýtt EBK sumarhús byggt á íslandi. Föstudaginn 5. maí og laugardaginn 6. maí 2017 – Báða dagana frá kl. 10-17 Fundarstaður og stund: Stepp ehf., Ármúla 32, 108 Reykjavík Nauðsynlegt er að panta fundartíma gegnum netfangið aj@ebk.dk, í síma +45 4020 3238 eða á vefnum ebk-hus.is. Anders talar dönsku og ensku. Komið og upplifið hið stórkostlega SØHOLM Hús V-Gata 16, Miðfelli, Þingvallasveit, 801 Selfoss Frekari upplýsingar um staðsetningu er hægt af nálgast í síma 696-9899 Bókið fund með EBK í Reykjavík, sérsniðin að ykkar óskum OPIÐ HÚS Sunnudaginn 7. maí kl. 13-16 EBK HUSE A/S, Skovsøvej 15, DK-4200 Slagelse Anders Ingemann Jensen, Sími +45 4020 3238, Netfang: aj@ebk.dk 17 23 2 Hefur þú hug á að byggja nýtt sumarhús? WWW.EBK-HUS.IS DÖNSK HÖNNUN OG ARKITEKTÚR mbl.is alltaf - allstaðar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.