Morgunblaðið - 16.05.2017, Side 13
Í lest Otis í lestinni til Harlem eftir
fund með félagsráðgjafa.
un á því að Otis væri saklaus. Otis er
með mikið af skjölunum úr málinu
sínu og sönnunargögnin gegn honum
eru bæði fá og léleg. Ég hef farið í
gegnum þau nokkrum sinnum og í
raun skipti engu máli hvað Otis hafði
að segja. Hann átti aldrei séns.“
Bjó hjá munkum í 11 ár
„Otis sat inni í tæp 40 ár og hann
kom að ýmsum góðgerðarmálum
innan þeirra tólf fangelsa sem hann
sat í. Hann stofnaði hugleiðslu-
samtök, jók á samskipti milli fanga
og var ritari réttindafélags svartra
(NAACP). Hann stofnaði sitt eigið
góðgerðarfélag árið 1993 sem opnaði
skýli fyrir heimilislausa í Queens
1996 og rak það úr fangelsinu þangað
til að fangelsismálastjórinn skipaði
honum að hætta starfseminni, en Ot-
is vinnur nú hörðum höndum að því
að enduropna það.
Otis er einstaklega góður mað-
ur og vill alltaf hjálpa öðrum. Þegar
hann var 14 ára, var hann ítrekað að
lenda í slagsmálum, því hann varði
oft fórnarlömb eineltis og lenti
gjarnan í slagsmálum við gerendur
fyrir vikið. Þá sendi pabbi hans hann
til Hong Kong til að búa með munk-
um og læra hugleiðslu og sjálfsvörn,
en pabbi hans hafði verið á herstöð í
Hong Kong í Kóreustríðinu. Þar bjó
Otis í 11 ár. Hann hataði fyrsta árið,
en um leið og hann skildi tilgang
hugleiðslu og Kung Fu, varð hann
fastur í þessum
heimi. Hann vakn-
ar á hverjum degi
og byrjar á að fara
út í garð að hugleiða
og æfa.“
Er að opna skýli
fyrir heimilis-
lausa
„Söfnunin sem
við erum með í gangi
á gofundme.com var í
upphafi fyrir stúdíó-
íbúð í eitt ár handa
Otis, en mánuði eftir
að við hófum söfnina
fékk hann íbúð í
skýli fyrir fyrrver-
andi fanga og því
hefur peningurinn
sem safnast, farið í
að kaupa húsgögn
handa honum og ísskáp sem hann
hefur ekki átt í mörg ár. Við höfum
líka keypt skrifstofubúnað því hann
ætlar að reka góðgerðarsamtökin sín
þaðan. Hann hefur mikinn áhuga á
heimilislausa fólkinu í hverfinu sínu,
Harlem, og stefnir að því að hjálpa
því sem mest. Sérstaklega fólki sem
er aldrað, með geðsjúkdóma eða að
flýja ofbeldissambönd. Hann er að
einbeita sér að því að opna skýlið
núna og um leið er hann að vinna í að
fá sínu eigin máli áfrýjað, en það
skiptir hann minna máli en skýlið.
Það segir rosalega mikið um hvernig
manneskja hann er að það skipti
hann minna máli að fá uppreisn æru
en að hjálpa öðru fólki. Hann tekur
alltaf aðra fram yfir sjálfan sig sem
er bæði kostur og galli. Í erfiðum að-
stæðum getur það orðið til þess að
traðkað er á honum.
Gefandi og erfitt verkefni
„Verkefnið mitt um Otis er í
raun þríþætt: það er mitt sjónarhorn
á Otis og hans sögu, svo er dagbókin
sem hann ritar, með hans eigin ljós-
myndum, og þriðja hliðin er svo
hvernig þessar tvær sögur tengjast
stóru myndinni, bæði í sögulegu
samhengi og nútíðinni, sem eru þess-
ir gífurlegu fordómar og einstaklega
ósanngjarna réttarkerfi sem við-
gengst hérna í Bandaríkjunum.
Þetta er mjög gefandi verkefni,
en það er oft mjög erfitt líka, sér-
staklega þegar Otis fær bakslög í
sinni baráttu. Reyndar trúi ég því að
það sé svo með alla listræna sköpun
að maður þurfi alltaf að taka sér frí
inn á milli. Í fyrra fór ég t.d. til Ís-
lands í nokkra mánuði. Það setur
mann í annað umhverfi og maður
nær að hugsa hreinna og beinna um
þetta,“ segir Kári Björn sem hefur
unnið að verkefninu núna í tvö ár, en
lokaútkoman verður bók um Otis.
– Hvert stefnir þú svo að námi
loknu?
„Það lítur í sannleika sagt ekki
út fyrir að við verðum á Íslandi í
framtíðinni. Mér finnst markaðurinn
heima fyrir ljósmyndara ekki mjög
stór. Hér í New York eru mjög mörg
tækifæri og skólinn minn er bein-
tengdur inn í stærsta og breiðasta
ljósmyndabransann í Bandaríkj-
unum og mögulega heiminum. Við
Kolbrún Ýrr ætlum alla vega að gefa
því tvö ár og sjá hvað gerist.“
F.v. Otis notar tímann til að fara yfir málið sitt, miðjumyndin er frá moskunni sem Otis sækir, en t.h. er mynd sem Kári Björn tók af manni sem reynir að komast hjá handtöku á Manhattan.
1978 Fyrsta
og eina af-
mæliskortið
sem Otis hef-
ur fengið var
frá vini hans
árið 1978.
karibjorn.com
www.gofundme.com/otis-
johnsons-home-fund
@karibjtho
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2017
Hringbraut-Fjölmiðlar ehf. | Eiðistorgi 17 | 170 Seltjarnarnesi | www.hringbraut.is | Sími +354 561 3100
Missið ekki af áhugaverðum þætti um starfsemi
og þjónustu ÖBÍ og viðtali við formann og
framkvæmdastjóra auk forsvarsmannamálefnahópa
Hringbraut næst á rásum
7 (Síminn) og 25 (Vodafone)
ATVINNULÍFIÐ ÁdagskráHringbrautar
í kvöld kl. 20.00
í þættinum Atvinnulífið - fyrri hluti
sem er á dagskrá Hringbrautar kl. 20.00 í kvöld
• Stærstu heildarsamtök
fatlaðs fólks, öryrkja,
langveikra og aðstandenda
á Íslandi
• 41 aðildarfélag - um 30
þúsund félagsmenn
• Tekjur til fjölbreyttrar
starfsemi koma frá
Íslenskri getspá
• Ýmsir málefnahópar
um helstu baráttumál
Heimsókn til
Öryrkjabandalags Íslands