Morgunblaðið - 03.05.2017, Page 24

Morgunblaðið - 03.05.2017, Page 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2017 ✝ JónmundurFriðrik Ólafs- son fæddist 3. maí 1934 að Álfhóli á Skagaströnd. Hann lést 19. apr- íl 2017. Foreldrar hans voru Ólafur Ólafs- son frá Háagerði á Skagaströnd, f. 24. maí 1905, d. 4. ágúst 2001, og Sveinfríður Jónsdóttir, fædd 2. apríl 1898, d. 23. júlí 1967. Sveinfríður fæddist að Ási í Hegranesi, Skagafirði, en hún ólst upp á Hamri í sömu sveit. Hálfsystkini Jónmundar sammæðra voru: 1) Guð- mundur f. 27. september 1921, d. 24. desember 1998, 2) Guðrún f. 26. október 1922, d. 6. mars 2011, 3) Er- lenda f. 15. desember 1923, d. 4. október 2003. Hálfsystkini samfeðra eru: 1) Hallur, f. 3. október 1931, d. 5. desember 2008, 2) Þórey f. 3. október 1931, 3) Fríða, f. 11. janúar 1933, d. 11. júlí 2016. Al- systkini Jónmundar eru: 1) Olga, f. 29. maí 1935, 2) Eiðný Hilma, f. 5. júlí 1936, Ólafur, f. 3. nóvember 1939, og Guðríður Fjóla, f. 19. jan- úar 1941. Tvö frændsystkini, börn Guðrúnar, ólust upp með Jónmundi. Þau eru Gísli Ófeigsson, f. 13. júní 1943, og Sveinfríður Sigrún Guð- mundsdóttir, f. 16. desember 1947. Þegar Jónmundur var á öðru ári flutti hann með for- eldrum sínum og eldri systk- inum frá Álfhóli austur á Skaga. Lengst bjó fjölskyldan á Kleif en árið 1949 flutti hún að Kambakoti á Skagaströnd og hóf búskap þar. Jónmundur var einn vetur í Reykjaskóla í Hrútafirði. Einnig var hann tvo vet- ur í bændaskól- anum á Hvanneyri þaðan sem hann útskrifaðist sem bú- fræðingur. Jónmundur stund- aði sjómennsku bæði með- fram skólagöngu sinni á Hvanneyri og einnig síðar. Árið 1963 hóf hann sambúð með Sveinbjörgu Ósk Björns- dóttur. Bjuggu þau fyrstu ár- in í nágrenni Reykjavíkur en árið 1967 fluttu þau norður í Kambakot og tóku við búi þar. Börn Sveinbjargar og fyrri manns hennar, Axels Ásgeirssonar, eru: 1) Ásgeir, f. 7. maí 1942, d. 8. júní 2011, 2) Óskar, f. 15. febrúar 1943, 3) Guðríður Gígja, f. 23. októ- ber 1952. Fyrir átti Svein- björg soninn Hörð Ragn- arsson, f. 30. október 1938. Eftir að Sveinbjörg lést, 12. júlí 2001, bjó Jónmundur einn í Kambakoti í nokkur ár áður en hann seldi báðar jarðir sínar, Kambakot og Hafurs- staði, og flutti til Skaga- strandar. Jónmundur verður jarð- sunginn frá Hólaneskirkju á Skagaströnd í dag, 3. maí 2017, og hefst athöfnin klukkan 14. Öðlingnum Jónmundi Ólafs- syni, bónda í Kambakoti, kynnt- umst við bræður í kringum 1970 í sveitinni hjá systur okkar og mági norður á Árbakka á Skaga. Þar kynntumst við einn- ig Ólafi föður Jónmundar og tókum sérstöku ástfóstri við hund hans, Týra. Jónmundur var vinur vina sinna og oft kom hann á Árbakka. Hrein undrun var að fylgjast með Jónmundi vinna því dugnaður og afköst voru með eindæmum hjá þess- um sterkbyggða og samanrekna manni, römmum að afli. Í viðræðum við Jónmund kom iðulega fyrir ávarpið, „Já, elsk- an mín, einmitt, einmitt,“ alveg sama við hvern var talað, karl- mann, konu, barn eða gaml- ingja. Jónmundur var einstak- lega skemmtilegur maður og við bræður gátum fallið í stafi við að fylgjast með þessu stór- skorna andliti segja sögur. Hendurnar risu og hnigu á víxl, fingur á stærð við meðalbjúgu léku fram og til baka eins og dansmynd, dönsuðu fram og til baka svo hugur manns hvarf dá- leiddur inn í þennan fingrasal sem seiddi mann lengra og lengra. Frásagnarlistin var ein- stök og glimtið í augum Jón- mundar vakti manni sérstaka kátínu, augun skutu gneistum og smituðu frásögn hans svo við engdumst sundur og saman af hlátri er hann blimskakkaði augum sínum í sögulok. Ógleymanlegar gleðistundir. Er við bræður vorum komnir vel til manns var alltaf mikil til- hlökkun þegar við fórum í okkar árlegu haustveiðar norður, bæði á Árbakka og í Kambakot. Þá var Steinar heitinn Kristjánsson vinur okkar oftast með í för og urðu hann og Jónmundur mestu mátar. Þegar veitt var í Dyn- fjalli byrjaði og endaði veiði- ferðin iðulega í eldhúsinu í Kambakoti, kaffi og kökur hjá Boggu heitinni. Stemningin í eldhúsinu er okkur ógleymanleg Jónmundur Friðrik Ólafsson✝ Bára Bald-ursdóttir fædd- ist í Keflavík 16. september 1954. Hún lést á krabba- meinsdeild Land- spítalans 16. apríl 2017. Foreldrar henn- ar voru Baldur Sig- urbergsson, f. 31. október 1929 á Eyri við Fáskrúðsfjörð, d. 24. október 1986, og Anna Jónína Sigurrós Guðmunds- dóttir, f. 25. júní 1925 á Eydöl- um í Breiðdal, d. 10. desember 2010. Bára átti átta systkini, þau eru: 1) Kristmundur, f. 6. sept- ember 1946, d. 4. desember 1986, eiginkona hans var Guð- finna Björg Kristinsdóttir, f. 9. september 1951. 2) Sigur- bergur, f. 23. maí 1949, d. 10. október 2016, eiginkona hans var Lára Leósdóttir, f. 16. júní 1951. 3) Ómar, f. 10. desember 1950, d. 20. ágúst 1951. 4) Oddný, f. 3. nóvember 1952. 5) Ómar, f. 31. júlí 1957, eiginkona hans er Margrét H. Krist- insdóttir, f. 26. mars 1964. 6) Baldur, f. 9. mars 1961, d. 30. apríl 2000, eiginkona hans var Iða Brá Vilhjálmsdóttir, f. 4. mars 1964. 7) Ásta, f. 12. janúar 1963, eiginmaður hennar er Svanberg K. Jakobsson, f. 3. september 1949. 8) Smári, f. 3. sept- ember 1966. Þann 25. ágúst.1979 giftist Bára eftirlifandi eiginmanni sínum Stefáni E. Sigurðs- syni, f. 4. nóvember 1952 í Reykjavík. Foreldrar hans eru Sigurður Jón Stef- ánsson, f. 20. ágúst 1927, d. 6. desember 1993, og Margrét Jóna Jónasdóttir, f. 15. nóvember 1927. Dætur Báru og Stefáns eru: 1) Hanna Katrín Stefánsdóttir, f. 1. júní 1980. Dóttir hennar er Ingibjörg Bára Gunnlaugs- dóttir, f. 6. september 2009. 2) Aldís Fönn Stefánsdóttir, f. 27. nóvember 1981. Börn hennar eru Erna Kristín Jónsdóttir, f. 17. apríl 1999, og Stefán Geir Geirsson, f. 29. maí 2005. Bára ólst upp í Keflavík, þar lauk hún bæði barna- og gagn- fræðiskóla. Bára starfaði í nokkrum verslunum í gegnum tíðina, meðal annars í verslun Nonna og Bubba í Keflavík, í Bjarnabúð á Akureyri og á Markaðstorgi Kringlunnar. Seinna starfaði Bára hjá Öflun þar til hún veiktist. Útför Báru fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 3. maí 2017, klukkan 13. Elsku mamma. Þið pabbi eruð þau einu sem skilja mig og minn sjúkdóm. Þið hafið alltaf staðið þétt við bakið á mér og hjálpað mér í gegnum erf- iða tíma. Þið hafið verið ómetanleg hjálp við uppeldið á Ingu Báru, tekið hana að ykkur og alið hana upp eins og ykkar eigin dóttur. Fyrir það verð ég ævinlega þakklát. Ég á alltaf eftir að geyma allar góðu minningarnar um þig. Ég sakna þín meira en orð fá lýst, nú er stórt skarð í hjarta mínu sem enginn fær fyllt. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Sofðu rótt. Þín dóttir, Hanna Katrín. Svo margar minningar rifjast upp nú þegar ég þarf að kveðja hana Báru mína. Samgangur milli þeirra systk- ina, pabba og Báru, var alltaf mik- ill. Fjölskyldurnar hittust oft og brölluðu ýmislegt saman. Það var alltaf mikið tilhlökkunarefni að fara til Báru og Stebba eða fá þau í heimsókn. Stelpurnar þeirra tvær, Hanna og Aldís, eru litlu eldri en ég og því var mikið fjör að hittast og leika. Það var alltaf hægt að leita til Báru, hún sagði hlutina nákvæm- lega eins og hún sá þá. Hrein og bein, þú vissir alltaf hvar þú hafðir hana, það kann ég afskaplega vel að meta í fari fólks. Bára var rosa- lega sterk, stoð og stytta sinna nán- ustu. En hún átti svo sannarlega sínar mjúku hliðar, var kærleiks- rík, hjálpsöm, hlý og hláturmild. Besta lýsingin á henni kom frá Stebba, „hún var móðir margra“. Ef einhver átti erfitt hélt Bára utan um hann, bauð honum inn á heimili sitt og hjarta. Hún átti nóg pláss þar fyrir alla sem vildu og þurftu á henni að halda. Barnabörnin henn- ar hafa notið góðs af þessum eig- inleikum Báru, hún tók þau undir sinn verndarvæng og átti í þeim hvert bein. Það er ekki hægt að minnast Báru án þess að nefna hversu brjálæðislega fyndin og skemmtileg hún var. Dillandi hlát- ur hennar svo smitandi að það var ekki hægt að vera í fýlu nálægt henni. Mikið á ég eftir að sakna þess að heyra þennan hlátur. Bára og Stebbi hafa alltaf verið til staðar fyrir mig á erfiðum tím- um og samglaðst mér á góðum stundum. Fyrir aðeins hálfu ári þurfti ég að kveðja pabba hinsta sinni. Þá stóðu þau þétt við hlið okkar fjölskyldunnar og veittu okkur styrk og hlýju. Það tekur mig ólýsanlega sárt að þurfa að kveðja hana Báru mína og mér þykir leitt að geta ekki meira gert fyrir hann Stebba minn á þessum tímamótum. Við munum þó gera okkar besta til halda utan um hann, stelpurnar og barnabörnin. Ekki síst hana Ingu Báru litlu, sem á erf- iða tíma fyrir höndum, að venjast lífinu og tilverunni án ömmu. Elsku Bára, ástarþakkir fyrir allt. Þín litla frænka, Oddný. Bára Baldursdóttir „Þú getur ekkert skilað henni, ábyrgðin er löngu útrunnin,“ sagði hann glottandi, hló síðan pínulítið, snýtti sér og stakk kuðluðum vasaklútnum í vasann. Svarið kom einhvern tímann þegar ég var að kvarta yfir því að mér fynd- ist hún Helga mín vera erfið við mig inni á milli. Í kaupbæti fékk ég hins vegar bæði heimahertan harðfisk með smjörklípu, hákarl og hjartahlýju, bæði frá henni Helgu minni og líka frá ættföð- urnum og Bökku, hvort sem við vorum í heimsókn hjá þeim eða þau í heimsókn hjá okkur í útlönd- um. Í útlöndunum þar sem gamli yfirvegaði sjómaðurinn sat með bók á bekk í garðinum mínum í hvert skipti sem tækifæri gafst og sleikti sólina eins og köttur. Gamli yfirvegaði sjómaðurinn sem sagði Tindi syni mínum sögur sem hon- um fundust lyginni líkastar á Kristinn Jóhann Traustason ✝ Kristinn Jó-hann Trausta- son fæddist 14. maí 1936. Hann lést 23. apríl 2017. Útför Kristins fór fram 2. maí 2017. meðan þeir tíndu upp epli í garðinum eða röltu út í búð saman. Tindur hefur sennilega ekkert velt því fyrir sér að þessi rólegi afi Kiddi hafi einhvern tím- ann verið ungur bílatöffari, á tímum þegar það þótti ekk- ert smart að eiga amerískan kagga, bara asnalegt að eiga hann ekki. Gamli yfirvegaði sjómaðurinn, sem mokaði upp fiski úr höfninni í Ólafsfirði þegar ekki kom á krók- inn hjá öðrum og gerði svo að afl- anum í bílskúrnum, var ekki fyr- irferðarmikið samkvæmisljón eins og ég kynntist honum. Nei, hann fór hægar yfir. Hann var meira svona eins og hulduefnið í alheiminum. Eitthvað sem er og heldur öllu saman án þess að svo mikið fari fyrir því. Ættfaðir! Nú ferð þú seinasta rúntinn og þó að þú verðir ekki sýnilegur framar þá heldurðu áfram að vera hulduorkan, al- heimsfastinn sem veldur því að ættin og alheimurinn þenst áfram út. Og Kiddi, vertu bara rólegur, ég ætla ekkert að skila henni. Þormar Þorkelsson. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVEINN HEIÐAR JÓNSSON byggingameistari á Akureyri, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri sunnu- daginn 30. apríl. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 5. maí kl. 10.30. Ragnheiður Sveinsdóttir Hrafn Þórðarson Fríða Björk Sveinsdóttir Jóhann Ómarsson Lovísa Sveinsdóttir Heiðar Jónsson Erlingur Heiðar Sveinsson Rósa Björg Gísladóttir afabörn og langafabörn Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýju vegna andláts og útfarar ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, JENNÝJAR MÖRTU KJARTANSDÓTTUR, Frostafold 20. Jóhanna Þorvaldsdóttir Þorvaldur Þorvaldsson Margrét Þorvaldsdóttir Þorlákur Þorvaldsson Jónína Þorvaldsdóttir tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elsku eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, SIGMUNDAR DÝRFJÖRÐ frá Siglufirði. Starfsfólki blóðlækningadeildar 11G og dagdeildar 11B þökkum við fyrir einstaka umönnun í gegnum árin og öllum þeim sem hafa aðstoðað okkur á þessum erfiða tíma. Berglind Guðbrandsdóttir Kristín María Dýrfjörð Halldór Guðmundsson Sunna Rós Dýrfjörð Tómas Joð Þorsteinsson Ronja og Sara Þetta er gangur lífsins, en það verða viðbrigði að heyra ekki í Rafni frænda, vini mín- um, líkt og ég hef gert að minnsta kosti vikulega um langt árabil. Föðurbræður mínir, tvíburarnir Halli og Rafn, eru 11 árum eldri en ég og á ég góðar og sterkar minningar um þá á öllum skeiðum lífs míns. Tvíburana tel ég til minna bestu vina. Rafn var í aldri mitt á milli mín og foreldra minna þannig að eftir því sem árin liðu vorum við nær því jafnaldra – eða þannig Rafn Haraldsson ✝ Rafn Haralds-son fæddist 1. júní 1948. Hann lést 25. apríl 2017. Út- för Rafns fór fram 2. maí 2017. fannst mér það vera allt frá því ég komst á unglingsár. Við Rafn höfum ferðast um landið saman og var hann fróður um margt og marga. Betri ferða- félagi fæst ekki – fróðleikur í bland við óborganlega kímnigáfu. Hann fór með mér í stutta ferð, dagspart um Flóann fyrir skömmu. Þá var frændi um stund leiftrandi í frásögn sinni af staðháttum og fólkinu í sveit- inni, þetta í bland við hefð- bundnar rökræður okkar um dægurmálin. En ég skynjaði nú á þessari ferð að skammt kynni að vera eftir – þetta væri síðasta ferðin. Þessi minning, þessi síð- asta ferð, verður mér mikilvæg Haldast í hendur yfir heiðan morgun. (Stefán Hörður Grímsson) Aldrei hafði ég séð bjartari morgun, Esjan hvít frá efstu brúnum niður að sjávarmáli, um- hverfið alhvítt, hvergi sá í dökkan díl. Og „himinninn heiður og blár og hafið var skínandi bjart,“ eins og segir í kvæðinu góða. Handan Flóans glitraði Akranes í morgun- ljóma. Þar var nú kvaddur heið- ursborgari staðarins, Ríkharður Jónsson. Þessi alhvíti morgunn hæfði honum vel. Það var birta yf- ir öllum ferli hans. Hann var að Ríkharður Jónsson ✝ RíkharðurJónsson fædd- ist 12. nóvember 1929. Hann lést 14. febrúar 2017. Útför hans fór fram 27. febrúar 2017. sönnu afreksmaður í íþrótt sinni, og fram- úrskarandi í iðn sinni og atvinnu- rekstri en hann var meira; hann var ein- stakur öðlingur, hann var höfðingi í lund, víðsýnn mann- vinur og átti í brjósti sér drauminn um fagurt mannlíf, frið og jafnrétti eins og Stephan G. og Marteinn Luther King. Þó að maður hefði hvorki vit á fótbolta né fjármálum og fyrir- tækjum var maður ekki alls vesæll í hans augum. Þess naut ég og sjálfsagt margir fleiri. Ríkharður Jónsson er horfinn inn í það ljós sem er of bjart mann- legum sjónum. Um leið og ég votta niðjum hans samúð og óska þeim til hamingju með að hafa átt slíkan föður og forföður minnist ég hans með virðingu og þökk. Ólafur Haukur Árnason.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.