Morgunblaðið - 16.05.2017, Side 12
Hildur Loftsdóttir
hildurl@mbl.is
Kári Björn Þorleifsson er aðklára þriðja árið af fjór-um í BFA námi í ljós-myndun í hinum virta
Parsons School of Design í New
York borg. Hann lærði fyrst til mat-
reiðslumanns, en byrjaði að taka
myndir af alvöru
þegar hann fylgdi
eiginkonu sinni
Kolbrúnu Ýri Ro-
landsdóttur til
Nýja-Sjálands,
þar sem hún var
skiptinemi.
„Ég sótti um
atvinnuleyfi en
það urðu mistök í
umsókninni og ég
fékk ekki leyfið
og hafði því töluvert mikinn frítíma.
Þá kom myndavélin sem við höfðum
keypt okkur nokkru áður að mjög
góðum notum,“ segir Kári Björn
sem komst inn í skólann með fortíð-
artengdu verkefni sem var að mestu
leyti tekið í Hólavallakirkjugarði í
Reykjavík. „Það fjallaði um elítisma
og fjarlægð frægra manna sem
liggja í þessum kirkjugarði,“ út-
skýrir Kári Björn.
Vill segja sögur af fólki
„Þegar ég var í Kvennaskól-
anum var alltaf stefnan hjá mér að
verða blaðamaður og ritstýrði ég
m.a. skólablaðinu. Hér í New York
er svo mikið af fólki að maður kemst
ekki hjá því að fá áhuga á fólki og
sögum þess og þannig hefur bland-
ast saman áhugi minn á ljósmyndun
og áhuginn á að segja sögur af fólki.
Ég myndi segja að þetta væri heim-
ildaljósmyndun í eins víðum skiln-
ingi og hægt er. Sannleiksgildi ljós-
mynda er ofarlega í öllu sem ég geri,
að ljósmyndin geti aldrei verið hinn
alheilagi sannleikur og að ljósmynd-
arinn varpi alltaf fram sinni hlið með
vali á myndefni, búnaði og eftir-
vinnslu. Ég tek hluti úr umhverfinu
hér í New York og varpa þeim fram
eins og ég sé þá. Fréttaljósmyndun
er hlutlausari og tengist við núið, en
ég vil vinna með fortíðina, nútíðina
og framtíðina, eins og í verkefninu
mínu með Otis Johnson.“
„Ég tók valáfanga fyrir tveimur
árum þar sem átti að fjalla um Rik-
ers Island fangelsið, en kennarinn
minn hafði sjálfur setið þar inni fyrir
fíkniefnbrot fyrir allmörgum árum
síðan,“ segir Kári Björn.
„Það eru 2,3 milljónir manna
sem sitja á bakvið lás og slá, en það
eina sem er rætt er um eru stífari
refsingar og öruggari fangelsi, og í
rauninni eyða fylkin litlum pen-
ingum í að hjálpa föngum að halda
sig á beinu brautinni. Það er talið að
um 40% þeirra í Harlem sem setið
hafa inni muni enda aftur á bak við
lás og slá innan þriggja ára. Það
fannst mér áhugavert og hafði sam-
band við stofnunina Exodus í Aust-
ur-Harlem, sem sérhæfir sig í að
laga fyrrverandi fanga að samfélag-
inu, t.d. með kennslu í nútímatækni
og samskiptahæfileikum við vinnu-
veitendur og eftirmeðferðaraðila.“
Þar hitti Kári Björn Otis John-
son sem sat í fangelsi í tæp 40 ár fyr-
ir brot sem hann hefur aldrei játað á
sig. Kári Björn hefur unnið með hon-
um vídeó- og ljósmyndaverkefni um
líf hans, og heldur einnig utan um
söfnun fyrir Otis á söfnunarsíðunni
gofundme.com.
Handtekinn út af útlitinu
„Nýlega voru einmitt 42 ár liðin
frá því að Otis var handtekinn hér í
Harlem, þann 5. maí 1975. Hann var
grunaður um manndrápstilraun á
tveimur lögreglumönnum, en sá
glæpur var framinn í nokkurra
gatna fjarlægð. Einhver hringdi í
911 og sagði að það væri maður í
ljósum jakka í anddyrinu að selja eit-
urlyf, mögulega vopnaður. Tveir lög-
reglumenn mættu á staðinn, sáu
manneskju í hvítum jakka flýja, þeir
elta en maðurinn skýtur aðra lögg-
una í magann og rétt framhjá höfði
hinnar. Hálftíma seinna er Otis
staddur á þessu horni að ræða við
foreldra um stofnun sjálfsvarn-
arskóla fyrir krakka í hverfinu, og
var í æfingagalla og ljósum leð-
urjakka utanyfir. Hann var handtek-
inn bara vegna útlitsins; svartur
maður í ljósum jakka. Hvorki lög-
maðurinn sem honum var skipaður
né saksóknarinn höfðu uppi á mann-
eskjunni sem hringdi, og það var
þaggað niður í unglingsstrák sem
steig fram sem vitni með góða sönn-
Stóra myndin í ljósmyndum
Ljósmyndaneminn Kári Björn Þorleifsson vinnur að ljósmyndabók um fyrrveandi fangann Otis Johnson. Í sameiningu varpa
þeir félagarnir ljósi á þá gífurlegu fordóma og ósanngjarna réttarkerfi sem viðgengst í Bandaríkjunum.
Fangi Otis Johnson í hinu alræmda
Sing Sing fangelsi.
Otis Við störf fyrir NAACP í Green
Haven State fangelsinu.
Sögur af fólki F.v. Útsýnið úr glugganum í karateskóla í Bronx þar sem Otis kenndi um hríð, upphitunaræfingar i garðinum á köldum marsmorgni, heimilislaus maður í Harlem.
Kári Björn
Þorleifsson
Kári Björn hefur unnð vídeó- og ljósmyndaverkefni með Otis Johnson, sem sat í fangelsi í tæp 40 ár fyrir brot sem hann hefur aldrei játað á sig
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2017
lÍs en ku
ALPARNIR
s
alparnir.is
LAGERSALA
ÁRMÚLA 40 | SÍMI 534 2727
P
P
Góð gæði
Betra verð
50%
afsláttur
af völdum
vörum
Líf margra kvenna í Mið-Austur-
löndum hefur breyst á undanförnum
árum og fjöldi kvenna berst fyrir aukn-
um réttindum. Staða þessara kvenna
er til umfjöllunar í bókinni Framúr-
skarandi dætur sem nýlega kom út hjá
Sölku. Í tilefni af útgáfu bókarinnar
verður málþing um stöðu kvenna í
Mið-Austurlöndum kl. 12 - 13. 15 í dag,
þriðjudag 16. maí í Veröld, húsi Vigdís-
ar.
Frummælendur eru Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, Guðrún Margrét Guð-
mundsdóttir og Þórir Jónsson Hraun-
dal en þau hafa öll yfirgripsmikla
þekkingu á málefnum Mið-Austur-
landa.
Framúrskarandi dætur gefur innsýn
í daglegt líf á miklum umbreytinga-
tímum þegar ný kynslóð sjálfstæðra
ungra kvenna sækir menntun og vill
láta til sín taka á vinnumarkaðinum.
Skrásetjari bókarinnar er blaðakonan
Katherine Zoepf sem hefur búið og
starfað í Mið-Austurlöndum í meira en
áratug. Hún dvelur í Sýrlandi fyrir
borgarastyrjöldina og lýsir þjóðfélagi
á tímamótum, í Líbanon, sem á yfir-
borðinu er frjálslyndara en jafnframt
mótsagnakenndara, en önnur ríki Mið-
Austurlanda, Abú Dabí þar sem konur
eru í síauknum mæli á frjálsum vinnu-
markaði, í Sádi-Arabíu þar sem konur
hafa mótmælt akstursbanninu og
storkað forræði karla og loks í Egypta-
landi þar sem konur gegndu veiga-
miklu hlutverki í uppreisninni og arab-
íska vorinu.
Aðgangur er ókeypis og allir eru vel-
komnir en Salka og Mið-Austur-
landafræði við HÍ standa fyrir mál-
þinginu.
Málþing í Veröld, húsi Vigdísar í dag
Framúrskarandi dætur – Staða
ungra kvenna í Mið-Austurlöndum
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Guðrún Margrét
Guðmundsdóttir
Þórir Jónsson
Hraundal