Morgunblaðið - 16.05.2017, Page 19
19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2017
Reynt að hemja þann rauða Heldur var vindasamt í Færeyjum þegar forseti Íslands lenti þar í heimsókn sinni, vindurinn reif duglega í rauða dregilinn sem breiða átti út fyrir Guðna.
Sverri Egholm
Hvar varst þú í síðustu viku þeg-
ar Ferðafélag Íslands kallaði sam-
an fólk á öllum aldri til að ganga á
fjöll í nánd höfuðborgarinnar
klukkan sex að morgni? Ég brölti á
fætur og var kominn tvo morgna á
vettvang með víkingum, annars
vegar til að ganga á Haukadals-
fjöllin í Mosfellsdalnum og hins
vegar á Úlfarsfell. Rokið og rign-
ingin fyrri daginn var yndisleg
þegar skrokkurinn tók að hitna
undan erfiði göngunnar upp að
Tröllafossi, þá skynjaði maður að
veður er gott alla daga, bara klæða
sig og fara út, ekki væla fyrir innan
rúðuna og telja sér trú um að best
sé að breiða upp fyrir haus.
„Vilji er allt sem þarf,“ sagði
skáldið og í útiverunni er fólginn
lækningamáttur og lífsþrótturinn
magnast. Það er bæði hestinum og
hundinum þínum mikilvægt að
svitna ganga og hlaupa. Þetta á
líka við um mannskepnuna og ekki
síst hana, sem hefur oft tamið sér
óhóf í mat og drykk og er í eðli sínu
værukær. Það segir mér Kári Stefánsson að sextugur eigi að
vera jafn sterkur eða sterk og þegar hann eða hún var tvítug.
Ferðafélag Íslands er í raun lýðheilsufélag sem stefnir fólki
til fjalla að sækja hreysti sína og njóta í leiðinni fegurðar
landsins. Hversu mikla peninga væri hægt að spara í heil-
brigðiskerfinu ef læknarnar vísuðu mörgum þeim sem stefna
lífi sínu á háskabraut með mataræði og hreyfingarleysi fram
hjá apótekunum, út í náttúruna og í þjálfun hjá íþróttakenn-
urunum okkar, inn í heilsuræktarstöðvarnar, í sundlaugarnar,
í útivistina? Tak sæng þína og gakk, sagði frelsarinn forðum,
þetta er enn að gerast. Reynir Traustason lýsir því í bók sinni
Fólk á fjöllum hvernig hann bjargaði sjálfum sér frá bráðum
bana með göngu á fjöll og firnindi, að hann og læknarnir hans
segja. Við öll getum tekið upp nýjan lífsstíl og það er prýðilegt
félagslegt verkefni, fjölskyldu, vina og vinnufélaga, þetta get-
ur verið hópstarf ef vill og þannig er það náttúrlega skemmti-
legast. En fyrir alla muni „bættu lífi við árin og árum við lífið,“
með því að skora sjálfan þig á hólm og hefja göngur í náttúru
Íslands. Það er aldrei of seint að byrja, löng ferð hefst nefni-
lega á einu skrefi. Takirðu skrefið á gönguleiðirnar eða til
fjalla eignastu marga hamingjudaga. Góða ferð.
Eftir Guðna Ágústsson
» „Bættu lífi
við árin og
árum við lífið“
með því að
skora sjálfan
þig á hólm og
hefja göngur í
náttúru Íslands.
Guðni Ágústsson
Höfundur er fv. ráðherra.
Morgungöngur
við fyrsta hanagal
Aðsókn að fjölsóttum ferða-
mannastöðum hérlendis hefur
margfaldast að undanförnu í
samræmi við stóraukinn
straum erlendra ferðamanna
til landsins. Um langt skeið
höfum við vanrækt að vinna
að úrbótum með framsýnu
skipulagi og dreifingu ferða-
manna um landið. Á meðan
fjöldi ferðmanna sem sótti
okkur heim var nálægt einni
milljón á ári voru aðstæður þegar orðnar
óviðunandi víðast hvar, hvað þá nú þegar
sú tala hefur tvöfaldast. Loksins sér þess
merki að stjórnvöld, Alþingi, ríki og sveit-
arfélög, séu að átta sig á í hvert óefni er
komið, m.a. með lagabótum og auknum
fjárveitingum til aðgerða á ferða-
mannastöðum. En þá kemur í ljós að und-
irbúningur aðgerða tekur tíma og mestu
máli skiptir að vanda skipulag sem taki
mið af náttúruvernd og breytilegum að-
stæðum litið til langs tíma.
Breytingar á einum mannsaldri
Í árdaga skemmtiferða á síðustu öld
höfðu menn ekki áhyggjur af örtröð,
hvorki af fólki, hestum eða ökutækjum.
Það þótti sjálfsagt að koma sér fyrir við
bestu aðstæður sem næst stöðum og nátt-
úrufyrirbærum með aðdráttarafl. Skálar
voru byggðir fast við Geysi og Gullfoss og
sæluhús á hálendinu, í vinjum á Hveravöll-
um, í Landmannalaugum og Herðubreið-
arlindum svo dæmi séu nefnd. Á Þingvöll-
um gátu menn valið að tjalda nánast þar
sem hugurinn girntist og tjaldvagnar þjón-
uðu sem sumarbústaðir frá vori til hausts á
Efri-Völlum. Hér sem annars staðar
breytti bílaeign almennings þessum að-
stæðum, slóðir opnuðust inn í óbyggðir og
brátt fór að þrengjast um á áningarstöðum
um hásumarið. Þetta þekkja allir sem náð
hafa miðjum aldri. – Í Bandaríkjunum
gekk þessi þróun yfir upp úr miðri 20. öld
og þar brugðust stjórnvöld við á verndar-
svæðum með því að draga úr gistiþjónustu
sem byggð hafði verið upp
innan þeirra og reisa
skorður við bílaumferð að
eftirsóttum náttúrufyrir-
bærum. Ég átti kost á að
kynnast þessum breyttu
viðhorfum vestanhafs um
1970 og dró af þeim álykt-
anir um æskilegt skipulag.
Þingvellir og Skaftafell
Þjóðgarðurinn á Þing-
völlum var stofnaður 1928
sem „friðlýstur helgistaður
allra Íslendinga“ eins og
kveðið er á um í lögum. Ekkert skipulag
gilti um hann fyrstu 60 árin og á því skeiði
voru gerð margvísleg mistök sem enn
minna á sig. Framkvæmdir þar tengdust
að öðru leyti aðallega stórhátíðum, m.a.
1930 og 1974, en ferðamennska fór troðnar
slóðir með Valhöll sem helsta kennileiti. Í
fyrstu skipulagssamkeppni um staðinn
1972 lögðum við nokkrir til að færa þunga-
miðju aðkomu að Þingvöllum vestur fyrir
Almannagjá nálægt Hakinu. Sú stefna var
loks staðfest í fyrsta skipulagi þjóðgarðs-
ins 1988. Þótti mörgum það goðgá og enn í
dag heyrast hugmyndir um að reisa ætti
stórhýsi niðri á Völlunum. – Fyrsti þjóð-
garður samkvæmt náttúruverndarlögum
var stofnaður í Skaftafelli 1967 og þar voru
megindrættir í skipulagi umferðar
ákveðnir í aðdraganda akvegar og brúa-
gerð á Skeiðarársandi 1974. Eftir umræðu
í Náttúruverndarráði varð sammæli um að
byggja þjónustumiðstöð með tjaldsvæði
undir Austurbrekkum og að öðru leyti
væri umferð aðeins ætluð göngufólki.
Svipuð viðhorf réðu ákvörðun ráðsins um
þjónustuhús og tjaldsvæði í Jökulsárgljú-
frum við útenda Ásbyrgis.
Dæmi af misjöfnum toga
Umræðan um breytt viðhorf vegna vax-
andi umferðarþunga og fjölgunar ferða-
fólks hefur því miður ekki skilað sér sem
skyldi í tillögugerð og ákvörðunum um
skipulag á ýmsum eftirsóttum ferða-
mannastöðum. Á Hveravöllum voru þau
mistök gerð fyrir um 20 árum að end-
urnýja þjónustuaðstöðu með gistingu í
næsta nágrenni við hverasvæðið og auka
með því álag á náttúru staðarins, auk
mengunar af bílageri. Slíka aðstöðu hefði
átt að byggja upp nokkru austar skammt
frá Kjalvegi og koma þar upp þjónustu af
ýmsu tagi. Nýlegt skipulag við Skógafoss
endurspeglar á sama hátt skammsýni og
fastheldni við úrelt viðhorf, þar sem ferða-
mannaaðstaða er sett niður alltof nærri
fossinum þótt nægt landrými sé fjær, t.d.
niðri við þjóðveg. Í svipað sýnist mér
stefna við Seljalandsfoss og Gljúfrabúa
með tilheyrandi sjónmengun og álagi sem
fylgir þjónustumiðstöð hið næsta foss-
unum. Lykillinn að því að draga úr álagi er
að hafa slíka þjónustu og bílastæði fjær og
láta ferðamenn hafa fyrir að ganga þaðan
að því náttúrufyrirbæri sem mest aðdrátt-
arafl hefur. Þaðan má síðan skipuleggja
almenningssamgöngur, m.a. fyrir fatlaða.
– Miklu skiptir að menn læri af mistökum
úr fortíðinni og sem betur fer er víða verið
að fóta sig í skipulagi ferðamannastaða.
Þannig virðist mér nýtt skipulag í Land-
mannalaugum stefna í rétta átt og við
Dettifoss hafa menn verið að þræða ásætt-
anlegan meðalveg um aðkomu.
Hálendi og útnes í sérstöðu
Hér hefur sjónum verið beint að stöðum
í alfaraleið þangað sem hindrunarlítið
verður komist á ökutækjum. Stór hluti há-
lendis og útnes með ströndum fram eru
hins vegar utan við seilingu bifreiða nema
kannski á snjó. Kosti slíkra aðstæðna þarf
að varðveita og einnig í þeim efnum reynir
á framsýnt skipulag.
Eftir Hjörleif
Guttormsson » Lykillinn að því að
draga úr álagi er að
hafa þjónustu og bílastæði
fjær og láta menn hafa
fyrir að ganga að náttúru-
fyrirbæri sem aðdráttarafl
hefur.
Hjörleifur Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.
Skipulag ferðamannastaða
og náttúruvernd