Morgunblaðið - 03.05.2017, Síða 23

Morgunblaðið - 03.05.2017, Síða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2017 Matti var vel ritfær og undir hans ritstjórn blómgaðist búnað- arblaðið Freyr, og hann bar hag landsbyggðarinnar fyrir brjósti. Ávallt skipaði þó Meðallandið sérstakan sess í huga hans, en þaðan átti hann margar góðar bernskuminningar. Hann var mikill vísna- og sögumaður og hafði gaman af lífinu í landinu í sinni fjölbreytilegustu mynd. Að leiðarlokum þökkum við hjónin Matthíasi Eggertssyni góða og skemmtilega samleið í lífinu og vottum Margréti og börnum þeirra okkar innilegustu samúð. Hólmgeir Björnsson. Þegar ég kom til starfa hjá Bændasamtökum Íslands fyrir um 10 árum, þá var þar fyrir meðal annarra, Matthías Egg- ertsson, sem lengi hafði verið rit- stjóri búnaðarblaðsins Freys en einnig kennari við Bændaskól- ann á Hólum, sem þá hét og þar áður tilraunastjóri á Skriðu- klaustri í Fljótsdal. Reyndar höfðum við hist áður og þá í hóp- astarfi Sálarrannsóknarfélags Íslands nokkrum árum áður. Fyrsta vinnustöðin mín á 3. hæð Bændahallarinnar var næst við skrifstofu Matthíasar. Strax við fyrstu kynni komu í ljós sameig- inleg áhugamál, þannig að nóg var til að ræða þegar við gáfum okkur tíma til slíks. Einnig höfð- um við báðir verið búsettir aust- anlands hluta af starfsævinni og „urðum ekki samir“, eins og Matthías orðaði það, enda kynn- ist enginn því landsvæði án þess að verða fyrir áhrifum. Sam- skipti okkar þróuðust á þann veg að vart er hægt að kalla þau ein- beran kunningsskap því við ræddum bæði líf og dauða, sorg- ir og gleði. Matthías var samviskusamur í starfi og mun á stundum hafa gengið nærri heilsu sinni því hann sást vart fyrir þegar mikið var fram undan. Eitt af því sein- asta sem hann sinnti fyrir Bændasamtökin var prófarka- lestur og þýðingar fyrir Bænda- blaðið. Í tengslum við þau verk átti hann oft leið hingað og leit þá gjarna við hjá mér og áfram ræddum við lífið og tilveruna. Eftir að Matthías hætti að leggja leið sína á þriðju hæðina heim- sótti ég hann og Margréti af og til og aldrei varð þurrð á um- ræðuefnum og góðum viðtökum, margvíslegar sögur héðan og þaðan af landinu skutu upp koll- inum, einnig lífspekilegar vanga- veltur og tilvistarspurningar, kersknikveðskapur og hálfkær- ingur, því Matthías hafði gaman af vel gerðum kveðskap og taldi ekki verra að bragð væri að. Einnig flaut með margt úr upp- vexti hans, þó líklega mest frá þeim tíma sem hann dvaldi sem barn og unglingur hjá ættingjum á Strönd í Meðallandi, þar sem enn var allt að því nauðsynlegt þeim sem vildi komast heiman og heim að kunna að lesa í straum- vatn til að forðast sandbleytur. Ýmsu fleiru sem tilheyrði horfn- um tíma greindi hann frá á lif- andi hátt þótt ekki sé rými til að rekja slíkt í stuttri grein sem þessari. Við umskipti þau sem vart verða umflúin þakka ég Matthíasi ágæt samskipti og heil ráð í dagsins önn og óska honum góðrar ferðar. Ég votta aðstandendum mína innilegustu samúð og þakka Margréti sérstaklega fyrir við- tökurnar í þau skipti sem ég birtist á Hagamelnum. Sigurður Kristjánsson. Tæpast verður um það deilt að árin 1975-1995 eru einn mesti átaka og breytingatími í sögu ís- lensks landbúnaðar. Um miðjan 8. áratuginn var orðið ljóst að ekki var markaður fyrir þá miklu framleiðsluaukningu sem orðið hafði áratuginn á undan. Nauð- synlegt var að aðlaga framleiðsl- una innlendri markaðsþörf, m.a. með afnámi útflutningsbóta á landbúnaðarafurðir og fleiri sársaukafullum aðgerðum. Eitt var að setja lög og reglugerðir um takmörkun framleiðslunnar, annað var að fá bjartsýna og framfarasinnaða íslenska bænd- ur til þess að sætta sig við slíkar aðgerðir. Það var í þessu and- rúmslofti sem Matthías Eggerts- son kom til starfa hjá Búnaðar- félagi Íslands árið 1980 sem ritstjóri Búnaðarblaðsins Freys. Matthías var búfræðikandídat frá Landbúnaðarháskólanum á Ási í Noregi. Hann starfaði um árabil sem tilraunastjóri við til- raunastöðina á Skriðuklaustri og var síðar kennari við Bændaskól- ann á Hólum. Stéttarsamband bænda átti og rak Frey að einum þriðja á móti Búnaðarfélagi Ís- lands þannig að Matthías var í raun starfsmaður Stéttarsam- bandsins að hluta. Fljótlega eftir að við kynntumst fór ég að leita til hans um aðstoð við undirbún- ing funda, greinaskrif og annað slíkt. Matthías var íslenskumað- ur góður, víðlesinn, vel heima í íslenskum bókmenntum að fornu og nýju og hafsjór af fróðleik um menn og málefni. Þá fylgdist hann vel með þróun landbúnaðar erlendis, ekki síst á Norðurlönd- unum. Með efnisvali sínu í Frey, viðtölum og greinaskrifum voru áhrif Matthíasar á þróun mála á þessu tímabili meiri en flestir átta sig á. Skipulega var farið að fjalla um markaðs- og sölumál, umhverfi, náttúru, hollustu og hreinleika og alþjóðlega þróun í landbúnaði. Leiðaraskrif Matt- híasar eru kapítuli fyrir sig, en í þeim var í fyrsta sinn hér á landi fjallað um siðfræðileg og heim- spekileg málefni tengd landbún- aði og lífsháttum nútímafólks. Fyrir mig var ómetanlegt að geta leitað ráða hjá slíkum manni í þeim viðkvæmu málum sem oft var við að fást hjá Stétt- arsambandinu. Þessi samskipti þróuðust þannig að þegar á leið hittumst við flesta morgna og fórum yfir málin, ekki síst eftir Þjóðarsáttina 1990 þegar við- fangsefnin urðu flóknari og við- kvæmari en nokkru sinni fyrr og í aðdraganda sameiningar Bún- aðarfélagsins og Stéttarsam- bandsins árið 1996. Eftir að ég fór til starfa í landbúnaðarráðu- neytinu héldu þessi tengsl áfram og við ræddum saman í síma, stundum oft í viku og ég gat þannig áfram leitað ráða hjá honum. Andleg málefni og lífsspeki voru Matthíasi mjög hugleikin og gott til hans að leita ef ræða þurfti hinar margvíslegu hliðar lífsins. Margréti og börnum þeirra votta ég mína innilegustu samúð. Hákon Sigurgrímsson. Kynni okkar hófust á Skriðu- klaustri. Ég hafði verið þar vetr- arlangt, mest í gegningum bæði við kýr og kindur. Ráðningar- tíma mínum var rétt að ljúka. Sú breyting var fram undan að fólkið sem ráðið hafði ríkjum og farið með húsbóndavald á til- raunabúinu frá upphafi þess, eða hátt á annan áratug, var nú að láta af störfum. Von hafði verið á nýja bústjór- anum. Þennan morgun þegar ég gekk til starfa bjóst ég reyndar við að hann væri kominn. Ég var að gefa morgungjöfina á Grundum, staddur í miðri löngu jötunni með hneppið í fanginu þegar ég heyri skarkala og sé þess merkin að verið er að ryðjast inn um vitlausar dyr, sem var að vonum, hann hafði komið að hinum dyrunum lok- uðum að innanverðu. Þarna var kominn nýi bústjór- inn, var að ganga á röðina og skoða vinnumennina og störf þeirra. Sem fyrr segir átti ég vetur- inn að baki á staðnum, hæst- ánægður með kynnin af fólkinu, störfunum og umhverfinu. Nú bauðst mér strax fram- haldsvist. Ég var í vanda, hafði ekki gert ráð fyrir að vera að heiman meira en vetrarlangt, fannst ég vera að svíkjast um og bregðast væntingum ef ég breytti þá. Niðurstaðan varð framlengingar á vistinni, ein og ein og entust fram undir haustið. Margt var að gerast. Nýtt fólk að störfum. Húsbændur og við- bót við hjú. Allt gaman. Húsbóndinn, ögn rauðbirkinn, fríður, tekið að þynnast hár, ör- lítið lotinn í herðum þá strax. Húsmóðirin Margrét, látlaus, fríð og alúðleg. Maður var heima hjá sér. Hann var heimakunn- ugur á Klaustri fyrr en þetta. Kom nú úr framhaldsnáminu er- lendis. Ég var því vanur úr búskap að gert var og haft það sem þurfti. Nú komu upp ný sjónarmið, þ.e. hvað borgar sig? Nýi bústjórinn seldi kýrnar grannanum og keypti af honum neyslumjólkina. Sendi vinnumann yfir á Jökuldal þegar smalað var þar til rúnings og reiknaði eftir ullarmagni og verði eftir á hvort ferðin hefði borgað sig. Búskaparhagfræðin eitthvað að þróa sig. Ég lenti í málningarstörfum meirihluta sumars. Það þarf líka að punta. Margt var spjallað. Líkast til hefi ég aldrei átt mér mátulegri spjallfélaga. Það var sungið á kvöldin og stundum farið á aðra bæi til þess. Íslenskt talmál og íslenskar vísur reyndust okkur báðum hugðarefni. Í mörg ár skrifuð- umst við á eftir þessar samvistir og nefnt efni var víst oft á dag- skránni. Hann var þekktur að því hve margan og víða átti hann pennavininn og þá var ekkert internet. Ekki var því með ólíkindum að hann varð ritstjóri Freys og gegndi því starfi í áratugi. Frá Klaustri fór hann að Hólum en víða kom hann við í félagsmál- unum. Meðan Stéttarsamband bænda starfaði var hann sem málfarsráðunautur á aðalfundum þess. Engin tillaga var þar stað- fest án þess að Matthías hefði lagt blessun sína yfir. Í lok þessara notalegu minn- inga sem hefðu mátt vera fleiri og fyllri: Margrét mín, kæra vin- kona. Mörg var mér ánægju- stundin á heimili ykkar. Guð blessi þig, afkomendur og fram- tíð þeirra í minningu hans. Jóhannes Geir Gíslason. Þegar við Matthías hittumst í fyrsta skipti, veturinn 1972-73, þá báðir bændaskólakennarar, hann á Hólum og ég á Hvann- eyri, þurfti hann ekki að spyrja mig þeirrar spurningar „hvaðan ert þú“ sem honum var oftast töm við fyrstu kynni. Hann þekkti föður minn frá mennta- skólaárum sínum við sumarvinnu á Pósthúsinu í Reykjavík. Þar vann ég líka síðar og deildum við skemmtilegum minningum um menn og málefni þaðan. Hún- vetnskur uppruni minn var hon- um vel kunnur, enda ættfróður og minnisgóður, vék strax að skemmtilegum kynnum sínum af Vatnsdælingum fyrr og síðar. Þá sagði ég Matthíasi frá góðri endurminningu sem tengd- ist vinnumennsku hans hjá Run- ólfi Björnssyni á Kornsá sumarið 1958. Eftir rúning snemma í júlí var ég, 14 ára, ásamt þremur öðrum, að reka féð frá Hnausum í Þingi fram á Grímstunguheiði. Það var komið kvöld, féð latrækt í blíðunni og á brattann að sækja upp Tunguna. Við vorum komnir töluvert fram fyrir Grímstungu og vel sást vestur yfir Álku. Þá sást allt í einu rauður Farmal- traktor með tveggja hjóla vagn keyra hægt og rólega niður veg- arslóðann vestan árinnar, í átt að Haukagili. Ég giskaði á að þarna væri Runólfur á Kornsá á ferð, á heimleið úr rúningsrétt frammi í Gilhaga, og sæti á ullarpokum á vagninum. Þessu samsinntu fé- lagar mínir en við könnuðumst ekki við ökumanninn, sem virtist stór miðað við stærð Farmalsins. Þá rifjaðist upp að amma hafði nefnt fyrr um sumarið að Run- ólfur væri búinn að fá vinnu- mann að sunnan. „Jú, þetta var ég,“ sagði Matthías. Margs er að minnast eftir ára- tuga kynni, fyrst frá bænda- skólaárunum þegar við hittumst oft, svo sem á fundum í Búnaðar- og garðyrkjukennarafélagi Ís- lands, við samningu kennslubóka eða bara heima í stofum hver hjá öðrum á Hólum eða á Hvanneyri. Mér er sérstaklega minnisstæð gestrisni Matthíasar og Mar- grétar á Hólum, þar leið kvöldið fljótt. Mikið var hlegið, enda átti Matthías auðvelt með að kynnast fólki og blanda geði við það. Svo komu áratugirnir í Bændahöllinni þar sem hin góðu samskipti héldu áfram, alltaf gef- andi. Það var ánægjulegt að koma með efni til ritstjórans sem var fróðleiksfús, fundvís á gott efni, og laginn við að koma ábendingum og leiðréttingum á framfæri. Á Kaffistofunni var margt skrafað bæði í gamni og alvöru og þar fór Matthías fram- arlega í flokki. Matthías sýndi m.a. mikla framsýni í ýmsum umhverfismál- um. Þar fylgdist hann betur en margir aðrir með straumum og stefnum í landbúnaði. Um þau mál birti hann mikið af þýddu og endursögðu efni í Frey og Bændablaðinu, einkum frá Noregi, svo sem um ofnotkun eiturefna við jarðrækt og lyfja við búfjárframleiðslu og van- kanta nýtingar erfðabreyttra líf- vera í landbúnaði. Þá var hann sannur og eindreginn stuðnings- maður lífrænnar ræktunar og verð ég Matthíasi ætíð þakklátur fyrir þann ágæta stuðning sem hann veitti mér í viðleitni minni til að efla lífræna búskaparhætti. Blessuð sé minning Matthías- ar Eggertssonar. Margréti og fjölskyldu þeirra vottum ég og Svanfríður kona mín innilega samúð. Ólafur R. Dýrmundsson. Hann Matthías Eggertsson hefur kvatt þennan heim. Lengi áttum við samleið með honum, meðal annars við jarðræktar- rannsóknir, en hann stóð fyrir þeim sem tilraunastjóri á Skriðu- klaustri í Fljótsdal um skeið og síðan við fjölbreytt starf hans við Bændaskólann á Hólum í Hjalta- dal. Samskipti á milli búnaðar- skólanna voru á þeim árum mikil og gefandi – og ætíð tilhlökk- unarefni. Samstarfsvettvangur- inn var oftast Búnaðar- og garð- yrkjukennarafélag Íslands, líflegt og skemmtilegt félag sem nú er horfið úr heimi. Í því félagi tók Matthías þátt af lífi og sál. Við minnumst samstarfs við gerð kennslubóka, m.a. ritunar áburðarfræði fyrir bændaskóla er út kom árið 1978, og annars kennsluefnis. Um árabil kom Matthías að Hvanneyri til þess að kenna þá grein sem nemendur kölluðu „oddvitafræði“; námskeið um störf og stjórnsýslu minni sveit- arfélaga, en þar naut hann vel fyrri reynslu sinnar sem oddviti austur í Fljótsdal og síðar hreppsnefndarmaður í Hjaltadal. Matthías var afar vel mennt- aður búvísindamaður; hafði num- ið við norska landbúnaðarháskól- ann (NLH) þar sem hann átti mótandi og góða daga. Menntun hans var hins vegar ekki aðeins á því markaða fagsviði heldur náði hún undra víða. Fáir höfðu til dæmis meira vald og betri þekkingu á íslensku máli en Matthías. Nutum við báðir þakkarverðrar leiðsagnar hans og ráðgjafar í þeim efnum við mörg tækifæri. Matthías gerði sér far um að fylgjast með samfélagsumræðu og beitti sér iðulega í henni, ekki síst sem traustur og afar farsæll ritstjóri Búnaðarblaðsins Freys um árabil. Í það starf, eins og önnur sem honum voru falin, lagði hann sig allan. Hann upp- lifði miklar breytingar í atvinnu- og mannlífi sveitanna. Þær voru honum ekki allar að skapi. Rit- stjórnargreinar Matthíasar í blaðinu einkenndust af þekk- ingu, mikilli yfirsýn mála og næmum skilningi á málefnum daganna – og lýstu iðulega í því sem kalla mætti samvisku land- búnaðarins og dreifðra byggða. Þar stýrði penna alvörumaður- inn og hugsuðurinn Matthías. En svo var það hin hlið Matt- híasar, hins glaðværa félaga sem kættist yfir skoplegum atvikum daganna, eiginlega í barnslegri einlægni. Hann var frábær sögu- maður, hafði næmt auga fyrir hinu spaugilega og kunni að færa það í viðeigandi búning. Í sam- ræðum og á fundum greip hann því gjarnan til vísu eða dæmi- sögu til þess að bregða léttandi og skerpandi ljósi á viðfangsefn- ið. Satt að segja vildi háttatími okkar líka stundum dragast í gagnkvæmum heimsóknum að Hólum og Hvanneyri sem höfðu kennslu og kennslubóka- eða greinarskrif að opinberu tilefni. Smitandi æskugleði Matthíasar gerði samverustundirnar bæt- andi og eftirminnilegar. Nú er þessum kafla tilveru okkar lokið. Við minnumst Matt- híasar Eggertssonar með þakk- læti fyrir gefandi samverustund- ir og með virðingu fyrir farsælt ævistarf unnið af elju og trú- mennsku og sendum Margréti, eiginkonu hans, og fjölskyldunni allri innilegar samúðarkveðjur. Bjarni Guðmundsson og Magnús Óskarsson. Kær vinur og frændi, Matt- hías Eggertsson, er látinn 80 ára að aldri. Fyrstu minningar mínar um frænda eru frá þeim árum þegar hann bjó með foreldum sínum í Eskihlíð 12 í Reykjavík. Þar kom ég með föður mínum, Ormi Ólafssyni. Allt frá æskuárum mínum og Matthíasar var mjög náið með fjölskyldum okkar, en Jóhanna, móðir Matthíasar, var móðursystir mín og mikil vinátta og náin samskipti með fjölskyld- unum Svo liðu árin við höfðum ekki mikil samskipti, Ég ólst upp í Keflavík, kom til Reykjavíkur 1962. Frændi lauk stúdentsprófi frá MR 1956. Búfræðingur frá Hólum 1958. Hann hélt utan til framhaldsnáms og útskrifaðist sem búfræðikandídat frá Norges Landsbrukshögskole að Ási í Noregi. Heimkominn var frændi skip- aður Tilraunastjóri við Tilrauna- stöðina að Skriðuklaustri í Fljótsdal 1962-71. Hann var kennari við Bændaskólann að Hólum 1971-80, Ritstjóri Búnað- arblaðsins Freys frá 1980. Lengst af starfsævi sinnar starf- aði Matthías við ýmislegt tengt landbúnaði. Fyrir um það bil fjórtán árum hringdi hann í heimasíma minn og bauð mér í heimsókn á heimili hans og konu Margrétar Guð- mundsdóttur að Hagamel 37 sem ég þáði. Við endurnýjuðum kynnin og upp frá því kom ég reglulega í heimsókn til þeirra Matthíasar og Grétu. Það var ávallt tilhlökkun að hitta þau. Frændi hafði góðan húmor sem ég kunni vel að meta. Hann sagði skemmtilega frá minnisstæðu fólki. Stundirnar á heimili þeirra hjóna eru ógleymanlegar. Við spjölluðum um margt, þjóðmálin, skáldskap, en mest um hagyrð- inga og vísnagerð. Flugfélag Íslands var á sjötta áratug tuttugustu aldarinnar að einu leyti óvenjulegur vinnustað- ur. Meðal starfsmanna voru hag- yrðingar t.d. faðir minn, Ormur Ólafsson, faðir Matthíasar, Egg- ert Loftsson, og Ulrich Richter, yfirmaður Vöruafgreiðslunnar. Faðir minn, Eggert og Ulrich voru félagar í Kvæðamanna- félaginu Iðunni. Þeir létu ekki góð tækifæri til yrkinga framhjá sér fara, svo sem árshátíðir og ýmsar uppákomur eða aðeins það að andinn kom yfir þá. Matthías kunni margar vísur sem faðir minn, Eggert Loftsson og Ulrich sömdu á þessum árum. Í heimsóknum mínum til frænda og Grétu fór hann með margar vísur – þær skiptu tugum. Mest sé ég eftir því að hafa ekki verið með upptökutæki á staðnum og tekið upp mikinn fróðleik um vís- ur og einstaka höfunda. Það hefði frændi ef til vill samþykkt ef ég hefði fært það í tal við hann. Matthías var mikill fróðleiks- brunnur um menn og málefni, listir og bókmenntir. Þegar ég kom í heimsókn var hann kenn- arinn og fyrirlesarinn, ég var nemandinn, fróðleiksfús, og lagði á minnið margt um minnisstæða menn og konur og þá ekki síður vísur og ljóð, rithöfunda og skáld. Það ert bjart yfir minningunni um Matthías Eggertsson. Hann var góður drengur og vandaður. Ég flyt ættingjum frænda, Margréti, Sigríði, Jóhanni Egg- ert, Pétri Ólafi og Guðbjörgu, systur frænda, innilegar samúð- arkveðjur. Guð blessi minningu Matthíasar Eggertssonar. Ólafur Ormsson. Kynni okkar Matthíasar Egg- ertssonar hófust um 1970 er við báðir settumst að á fornum höf- uðbólum á Norðurlandi. Hann hóf kennslu við Bændaskólann á Hólum í Hjaltadal en ég hóf gróðurrannsóknir á fyrrum amt- mannssetrinu Möðruvöllum í Hörgárdal. Við Matthías tókum strax upp samstarf í kennslu og rannsókn- um. Lögðum við út margar jarð- ræktartilraunir á bændabýlum víðs vegar um Norðurland. Var þetta gert til að rannsaka við- brögð nytjagróðurs við mismun- andi veðurfari, jarðvegi, áburði og ýmiss konar álagi. Í þessu skyni ferðuðumst við heilu sumrin aftur og fram um Norðurland og tel ég líklegt að við höfum í þessum ferðum kom- ið í hvert einasta byggðarlag og reyndar flesta bæi á Norður- landi. Við fengum mat, kaffi og gistingu á bæjunum og okkur var alls staðar vel tekið. Það var einstaklega gefandi að ferðast með Matthíasi um byggðir Norð- urlands. Hann var landsbyggða- maður, hispurslaus og fróður og fitjaði gjarna upp á áhugaverð- um málefnum í samræðum við bændurna. Fullyrða má að áburðarnotkun á grænfóður og fleiri gróðurtegundir hafi um skeið byggt á þessum dreifðu rannsóknum. Síðar flutti Matthías til höf- uðborgarinnar og gerðist rit- stjóri Freys sem þá var helsti boðberi þekkingar og fróðleiks um íslenskan landbúnað. Rit- stjórastarfið átti afar vel við Matthías, en það var talsvert fólgið í að ritstýra og lesa próf- arkir. Hann var smekkmaður á ís- lenskt mál og færði texta ann- arra oft til betri vegar. Það var greinilegt að hann naut þess að lagfæra texta, en það er oft að- alvinna ritstjóra. Þarna hafði Matthías komist í vinnu sem hentaði honum, en hann stundaði prófarkalestur langt fram yfir síðasta formlega vinnudag. Þeg- ar hann varð ritstjóri varð vinnu- staður hans í Bændahöllinni við Hagatorg og þar komst hann í afar frjótt og gefandi umhverfi sem átti vel við hann. Þessum fáu línum er ætlað að kveðja góðan vin og samstarfs- mann. Þær eru líka hugsaðar sem samúðarkveðjur til góðrar eig- inkonu og barna með þökk fyrir góð kynni og áralanga vináttu. Blessuð veri minning Matthíasar Eggertssonar. Bjarni E. Guðleifsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.