Morgunblaðið - 16.05.2017, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.05.2017, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2017 Síðumúla 21, Selmúlamegin, sími 533 6040, www.stimplar.is Áratuga reynslaÖrugg þjónusta Mikið úrval af hurða- og póstkassaskiltum, barmmerkjum og hlutamerkjum og fleira Stimplar eru okkar fag það eru skiltin líka Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is G. Jökull Gíslason, rannsóknarlög- reglumaður hjá lögreglunni á höf- uðborgarsvæðinu segir að tölvuveir- an WannaCry, sem herjað hefur á heiminn síðan á föstudag sé „ágætis áminning“ til stjórnvalda og almenn- ings um að huga vandlega að tölvu- öryggismálum. Ekki sé hins vegar ástæða til uppnáms. Veiran ræðst á Microsoft Wind- ows-stýrikerfið og árásin er af áður óþekktri stærðargráðu, að sögn evr- ópsku lögreglunnar Europol. Veiran dreifist með vefveiðiárásar-tölvu- pósti (e. phishing) en notar einnig forritið EternalBlue sem þróað var af bandarísku öryggisstofnuninni (NSA), en var lekið þaðan til óprútt- inna aðila, til að dreifa í gegnum tölvur sem ekki hafa uppsettar nýj- ustu MS Windows-öryggisupp- færslur, eins og þá sem var gefin út af Microsoft hinn 14. mars sl. Microsoft hefur í framhaldinu tek- ið það óvenjulega skref að gefa út öryggisuppfærslu fyrir eldri stýri- kerfi. Töluvert hægði á árásinni eftir að grúskari kom auga á innbyggðan slökkvara í veirunni og upplýsti um það en nú þegar hefur fundist ný út- gáfa af veirunni þar sem slökkvarinn hefur verið fjarlægður. Stöðugt þarf að uppfæra varnir Besta vörnin gegn veirum og tölvuárásum er að uppfæra stöðugt stýrikerfi, eldveggi, veiruvarnir og tölvupóstkerfin með öryggisupp- færslum, segir G. Jökull, og að auki sé ráðlagt að opna aldrei vinabeiðnir eða tölvupósta frá torkennilegum aðilum, fylgiskjöl, keyra forrit eða smella á hlekki. Hann skrifaði fróð- lega grein sem birtist í Lögreglu- blaðinu í desember 2016, en þar er m.a. að finna upplýsingar um helstu netglæpi. Í tilfelli WannaCry-veir- unnar virðist vera nauðsynlegt að slökkva á svokölluðum SMB-sam- skiptum, en sýktar tölvur smita aðr- ar með þeim. Íslensk fyrirtæki virðast vera með uppfærð stýrikerfi, en aðeins 5 til- kynningar til athugunar hafa borist netöryggissveit Póst- og fjarskipta- stofnunar (PFS), CERT-ÍS, frá því á föstudag. G. Jökull segir að best sé að afrita öll verðmæt gögn, oft og á fleiri en einn stað. Mörg fyrirtæki geri það reglulega, en almenningi er ráðlagt að eiga utanáliggjandi tölvu- minni til að afrita gögnin sín reglu- lega á. Varast þarf að hafa það í sambandi við tölvuna nema rétt á meðan afritun á sér stað. Telji fólk sig hafa orðið fyrir tölvuárás eða -sýkingu er þeim bent á að taka tölv- una strax úr netsambandi og hafa samband við CERT-ÍS. Þá er fólki eindregið ráðlagt að greiða ekki lausnargjald fyrir gögn í gíslingu, þó svo að ekki sé um mikla peninga að ræða, m.a. þar sem að það sé engin trygging fyrir því að gögnin verði „leyst úr haldi“. G. Jökull kveðst bjartsýnn á að tölvuþrjótarnir finnist þar sem að NSA sé á höttunum eftir þeim sem lak EternalBlue frá stofnuninni og vegna þess að lausnargjaldið sé í netgjaldmiðlinum bitcoin, en færslur með honum eru öllum opnar og gagnsæjar. Greiðslunum sé beint að 3 bitcoin-hólfum og eru þau nú í vöktun. Upplýsingar um varnir og viðbrögð við árásinni er að finna á vef PFS og CERT-ÍS, www.pfs.is. Morgunblaðið/Ófeigur Öryggi Öryggisuppfærslur tölvukerfa Íslendinga virðast hafa sloppið þokkalega við vírusinn enn sem komið er. Áminning til stjórn- valda og almennings  Nokkrar tilkynningar um hugsanlegt tölvuveirusmit Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Þeir sjúklingar sem velja að fara í aðgerðir erlendis frekar en hér heima ákveða sjálfir hvaða sjúkra- stofnun þeir fara á með því skilyrði Sjúkratrygginga Íslands að um við- urkennda stofnun sé að ræða og meðferðin sem sótt er um sé með- ferð sem almannatryggingar í því landi sem um ræðir greiði fyrir. Þeir fimm einstaklingar sem fóru í liðskiptiaðgerðir í Svíþjóð í síðustu viku, samkvæmt biðtímaákvæðinu, fóru allir til einkareknu klíníkur- innar Capio Movement í Halmstad. Í samningi Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) við sjúklingana kemur fram að greiðsluþátttakan sé samþykkt með þeim fyrirvara að meðferðin fari þar fram. „Þetta tiltekna sjúkrahús er einkarekið en það er með samning við ríkið um slíkar meðferðir. Þar af leiðandi fellur það undir ákvæðið,“ segir Halla Björk Erlendsdóttir, deildarstjóri alþjóðadeildar Sjúkra- trygginga Íslands. Halla segir að oftast séu það læknarnir sem aðstoði sjúklingana við að finna viðeigandi sjúkrastofn- anir erlendis eða einstaklingarnir sjálfir skoði möguleika sína ef þeir hafa hug á að fara út í aðgerð. „Við erum til aðstoðar og höfum skoðað að hafa einhverja valmöguleika fyrir fólk ef það hefur ekki hugmynd um hvert það á að leita, en eins og stað- an er í dag beinum við fólki ekki á einhverja ákveðna spítala.“ 1,3 m.kr. fyrir mjaðmarlið Fimmmenningarnir sem fóru til Svíþjóðar óskuðu fyrst eftir sam- þykki Sjúkratrygginga Íslands fyrir greiðsluþátttöku í meðferð á Klíník- inni í Ármúla og höfðu Capio Move- ment til vara. Ekki er samningur til staðar milli ríkisins og Klíníkurinnar svo sjúklingarnir fóru til Svíþjóðar, en Hjálmar Þorsteinsson, bæklunar- skurðlæknir hjá Klíníkinni, starfar líka hjá Capio Movement og gerði aðgerðirnar á einstaklingunum þar. Mjaðmarliðsskipti kosta 1.158.462 kr. hjá Klíníkinni, samkvæmt verðskrá á heimasíðunni, þar segir ennfremur að Klíníkin fylgi verðskrá Landspítalans með 5% af- slætti. Hjá Capio Movement kosta mjaðmarliðsskipti um 1,3 m.kr. m.v fimm legudaga en á Íslandi eru legu- dagar einn til tveir. Velji sjúklingur að fara í mjaðmarliðsskipti hjá Klíníkinni greiðir hann fyrir aðgerðina að fullu sjálfur en ef hann fer til Capio Move- ment í Svíþjóð greiða Sjúkratrygg- ingar Íslands fyrir alla læknis- meðferð, ferðakostnað og uppihald og fyrir fylgdarmanneskju ef þarf. Halla segir að SÍ hafi ekki enn borist reikningar vegna aðgerðanna fimm í Svíþjóð, sem voru þrjár mjaðmaraðgerðir og tvær á hné. En samkvæmt áætlun sem SÍ barst áð- ur en hópurinn fór út kosta hver mjaðmarliðsskipti 1,3 milljónir króna og þá er miðað við aðgerð með fimm legudögum. Ofan á þessa upp- hæð bætist svo ferðakostnaður og uppihald í Svíþjóð. Margar milljónir fyrir mjaðmarliði  Sjúklingurinn velur sjúkrahúsið sjálfur samkvæmt skilyrðum Morgunblaðið/Ásdís Skurðaðgerð Hægt er að fara í að- gerðir út ef biðin er löng hér heima. Netöryggissveitin CERT-ÍS, var stofnuð með lögum árið 2012 og er í nánu samstarfi við netöryggissveitirnar á Norðurlöndunum. Talsvert samstarf er innan EES á sviði netöryggismála, en Ísland á aðild að ENISA (Euro- pean Union Agency for Network and Information Security). Til stendur að efla samstarf CERT-ÍS og lögreglunnar, ásamt því að bæta löggjöf á sviði net- og upplýsingaöryggis. Þegar er hafinn undirbúningur við inn- leiðingu á Evróputilskipun 2016/1148 um net- og upplýsingaöryggi (e. Network and Information Security Directive (NIS)), skv. innanríkisráðu- neytinu. NIS-tilskipunin krefst þess t.d. að aðilar sem sjá um mikilvæga innviði eða nauðsynlegra þjónustu grípi til tiltekinna ráðstafana. Fyrir- hugað er að fara í verulegt fræðsluátak, m.a. í tengslum við fyrirhugaða innleiðingu NIS-tilskipunarinnar. Nánar á www.ut.is. Áhersla á alþjóðlegt samstarf ÖRT VAXANDI NETGLÆPIR KALLA Á ÁÆTLUN STJÓRNVALDA Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Bryndís Haraldsdóttir, formaður skipulagsnefndar Mosfellsbæjar, telur ólíklegt að bæjarstjórn Mos- fellsbæjar fallist á umsókn eigenda Krónunnar um að deiliskipulagi verði breytt í Háholti 13-15, þar sem Krónan rekur verslun sína, en fyr- irtækið vill setja upp sjálfsaf- greiðslustöðvar fyrir bensín, olíu og rafmagn á lóð sinni. Morgunblaðið greindi frá því þann 10. desember 2015 að Festi, móður- félag Krónunnar, hefði sótt um leyfi til þess að reisa og reka slíka stöð við verslun sína á Granda í Reykjavík en borgaryfirvöld synjuðu erindinu. Skipulagsnefnd fundaði um erindi Krónunnar sl. föstudag, en upphaf- lega var málið tekið fyrir í nefndinni þann 27. febrúar sl. og síðan hefur umsagna heilbrigðisfulltrúa og Sam- keppniseftirlits verið leitað. Umsögn heilbrigðisfulltrúa sveitarfélagsins var neikvæð. „Við erum ekki búin að afgreiða málið formlega, en á fundi okkar á föstudag lá fyrir umsögn Samkeppn- iseftirlitsins, sem var á þá leið að það telur að skipulagshömlur sveitarfé- laga hamli mjög samkeppni á þess- um markaði og mælir í raun gegn því að skipulagsyfirvöld setji slíkar hömlur. Samkeppniseftirlitið talar fyrir því í umsögn sinni að hið op- inbera megi ekki hamla samkeppni,“ sagði Bryndís. Hún sagði að þrátt fyrir jákvæða umsögn Samkeppnis- eftirlitsins í garð þess að slík stöð væri heimiluð á lóð Krónunnar, þá væru mjög skiptar skoðanir um mál- ið innan bæjarstjórnar, bæði innan meirihlutans og minnihlutans. „Þetta mál hefur verið til umfjöll- unar hjá okkur í svolítinn tíma og það gætir efasemda innan beggja fylkinga í bæjarstjórn. Eins og stað- an er í dag finnst mér mjög ólíklegt að við í skipulagsnefnd Mosfellsbæj- ar og bæjarstjórnin í heild afgreið- um málið með jákvæðum hætti og því efast ég um að það sé meirihluti fyrir því í bæjarstjórninni að heimila byggingu og rekstur slíkrar stöðv- ar,“ sagði Bryndís. Litlar líkur á samþykki  Krónan vill reisa bensín-, olíu- og rafmagnshleðslustöð á lóð sinni í Mosfellsbæ  Umsögn Samkeppniseftirlits jákvæð Fimmta umferð Íslandsmótsins í skák fór fram í Hafnarfirði í gær- kvöldi. Héðinn Steingrímsson (2.562) er sem fyrr efstur á mótinu en hann hefur 4½ vinning. Hann vann Dag Ragnarsson (2.320) í vel tefldri skák í gær. Guðmundur Kjartansson (2.437) fylgir stórmeistaranum eins og skugginn en hann lagði stórmeist- arann Hannes Hlífar Stefánsson að velli. Guðmundur fórnaði biskupi, sem Hannes mátti ekki taka, og hafði nokkuð öruggan sigur í framhald- inu, segir í frétt frá Skáksamband- inu. Björn Þorfinnsson (2.407), sem byrjaði illa á mótinu, er nú orðinn þriðji með 3½ eftir þrjá sigra í röð. Héðinn efstur á Íslandsmótinu í skák

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.