Morgunblaðið - 03.05.2017, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 03.05.2017, Blaðsíða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2017 Svokallaðir Evrópskir óperudagar eru haldnir hátíðleg- ir í maí ár hvert og kynna þá mörg óperuhús í álfunni starfsemi sína. Nú eru tíu ár frá upphafi Evrópskra óp- erudaga og jafnframt eitt ár síðan vefsjónvarpið The Opera Platform hóf útsendingar. Af því tilefni verða fjórar sérstakar útsendingar aðgengilegar á vef stöðvarinnar næstu dags, frá kvöldi 5. maí til 14. maí. Óperurnar sem boðið verður upp á eru uppfærslur á Töfraflautunni og Carmen, sem hafa verið sýndar áður, Bomarza eftir Alberto Ginastera og Ragnheiður eftir Gunnar Þórðarson, við texta Friðriks Erlingssonar, upptaka frá sýningu Íslensku óperunnar í Eldborg árið 2014. Ragnheiður var fyrst flutt í konsertuppfærslu í Skál- holti í ágúst árið 2013 en var síðan fyrsta ópera íslensks tónskálds sem færð var svið Eldborgarsalar Hörpu, af Íslensku óperunni. Hlutverk Ragnheiðar biskupsdóttur söng Þóra Einarsdóttir, Viðar Gunnarsson var Brynj- ólfur Sveinsson biskup, Elmar Gilbertsson fór með hlut- verk Daða Halldórssonar og Jóhann Smári Sævarsson séra Sigurðar. Petri Sakari stjórnaði hljómsveitinni en Stefán Baldursson var leikstjóri. Slóðin á sýningar á óperunum fjórum er www.theoperaplatform.eu/en/collection/european- opera-days Ragnheiður eftir Gunnar Þórðarson í óperusjónvarpi Morgunblaðið/Ómar Vinsæl Stefán Baldursson leikstjóri ræðir við söngvarana Elmar Gilbertsson og Þóru Einarsdóttur á æfingu á óperunni Ragnheiði. Barnamenningarhátíð lauk sl. sunnudag og hefur hún sjaldan tek- ist eins vel, að sögn skipuleggjenda en alls voru sendir 20.000 bækl- ingar til grunn- og leikskólabarna í Reykjavík með dagskrá hátíð- arinnar. 150 viðburðir voru á henni og í heildina vel sóttir, skv. skipu- leggjendum. Yfir 4.000 manns mættu á opnunarhátíðina í Hörpu 25. apríl og fjölmargir á reiðsýn- inguna Æskan og hesturinn í Víð- dal þar sem þúsund börn og ung- lingar voru með sýningu. Hátíðinni lauk í Ráðhúsi Reykjavíkur á sunnudag með dansveislu þar sem um 600 börn og fjölskyldur þeirra fögnuðu hátíðarlokum en alls mættu allt að 4.000 manns á við- burðina í ráðhúsinu um helgina. Barnamenningarhátíð var vel sótt Dansgleði Frá lokum hátíðarinnar í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þórdís Elva Þorvaldsdóttirer fyrir löngu kunn fyrirbaráttuskrif, pistla, leikritog ýmiss konar skáldskap. Árið 2009 kom út bók hennar Á mannamáli, viðamikið verk um kyn- bundið ofbeldi þar sem ótal hliðar málaflokksins voru skoðaðar; allt frá ofbeldinu sjálfu upp í réttarkerfið og þjóðfélagsumræðuna. Bókin var til- nefnd til Íslensku bókmenntaverð- launanna það ár- ið. Umfjöllunar- efni nýrrar bókar hennar, Handan fyrirgefningar, er eitthvað sem Þór- dís Elva rétt tæp- ir á í bókinni Á mannamáli þar sem hún segir frá því að henni hefði verið nauðgað. Núna stígur hún skrefið til fulls, ríflegra skref en nokkur bjóst við, með nauðgarann sjálfan sér við hlið, Tom Stranger, sem er meðhöfundur að bókinni en Þórdís Elva skrifar þó bróðurpart textans. Þau Þórdís Elva og Tom Stranger voru kærustupar þegar Stranger dvaldist sem skiptinemi á Íslandi. Þórdís Elva var 16 ára, Tom Stran- ger 18 ára. Þau höfðu farið á sak- leysisleg stefnumót, Þórdís Elva var bálskotin í ungum manni sem hún treysti. Hún kunni, eins og allar ungar konur, að það á að passa sig á dimmum skotum og ókunnugum karlmönnum. En á daginn kom, eins og í meirihluta tilfella, að það var ekki ókunnugur maður sem nauðg- aði henni heldur einstaklingur sem hún taldi sig þekkja og treysti. Á hennar heimili, í hennar eigin ung- lingaherbergi. Þegar 20 ár eru liðin frá þessum örlagaríka atburði, sem Þórdís Elva hefur alla tíð síðan verið að vinna úr, ákveða þau Stranger að hittast í Suður-Afríku. Þungt forspilið að þeim fundi er átta ára bréfaskriftir þeirra á milli, en Þórdís skrifaði hon- um fyrsta bréfið í þeim samskiptum níu árum eftir að nauðgunin átti sér stað. Stranger gekkst við því að hafa brotið á henni en það eru ákveðin takmörk á því hversu langt fólk kemst með það að gera upp kyn- ferðisofbeldi í bréfaskriftum. Úr verður því að þau hittast á vikulöng- um sáttafundi til að fara yfir atburð- inn og hvaða áhrif hann hefur haft. Handan fyrirgefningar er marg- hliða ferðasaga. Ferðasaga til Afr- íku, ferðasaga aftur í tímann, tákn- rænt ferðalag til sátta sem eru innsiglaðar í Höfðaborg. Hún er saga um orsök og afleiðingu, saga um fyrirgefninguna, leið sem Þórdís Elva valdi og hefur sums staðar ver- ið gagnrýnd. Án þess að ætla að taka afstöðu til neins í þeim efnum í bók- argagnrýni er tæplega hægt að segja þeim sem lendir í kynferðisof- beldi hver sé „rétta leiðin“ til að finna frið. Því eins og lesandi bók- arinnar mun upplifa með Þórdísi er fyrirgefningin í hennar þágu, fyrir hennar sálarheill, þar sem hún hreinsar unglingaherbergið sitt af óhugnaðinum. „Að fyrirgefa er eina leiðin fram á við,“ segir fyrrverandi samviskufangi Robben-eyju, sem var pyntaður fyrir að vera andstæð- ingur aðskilnaðarstefnunnar þegar Þórdís Elva spyr hann í heimsókn sinni á eyjuna hvort hann hafi fyr- irgefið. Fyrirfram hefði maður ætlað að lesandans biði afar erfið og tilfinn- ingalega krefjandi yfirferð á 300 síð- um. Enginn skemmtilestur og jafn- vel pínu kvíðvænlegur. Það kemur því á óvart hversu léttstígur maður fer þó í gegnum dramatíska frásögn. Þar spilar inn í forvitnileg framvinda ytri aðstæðna þeirra á ferðalaginu, ástin sem umlykur Þórdísi Elvu í hennar núverandi lífi og myndar bakgrunn nútíðarinnar og hin nátt- úrulega textasnilld Þórdísar Elvu sem birtist hvort sem hún er að segja frá hversdagsvenjum ferða- langs eða svartnætti. Og örlítill húmor á hárréttum augnablikum. Í ferðalaginu kviknar sú hugmynd að þau Þórdís Elva og Stranger verði að gera eitthvað meira með sína sögu. Í lok ferðar finna þau út að ritað orð sé þeirra farvegur og af- raksturinn er nú orðinn öllum ljós þar sem bókin kom út samtímis í fimm löndum. Ef til vill finnst einhverjum furðu- legt að segja að yfir texta Þórdísar Elvu sé ákveðinn sjarmi, þegar um- fjöllunarefnið er þesslegt, en það er engu að síður það sem texti hennar er ávallt svo ríkur af; hrífandi mynd- máli sem hún á svo auðvelt með að smeygja áreynslulaust utan um alla heimsins hluti. Skoðunarferðir á þekkta ferðamannastaði Suður- Afríku létta andrúmsloftið, líka fyrir lesandann og gefur frásögninni ákveðinn frið. Á tímum þegar það virðist stund- um vonlaust að vinna gegn kyn- ferðisofbeldi sé að skila árangri er Handan fyrirgefningar ný og bylt- ingarkennd nálgun á viðfangsefnið. Fyrirgefning Þórdís Elva Þorvaldsdóttir og Tom Stranger ákváðu í Höfðaborg að segja frá reynslu sinni í bók. Átta ára forspil að marghliða ferðalagi Ævisaga Handan fyrirgefningar bbbbn Eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur og Tom Stranger JPV, 2017. 300 bls. JÚLÍA MARGRÉT AL- EXANDERSDÓTTIR BÆKUR Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Elly (Nýja sviðið) Mið 3/5 kl. 20:00 aukas. Sun 14/5 kl. 20:00 aukas. Þri 6/6 kl. 20:00 aukas. Fim 4/5 kl. 20:00 aukas. Mið 17/5 kl. 20:00 aukas. Mið 7/6 kl. 20:00 48. sýn Fös 5/5 kl. 20:00 aukas. Fim 18/5 kl. 20:00 30. sýn Fim 8/6 kl. 20:00 49. sýn Lau 6/5 kl. 20:00 19. sýn Fös 19/5 kl. 20:00 31. sýn Fös 9/6 kl. 20:00 50. sýn Sun 7/5 kl. 20:00 20. sýn Lau 20/5 kl. 20:00 32. sýn Lau 10/6 kl. 20:00 51. sýn Mið 10/5 kl. 20:00 21. sýn Sun 21/5 kl. 20:00 33. sýn Sun 11/6 kl. 20:00 52. sýn Fim 11/5 kl. 20:00 22. sýn Fim 1/6 kl. 20:00 43. sýn Mið 14/6 kl. 20:00 53. sýn Fös 12/5 kl. 20:00 23. sýn Fös 2/6 kl. 20:00 44. sýn Fim 15/6 kl. 20:00 54. sýn Lau 13/5 kl. 13:00 aukas. Lau 3/6 kl. 20:00 45. sýn Opnar kl. 18:30, frjálst sætaval. Panta verður veitingar með dags fyrirvara. Úti að aka (Stóra svið) Fim 4/5 kl. 20:00 27. sýn Sun 7/5 kl. 20:00 29. sýn Fim 18/5 kl. 20:00 31. sýn Fös 5/5 kl. 20:00 28. sýn Fim 11/5 kl. 20:00 30. sýn Lau 20/5 kl. 20:00 32. sýn. Sprenghlægilegur farsi! Síðustu sýningar leikársins komnar í sölu. MAMMA MIA! (Stóra sviðið) Lau 6/5 kl. 20:00 166 s. Fim 25/5 kl. 20:00 174 s. Mið 7/6 kl. 20:00 182 s. Fös 12/5 kl. 20:00 167 s. Fös 26/5 kl. 20:00 175 s. Fim 8/6 kl. 20:00 183 s. Lau 13/5 kl. 13:00 168 s. Lau 27/5 kl. 20:00 176 s. Fös 9/6 kl. 20:00 184 s. Sun 14/5 kl. 20:00 169 s. Sun 28/5 kl. 20:00 177 s. Lau 10/6 kl. 20:00 185 s. Fös 19/5 kl. 20:00 170 s. Mið 31/5 kl. 20:00 178 s. Sun 11/6 kl. 20:00 186 s. Lau 20/5 kl. 13:00 171 s. Fim 1/6 kl. 20:00 179 s. Mið 14/6 kl. 20:00 187 s. Sun 21/5 kl. 20:00 172 s. Fös 2/6 kl. 20:00 180 s. Fim 15/6 kl. 20:00 188 s. Mið 24/5 kl. 20:00 173 s. Lau 3/6 kl. 20:00 181 s. Allra síðustu sýningar komnar í sölu! Blái hnötturinn (Stóra sviðið) Sun 7/5 kl. 13:00 aukas. Sun 14/5 kl. 13:00 aukas. Sun 21/5 kl. 13:00 aukas. Fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar Elly - haustið 2017 (Stóra sviðið) Fim 31/8 kl. 20:00 1. sýn Lau 2/9 kl. 20:00 3. sýn Fös 8/9 kl. 20:00 5. sýn Fös 1/9 kl. 20:00 2. sýn Fim 7/9 kl. 20:00 4. sýn Sun 10/9 kl. 20:00 6. sýn Sýningar í haust komnar í sölu. leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Fjarskaland (Stóra sviðið) Sun 7/5 kl. 13:00 Lau 13/5 kl. 13:00 Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Góa! Húsið (Stóra sviðið) Lau 6/5 kl. 19:30 Mið 17/5 kl. 19:30 Lau 27/5 kl. 19:30 Fös 12/5 kl. 19:30 Lau 20/5 kl. 19:30 Frumuppfærsla á áður ósýndu verki eins helsta leikskálds Íslendinga. Tímaþjófurinn (Kassinn) Fös 5/5 kl. 19:30 16.sýn Fös 12/5 kl. 19:30 18.sýn Fös 19/5 kl. 19:30 21.sýn Lau 6/5 kl. 19:30 17.sýn Fim 18/5 kl. 19:30 20.sýn Einstakt verk um ástina ■ um óslökkvandi þrá, höfnun og missi Maður sem heitir Ove (Kassinn) Lau 6/5 kl. 20:00 Edinborgarhúsið Ísafirði Sun 14/5 kl. 19:30 Sun 21/5 kl. 19:30 Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik! Mið-Ísland að eilífu (Þjóðleikhúskjallarinn) Fös 5/5 kl. 20:00 Lau 6/5 kl. 20:00 Fös 5/5 kl. 22:30 Lau 6/5 kl. 22:30 Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika! Álfahöllin (Stóra sviðið) Fim 4/5 kl. 19:30 7.sýn Sun 14/5 kl. 19:30 9.sýn Fös 5/5 kl. 19:30 8.sýn Fim 18/5 kl. 19:30 10.sýn Ný sýning eftir Þorleif Örn Arnarsson! Gísli á Uppsölum (Kúlan) Lau 13/5 kl. 17:00 Sun 14/5 kl. 17:00 Einstakt leikverk um einstakan mann í uppfærslu Kómedíuleikhússins. Ljósmynd/Ragnar Th. Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.