Morgunblaðið - 03.05.2017, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 03.05.2017, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2017 Sigurður Magnús Garð-arsson, prófessor ogvaradeildarforseti Um- hverfis- og byggingarverk- fræðideildar Háskóla Íslands, á 50 ára afmæli í dag. „Núna eru prófin í fullum gangi í háskólanum og ég er einmitt að fara yfir prófa- úrlausnir í námskeiðinu mínu sem fjallar um hvernig verk- fræði er beitt við vatnafræði- leg úrlausnarefni, eins og t.d. vatnsöflun og vatnsafls- virkjanir.“ Sigurður er enn fremur for- maður gæðanefndar HÍ. „Við erum búin að vera önnum kaf- in við að undirbúa sjálfsmats- vinnu háskólans en sú vinna byrjar í deildum skólans næsta haust.“ Í rannsóknunum er Sigurður að vinna, ásamt meðrannsak- endum sínum, að stóru Evrópuverkefni á sviði vatns- gæða ásamt því að leiðbeina doktors- og meistaranemum. Sigurður hljóp í Boston- maraþoninu núna um páskana. „Það var mjög skemmtilegt hlaup og mikil upplifun en ég hljóp með eiginkonunni og góðum vinum. Þetta var í fyrsta sinn sem ég tók þátt í Bostonmaraþoninu en það skapast ótrúleg stemning í borginni og það er skemmtileg hvatning í braut- inni. Þetta var mitt fimmta maraþonhlaup en hlaup eru skemmtilegt og afslappandi áhugamál í góðum félagsskap. Ég er reyndar búinn að hlaupa í mörg ár en byrjaði að hlaupa skipulega fyrir fimm árum og hleyp með hlaupahópnum Laugaskokk.“ Sigurður verður með nánustu fjölskyldu í dag en fer um næstu helgi til London í afmælisferð. „Ég fer með konunni minni og strákn- um okkar og er stefnan að sjá Arsenal-Manchester United en það verður harður slagur um meistaradeildarsæti. Ég er Manchester- maður og fylgist með boltanum með öðru auganu en þetta verður í fyrsta sinn sem ég fer á fótboltaleik í ensku deildinni.“ Eiginkona Sigurðar er Birna Pála Kristinsdóttir, framkvæmda- stjóri hjá Rio Tinto, og þau eiga soninn Garðar Andra sem er 21 árs. Í San Franscisco Sigurður á hlaupa- æfingu á Golden Gate brúnni. Fer á fótboltaleik í London um helgina Sigurður M. Garðarsson er fimmtugur í dag J ónína Kristín Kristjáns- dóttir fæddist á Ísafirði 3.5. 1922, ólst þar upp og stundaði nám við Hús- mæðraskólanum á Staðar- felli 1940-41. Jónína flutti til Reykjavíkur 1945 og vann þar við saumaskap og fram- reiðslustörf til 1954 er hún flutti til Keflavíkur. Jónína byrjaði að leika með Leik- félagi Keflavíkur 1963 og var formað- ur félagsins í nokkur ár. Í kjölfarið fór hún að afla sér þekkingar á sviði leiklistar og leikstjórnar á fjölmörg- um námskeiðum sem sótt voru á ýmsum stöðum á Norðurlöndum. Hún varð síðan leikstjóri og leik- stýrði á þriðja tug leikrita víðs vegar um landið. Jónína var formaður Bandalags ís- lenskra leikfélaga, 1972-81, sat í stjórn Norræna áhugaleikarasam- bandsins, Nordisk Amatør Teaterråd (NAR) 1974-82, tók þátt í stofnun Menningarsambands aldraðra á Norðurlöndum, Samnordisk Pension- ist Kultur, og sat í stjórn þess á árunum 1982-91. Jónína stofnaði Félag eldri borg- ara á Suðurnesjum og var fyrsti for- maður þess í fjögur ár, var gjaldkeri í stjórn Landssambands aldraðra um Jónína Kristín Kristjánsdóttir, fyrrv. leikskólastjóri – 95 ára Börn Jónínu Kristínar: Hanna Rannveig, Magnús Brimar, Hilmar Bragi, Snorri Már, Drífa Jóna og Sjöfn Eydís. Sinnti leiklist á lands- byggðinni af lífi og sál Hjónin Jónína og Sigfús Sigurður Kristjánsson yfirtollvörður sem ĺést 2012. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl. is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á „Íslendinga“ síðum Morgunblaðsins er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.