Morgunblaðið - 16.05.2017, Blaðsíða 30
AFP
Tæknistjóri Philby Lewis, tæknistjóri óperuhússins í Sydney, staddur í
vélarherbergi þar sem öllum tæknibúnaði Joan Sutherland-salarins er stýrt.
Endurbætur á óperuhúsinu í Sydn-
ey í Ástralíu hefjast síðar í vik-
unni. Frá þessu greinir Politiken ,
en óperuhúsið sem byggt var árið
1973 teiknaði danski arkitektinn
Jørn Utzon.
Markmið endurbótanna er m.a.
að bæta hljóðvist aðalsalarins sem
nefndur er eftir Joan Sutherland.
Í frétt Politiken kemur fram að
Utzon hafi á sínum tíma ekki gef-
ist færi á að klára innra byrði
hússins, sem síðar rataði á lista
Unesco yfir menningarverðmæti
veraldar. Ástæðan var sú að
byggingarframkvæmdir töfðust og
þegar ný ríkisstjórn tók við lá
mönnum á að koma verkefninu
hratt í höfn og þá var arkitekt-
inum ýtt til hliðar. Samkvæmt
frétt Politiken hefur með aðstoð
tölvuhermis verið staðfest að
hljóðvistin hefði verið framúrskar-
andi hefði Utzon fengið að ráða,
en í staðinn sátu menn uppi með
mun lakari hljóðvist.
Áætlaður framkvæmdatími er
sjö mánuðir og ráðgert er að verk-
ið kosti 273 milljónir ástralskra
dala sem samsvarar rúmum 21
milljarði íslenskra króna, en taka á
allan tæknibúnað aðalsalarins í
gegn. Hinir fimm salir óperuhúss-
ins verða opnir meðan á fram-
kvæmdum stendur. Alls heimsækja
átta milljónir manns húsið á ári
hverju og hálf önnur milljón áhorf-
enda sér sýningar hússins árlega.
Endurbætur að hefjast
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2017
Tíska &
förðun
Fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 2. júní
Fjallað verður um sumartískuna 2017
í fatnaði, förðun og snyrtingu auk
umhirðu húðarinnar, dekur og fleira
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til kl. 16 mánudaginn 29. maí
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
SÉRBLAÐ
Umfangsmesta myndlistarhátíð
heims, Feneyjatvíæringurinn, hófst
í síðustu viku og á laugardaginn,
13. maí, voru aðalverðlaun tvíær-
ingsins, Gullbjörninn, veitt. Þau
hlaut þýski skálinn sem hýsir verk
Anne Imhof og nefnist það „Faust“.
Verkið þykir einkar ögrandi og
óhugnanlegt en í því fremja leik-
arar gjörning undir glergólfi.
Verðlaunin voru veitt við hátíð-
lega athöfn og vekur athygli að að-
eins sex ár eru liðin frá því Þjóð-
verjar hlutu verðlaunin síðast og
því aðeins einn tvíæringur milli
verðlauna. Í það sinn var það verk
Christoph Schlingensi sem hlaut
verðlaunin en listamaðurinn lést
áður en tvíæringurinn hófst.
„Faust“ er fimm klukkustunda
langur gjörningur og leikur tónlist
mikilvægt hlutverk í honum. Verk-
ið hefur notið mikillar athygli og
aðsóknar og hafa langar biðraðir
myndast við þýska skálann allt frá
opnun hátíðarinnar, að því er fram
kemur á vefnum Artnews. Sýning
Egils Sæbjörnssonar, fulltrúa Ís-
lands, hefur einnig vakið athygli og
nefnir blaðamaður Guardian m.a.
að hún létti aðeins þann alvarleika
sem einkenni hátíðina í ár.
AFP
Áhugavert Leikarar fremja gjörning undir glergólfi í verkinu „Faust“.
„Faust“ hlaut Gull-
björninn í Feneyjum
Stjórnendur
kvikmyndahátíð-
arinnar í Cannes
hafa ákveðið að
setja Netflix stól-
inn fyrir dyrnar.
Áður höfðu
stjórnendur sam-
þykkt að kvik-
myndir frá
streymiþjónust-
unni mættu
keppa um gullpálmann þrátt fyrir
að hafa ekki verið sýndar í kvik-
myndahúsum. Franskir kvikmynda-
húsaeigendur brugðust ókvæða við
og í framhaldinu ákváðu stjórn-
endur Cannes að frá og með 2018
væri skilyrði fyrir keppnisþátttöku
að myndir væru sýndar í frönskum
kvikmyndahúsum.
Samkvæmt frönskum lögum má
ekki streyma kvikmyndum á netinu
fyrr en þremur árum eftir að þær
fara í almenna sýningu í kvikmynda-
húsum. Stjórnendur Netflix vilja
geta sett myndir á netið á sama tíma
og þær eru sýndar í kvikmynda-
húsum.
Kvikmyndahátíðin í Cannes hefst
á morgun. Formaður dómnefndar í
ár er Pedro Almodóvar.
Pedro Almodóvar
Setja Netflix stólinn fyrir dyrnar
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Við verðum með frumsamda efnis-
skrá, enda svoleiðis hljómsveit,“
segir Jóel Pálsson, saxófónleikari
hljómsveitarinnar Anness sem leik-
ur á djasskvöldi Kex hostels í kvöld
kl. 20.30, en að vanda er aðgangur
ókeypis.
Auk Jóels skipa Annes þeir Ari
Bragi Kárason á trompet, Eyþór
Gunnarsson á hljómborð, Guð-
mundur Pétursson á gítar og Einar
Scheving á trommur.
„Við munum leika eitthvað eftir
alla meðlimi. Um er að ræða ný eða
nýleg lög sem við höfum tekið upp
á plötu sem væntanleg er í haust,“
segir Jóel, en um er að ræða aðra
plötu sveitarinnar sem starfað hef-
ur saman sl. fjögur ár.
„Eini galli þessarar hljómsveitar
er að meðlimir eru svo fáránlega
uppteknir að það líður oft ansi
langt á milli æfinga og tónleika.
Það algjör hending að allir eru á
landinu á sama tíma og því gripum
við tækifærið og skelltum í eina
óformlega tónleika. Það er alltaf
rosalega gaman þegar við hittumst
og spilum saman,“ segir Jóel og
bendir á að allir hljómsveitar-
meðlimir vinni að sólóverkefnum
samhliða spilamennsku með Annes.
Kemur stundum í bakið á mér
„Eiginlega má segja að Annes sé
bílskúrsband, enda æfum við í bíl-
skúrnum hans Eyþórs. Við komum
að starfinu á jafningjagrundvelli,
því það er enginn einn sem leiðir
starfið eins og oft vill vera þegar
maður er að vinna með sína eigin
músík og fær aðra til að spila með
sér heldur erum við allir saman í
þessu,“ segir Jóel og viðurkennir
fúslega að það flæki stundum málið
þar sem allir í hópnum séu vanir að
stjórna sínum eigin verkefnum.
Þannig séu í reynd fimm leiðtogar í
hópnum. Spurður hvernig hljóm-
sveitin vinni tónlistina segir Jóel að
hver og einn komi með sitt lag og
síðan skapi hópurinn útsetninguna í
sameiningu. „Það er dimmt yfir
lögunum mínum,“ segir Jóel og tek-
ur fram að annars sé breiddin í tón-
list Anness mikil. „Það sem límir
þetta allt saman er hljóðfæraskip-
anin og mannskapurinn. Þessir spil-
arar eru allir sjóaðir og hver maður
með nokkuð þroskaðan hljóm á sitt
hljóðfæri eftir áralangt starf, sem
er auðþekkjanlegur,“ segir Jóel
sem sjálfur semur sína músík yf-
irleitt á píanó. „Það kemur stund-
um í bakið á mér þegar ég ætla að
fara að spila laglínuna á blást-
urhljóðfærin,“ segir Jóel kíminn.
Að lokum er ekki úr vegi að for-
vitnast um nafngift sveitarinnar.
„Annes er vindasamur útnári. Okk-
ur fannst nafnið lýsandi fyrir það
sem við erum að gera á jaðrinum.“
„Fáránlega uppteknir“
Annes leikur á djasskvöldi Kex hostels í kvöld kl. 20.30
Á efnisskránni eru lög af væntanlegri plötu sveitarinnar
Ljósmynd/Spessi
Jaðar „Annes er vindasamur útnári. Okkur fannst nafnið lýsandi fyrir það sem við erum að gera á jaðrinum,“ segir
Jóel Pálsson, saxófón- og bassaklarínettuleikari hljómsveitarinnar Anness sem kemur fram á Kex hosteli í kvöld.