Morgunblaðið - 03.05.2017, Qupperneq 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2017
✝ Anna SalómeIngólfsdóttir
frá Hnífsdal fædd-
ist 11. október
1941. Hún lést á
Landspítalanum
við Hringbraut 9.
apríl 2017.
Foreldrar henn-
ar voru Guðbjörg
Torfadóttir og
Ingólfur Jónsson.
Systkini Önnu
voru Guðrún sem er látin,
Guðmundur Helgi sem er lát-
inn, eftirlifandi eru Torfi og
Elísabet Jóna. Anna giftist
þann 9. mars 1961 Sveini Þor-
steinssyni frá Stykkishólmi,
fæddum 3. mars 1937, en hann
lést 5. september 2002. For-
búsett í Grundarfirði. Börn
þeirra eru Berglind, Anna,
Guðbjörg og Sveinn Pétur og
barnabörnin eru tvö, Rafn og
Bergþór. 3) Ingólfur Freyr,
fæddur 1969, búsettur í Hou-
ston, Texas. Anna vann lengi
við umönnunarstörf bæði með-
al eldri borgara og ungra
barna. Hún starfaði mestan
hluta starfsævi sinnar á leik-
skólum. Hún var leik-
skólastjóri á Leikskólanum
Sólvöllum í Vogum og starfaði
síðan á leikskólum á höf-
uðborgarsvæðinu, síðast á
Holtaborg. Þar starfaði hún til
sjötugs og síðustu árin sem
matráður. Anna lauk námi frá
Menntaskólanum í Kópavogi
2009 sem matartæknir. Anna
var virkur félagi í Kvenfélag-
inu Fjólu í Vogum allt frá því
hún flutti í Vogana og sinnti
þar ýmsum ábyrgðarstörfum.
Útför Önnu verður gerð frá
Digraneskirkju í dag, 3.maí
2017, og hefst athöfnin kl. 13.
eldrar hans voru
Veronika Konráðs-
dóttir og Þor-
steinn G. Þor-
steinsson. Anna og
Sveinn bjuggu í
Reykjavík en 1974
byggðu þau sér
hús í Vogum á
Vatnsleysuströnd
þar sem þau
bjuggu frá 1974 til
2003. Börn Önnu
og Sveins eru: 1) Guðbjörg
Málfríður, fædd 1960, gift
Oddgeiri Karlssyni, búsett í
Njarðvík. Börn þeirra eru
Kári og Fjóla og barnabörnin
eru tvö, Leó og Írena. 2) Þor-
steinn Bergþór, fæddur 1963,
giftur Kristínu Pétursdóttur,
Elskulega yndislega móðir
mín Anna Salóme er látin aðeins
75 ára gömul. Hún barðist hetju-
lega við sjúkdóm sem hún
greindist með fyrir rúmu ári.
Það er ótrúlegt að hugsa til þess
að þessi kraftmikla og káta kona
sé farin frá okkur. Manneskjan
sem var ein sú mikilvægasta í
mínu lífi er dáin og ég var svo
sannarlega ekki tilbúin að missa
hana svona fljótt. Við áttum eftir
að gera svo margt saman. Hún
átti eftir að ferðast meira með
mér en við vorum búnar að
ákveða tvær utanlandferðir þeg-
ar hún veiktist. Mamma var
hetjan mín, dugnaðarforkur
hinn mesti sem lét aldrei deigan
síga. Hún var fyrirmynd mín í
svo mörgu í lífinu og alltaf var
gott að leita til hennar, ræða
málin og fá annað sjónarhorn.
Mamma var sjálfstæð kona og
það var reglulega gaman að upp-
lifa tímann með henni þegar hún
fór í Menntaskólann í Kópavogi
en þar lærði hún matartækni.
Hún blómstraði í náminu og
kynntist svo mörgum góðum
konum en þær héldu félagsskap-
inn eftir að náminu lauk.
Mamma keypti sér tölvu, lærði á
ritvinnslu og Excel, fór á sam-
skiptamiðla og fyrir henni opn-
uðust algjörlega nýjar dyr.
Mamma vildi alltaf vita hvað
börn og barnabörn væru að
sýsla, hvatti okkur til náms og
var mjög metnaðarfull fyrir okk-
ar hönd. Hún naut þess að fá
fjölskylduna í heimsókn, spjalla
við börn og barnabörn, gefa okk-
ur að borða og ræða heimsmálin.
Mamma hafði alla tíð áhuga á
stjórnmálum og hafði sterkar
skoðanir um flest mál. Ekkert
var henni óviðkomandi og við
hlógum oft að því og gerðum
grín að því að hún þyrfti ekki
alltaf að hafa skoðun á öllu. En
þannig var mamma, ákveðin en
þó ætíð ljúf og hugulsöm.
Mamma var sú sem hjálpaði mér
með handavinnuna mína, kenndi
mér að sauma og prjóna og að-
stoðaði þegar ég gafst upp á ein-
hverju verki. Mamma naut þess
að vera meðal fólks og vera þátt-
takandi, hitta kvenfélagskon-
urnar, bingóvinkonurnar, skóla-
systur, ættingja og vini. Það
reyndi svo sannarlega á enda-
lausa þolinmæði mömmu þegar
hún þurfti að takast á við veik-
indi sín. Sem betur fer átti hún
góða fjölskyldu og vini sem
studdu hana. Einnig fékk hún
góða umönnun á kvennadeild
Landspítalans við Hringbraut
og vilja aðstandendur þakka
starfsfólki kvennadeildar Land-
spítalans við Hringbraut fyrir
góða umönnun.
Hún, sem alltaf var svo hvetj-
andi og umhugað að öllum liði
vel, varð að játa sig sigraða og
kvaddi þennan heim 9. apríl og
hélt upp í ferðalag til að hitta
ástina sína, hann pabba sem hún
saknaði alla tíð.
Þín dóttir,
Guðbjörg.
Í dag kveð ég tengdamóður
mína hana Önnu Salóme eftir
hetjulega baráttu við veikindi í
nokkurn tíma. Ég kynntist þeim
heiðurshjónum Önnu og Svenna
fyrir 40 árum þegar ég fór að
venja komur mínar í Hofgerði 2,
Vogum, til að hitta frumburð
þeirra hana Guggu. Ég efast um
að þeim hafi litist á piltinn sem
hafði augastað á dótturinni en við
kynntumst betur eftir því sem
árin liðu og urðum hinir mestu
mátar. Anna hafði skoðanir á
flestu ef ekki öllu og lét þær
óspart í ljós. Anna og Svenni
höfðu gaman af að ferðast um
landið þar sem þau þekktu fólk í
öllum landshlutum eftir að
Svenni hafði unnið við bryggju-
smíðar hjá Vita- og hafnamála-
stofnun. Þau byggðu sér sum-
arbústað í Biskupstungunum þar
sem þau notuðu hvert tækifæri
til að vera. Þangað var gaman að
heimsækja þau og nutu barna-
börnin þeirra sín alveg sérstak-
lega í sveitinni hjá þeim. Fyrsta
utanlandsferð þeirra hjóna var til
Flórída til að heimsækja okkur
fjölskylduna árið 1992. Eftir
þetta fór Svenni aðeins í eina
aðra utanlandsferð en Anna átti
eftir að fara í þær margar. Hún
hafði alveg sérstaklega gaman af
að ferðast með Kvenfélaginu
Fjólu og ófáar voru ferðirnar
sem Gugga fór með hana ýmist
til Bandaríkjanna að hitta Ingólf
eða til Stokkhólms að hitta Fjólu.
Anna hafði mikið dálæti af að
spila Bingó og reyndar margs-
konar spil. Okkur fannst með
ólíkindum hvað hún var heppin í
bingó og ég hafði stundum orð á
því við hana hvort hinir bingó-
spilararnir væru ekki svekktir út
í hana.
Aldrei lét hún sig muna um að
keyra ýmist til Grundarfjarðar til
Steina og fjölskyldu eða til okkar
í Njarðvíkurnar í hvaða veðri
sem var. Það á eftir að vera mikill
missir að þessari kjarnakonu.
Anna mín, um leið og ég kveð þig
þá bið ég þig að skila kveðju til
Svenna þegar þú hittir hann.
Oddgeir.
Elsku Anna amma mín.
Það eru svo ótalmargar minn-
ingar sem koma upp í hugann
þegar ég hugsa til þín. Stór hluti
af þeim átti sér stað í Vogunum
hjá ykkur afa. Dönsku Andrésar
Andar-blöðin, gamli síminn á
náttborðinu, varalitirnir og
skartgripirnir sem ég prófaði
reglulega fyrir framan spegilinn,
Barney á spólu, kandísmolarnir
og síðast en ekki síst randalín-
urnar þínar sem voru þær allra
bestu.
Við áttum nú líka margar góð-
ar stundir í Hlíðarhjallanum og
fannst mér dásamlegt að koma
með Rafn í heimsókn þar sem við
gátum spjallað um allt milli him-
ins og jarðar á meðan Rafn lék
sér með dótið úr kistunni. En þú
gafst þér þó alltaf tíma til að fífl-
ast aðeins í Rafni og náðir alltaf
að töfra burt feimnina hans. Þú
varst algjör snillingur í fíflalát-
um.
Þú lést einstaka sinnum í ljós
áhyggjur þínar yfir karlmanns-
leysi mínu, en þetta voru nú eng-
ar stórar áhyggjur. En ég gleymi
ekki viðbrögðum þínum þegar ég
tilkynnti þér að ég væri komin
með kærasta. Það var í fyrra-
sumar. Þú varst búin að vera
mjög slöpp eftir lyfjameðferð en
þegar ég sagði þér að það væri
kominn nýr maður í líf mitt
stökkstu bókstaflega upp úr sæt-
inu, klappaðir saman höndunum,
hrópaðir af gleði og faðmaðir mig
svo innilega. Þú varst alltaf mjög
dugleg að sýna mér stuðning og
áttir svo auðvelt með að gleðjast
með mér, líka yfir litlu hlutunum.
Fyrir það er ég svo ævinlega
þakklát.
Þú barðist hetjulega í langan
tíma en núna hefur þú fengið
þína hvíld og getur loksins hitt
Svenna þinn aftur. Takk amma
mín, fyrir allar minningarnar
sem við höfum náð að skapa sam-
an. Hvíldu í friði.
Leiddu svo ömmu góði guð
í gleðinnar sælu lífsfögnuð,
við minningu munum geyma.
Sofðu svo amma sætt og rótt,
við segjum af hjarta góða nótt.
Það harma þig allir heima.
(Halldór Jónsson frá Gili)
Berglind Þorsteinsdóttir.
Elsku fallega amma mín.
Mínar fyrstu minningar um
ömmu eru þær í sumarbústaðn-
um hjá ömmu og afa, þar eyddum
við miklum tíma saman hvort
sem það var við fjölskyldan eða
bara barnabörnin og amma og
afi.
Amma mín var alltaf til staðar
fyrir mig, hún tók mig inn til sín
þegar ég vildi flytja í bæinn og
byrja í skóla og sá til þess að ég
varð aldrei svöng og passaði allt-
af upp á barnabarnið sitt. Hún
var eins og besta vinkona mín.
Passaði upp á að ég klæddi mig
nógu vel, að mér liði vel, lét mig
alltaf fá smá aur þegar systkinin
mín sáu ekki til, hjálpaði mér við
flytja í mína fyrstu íbúð, kom
með mat til mín, jafnvel þótt
amma væri ekki sátt við litinn á
nöglunum mínum, fötunum mín-
um eða hvernig ég málaði mig en
svona þekki ég hana og mun
ávallt muna eftir okkar góðu tím-
um.
Ég man eftir kvöldinu sem
mamma hringdi í mig og sagði
mér aðamma hefði greinst með
krabbamein og ég man bara hvað
allt stoppaði.
Ferlið byrjaði með þér og það
brotnaði í mér hjartað að sjá
ömmu mína veika og að geta ekk
gert neitt fyrir hana nema vera
til staðar þegar hún þurfti og það
var það besta sem ég gat gefið
henni.
Ég vildi óska þess ég hefði get-
að tekið sársaukann í burtu fyrir
hana og fengið meiri tíma með
ömmu en ég naut hvers einasta
augnabliks með henni í hvert
skipti sem ég heimsótti hana.
Amma var og er
uppáhaldsmanneskjan mín og ég
sakna hennar meira en allt, hún á
svo stóran sess í mínu hjarta.
Þitt barnabarn,
Guðbjörg.
Í dag kveðjum við elsku ömmu
okkar. Á svona stundu flæða um
okkur minningar og kærleikur.
Amma var góðhjörtuð, ákveðin
og þrjósk sem naut, eitthvað sem
við fengum greinilega frá henni.
Við eigum alltaf eftir að minnast
skemmtilegra stunda í sumarbú-
staðnum þar sem amma kenndi
okkur að spila og afi kenndi okk-
ur að smíða. Ofarlega í huga eru
einnig fallegar jólahefðir sem við
hlökkuðum alltaf til og eru enn
hefðir í okkar fjölskyldu. Við
munum sakna elsku ömmu inni-
lega og vitum að hún er núna
örugg í faðmi afa.
Kári og Fjóla.
Elskuleg mágkona mín og vin-
kona er fallin frá eftir erfið veik-
indi.
Ég kynntist Önnu fyrst árið
1954 þegar ég kom á heimili for-
eldra hennar, Ingólfs Jónssonar
og Guðbjargar Torfadóttur, að
Stekkjargötu 40 í Hnífsdal. Ég
kom þá í heimsókn með bróður
hennar, Guðmundi Helga, sem
síðar varð eiginmaður minn.
Anna var þá 13 ára, falleg stúlka,
dugnaðarforkur og í miklu uppá-
haldi hjá sínum eldri bróður. Við
náðum strax vel saman og vinátta
okkar hélst alla ævi. Ung kynnt-
ist hún Sveini Þorsteinssyni, gift-
ist og flutti að heiman. Vináttan
hélst áfram þó að langt væri á
milli og ekki alltaf verið að
ferðast á milli landshluta eins og
nú er gert. Þau Sveinn bjuggu
um tíma á Bíldudal og þangað
heimsóttum við þau einu sinni.
Þau fluttu svo til Reykjavíkur og
þá var komið við á Fálkagötunni
þegar leið okkar lá til Reykjavík-
ur. Þau byggðu sér síðar hús í
Vogum á Vatnsleysuströnd og
bjuggu þar í mörg ár. Þar kunni
Anna vel við sig og tók þátt í
ýmsum félagsstörfum af lífi og
sál. Var t.d. afar virk í kvenfélag-
inu þar.
Sveinn var trésmiður og vann
oft á ýmsum stöðum á landinu við
hafnargerð og Anna fór þá stund-
um með honum, eða hún kom í
heimsókn með börnin í Hnífsdal
til foreldra sinna og okkar. Anna
var vel verki farin og öll heim-
ilisstörf léku í höndum hennar.
Hún var heimavinnandi fyrstu
árin í hjónabandinu og meðan
börnin voru lítil. Í Vogunum fór
hún að vinna við leikskóla og stóð
sig svo vel að hún gegndi þar
starfi leikskólastjóra í mörg ár.
Síðari árin fór hún að vinna við
leikskóla í Reykjavík, og fór í
nám á fullorðinsárum til að afla
sér réttinda sem matráður. Því
starfi gegndi hún svo til 70 ára að
hún varð að hætta vegna aldurs.
Hún var þó engan veginn sátt við
það, hún kunni vel við vinnuna og
hafði alltaf haft mikið fyrir stafni
um ævina, aldrei setið auðum
höndum.
Anna og Svenni komu yfirleitt
á hverju sumri til okkar Guð-
mundar eftir að við fluttum í
Reykhólasveitina og þá var glatt
á hjalla. Hún hélt því svo áfram
eftir að við báðar höfðum misst
eiginmenn okkar með stuttu
millibili. Anna fékk vissulega að
reyna mikil veikindi af ýmsu tagi
um dagana, en hún stóð alltaf
upp aftur og hélt lífinu ótrauð
áfram. Þau veikindi sem nú höfðu
yfirhöndina voru ekki að koma í
fyrsta sinn. Fyrir um það bil ári
síðan veiktist hún enn af krabba-
meini. Í nóvember síðastliðinn
lagðist hún inn á Landsspítalann
og ýmis lyf voru reynd til að
lækna meinið. En þegar hún
gerði sér ljóst að engin lækning
væri fyrirsjáanleg, vildi hún ekki
lengur taka krabbameinslyfin.
Hún kvaðst bara taka því sem að
höndum bæri. Þetta sagði hún af
slíku æðruleysi að það var aðdá-
anlegt.
Ég mun sakna skemmtilegu
stundanna okkar saman og allra
símtalanna sem nú verða ekki
fleiri. Ég og börnin mín þakka
henni fyrir vináttuna og sam-
veruna alla tíð. Börnum hennar,
tengdabörnum og barnabörnum
votta ég innilega samúð. Guð
blessi Önnu Salóme Ingólfsdótt-
ur.
Jóna Valgerður
Kristjánsdóttir.
Anna Salóme
Ingólfsdóttir
Ástkær dóttir mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
ELÍSABET JÓHANNSDÓTTIR,
Hólabraut 1, Hrísey,
lést fimmtudaginn 27. apríl á hjúkrunar-
heimilinu Hornbrekku í Ólafsfirði.
Helga Jónsdóttir
Óskar Þorbjörnsson Yudith Thorbjörnsson
Jónína Þorbjarnardóttir Ingimar Ragnarsson
Helga Þorbjarnardóttir Þórir Þórisson
Ingvar Þorbjörnsson
Guðrún Þorbjarnardóttir Pétur Steinþórsson
barnabörn og barnabarnabörn
Útför mannsins míns, föður, tengdaföður
og afa,
STEINGRÍMS PÁLSSONAR,
Ásvallagötu 5,
fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn
9. maí klukkan 15.
Ingibjörg Pála Jónsdóttir
Hildur Steingrímsdóttir
Einar Steingrímsson
Þóra Steingrímsdóttir Haukur Hjaltason
og barnabörn
Okkar ástkæri sonur, bróðir, mágur,
fósturfaðir og afi,
ÁRNI GÍSLASON,
varð bráðkvaddur laugardaginn 29. apríl.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Gísli Guðmundsson Margrét Árnadóttir
Guðmundur Kr. Gíslason Svanhildur Steingrímsdóttir
Soffía M. Gísladóttir Ragnar Magnússon
Andri Örn, Aníta Björg og Amalía Tía
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
KJARTAN SIGURGEIRSSON
frá Fáskrúðsfirði,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans
föstudaginn 28. apríl.
Útförin fer fram frá Fáskrúðsfjarðarkirkju laugardaginn 6. maí
klukkan 14.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Björgunarsveitina Geisla.
Stefanía Borghildur Ólafsdóttir
Lilja Kjartansdóttir Þrúðmar Karlsson
Arnbjörg Ólöf Kjartansdóttir
Sigurlín Hrund
Kjartansdóttir
Frosti Sigurgestsson
Karen Ýr Kjartansdóttir
og barnabörn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
EINAR GRÉTAR ÞÓRÐARSON
raffræðingur
Miðbraut 13
Seltjarnarnesi
lést 30. apríl.
Útför hans fer fram frá Seltjarnarneskirkju föstudaginn 5. maí
klukkan 17.00.
Thelma Grímsdóttir
Jóhanna T. Einarsdóttir Gunnar Þór Bjarnason
Grímur Einarsson Heidrun Hoff
Bjarni Þór Gunnarsson Marie Guilleray
Einar Gunnarsson
Jóhann Helgi Gunnarsson
Gréta Grímsdóttir Hoff
Freyja Grímsdóttir Hoff
Evan Bjarnason Guilleray