Morgunblaðið - 03.05.2017, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 03.05.2017, Qupperneq 25
og hefur einhvern veginn greipst inn í vitundina, minn- ingar sem vekja upp ómetanleg- an hlýleika og gleði um þau hjón. Jónmundur var einstaklega hjartahlýr, maður með barns- hjarta sem hvergi mátti aumt sjá. Hann var sífellt að hjálpa öðrum, sama hvort var við bú- skap sveitunga eða fólki í basli lífsins. Já, það voru margir sem nutu aðstoðar og liðveislu Jón- mundar og eiga þessum öðlingi margt að þakka. Í Jónmundi bjó ótrúleg orka. Hann var hægur í hreyfingum, sannur gleðimaður og gegnheill með mikla réttlæt- iskennd. Músík hafði hann gam- an af og þegar búskap lauk brá hann sér stundum suður yfir heiðar, gjarnan á Heilsustofnun í Hveragerði og naut þess að vera þar í góðri aðhlynningu. Hann hafði gaman af ferðalög- um og þótti gaman að dansa. Jónmundur lá ekki á skoðunum sínum og sagði þær iðulega beint út frá hjartanu. Að leiðarlokum viljum við bræður þakka Jónmundi fyrir allar þær gleðiríku stundir sem hann gaf okkur, bæði sem ung- lingum og fullorðnum mönnum. Kambakotsbóndinn með sinn kabbojhatt er nú kominn til sinna forfeðra. Saman með sinni kæru Boggu sýsla þau með bú- skapinn, í huganum ber hnar- reista hesta við brúnir Dyn- fjalls, kýr bíta gras í brekkufæti og í hlaðvarpanum vappa um hafur, huðna og kið. Megi minn- ing um góðan mann lifa. Oddur og Hermann Hermannssynir. Við viljum í nokkrum orðum minnast vinar okkar og félaga Jónmundar Friðriks Ólafssonar frá Kambakoti. Hann ólst upp í foreldrahúsum í hópi margra systkina og lærði snemma hve hörð lífsbaráttan getur verið. Sambýliskona Jónmundar til margra ára var Sveinbjörg Ósk Björnsdóttir, Bogga, en hún lést árið 2001. Eftir lát hennar bjó Jónmundur enn nokkur ár í Kambakoti en brá svo búi og flutti til Skagastrandar og átti þar heima til dánardags. Jónmundur var dökkur yfir- litum, meðalmaður á hæð, þétt- ur á velli og bognaði nokkuð eft- ir því sem á ævina leið, ekki síst vegna ýmissa slysa og óhappa sem hann lenti í þar sem réðu meiru kapp en forsjá. Hann hafði rödd með þeim blæ að hún skar sig úr og sköp- uðu honum þann persónuleika að eftir var tekið hvar sem hann fór. Hann var ör í lund og fljót- ráður til alls sem honum datt í hug, duglegur og framan af ævi þrekmaður til verka. Fljótræði hans varð oft til þess að hann lenti í áföllum vegna lítt ígrund- aðra ákvarðana sem voru þó af góðum hug og vilja. Jónmundur var alla tíð hjartahlýr, velviljaður og hjálp- samur öllum sem nokkurs þurftu við og vildi öllum gott gera. Í því sem öðru sást hann ekki alltaf fyrir og setti sínar eigin þarfir aftast í forgangsröð. Lík- lega hefur hann oft verið á tæp- asta vaði með eigin fjárhag vegna endalausrar hjálpsemi, jafnvel við fólk sem hann bar litlar skyldur við en hafði fundið leið að góðvild hans. Jónmundur var góður nágranni, bóngóður og hjálplegur í hvívetna og eru fáir bæir hér í sveit sem ekki hafa notið krafta hans í ein- hverri mynd. Jónmundur var harðduglegur og fylginn sér í öllum verkum og varð að vera þar sem mest á gekk og loginn brann bjartastur. Við fórum ekki varhluta af hjálpsemi Jónmundar sem reyndist okkur vel alla tíð frá því við fluttum að Árbakka árið ’71. Hann var ætíð reiðubúinn að rétta fram hjálparhönd jafn- vel þótt verkin sætu á hakanum heima fyrir. Það var líka alltaf gott koma í Kambakot til Jónmundar og Boggu og þótt sambúð þeirra væri stundum stormasöm má segja að hvorugt gat án hins verið. Það var með ólíkindum hvernig Jónmundur slapp úr öll- um þeim hremmingum sem hentu hann og mætti skrifa heilt ritverk um það sem hann lenti í. Mætti orða það svo að hann hafi marga fjöruna sopið bæði til sjávar og sveita. Jónmundur ræddi það oft að hann vildi geta horfið af sjónarsviðinu snögg- lega án þess að verða upp á aðra kominn, hvorki stofnanir né aðstandendur. Honum varð að þeirri ósk. Það er við hæfi að enda þess- ar línur með síðustu orðum sem hann sagði við mig er ég kvaddi hann í síðasta skipti sem við hittumst. Ég hafði farið til hans daginn áður en kallið kom til að bjóða honum í mat sumardaginn fyrsta. Þegar ég var að fara spurði ég hvort hann vanhagaði um eitthvað. Svarið var einfalt: „Nei, væni, ég hef allt til alls og skortir ekki neitt.“ Við vonum að hinum megin við móðuna miklu þar sem hann dvelur nú sé það sama uppi á teningunum. Kæri vinur. Nú ert þú minn- ingin ein. Far þú í friði og hafðu þökk fyrir allt og allt. Þess óska Jakob og Helga á Árbakka. HINSTA KVEÐJA Ég kveð þig nú að sinni, í kærleik ég kynntist þér. Sú minning er mér í minni, sem ávallt mun fylgja mér. Vertu kært kvaddur. Sigþór Hólm Þórarinsson. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2017 Atvinnuauglýsingar Háseti Vísir hf. óskar eftir að fastráða háseta á Sighvat Gk 57. Sighvatur er línuveiðiskip með beitningarvél Nánari upplýsingar í síma 856 5770 eða á heimasíðu Vísis www.visirhf.is. Raðauglýsingar Fundir/Mannfagnaðir Aðalfundur Farfugla Aðalfundur Bandalags íslenskra farfugla verður haldinn mánudaginn 16. maí nk. kl. 20.00 í Farfuglaheimilinu í Laugardal, Sundlaugavegi 34. Venjuleg aðalfundarstörf og lagabreytingar Stjórnin. Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9, morgunleikfimi kl. 9.45, útskurður 2 kl. 13, postulínsmálun 2 kl. 13, söngstund við píanóið kl. 13.45, bókaspjall Hrafns Jökulssonar kl. 15. Árskógar 4 Opin smíðastofa kl. 9-16. Handavinna með leiðbeinanda kl. 8.30-16.30. Stóladans með Þóreyju kl. 9.30-10.10. Opið hús, m.a. spiluð vist og brids kl. 13-16. Ljósbrotið, prjónaklúbbur með Guðnýju Ingigerði kl. 13-16. Boðinn Vatnsleikfimi kl. 9, handavinna kl. 9-15. Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16, morgunkaffi kl. 10- 10.30. Leikfimi með leikfimikennara kl. 10.30-11.20, prjónaklúbbur kl. 13-16, glerlist kl. 13-16, spiladagur, frjáls spilamennska kl. 12.30-16. Opið kaffihús kl. 14.30-15.30. Bústaðakirkja Góð samvera með hugvekju og bæn, Hólmfríður djákni sér um stundina. Sigurbjörg framreiðir kræsingar úr eldhúsinu. Spilað, spjallað og handavinna. Allir hjartanlega velkomnir. Dalbraut 18-20 Handavinnusamvera kl. 9, verslunarferð í Bónus kl. 14.40. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Bókband kl. 9-17, handavinna kl. 9-12. Ferð í Bónus kl. 12.20, myndlist kl. 13.30-16.30, dansleikur með Vita- torgsbandinu kl. 14-15, hádegisverður frá kl. 11.30-12.30 og opið kaffi- hús frá kl. 14.30-15.30. Verið öll velkomin á Vitatorg, Lindargötu 59, síminn er 411-9450. Garðabær Vatnsleikfimi kl. 12.10 / 15, kvennaleikfimi í Sjálandsskóla kl. 9.10, stólaleikfimi í Sjálandsskóla kl. 10 og kvennaleikfimi í Ásgarði kl. 11, Zumba fyrir félagsmenn FEBG í Kirkjuholi kl. 16.15. Brids í Jónshúsi kl. 13. Jónshús verður lokað vegna uppsetningar á vorsýn- ingu, því fellur niður bútasaumur og brids kl. 13 í Jónshúsi. Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl. 8.30-16, útskurður með leiðbeinanda kl. 9-12, söngstund með Kára kl. 10.30-11.30. Útskurður /pappamódel með leiðbeinanda kl. 13-16, félagsvist kl. 13-16. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.30 botsía, kl. 9.30 glerlist, kl. 13 félagsvist, kl. 13 gler- og postulínsmálun. Grensáskirkja Samvera eldri borgara kl. 14. Verið velkomin. Guðríðarkirkja Heimsókn í Árbæjarkirkju. Nú leggjum við leið okkar Árbæjarkirkju, mæting í Guðríðarkirkju kl. 11.30, þar sem við röðum okkur niður í bíla. Við tökum þátt í helgistundinni með Árbæingum, þiggjum hádegisverð og skemmtum okkur saman. Hlökkum til að sjá ykkur. Gullsmári Myndlist kl. 9, kínversk leikfimi qi gong kl. 9.30, ganga kl. 10, póstulínsmálun kl. 13, kvennabrids kl. 13, upplestur kl. 14. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, zumbadans og líkamsrækt kl. 9 með Carynu, morg- unleikfimi kl. 9.45, samverustund kl. 10. 30, lestur og spjall, matur kl. 11.30, handavinnuhópur kl. 13, línudans kl. 13.30, kaffi k. 14.30. Hæðargarður 31 Qigong kl. 6.30, við hringborðið kl. 8.50, upplestr- arhópur Soffíu kl. 9.30, stafaganga/ganga með Björgu kl. 10, línudans með Ingu kl. 10.15, framhaldssagan kl. 11, tálgun í ferskan við með Valdóri kl. 14.30, síðdegiskaffi kl. 14.30. Árgangur ´51 kl. 16.30. Allir velkomnir í Hæðargarð óháð aldri og búsetu. Nánar í síma 411-2790. Seltjarnarnes Leir Skólabraut kl. 9, botsía Gróttusal kl.10, kaffispjall í króknum kl. 10.30, kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12, handavinna Skóla- braut kl. 13, vatnsleikfimi kl. 18.30. Í tengslum við Heilsudaga 4.-6. maí bjóðum við bæjarbúum að kynna sér félags- og tómstundastarf eldri borgara. Á morgun fimmtudag eru allir velkomnir á Skóíabraut í krókinn frá kl. 10.30, jóga kl. 11, og félagsvist kl. 13.30. Stangarhylur 4 Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði, Stangarhyl 4, kl. 10. Söngvaka kl. 14, stjórnendur Sigurður Jónsson píanóleikari og Karl S. Karlsson. Allir velkomnir. Félagslíf Samkoma kl. 20 í Kristniboðs- salnum. Ræðumaður Ragnar Gunnarsson. Allir velkomnir. Minnum á aðalfundinn 10. maí. Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund sunnudag kl. 14. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Húsviðhald VIÐHALD FASTEIGNA Lítil sem stór verk Tímavinna eða tilboð ℡ 544 4444 777 3600 jaidnadarmenn.is johann@2b.is  JÁ Allir iðnaðarmenn á einum stað píparar, múrarar, smiðir, málarar, rafvirkjar þakmenn og flísarar. Viðhalds- menn Tilboð/tímavinna s. 897 3006 vidhaldsmenn.is vidhaldsmenn@gmail.com Atvinnublað alla laugardaga ER ATVINNUAUGLÝSINGIN ÞÍN Á BESTA STAÐ? Sendu pöntun á augl@mbl.is eða hafðu samband í síma 569-1100 Allar auglýsingar birtast bæði í Mogganum og ámbl.is þegar ég kveð Rafn frænda. Þetta var góð en stutt stund saman. Við höfum farið lengri ferðir. Rafn fór með mér og okkar félögum í veiðiferð árlega. Hann hafði engan áhuga á veiðinni, en mikinn áhuga á hvernig okkur hinum gengi. Þá sjaldan hann setti út færi þá veiddi hann strax. Skildi ekki yfirleguna og fyrirhöfnina en hafði gaman af félagsskapnum og sá svo um gamaldags eldamennsku sem var alltaf óviðjafnanleg. Við Rafn áttum samtöl viku- lega og stundum oftar. Þau gátu orðið í lengri kantinum. Málin voru krufin, heimsmál, pólitík, Evrópumál, trúmál, bankamál, umhverfismál. Rafn var mér oft- ast ósammála en það held ég að hafi nú um margt helgast af gagnkvæmri skemmtun okkar af rökræðunni. Einfaldlega upp- byggilegra að vera á öndverðum meiði. Skemmtilegra. Ég held að við höfum báðir lært og þroskast af þessu – að minnsta kosti hef ég gert það, alltaf á góðum nót- um og af virðingu þótt hart væri deilt á stundum. Rafn hafði líka mikinn áhuga á að fylgjast vel með frændfólki sínu á mínum væng. Forvitinn, áhugasamur, velviljaður – stundum viðkvæm- ur og oft gamansamur – þetta voru hans eðliskostir. Þau Sigurbjörg bjuggu á Bræðrabóli í Ölfusi ásamt börn- unum fjórum sem öll eru nú flutt úr föðurhúsum. Bræðraból er í alfaraleið og var þar oft og reglulega komið við enda þau hjón höfðingjar heim að sækja og alltaf fannst manni við gest- irnir svo velkomnir þótt fyrir- varinn væri oft enginn. Við erum þakklát fyrir allar góðu stund- irnar. Við Sirrý og börnin okkar vottum fjölskyldu Rafns frænda, Sibbu, börnum og barnabörnum samúð okkar. Við búum að mörgum góðum minningum. Höskuldur H. Ólafsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.