Morgunblaðið - 03.05.2017, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 03.05.2017, Qupperneq 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2017 Þeysireið Þessi einbeitti piltur þeysti af stað á rugguhesti í Reiðhöllinni í Víðidal um helgina þegar sýningin Æskan og hesturinn var haldin þar í tilefni af hestadögum, helgi íslenska hestsins. Árni Sæberg Sjálfstæði atvinnu- rekandinn á enn undir högg að sækja. Það hefur ekki tekist að hrinda atlögunni sem staðið hefur yfir linnu- lítið í mörg ár. Fjand- skapur ríkir gagnvart einkaframtakinu og það gert tortryggilegt. Árangur í rekstri er lit- inn hornauga. Á Íslandi starfa þúsundir lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Eigendur hafa sett allt sitt undir en hafa aldrei farið fram á að njóta sérréttinda, að- eins að sanngirni sé gætt og reglu- verk ríkis og sveitarfélaga sé stöð- ugt. Hið opinbera sækir að framtaks- manninum – litla atvinnurekand- anum – með ýmsum hætti. Í sam- keppni við einkaframtakið hafa ríkisfyrirtæki komið sér fyrir á prentmarkaði, tekið að sér vöru- dreifingu, vöruhýsingu og bretta- þjónustu. Ríkið er sælgætissali og umsvifamikill seljandi leikfanga, sel- ur undirfatnað kvenna, heilsuvörur og er stærsti smásali snyrtivara á Íslandi. Umsvif ríkisins á fjölmiðla- markaði koma í veg fyrir framgang frjálsra fjölmiðla, sem standa veik- burða í ósanngjarni samkeppni. Skattheimta og nokkur þúsund milljóna forgjöf tryggir yfir- burðastöðu ríkisins við miðlun upp- lýsinga og frétta. Alið á fjandskap Í Reykjavík er skipulega og með einbeittum hætti sótt að einka- rekstri. Komið er í veg fyrir að einkafyrirtæki geti safnað lífrænum úr- gangi frá heimilum. Grafið er undan þekk- ingarþorpi flugsins á Reykjavíkurflugvelli, þar sem er aðsetur flugskóla, flugklúbba og fleiri fyrirtækja. Kaupmenn í miðborg- inni eiga undir högg að sækja, þar sem borg- arstjórn hefur unnið skipulega að því að draga úr umferð með þrengingum, sumarlokunum og fækkun bílastæða. Engu er líkara en að það sé einörð stefna meirihluta borgarstjórnar að bola rótgrónum verslunum og fyrirtækjum úr mið- borginni. Í þingsal er alið á fjandskap í garð einkarekstrar í heilbrigðiskerfinu. Margir fjölmiðlungar eru duglegir við að sá fræjum tortryggni og óvild- ar í garð þeirra sem hafa haslað sér sjálfstæðan völl í heilbrigðisþjón- ustu. Góð reynsla af einkarekstri skiptir litlu, fjölbreyttari og betri þjónusta er aukaatriði, lægri kostn- aður ríkisins (skattgreiðenda) er léttvægur. Stytting biðlista eftir að- gerðum er ekki aðalatriðið, heldur að komið sé í veg fyrir einkarekstur, jafnvel þótt það leiði til þjóðhags- legrar sóunar og lakari lífsgæða ein- staklinga sem þurfa að bíða mán- uðum saman eftir úrlausn sinna mála. Fjandmenn einkarekstrar vilja miklu fremur senda sjúklinga til annarra landa en tryggja aðgengi almennings að nauðsynlegri þjón- ustu hér á landi. Í stað þess að tryggja öllum landsmönnum góða og trausta heilbrigðisþjónustu er rekstrarformið mikilvægast – trúar- atriði. Hinir „sanntrúuðu“ leiða aldr- ei hugann að mikilvægi einkarekstr- ar s.s. á sviði heilsugæslu, sérfræði- þjónustu, endurhæfingar og hjúkrunarheimila. Óvild í garð einkarekinna skóla er sama marki brennd og afleiðingar eru minni samkeppni og fábreyttari valkostir. Kostnaðinn bera nem- endur, kennarar og samfélagið allt. Aflvaki breytinga Framtaksmaðurinn er og hefur alltaf verið drifkraftur framfara og þar með bættra lífskjara. Hann er aflvaki breytinga – kemur auga á tækifærin, býður nýja vöru og þjón- ustu, skapar störf og eykur lífsgæði samferðamanna sinna. Með nýrri hugsun og nýjum aðferðum ógnar framtaksmaðurinn hinum stóru og knýr hjól samkeppninnar. Við Íslendingar erum svo gæfu- samir að hafa átt fjölda frumkvöðla – athafnamenn sem rutt hafa nýjar brautir og skapað fjölbreyttari tæki- færi. Dugnaðarforkar í sjávarútvegi hafa byggt upp arðbærasta sjávar- útveg í heiminum. Snjallir hugvits- menn hafa þróað tæki og nýjar að- ferðir í matvælaiðnaði, komið með byltingarkennda gervilimi, hannað nýja tegundir báta, haslað sér völl í hugbúnaðar- og tölvuleikjagerð. Af myndarskap hafa bændur náð að samþætta heilbrigði matvæla og aukna framleiðni. Á síðustu árum höfum við orðið vitni að því hvernig frumkvöðlarnir hafa gripið tækifærin og byggt upp lítil fyrirtæki – oft fjölskyldufyrir- tæki – á sviði ferðaþjónustu. Nýjum stoðum hefur verið skotið undir ein- staka byggðir, mannlífið er litríkara og menningarlífið hefur blómgast. Fjölbreytnin er óendanleg; gisting, ævintýraferðir á sjó og landi, þyrlur, fjallaskíði, sjóstöng, jöklar, snjósleð- ar, jeppar, jarðböð, sjóböð, hellar, snjóbílar, hvalir, selir, fuglar, matur, íslensk saga, tónlist og menning. Þannig má lengi telja. Sjálfstæðir atvinnurekendur eru ekki sérlega kröfuharðir gagnvart öðrum en sjálfum sér. Þúsundir karla og kvenna sem stunda sjálf- stæðan atvinnurekstur í landbúnaði, sjávarútvegi, ferðaþjónustu, iðnaði, hugbúnaði, verslun og þjónustu, hafa borið þá von í brjósti að ríkis- valdið, en þó ekki síður stjórn- málamenn, sýni í verki skilning á stöðu þeirra sem reka lítil og meðal- stór fyrirtæki. Vonin er að tími skilningsleysis og andúðar sé að baki og með því verði gildi borgara- legs samfélags aftur hafin til vegs og virðingar og það gert eftir- sóknarvert að stunda sjálfstæðan at- vinnurekstur. Öflugra einkaframtak En jafnvel þótt athafnafólkið um allt land geri ekki miklar kröfur ætl- ast það til þess að borgaraleg ríkis- stjórn undir forystu Sjálfstæðis- flokksins leggi ekki steina í götur þess og kippi ekki stoðum undan rekstrinum. Gjörbreyti ekki reglu- verki, sköttum og gjöldum með litlum fyrirvara. En Sjálfstæðis- flokkurinn ætlar að gera gott betur eins og Bjarni Benediktsson, for- maður flokksins og forsætisráð- herra, undirstrikaði vel í setning- arræðu landsfundar árið 2013: „Við munum skapa íslensku efna- hagslífi og atvinnuvegum hvetjandi, örugg og traust starfsskilyrði og við ætlum að eyða pólitískri óvissu um grunnatvinnuvegina. Þá tekur at- vinnulífið við sér „eins og jurt sem stóð í skugga en hefur aftur litið ljós“. Á grundvelli þessara horn- steina hefst nýtt og kraftmikið fram- faraskeið í þágu heimila landsins þar sem stöðugleiki og vöxtur verða aðalsmerkin. Þetta er leið Sjálf- stæðisflokksins.“ Eyjólfur Konráð Jónsson [Eykon] hafði skýra sýn á atvinnulífið. Í ræðu árið 1977 skilgreindi hann stefnu Sjálfstæðisflokksins í atvinnumálum ágætlega í einni setningu: „Inntakið er meira frjálsræði, minni ríkisafskipti, öflugra einka- framtak, minni ríkisumsvif.“ Eykon benti á að orð hefðu litla þýðingu ef þeim væri ekki fylgt eftir með því að hrinda þeim í fram- kvæmd. Það væri hlutverk þeirra sem valist hefðu til trúnaðarstarfa fyrir Sjálfstæðisflokkinn að tryggja framkvæmdina: „Okkur er kannski ekki hægt að draga til ábyrgðar, þótt okkur mistakist, en það er hægt að gera okkur ábyrg fyrir því að hafa ekki gert það, sem í okkar valdi stendur til að ná árangri.“ Þessi orð Eykons ramma inn hvernig við sjálfstæðismenn eigum að haga störfum okkar í ríkisstjórn á næstu árum. Eftir Óla Björn Kárason »En jafnvel þótt at- hafnafólkið um allt land geri ekki miklar kröfur ætlast það til þess að ríkisstjórn leggi ekki steina í götur þess. Óli Björn Kárason Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Óvild í garð framtaksmannsins

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.