Morgunblaðið - 03.05.2017, Page 36
MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 123. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR.
1. Hinn látni var Íslendingur
2. Fannst rænulítill í búningsklefa
3. Ríkharður og Edda nýtt par
4. Lögðu milljónir inn á reikning …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tónlistarmaðurinn Bogomil Font
sendi frá sér plötuna Bananaveldið
fyrir ellefu árum og heldur upp á tíu
ára afmæli hennar, ári of seint, með
tónleikum á Kex hosteli annað kvöld
kl. 21. Á plötunni lék djasstríóið Flís,
skipað þeim Davíð Þór Jónssyni,
Helga Svavari Helgasyni og Valdimar
Kolbeini Sigurjónssyni, og leikur það
á tónleikunum ásamt Eiríki Orra
Ólafssyni trompetleikara og Róberti
Reynissyni, gítar- og úkúleleleikara.
Ár og dagur er síðan Flís hélt síðast
tónleika og má búast við miklu ca-
lypso-fjöri á Kex hosteli.
Flís snýr aftur
Sextett bassa-
leikarans og tón-
skáldsins Sigmars
Þórs Matthías-
sonar kemur fram
á tónleikum Jazz-
klúbbsins Múlans í
kvöld kl. 21 á
Björtuloftum í
Hörpu. Sigmar Þór varð þrítugur í lok
apríl og heldur af því tilefni tónleika
með dagskrá af nýjum og eldri tón-
smíðum sínum, útsettum fyrir sextett.
Sextett á Múlanum
Bandarísk heimildarmynd um
myndlistarmanninn Jóhann Eyfells,
A Force in Nature: Jóhann Eyfells,
eftir leikstjórann Hayden M. Yates,
var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni
Hill Country Film
Festival í Texas sl.
helgi og var hún
valin besta heim-
ildarmynd há-
tíðarinnar. Tökur
fóru m.a. fram hér
á landi en Jóhann
býr og starfar í
Texas.
Mynd um Jóhann
verðlaunuð í Texas
Á fimmtudag, föstudag og laugardag Hægir vindar, víða létt-
skýjað og hiti 13 til 20 stig, hlýjast inn til landsins, en sums staðar
mun svalara í þokulofti við sjávarsíðuna.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 5-13 m/s og skýjað við suður- og
vesturströndina framan af degi, en annars hægari sunnanátt og
víða léttskýjað. Hlýnandi veður og hiti að 20 stigum norðaustan til.
VEÐUR
Aðalmarkvörður Aftureld-
ingar í Mosfellsbæ í Olís-
deildinni undanfarin ár, Dav-
íð Svansson, ætlar að láta
gott heita sem leikmaður og
eyða tíma sínum í annað.
Davíð staðfesti þetta við
Morgunblaðið og ætlar að
stíga skrefið yfir í þjálfun af
meiri þunga. Davíð þjálfar
kvennalið Aftureldingar og
segist hafa meiri áhuga á
þjálfun um þessar
mundir. » 1
Davíð ekki í marki
Aftureldingar
Þór/KA er á toppi Pepsi-deildar
kvenna í knattspyrnu eftir góðan 1:0
sigur á Breiðabliki á Akureyri í gær.
Liðið hefur unnið Val og Breiðablik í
tveimur fyrstu umferðunum og gæti
ekki hafa óskað sér betri byrjunar á
mótinu. FH hafði betur gegn Fylki,
2:0, í Hafnarfirði og eru þá bæðin lið-
in komin með þrjú stig eftir tvær um-
ferðir. »2
Sigrar gegn stórliðum í
fyrstu leikjum Þórs/KA
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Ég hef aldrei lent í jafn mikilli rign-
ingu 1. maí sem nú. Búningarnir eru
úr ullarefni og regnið þyngdi þá til
muna. Við komum köld og blaut niður
á Ingólfstorg þar sem við fengum þó
húsaskjól á milli atriða. En hvað sem
veðráttu líður þá var þetta skemmti-
legt,“ segir Eggert Jónasson, félagi í
Lúðrasveit verkalýðsins.
Fer senn á flautuna
Í kröfugöngu verkalýðsfélaganna í
Reykjavík 1. maí var venju sam-
kvæmt farið frá Hlemmi niður á Ing-
ólfstorg og þar var lúðrasveitin fram-
arlega í röðinni. „Spilamennska á
þessum degi er einn af hápunktunum í
starfi okkar. Yfir árið komum við fram
um 30 sinnum og það við hin ýmsu til-
efni. Svo eru æfingar á mánudags-
kvöldum; endurnærandi stundir
þangað sem fólk mætir örþreytt en
labbar út núllstillt,“ segir Eggert sem
alla jafna leikur á flautu með lúðra-
sveitinni. Er hins vegar 1. varamaður í
slagverksdeild og í göngunni á mánu-
daginn sló hann saman simbölum sem
á góðu máli heita málmgjöll.
„Þetta eru heljarmiklir og þungir
hlemmar og það getur verið þreytandi
að halda á þeim og slá rétta taktinn.
Einhverjum finnast gjöllin kannski
líta út eins og lok á stórum sláturpotti,
en það var nú ekki svo að ég hlypi
beint úr eldhúsinu með þessi stykki,“
segir Eggert sem verður á slagverk-
inu næstu vikur en færir sig svo yfir á
flautuna sem er hans aðalhljóðfæri.
Fyrir margt löngu kom minn-
ingargrein í Morgunblaðinu
hvar sagði að það væri
„löngu vitað mál
að bestu og
skemmtilegustu
vinina eignast
maður í lúðra-
sveitum“, eins
og komist var að
orði. „Ég hef heyrt um þessa grein og
er sammála; ég á marga frábæra vini
í gegnum tónlistina og þennan frá-
bæra félagsskap sem ég hef tilheyrt
síðan 1976,“ segir Eggert sem var
formaður Lúðrasveitar verkalýðsins í
sex ár og varð heiðursfélagi fyrir
þremur árum.
Nýir á klarínett og flautu
„Þátttakan í lúðrasveitastarfinu er
góð og við fáum alltaf reglulega inn
nýtt fólk. Það er til dæmis algengt að
krakkar félaga í sveitinni komi til
okkar þegar þau hafa náð aldri og eru
komin áleiðis í tónlistarnámi. Í skól-
um hafa til dæmis tréblásturs-
hljóðfæri, klarínett og flauta, haldið
sínu,“ segir Eggert sem til viðbótar
hefur lengi verið viðloðandi Lúðra-
sveit Vestmannaeyja og tekið þátt í
hennar starfi.
Málmgjöll eru miklir hlemmar
Eggert í 41 ár
með Lúðrasveit
verkalýðsins
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Taktur Eggert Jónasson með simbalana, sem svo eru nefndir, en með þeim gaf hann taktinn fyrir lúðraspilið mikla.
Á hverjum tíma eru félagar í
Lúðrasveit verkalýðsins oft í kring-
um 40 til 50. Hópurinn er vel skip-
aður og stjórnandinn Kári Hún-
fjörð Einarsson hefur
lag á að ná því besta
frá hverjum og einum.
Verkefni sveitarinnar
eru mörg hefðbundin,
svo sem spilamennska á
hátíðisdögum – t.d. Nall-
inn 1. maí og Öxar við
ána á 17. júní. Svo eru
alltaf ýmsar uppá-
komur fyrir jól og að vori eru tón-
leikar með afrakstri vetrarstarfs-
ins.
„Ekki er langt síðan við héldum
tónleika þar sem músík kvik-
myndatónskáldsins Johns Willams
var í aðalhlutverki og svo tókum
við lög hins ameríska Leroy And-
erson ekki alls fyrir löngu. Þá unn-
um við plötu með hljómsveitinni
200 þúsund naglbítum fyrir nokkr-
um árum og í raun og veru er alltaf
eitthvað skemmtilegt að detta inn
hjá okkur,“ segir Eggert Jónasson.
Spila Nallann og Öxar við ána
FJÖLBREYTT VERKEFNI OG VEL SKIPAÐUR HÓPUR
Lúðradís Blásið
alveg í botn.
Landsliðsmaðurinn Aron Pálmarsson
segist ekki hafa náð sér fullkomlega
af nárameiðslunum sem héldu hon-
um frá HM í Frakklandi í janúar en
lýsir þeim sem óþægindum
eins og staðan sé í
dag. Hann segist í
fínu formi að öðru
leyti og er þess full-
viss að fá sig
endanlega
góðan af
meiðslunum í
sumarfríinu.
»1
Aron allur að koma til
eftir nárameiðslin